Helgarpósturinn - 06.02.1995, Side 4
5
MORGUNPOSTURINN FRETTIR
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
Fjarðarheiðin ófær
Björgunarbíll-
inn valtvið
björgun og lok-
aði veginum
Mjög vont veður var á Fjarðar-
heiðinni í gærdag en henni var
haldið opinni vegna sjúkraflutn-
inga. Bílstjórar notfærðu sér það og
keyrðu heiðina en upp úr hádegi
fóru bílar að festa sig enda komið
kolvitlaust veður. Björgunarbíll frá
björgunarsveitinni Isólfi á Seyðis-
firði fór á heiðina til að hjálpa öku-
mönnum en ekki vildi betur til en
svo að bíllinn valt á hliðina og lok-
aði veginum algjörlega. Það var um
tugur bíla sem festist á heiðinni og
það var ekki fyrr en um kvöldmat-
arleytið sem allir bílar komust af
heiðinni. Björgunarsveitarbíll frá
Egilsstöðum var sendur á heiðina
til þess að losa kollega sína frá Seyð-
isfirði. ■
Snjósleðaslys á
Akureyri
14ára,
réttindalaus,
ótryggður
og
Fjórtán ára piltur var fluttur á
slysadeild eftir snjósleðaslys um
hálftvöleytið á Akureyri í gærdag.
Pilturinn var að keyra í snjókófi
þegar hann flaug fram af hengju og
lenti illa. Strákurinn var réttinda-
laus, sleðinn óskráður og ótryggður
en hann var að keyra á sleðanum
við Réttarhvamm, rétt ofan við bæ-
inn. Meiðsl hans voru ekki talin al-
varleg.B
Ísaíjörður
Tveir fullir
í steininn
Nokkur ölvun var á ísafirði að-
faranótt sunnudagsins. Lögreglan
þurfti að hafa lítil afskipti af fólki
en þó urðu tveir að eyða nóttunni í
fangageymslum. Þeim var sleppt
eftir að hafa sofið úr sér vímuna. ■
Vestmannaeyjar
Aflog og fýlleri
Mikil ölvun var í Vestmannaeyj-
um á föstudagskvöldið og létu
menn ófriðlega. Lögreglan þurfti að
hafa afskipti af áflogum víða í bæn-
um en enginn gisti þó fangageymsl-
ur. Einn maður slasaðist nokkuð og
þurfti að leita á sjúkrahúsið eftir
áflog en ekki er ljóst hver átti upp-
tökin og hvort kæra verður lögð
fram í málinu. ■
Súðavík
Sumarbústaðir
reistir til bráðabi
Súðvíkingar héldu borgarafund á neinar upplýsingar og nú fyrst get- i ...—.57-7-^- - ——
Súðvíkingar héldu borgarafund á
ísafirði í gær og þar kynnti Jón
Gauti Jónsson nýskipaður sveit-
arstjóri helstu aðgerðir sem verið er
að vinna að í sambandi við endur-
reisn byggðarinnar. I dag verður
byrjað að leita að bráðabirgðahús-
næði fyrir þá íbúa Súðavíkur sem
misstu húsin sín í snjóflóðinu 16.
janúar síðastliðinn og þá sem eiga
óíbúðarhæf hús í bænum. Bæjarfé-
lagið hyggst verða sér úti um sum-
arbústaði og reisa þá rétt utan við
fyrirhugað byggingarsvæði á eyr-
inni innan við bæinn en engin
hætta er af snjóflóðum á því svæði.
