Helgarpósturinn - 06.02.1995, Qupperneq 18
18
MORGUNPÓSTURINN ERLENT
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995
Kannski er hún alveg hryllileg en maður getur ekki annað en horft, skrifaði
bandarísk blaðakona um Courtney Love. Hún kann að vera ósmekkleg,
ögrandi og hálf geggjuð en hún hefur einstakt lag á að vera oft og einatt í
sviðsljósinu. Hún gerir beinlínis í því að
vera drusla
Courtney Love a tonleikum:
„Það er til fallegra fólk en hún
og margir spila betur á gítar.
En enginn hefur kraft og út-
geisiun Courtney." Ef myndin
prentast vel má greina rispur á
fótleggjum hennar. Þær eru
allavega ekki eftir kött.
Hole, en svo heitir hljómsveit
Courtney Love, hefur að undan-
förnu farið eins og hvítur storm-
sveipur um hljómleikasali í Ástral-
íu. Svo er Japan á dagskránni, þá
Evrópa. Alls staðar verða einhverjar
uppákomur sem tryggja að Co-
urtney Love dvelur áfram í kast-
björmum fjölmiðla. I Ástralíu var
hún handtekin fyrir að ráðast á
flugþjón. Ástralskt blað skrifaði um
„endalausa röð hneykslismála,
bæði á sviði og utan þess“. Þess ut-
an er Hole á stöðugu hljómleika-
ferðalagi um Bandaríkin og ráðgert
er að tekinn verði upp órafmagnað-
ur þáttur með hljómsveitinni á
MTV- sjónvarpsstöðinni 14. febrú-
ar. Danny de Vito vill fá hana til að
leika í næstu bíómynd sinni; Feeling
Minnesota á hún að heita og í aðal-
hlutverki er Keanu Reeves.
Courtney Love er orðin stjarna á
heimsmælikvarða. Á ótal forsíðum
blasir við mynd af henni með upp-
litað ljóst hár, varalit út á kinn og í
smástelpnakjólum sem virðast
nokkrum númerum of litlir. Sjálf
kallar Courtney Love það „barna-
vændisbúninginn“ sinn. Eins og
einhver skrifaði: Maður getur ekki
annað en horft.
Plötur Courtney Love seljast í
risaupplögum. Samt segir hún í
upphafi flestra tónleika að hún
kunni ekki einu sinni að spila á gít-
ar. „En nafnið mitt hefur samt
komið í Guitar World. Þar stóð að
ég væri kona einhvers manns.“
Mikil þörf fyrir
að afklæðast
Courtney Love má eiga það að
hvar sem hún kemur er líf og fjör.
Það voru heldur ekki margir dauðir
punktar á hljómleikaferðalagi
hennar um Ástralíu. Frægast varð
atvikið sem gerðist í flugi milli Bris-
bane og Melbourne. Flugþjónn á
fyrsta farrými gerðist svo djarfur að
mælast til þess að Courtney Love
væri ekki með fæturna upp á vegg
og hótaði að kalla á lögreglu ef hún
ekki færi að tilmælum sínum. Þetta
var meira en Courtney Love lét
bjóða sér og hún hellti sér yfír flug-
þjóninn með óbótaskömmum og
klúryrðum.
Fyrir vikið var hún leidd fyrir
dómara í Melbourne. Sá ákvað að
sýna mildi, lét vera að sekta Co-
urtney Love eða hneppa hana í
fangelsi, heldur bað hana aðeins
um að hegða sér vel næsta mánuð-
inn.
Við svo búið keyrði Courtney
Love á brott í silfurlitri limósínu,
klædd í þröngan svartan kjól og í
skóm með afar háum hælum. Síðan
þá hefur hún reyndar ekki hegðað
sér neitt sérstaklega vel, eða það
finnst að minnsta kosti ekki ástr-
ölskum blöðum.
