Helgarpósturinn - 13.02.1995, Page 6
6
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 1995
Ágúst Einarsson, ritari Þjóðvaka
og fyrrum formaður samninga-
nefndar ríksins: „Það er brýnt að
færa kjaraviðræður kennara úr
miðstýrðum farvegi og yfir á ein-
staka skóla eða þá sveitarfélögin
í framtíðinni."
Áaðfæra
kjaramál
kennara
frá ríkinu
segirÁgúst Einarsson um
kennarasamningana.
„Það er erfitt að segja til um það
þegar maður þekkir ekki alla mála-
vöxtu nákvæmlega en það ætti að
freista þess að ná samningum á
grundvelli breytts vinnutíma kenn-
ara,“ sagði Ágúst Einarsson pró-
fessor, stjórnarmaður í Þjóðvaka og
fyrrverandi formaður samninga^
nefndar ríkisins. „Áherslan gæti
verið uppstokkun kerfisins með til-
liti til flutninga grunnskólanna yfir
á sveitarfélögin en það gæti leitt af
sér betra skólastarf og bætt kjör fyr-
ir kennara. í öðru lagi er brýnt að
færa kjaraviðræður kennara úr
miðstýrðum farvegi og yfir á ein-
staka skóla eða þá sveitarfélögin í
ffamtíðinni.“
Telurðn þá til bóta ef að einstaka
skólar gœtu satnið beint við sína
kennara?
„Já, það kæmi vel til greina að
stefna að því. En það er brýnt að
bæta kjör kennara en það er liður í
því að setja menntun á forgangs-
lista í okkar þjóðfélagi. Menntun er
lykill að betri lífskjörum." ■
Akureyri
Hestur
dældaði bíl
Óvenju mikið hefur verið um að
ekið sé á hross á Norðurlandi að
undanförnu. Helsta ástæðan er tal-
in mikið fannfergi og að girðingar
eru undir snjó. Aðfaranótt föstu-
dags ók flutningabíll á hross á
Norðurlandsvegi og þurfti að aflífa
það á staðnum. Á föstudagskvöld
ók síðan maður sem átti leið um
öxnadal inn í hrossahóp og lenti á
einum hestinum sem hvarf út í
myrkrið. Bíllinn dældaðist töluvert
við áreksturinn en þrátt fyrir eftir-
grennslan lögreglunnar á Akureyri
hefur hrossið ekki komið í leitirn-
Bætifláki
Meö kaupum íslenska útvarpsfélagsins í Frjálsri fjölmiðlun er kominn grunnur
fyrir óvenju víðtækt fjölmiðlaveldi á íslandi. Aðalmennirnir í því verða þeir
Sveinn R. Eyjólfsson og Jón Ólafsson
Kaupverðið talið vera um
200 milMónir
Meri Wannnm íslpnska íitvamsfp- tpkníir pnnbá.
Með kaupum Islenska útvarpsfé-
lagsins hf. og Frjálsrar fjölmiðlunar
hf. hefur orðið til fjölmiðlasam-
steypa sem veltir hátt í þremur
milljörðum króna. Ekki er líklegt
að fullkomnar skýringar komi upp
á borðið um aflvaka þessara miklu
breytinga því eins og höfundur
Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins
benti á í sunnudagsblaðinu þá hafa
forráðamenn Frjálsrar fjölmiðlunar
yfirleitt verið hljóðlátir um gjörðir
sínar. Ljóst er þó að frumkvæðið
kemur frá Sveini R. Eyjólfssyni
sent í upphafi leitaði hófanna með-
al einstaklinga innan Islenska út-
varpsfélagsins. Málin æxluðust síð-
an þannig að félagið sjálft ákvað að
kaupa og gat Sveinn þá leyst til sín
hlut Harðar Einarssonar. Þeir fé-
lagar hafa haft hvor sinn hlutinn í
Frjálsri fjölmiðlun með eignarhlut-
um sínum í Reykjarprenti hf. og
Dagbiaðinu hf. Hörður átti ríflega
90 prósent í Reykjarprenti og
Sveinn átti orðið meirihluta í Dag-
blaðinu en hann hefur keypt hluti
fyrrum starfsmanna Dagblaðsins
þegar þeir hafa viljað selja. Sveinn
keypti allt Reykjaprentsbréfið en
átti sjálfur nálægt 75 prósentum í
Dagblaðinu. Á þeim stutta tíma
sem leið áður en hann seldi Is-
lenska útvarpsfélaginu aftur mun
hann hafa átt um 87 prósent í
Frjálsri fjölmiðlun.