„Við kynntum þá tímaáætlun
sem við höfum sett okkur varðandi
framkvæmdirnar,“ sagði Jón Gauti
Jónsson í samtali við MORGUN-
PÓSTINN í gær, „og við ætlum að
ljúka vinnu við deiliskipulag þann-
ig að við getum hafið framkvæmdir
á svæðinu 1. maí.“
Mikill hugur er í Súðvíkingum
að komast aftur í varanlegt hús-
næði en ekki er enn ljóst hvað mörg
fórnarlömb snjóflóðsins hyggja á
brottflutninga. Jón segist þó reikna
með að þorri Súðvíkinga flytjist aft-
ur í bæinn. „Fólk þarf að melta
þessar nýju uppiýsingar. Til
skamms tíma hefur það ekki haft
neinar upplýsingar og nú fyrst get-
ur það farið að taka afstöðu til þess
hvað það gerir,“ segir hann. „Við
reyndum að útskýra sem best fyrir
fólki hvað er á döfinni og ég held að
flestir hafi fengið svör við þeim
spurningum sem þeir komu með á
fundinn.“
Gömul og ný timburhús sem
standa á hættusvæðunum verða
flutt inn á nýja byggingarsvæðið en
þar er að auki nóg pláss fýrir fjölda
nýbygginga.
Starfsmaður stjórnar söfnunar-
innar, Samhugur í verki, verður
með aðsetur á hreppsskrifstofunni
frá og með deginum í dag en sam-
tals söfnuðust um 240 milljónir
króna fyrir utan framlög sem eiga
eftir að skila sér með gíróseðlum.
Jón segir að það sé nánast sama
hvar hann bregði niður fæti fyrir
hönd sveitarfélagsins, móttökurnar
séu mjög einlægar og allir sýni vilja
til að greiða götu Súðvíkinga eftir
fremstu getu,
Börn frá Súðavík sækja enn skóla
á Isafirði vegna húsnæðisleysis
heima fyrir en vinnsla er hafin í
frystihúsínu á staðnum og bátar og
togari Súðvíkinga farnir til veiða.
lae
Þrátt fyrir hina miklu eyðileggingu í Súðavík eru heimamenn farnir að horfa fram á veginn og í gær kynnti
sveitarstjórinn fyrirhugaðar framkvæmdir til endurreisnar byggðinni.
Sérframboð Eggerts Haukdal
Suðuriandslistinn klár
hjá Eqqerti Haukdal
Sigurður Ingi Ingólfsson í öðru sæti.
„Auðvitað er ég ánægður með
listann, menn væru ekki í þessu
nema þeir væru að leita að góðri
niðurstöðu," segir Eggert Hauk-
dal alþingismaður um sérframboð
sitt í Suðurlandskjördæmi. Hann
segir að formlega séð sé listinn ekki
tilbúinn en hann verði tilkynntur á
allra næstu dögum. Hann vildi ekki
íjalla um einstök nöfn á listanum
en sagði að það væri mikilvægt að á
listanum væru menn úr byggðar-
laginu og aðilar sem kæmu heint úr
atvinnulífinu.
Samkvæmt öruggum heimildum
MORGUNPÓSTSINS leiðir Eggert
Haukdal listann og í öðru sæti
verður Sigurður Ingi Ingólfsson,
útgerðarmaður og netagerðarmað-
ur í Vestmannaeyjum, í öðru sæti. í
þriðja og fimmta sæti listans ætlar
Eggert hins vegar að tefla fram
konu. Orðrómur hefur verið uppi
um að Davíð Oddsson hefði boðið
Eggert velkominn í þingflokk Sjálf-
stæðisflokksins ef hann næði kjöri
en Eggert fullyrti að ekkert slíkt
hefði verið rætt við sig.
-Pj
Eggert Haukdal „Auðvitað er
ég ánægður með listann,
menn væru ekki í þessu nema
þeir væru að leita að góðri
niðurstöðu."
