Helgarpósturinn - 06.02.1995, Page 30

Helgarpósturinn - 06.02.1995, Page 30
30 MORGUNPÓSTURINN SPORT MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1995 í Dýnu Galleríi Húsgagnahallarinnar er mesta úrval landsins af dýnum frá Evrópu, Ameríku og íslandi og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við veitum faglega þjónustu og verðið er hagstætt. ÞEGAR ÞÚ VILT SOFA VEL Húsgagnahöllin Fram varð bikarmeistari kvenna í handknattleik eftir tvíframlengdan úrslitaleik við Stjörnuna BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 5871199 Baráttan botyaði sig Ert þú búintt að iofa(15árt Veistu -að maðurinn eyðir þriðjungi ævi sinnar í svefn. 45 ára gömul höfum við því sofið í 15 ár en vakað í 30 ár. Um sextugt eru svefnárin því orðin 20 og um 75 ára aldur eru þau orðin 25. ZZZzzz Zzz ZZz Það segir sig því sjálft að að það er nauðsyniegt að sofa á gððri dýnu til að viðhalda heilsu og iíkamiegri veiiíðan. Það gerðist það sem fæstir áttu von á. Þegar ljóst var að Guðríður Guðjónsdóttir, leikmaður og þjálfari Fram- stúlkna, gæti ekki leikið með í úrslitum bikarkeppn- innar á móti Stjörnunni áttu flestir von á næsta auðveldum sigri Stjörnunnar. Engu að síður var um draumaúrslitaleik að ræða þar sem hér áttust við tvö bestu handbolta- Iið landsins í leik þar sem tvær framlengingar þurfti til að fá fram úrslit - og spennan var svo sannar- lega rafmögnuð. Framarar komu Stjörnunni á óvart strax í byrjun með gífurlegri baráttu. Að vísu skoraði Stjarnan íyrsta mark leiksins en Fram svar- aði síðan með tveim í röð og hélt síðan forystu allt þar til Stjarnan jafnaði, 9:9, undir lok fyrri hálf- Ieiks. Strax í upphafi seinni hálf- leiks náði Stjarnan tveggja marka forystu. Varð hún mest fjögur mörk, 16:12, þegar rúmar tíu mín- útur voru eftir. Áttu þá flestir von á að Stjarnan væri búin að tryggja sér titilinn. En þeir hinir sömu urðu að éta allar slíkar yfirlýsingar ofan í sig. Það sem eftir lifði venjulegs leiktíma skoraði Stjarnan aðeins eitt mark á móti fimm mörkum Fram- stúlkna. Munaði þar mestu um stórleik Kolbrúnar Jóhanns- dóttur í markinu, og fyrirliðans Zelku Tosic sem færði sig úr hægra horni í stöðu vinstri bak- varðar. Framarar urðu að taka áhættu og það tókst fullkomlega þar sem Zelka tók af skarið og fór að skjóta utan af velli. Þannig tókst liðinu það sem flestir töldu ómögu- legt, að vinna upp fjögurra marka forskot á tíu mínútum. í fyrri framlengingu skoraði Fram.einu tvö mörkin í fyrri hálf- leik en Stjarnan náði að jafna í þeim seinni með mörkum frá þeim Guð- nýju Gunnsteinsdóttur, og Ragnheiði Stephensen sem skor- aði úr víti þegar leiktíminn var úti. Því varð að framlengja aftur. Þór- unn Garðarsdóttir kom Fram- stúlkum yfir en þær Ragnheiður og Laufey Sigvaldadóttir breyttu stöðunni Stjörnunni í hag. Díana Guðjónsdóttir jafnaði fyrir Fram úr vítakasti þegar þrjár og hálf mín- úta lifðu af leiknum, og skömmu síðar var tveim leikmönnum Fram vikið af leikvelli. Áttu flestir því von á að eftirleikurinn yrði Stjörnunni auðveldur, tveim leikmönnum fleiri og með boltann. En Kolbrún varði úr dauðafæri af línu og í næstu sókn á eftir skoraði Þórunn Garðarsdóttir sigur- mark Fram, og tryggði liðinu enn einn bikarmeistaratitil- inn. Liðið hefur nú leikið ell- efu úrslitaleiki og unnið þá alla, og það sem meira er, Kolbrún Jóhannsdóttir hefur leikið alla þessa leiki og þekk- ir það ekki að tapa í bikarúr- slitum. Enginn smá ferill hjá þessum stórkostlega mark- verði sem þó er