Kaupverðið nálægt
200 milljónum
Eftir því sem komist verður næst
þá var 35 prósenta hlutur í Frjálsri
fjölmiðlun seldur á um 200 millj-
ónir króna. Eigið fé Frjálsrar fjöl-
miðlunar er um 140 milljónir króna
en hlutafé skráð 5 milljónir. 35 pró-
sent af því eru um 49 milljónir og
má því ætla að hluturinn hafi verið
seldur á gengi nálægt 4.
Staða Frjálsrar fjölmiðlunar er
ekki eitthvað sem hefur verið haft í
hámæli. Ef litið er aftur í tímann þá
varð hagnaður af árunum 1990 og
1991. Árið 1992 var ekki gefið upp
og því leyfðu menn sér að draga þá
ályktun að eitthvert tap hefði verið
af rekstrinum. Árið 1993 var tæp-
lega 12 milljóna tap en tölur liggja
ekki fyrir um árið í fyrra, gert er þó-
ráð fyrir að tap hafi þá einnig orðið
af rekstrinum.
Þeir félagar Hörður og Sveinn
hófu samstarf mjög skyndilega þeg-
ar DB og Vísir voru sameinuð fyrir
14 árum. Síðan hafa þeir verið iðnir
við að fjárfesta um víðan völl, í
samstarfi eða sitt í hvoru lagi.
Kunnustu dæmin um það eru fjár-
festingar þeirra í Hafskipum og
0
Isienska
utvarpsfi
Velta:
Hagnaður:
Eigið fé:
Heildareignír
Heildarskuldir
Ársverk
élagið1993
1.497,1 m
153,9 m
(‘92 777 m)
209,3 m
1.364 m
1.155 m
18-1
Frjáls fjölmiðlun
1993
Velta:
Tap:
Ársverk:
1.060,9 m
11,7 m
156
Velta
Ijósvakamiðla 1993
Ríkisútvarpið: 49 prósent
íslenska útvarpsféiagið:
37 prósent
Aðrir: 14 prósent
Velta
dagblaðanna 1993
Árvakur: 53 prósent
Frjáls fjölmiðlun: 34 prósent
Dagur: 4 prósent
Aðrir: 9 prósent
Arnarflugi. Undanfarið hafa þeir
staðið í uppbyggingu hreingern-
ingafyrirtækisins I.S.S. þjónustu,
sem þeir eiga í 40 prósent á móti
dönskum aðilum. Vangaveltur hafa
verið uppi um að Hörður fái að
hluta til greitt með hlut Sveins í því
en aðspurður sagði Hörður að eng-
ar slíkar ákvarðanir hefðu verið
Blaðamaðurinn
og pistlahöf-
undurinn Egill
Helgason skrif-
ar grein í Al-
þýðublaðið síð-
asta fimmtudag
undir fyrirsögn-
inni „Þjóðar-
íþrótt í kreppu'L
en greinin fjallar
meðal annars urn hversu lítilsigld
íþrótt handboltinn er á heims-
mælikvarða. Og Egill er ekki bjart-
sýnn á að væntanleg heimsmeista-
rakeppni hér á landi verði hand-
boltanum lyftistöng. Bendir hann
á að ýmsir frantámenn al-
þjóðahandboltasambandsins, þar á
meðal formaðurinn sjálfur Erwin
Lanc, hafi „talið skynsamlegast að
heimsmeistarakeppnin yrði haldin
á Spáni, í Þýskalandi eða Frakk-
landi; sem sagt meðal stórþjóða,
þar sem tryggt væri að hún týndist
ekki alveg og þar með íþróttin
sjalf.“
Og Egill heldur áfram:
„Er fttrða þótt Erwin Lanc hafi
ýmsar efasemdir þegar svona
margt bendir til þess að við trúum
ekki á þetta fyrirtæki heidur, eða
það hafa alla vegana ekki síðustu
ríkisstjórnir gert; ekki Alþingi, ekki
borgarstjórn Reykjavíkur, ekki ná-
grannabyggðarlögin — og varla
heldur handboltafrömuðurnir,
sem maður fær varla séð að geti
orðið öllu mæðulegri.“
Ólafur B. Schram forniaður
Handboltasambands Islands.