Össur ráðskast með listann á Suðurlandi M Kratar vilja engar myndir í myrkri MÞrjú systkini í West Side Story ■ Fyrrum yfirmenn fíknó vilja
í efnahagsbrotin MSkiptar skoðanir um breytingar innan Þjóðminjasafnsins
J. að gekk ekki átakalaust hjá Al-
þýðuflokknum að koma saman
framboðslista i Suðurlandskjör-
dæmi. Nú er það frágengið að Lúð
vIk Bergvinsson, lögfræðingur í
umhverfisráðuneytinu, leiðir list-
ann, Hrafn Jökulsson, ritstjóri
Alþýðublaðsins, verður í
öðru sæti og Tryggvi
Skialdarson, bóndi í
Þykkvabænum, verður í
þriðja sæti. Guðfaðir list-
ans og sá sem réði honum
að langmcstu leyti er öss-
ur Skarphédinsson um-
hverfisráðherra. Hann
fékk starfsmann sinn til
þess að leiða listann, gegn
vilja hans í fyrstu, og setja
það sem skilyrði að fóst-
bróðir sinn Hrafn yrði í
öðru
sæti. Annar ungur
krati, Bolli Val-
GARÐSSON, var full-
trúi Árborgarbúa í
annað sætið en öss-
ur fékk því ffam-
gengt að Hrafn
fengi sætið. Því var
Bolla boðið þriðja
sætið sem hann
en síðan var
honum tilkynnt að hann
færi í 6. eða 7. sæti. Það
þáði hann ekki og verð-
ur ekki á listanum.
Lúðvík er annars úr
Vestmannaeyjum og
hefur spilað með IBV í
knattspyrnunni. Svo er
að sjá hvernig list-
anum hans Össurar
reiðir afí vor...
2Vukaflokksþing Al-
þýðuflokksins var hald-
ið á Hótel Loftleiðum.
Um kvöldið gerðu þeir
sér glaðan dag á hótel-
inu og virtust mcnn
skemmta sér hið besta.
Ljósmyndari MORGUN-
PÓSTSINS var vitanlega
mættur til að mynda
herlegheitin. Gekk
hann um salarkynnin og myndaði
samkomugesti þar til hann kom að
háborðinu þar sem sátu meðal ann-
arra JOn Baldvin Hannibalsson og
Sighvatur Biörgvinsson. Jón Bald-
vin fór undan en Sighvatur tók mál-
in í sínar hendur og bannaði allar
nokkrum að orði að í óefni væri
komið ef ekki mætti mynda Alþýðu-
flokksmenn eftir myrkur...
X ónlistarhæfileikana vantar ekki í
fjölskyldu nokkra úr Garðabænum.
Marta HalldOrsdOttir, sem syng-
ur aðalhlutverkið í West Side Story,
Maríu, á tvö systkini sem cinnig
taka þátt í uppfærslunni. Bróðirinn
Sigurður HalldOrsson leikur á sel-
ló í sýningunni en hann hefur með-
al annars gert garðinn frægan með
kvartettinum Voces Thules með
kontratenórnum Sverri Guðjóns-
syni og fleirum, og systir þeirra,
Hildigunnur, spilar á fiðlu í hljóm-
sveitinni...
við rannsóknardeild efnahagsbrota.
Um er að ræða stöðu aðstoðaryfir-
lögregluþjóns hjá RLR en það er
staða sem Egill Bjarnason sinnti
áður en hann er nú yfirlög-
regluþjónn í Hafnarfirði. Aðr-
ir umsækjendur eru rann-
sóknarlögreglumennirnir
Björgvin Björgvinsson, Guð-
MUNDUR GíGIA, LUÐVIK ElÐS
son, Kristián H. Krist
Iánsson og Högni Eiðs-
SON...
safnsins en rætt hefur verið um í
mörg ár að flytja starfsemina í aðra
byggingu eða þá að halda gamla
safninu fyrir sýningarsali en
hafa vinnustofur annars
staðar. Skiptar skoðanir
eru meðal starfsmanna á
sé
en margir eru þó
orðnir langeygir eft-
ir cndanlcgri
ákvörðun frá
Ólafi G. Ein-
N*
myndatökur, sagði að slíkt væri
ekki leyfilegt þegar þeir væru að
skemmta sér. Ljósmyndarinn var
því leiddur út og varð þá manni
X veir fyrrum yfirmenn fíkniefna-
deildarinnar, Arnar Jensson og
Biörn Halldórsson, sóttu um stöðu
lýleg a fór fram
viðhorfskönnun
meðal starfs-
manna Þjóð-
minjasafnsins
um fyrirhug-
aðar breyting-
ar á húsakynnum
ARSSYNI Og
biðin farið
illa í
I