Courtney Love hefur verið mikill
skotspónn fjölmiðla þar syðra og
eru menn ekki á eitt sáttir um
hljómleikana hennar sem óneitan-
lega hljóta þó að teljast i líflegri
kantinum. Hún er skömmuð fýrir
að stundum sé hún eins og full-
komið dauðyfli, svo ranki hún allt í
Courtney Love og Kurt Cobain með dótturina Frances Bean: „Og svo
er þetta allt tekið frá þér.“
einu við sér og þá ráðist
hún til atlögu af
óskiljanlegum
tryllingi, hún beiti
ólíklegustu brögð-
um til að espa lýð-
inn upp, veini og
æpi, orðbragðið
sem streymi af
sviðinu sé ekki
eftir hafandi og að
auki hafí hún
nánast sjúklega
þörf fyrir að fletta
sig klæðum.
Á tónleikum í
Sidney og Perth
hellti hún sér yfir
allt og alla, en þó
sérstaklega Mad-
onnu og Eddie
Vedder, söngvara
hljómsveitarinnar Pearl
Jam. Verstu útreiðina fékk þó
náungi sem heitir Evan Dando og
var í för með Hole þegar hljóm-
leikaferðin um Ástralíu hófst. Um
hann sagði Courtney Love í hljóð-
nemann: „Allir halda að ég og Evan
séum að ríða. Það er ekki satt. Evan
ríður bara fimmtán ára stelpum.“
Á hljómleikum í Perth stökk Co-
urtney Love út í mannhafið og réð-
ist á mann sem ætlaði að fara að
henda einhverju dóti upp á sviðið.
Þangað klifraði hún aftur, beraði á
sér afturendann og skammaðist út í
áhorfanda sem hefði „stungið putta
upp í rassinn á sér“. Síðan klifraði
hún upp á fimmtán metra háa há-
talarastæðu og þar sýndi hún á sér
annað brjóstið. Þaðan hótaði hún
að stökkva niður. Hún freistaði
þess að gera hið sama í Sidney en þá
var hún stöðvuð af starfsmanni
hljómleikasalarins. Síðan fékk hún
áhorfandaskarann til að syngja með
sér. Fallegasta orðið sem þau sungu
þetta kvöld var „drusla, drusla,
drusla", hin eru venjulega ekki
prentuð í blöðum.
Plötusnúður sem reyndi að taka
viðtal við Courtney Love í Melbo-
urne ber henni ekki fallega söguna.
Hún lét hann bíða lengi eftir sér, en
loks birtist hún svo í sendiferðabíl.
Fyrst út úr bílnum var áfengis-
flaska, síðan komu þau út Courtn-
ey Love og Evan Dando. Þau gengu
inn í hljómleikasalinn og þá þurfti
Courtney Love að skipta um sokka.
Sú athöfn sýndi glöggt að henni er
Hljómsveitin Hole:
Melissa Auf Der
Maur, Courtney Lo-
ve, Patti Schemel,
Eric Erlandson.
Bassaleikarinn Kirs-
ten Pfaff dó í fyrra
eftir að hafa tekið of
stóran skammt af
heróíni.
ekki mjög áfram um að klæðast
nærfötum. Plötusnúðurinn hafði
flogið yfir þvera Ástralíu til að taka
viðtalið. Þegar hann loks náði at-
hygli Courtney Love sagði hún ein-
faldlega: „Drullastu út úr lífi
Hávær sorg
Courtney Love er ekki gefin fyrir
að bera harm sinn í hljóði. Blaða-
maður bandaríska tónlistartíma-
ritsins Spiti sem fylgdist með tón-
leikum hennar í Cleveland í ágúst
skrifaði um framkomu hennar á
sviðinu: „Þetta
er eins og að sjá
systur sína í
nektardansi.“ Þá
voru aðeins
liðnir nokkrir
mánuðir frá
andláti eigin-
manns hennar,
rokksöngvarans
Kurt Cobain.
Cobain skaut sig
í Seattle í 8. apríl 1994. Courtney
Love syrgði hann opinberlega og
braust það fram á tónleikum.
Blaðamanni Spin fannst óþægilegt
á að horfa.
Courtney Love virðist vera að ná
sér aftur. Að minnsta kosti rís