„Það er nú að bera í bakkafullan
lækinn að þurfa að bera í bætifláka
fyrir eitthvað, sem birtist í Alþýðu-
blaðinu. Ég næ því ekki hvort Égill
er sammála Erwin Lanc, eða Erfiða
I-Iansa eins og við köllum hann.
Erwin vill að HM fari einungis
fram hjá stórþjóðunum. Ef Egill er
santmála, af hverju vill hann þá
ekki að öll blaðaskrif fari fram hjá
stórblöðunum DVog Morgunblað-
inu? Og hann er þá líka fyrsti ís-
lendingurinn, sem er samntála Erf-
iða Hansa í einhverju. Svo þetta
með mæðulegt útlit handbolta-
frömuða. Útlit okkar kemur þessu
teknar ennþá.
Einnig keyptu
þeir Hampiðjuhús-
ið á móti höfuð-
stöðvum DV en þar
er um að ræða 4500
fermetra húsnæði.
Þar hafa þeir sett
ísafoldarprent-
smiðju sem þeir
keyptu og dagblaðið
Tímann en um ára-
mótin t993/’94
stofnuðu þeir félag-
ið Tímamót utan
um rekstur Tímans.
Þar er Hörður
stjórnarformaður
en auk þess er
Sveinn í stjórninni
ásamt Gunnlaugi
M. Sigmundssyni,
fulltrúa Framsókn-
arflokksins. Að
sögn Harðar er það
sjálfgefið að hann
hætti þar í stjórn
þar sem fyrirtækið
er í eigu Frjálsrar
fjölmiðlunar.
Þá eiga þeir
Hörður og Sveinn
bílaleigu Arnarflugs og fyrirtækið
Jón Brynjólfsson hf., sem var áður
umsvifamikið í innflutningi og sölu
á leðurvörum. Reksturinn hefur
verið seldur Hvítlist sem þeir eiga
einnig.
Fasteignaumsýsla hvers konar
hefur verið stór hluti af umsvifum
þeirra og eiga þeir enn húsið Síðu-
ntúla 14 þar sem DV var til húsa.
Sveinn á stórhýsi í Faxafeni 9 en
auk þess á hann eina stærstu jörð
landsins, Leirubakka í Landssveit
undir Heklurótum, en þar hefur
hann ásamt konu sinni byggt upp
glæsilegt hótel fyrir hestaeigendur.
Má þar meðal annars finna reiðhöll
og er aðstaðan mjög lofuð af hesta-
unnendum.
Jón Ólafsson
alls staðar
í hinni nýju stjórn Frjálsrar fjöl-
miðlunar sitja þeir Sveinn, Eyjólfur
Sveinsson, sonur hans og aðstoð-
armaður forsætisráðherra, og Jón
Ólafsson. Því er reyndar haldið
fram að Eyjólfur muni koma til
meiri áhrifa með því að taka við
framkvæmdastjórastöðu eftir kosn-
ingar. Leiðir þeirra Sveins og Jóns
hafa áður legið saman í stjórn Við-
skiptablaðsins sem nú er gefið út af
Útgáfufélaginu Þekkingu hf. Jón er
þar tiltölulega nýkominn inn en því
er haldið fram að hann hætti þar
Veldi Jóns Ólafssonar:
Frjáls fjölmiölun hf.
Bíó hf.
Jón Ólafsson og Co. sf.
Skífan hf.
Sonic hf.
Fjölmiðlun sf.
Moli hf. (Kvikmyndafélag)
Spor hf.
Útgáfufélagið Þekking hf.
Verksmiðjan hf.
Veldi Sveins R. Eyjólfssonar:
Frjáls fjölmiðlun hf.
Hilmirhf.
Hringver hf.
íslenska skipafélagið hf.
