Frjáls verslun - 01.11.2000, Side 48
Frá því í ágúst hafa fimm lielstu
sælkeratímarit hér í Bandaríkjunum sent
blaðamenn til íslands til að fjalla um
íslenskan mat og menningu og hefur
ákaflega jákvæð umfjöllun hlotist af.
„65% bandarískra feröamanna koma til Islands utan hins heföbundna feröamannatíma,"segir Einar Gustavsson.
íslands. Við höfum því mörg sóknartækifæri. En það skiptir
miklu máli hvernig Flugleiðum reiðir af hér á þessum kröfu-
harða markaði."
- Hvar eru helstu sóknartækifærin?
„Hin hreina og ósnortna náttúra er vitaskuld mjög mikilvæg,"
segir Einar. „En það er margt annað sem vekur áhuga Banda-
ríkjamanna á Islandi. I því sambandi vildi ég neiha langlííi ís-
lensku þjóðarinnar. Heilsutengd ferðaþjónusta hefur ótrúlega
mikla möguleika í Bandaríkjunum. Margir hafa heyrt getið um
Bláa lónið og Heilsuborgin Reykjavík er spennandi verkefni og
kærkomin nýjung sem veitir mikla möguleika og er án efa eitt
það athyglisverðasta sem komið hefur fram hvað varðar kynn-
ingu á Reykjavík. Menningin og menningartengd ferðamennska
er í stöðugri sókn. Þá eru íslensku veitingahúsin einnig í stöðugri
sókn; góður og ferskur matur, unninn úr ómenguðu hráefni, vek-
ur áhuga fólks í Bandaríkjunum, það er stöðutákn að vera sæl-
keri og það er „inni“, eins og sagt er. En umfram allt verður mat-
urinn að vera góður og ég verð að segja það eins og er að matur-
inn á íslenskum veitingahúsum er hreint út sagt írábær. Islensk-
ur matur er þegar farinn að vekja athygli hér, frá þvi í ágúst hafa
fimm helstu sælkeratímarit hér í Bandaríkjunum sent blaðamenn
til Islands til að Qalla um íslenskan
mat og menningu og eingöngu
ákaflega jákvæð umQöllun hlotist
af.“
Á forsíðu New York Times Það eru
ekki margir íslendingar sem nefnd-
ir hafa verið á forsíðu hins virta dag-
blaðs New York Times. Fyrir
nokkrum vikum birtist frétt og við-
tal við Einar Gustavsson í blaðinu,
hvert var tilefnið?
„Eg er stjórnarformaður Europe-
an Travel Commission sem eru sam-
tök Evrópskra ferðamálaráða í
Bandaríkjunum. Að þessum samtök-
um eiga 30 Evrópuþjóðir aðild. Sam-
tökin reka skrifstofu í Brussel með
fjögurra manna starfsliði og einnig
hér í New York, en á henni starfa 10
manns. Greinin í New York Times var
um starfsemi samtakanna og aukin
ferðalög Bandaríkjamanna til Evrópu. Helstu verkefrii Europe-
an Travel Commission eru markaðs- og kynningarmál hér í
Bandaríkjunum en til þeirra verkefna verja samtökin hundruð-
um milljóna króna árlega." Þá er Einar Gustavsson Forstjóri
fyrirtækisins Scandinavian Tourism Inc. í Bandaríkjunum sem
er fyrirtæki í eigu allra Norðurlandanna fimm og er Einar í for-
svari og um leið ábyrgur fyrir allri sameiginlegri markaðssetn-
ingu Norðurlandanna á Bandaríkjamarkaði. Einar er verkeíhis-
stjóri (Project Director) fyrir „Iceland Naturally" sem er lang-
tímaverkefni um kynningu á Islandi í Bandaríkjunum sem ís-
lenska ríkið og nokkur íslensk fyrirtæki standa að. Einar
Gustavsson er í þriggja manna framkvæmdastjórn íslensk-am-
eríska verslunarráðsins. „Vinnudagurinn er langur," segir Ein-
ar, „en starfið er skemmtilegt, ég er í miklu og góðu sambandi
við fólk í ferðageiranum á Islandi. Þá er það nú einu sinni svo
að mikill tfmi fer i að rækta persónuleg sambönd við mikilvæga
aðila í ferðaiðnaðinum hér vestanhafs og í fjiilmiðlaheiminum.
Eg er búinn að starfa lengi hér í Bandaríkjunum og hef því
kynnst mörgu fólki í greininni, þekki mjög marga og margir
þekkja mig - þessi sambönd eru ómetanleg."
- En hefúr Einar einhver önnur áhugamál utan
vinnunnar?
„Veiðar af ýmsu tagi eru mitt aðaláhugamál;
fluguveiðar, sjóstangaveiðar og skotveiði. Þá er
mér hrein nauðsyn að skreppa til Islands öðru
hvoru, auðvitað til að veiða en ekki síst til að
hitta fólkið, gamla og góða vini. Þá á ég bæði
við fólk og fagra staði, fjöll og fossa, ef svo má
að orði komast Eg er einkar hrifinn af ís-
lenskum heimilismafr plokkíiski, gellum, salt-
fiski og kjöt og kjötsúpu a la mamma." í maí
s.l. birtist forsíðumynd af Einari ásamt löngu
viðtali í Travel Agent Magazine, sem er
helsta fagrit bandaríska ferðaiðnaðarins, en
um 250.000 manns lesa blaðið. Travel Agent
Magazine velur árlega mann ársins í banda-
rískum ferðaiðnaði. Um það leyti sem Frjáls
verslun var að fara í prentun var tilkynnt að
Einar Gustavsson hefði verið tilnefndur af
tímaritínu sem einn af mönnum ársins fyr-
ir störf sín að ferðaiðnaði og fyrir nýja
stefnumörkun og nýsköpun European
Travel Commission í Bandaríkjunum. [ffl
bandarískum ferðaiðnaði.
48