aðeins 36 ára að aldri og virðist eiga nóg eftir í boltanum. Zelka og Kolbrún léku best allra á laugardag. Zelka skor- aði alls níu mörk og varð langmarkahæst í leiknum, en Kolbrún varði fimmtán skot, þar af tvö víti. Ragnheiður varð markahæst í Stjörnunni I hópleik íslenskra getrauna gefst vinum og kunningjum kostur á að tippa saman í hóp og auka vinningslíkurnar verulega, Hópleikur er þegar tippari, einn eða fleiri hafa sérstakt hópnúmer og Getraunir skrá árangur hópsins í viku hverri og veítir þeim hópum sem best standa sig sérstök verðlaun. Þú fárð hópnúmer frítt hjá þínu félagi eða hjá íslenskum getraunum og það kostar ekkert aukalega að vera með í hópleikjum. ð bækl Getraun^?5*0 una! 47 ferðavinningar ásamt 30 aukavinningum að verðmætium 2 milljónir króna Atli Hilmarsson, þjálfari karlaliðs Fram: „Mér fannst aðdá- unarvert hvað Fram- stúlkurnar spiluðu £ þetta vel. Þær spiluðu vörnina af miklum krafti og sóknina af ; ^ skynsemi, og það dugði til. Þær vita ekk- ert annað en að sigra. Þær hafa spilað ellefu úrslitaleiki og aldrei tapað. Mér fannst f Stjarnan leika undir getu í leiknum.11 ■ Bikarmeistararnir í handknattleik kvenna árið 1995. Zelka Tosic, fyrirliði Fram: „Þetta var alveg stórkostlegt. Ég var búin að segja við þær að við myndum vinna þennan leik fyrir Gurrí (Guðríði Guðjónsdóttur). , Innst inni vissi ég það allan tímann. Við vorum alltaf að segja við okkur sjálfar: Við verðum, við verðum, , þegar við vorum undir og baráttan skilaði sér svo sannarlega. Ég held að það sem skipti líka máli er að liðsmórallinn hjá okkur var betri en hjá þeim.“ Guðný Gunnsteinsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar: „Þetta var alveg geysilega svekkj- andi. Það sem klikkaði helst hjá okkur var vörnin. Þær spiluðu kannski sömu vörn og við en við klikkuðum of mikið í lokin. Það sem gerði útslagið var það að þær virtust hafa betri taugar í þetta en , við.“ Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari og leikmaður Fram: „Samheldnin í liðinu er frábær. Q Fyrir þennan leik var ég búin að heyra alla spá Stjörnunni sigri, að þær væru sterkari og með meiri |g breidd en við. Þessu er ég algjörlega ósammála. Að mínu mati er bekk- urinn hjá þeim ekkert sterkari en okkar. Ég setti hægri hornamann- inn minn í vinstri bakvörðinn og hún bara blómstraði. Þetta erum f við búin að vera að æfa frá síðasta leik við Stjörnuna, þetta vil ég meina að hafi verið vendipunkt- urinn í leiknum. Það er samheldni og jafn- ræði í liðinu hjá okk- ur.“ Zelka Tosic var besti leikmaður Framstúlkna í leiknum við Stjörnuna. með sjö mörk en Guðný Gunn- steinsdóttir skoraði fimm mörk og átti góðan leik í vörninni. Leikurinn var vel leikinn og bauð upp á mikið fyrir áhorfendur því sjaldan eða aldrei hefur farið fram eins spennandi úrslitaleikur í bik- arnum. Bæði liðin léku vel, Fram- liðið þó sýnu betur þar sem þær gáfúst aldrei upp og eiga hrós skilið fýrir mikla baráttu. Þær sýndu það að maður kemur í manns stað og þó Guðríður þjálfari sé ekki með eiga þær nægan mannskap til að klára svona leik. Það sem eftir stendur er að hér buðu langbestu kvennaliðin á landinu upp á frá- bæran handboltaleik. Maður getur því ekki annað en byrjað að hlakka til úrslitakeppninnar í Islandsmót- inu. -RM Enn einu sinni þurftu Stjörnustúlkur að bíða lægri hlut í úrslita- leiknum og það er tilfinning sem Guðný Gunnsteinsdóttir fyrir- liði þeirra er örugglega orðin þreytt á.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.