Óháði fjárfestingarsjóðurinn hf.
íslenska fjölmiðlunarfélagið hf.
Dagblaðið hf.
Tímamót hf.
I.S.S. þjónustan hf.
vegna setu sinnar í stjórn Frjálsrar
fjölmiðlunar.
Það er deginum ljósara að sól
Jóns Ólafssonar í íslenskum afþrey-
ingarheimi skín skært. Hann kem-
ur nú nálægt, myndböndum, kvik-
myndum, plötuútgáfu, sjónvarps-
gerð, blaðaútgáfu, prentun, svo
ekki sé farið í nánari afmörkun.
Um hann mætti segja að hann gæti
gert hæfileikasnauða manneskju að
stjörnu á íslandi ef honum sýndist
svo!
Um leið og þessi samruni á sér
stað er kynnt að nýtt fýrirtæki verði
sett á laggirnar á sviði „margmiðl-
unar“. í raun er margmiðlun ekki
eitthvað sem menn vita nákvæm-
lega hvað er - fremur er um að
ræða sýn á hvernig fjölmiðlar muni
þróast í samspili sjónvarps, síma og
tölvu. Með tilkomu ljósleiðara og
gervihnattasendinga ásamt sífellt
hraðvirkari tölvum hafa opnast
möguleikar fyrir beinni og fjöl-
breyttari miðlun.
Eigendur Frjálsrar fjölmiðlunar
hafa löngum sýnt mikinn áhuga á
þessu. Á sínum tíma eignuðust þeir
Vídeóson, sem var vísir af kapal-
væðingu á höfuðborgarsvæðinu. Sú
fjárfesting skilaði ekki miklu. Síðar
komu þeir að stofnun Sýnar sem
nú er í eigu sömu aðila og eiga Is-
lenska útvarpsfélagið. Islenska út-
varpsfélagið á nú sjálft um 20 pró-
Mœðulegir handboltafrömuðir
máli ekkert við. Var
snillingurinn Jón Bald-
vin ekki mæðulegur þeg-
ar hann samdi um EES
og kom því í gegnum
þingið, eða virðisaukann
og staðgreiðsluskattinn
eða frjálsræði í gjaldeyr-
ismálum? Þetta sýnir að
útlit hefur ekkert að gera
með málsstaðinn. Ég tel
Egil vera á hálum ís í skrifum sín-
um og eins gott að aðrir ritstjórar
treysti ekki manninum. Hvað veit
hann um hvort mikið eða lítið
verði sjónvarpað frá keppninniÁ
Nú þegar hafa 22 þjóðir pantað að-
gang að keppninni. Heldur Egill
kannski að þær séu að því til þess
að tryggja að aðrir sýni
ekki? Ef einhvern tím-
ann hefur átt við að
vera ekki með öllum
mjalla á það við um
þetta atriði. HM verð-
ur. Sjónvarpað verður
til 22 landa, nú þegar er
búið að semja um 2-6
klukkustunda útsend-
ingar á dag. Hótelin eru
klár, bæjarféiögin eru tilbúin, und-
irbúningur gengur eftir áætlun og
nú verður tækifæri fyrir íslenska
áhorfendur að hvetja sitt lið í al-
vöru leikjum á heimavelli. Atbrýð-
issemi og öfund út í gott gengi ís-
lenskra handboltamanna eru ein-
kenni skrifa Egils.“
sent í Sýn en fyrirtækið velti 17
milljónum árið 1993 og er skráð
með eigið fé 8 milljónir.
Jónas Kristjánsson, ritsjóri
DV, hafði á sínum tíma mikinn
áhuga á að Sýn kæmist á laggirnar
en hann hefur svarað fyrir þetta
nýja margmiðlunarhlutverk í
bíaðaviðtali í Morgunblaðinu.
Hann mun þó hafa staðið frammi
fyrir gerðum hlut þegar ákvarðanir
um eignarsöluna voru teknar.
En af þessu er ljóst að þessi fýrir-
tæki hafa tekið frumkvæði og
munu væntanlega leiða vagninn í
því þróunarstarfi sem nú er fram-
undan. Hinir risarnir á fjölmiðla-
markaðinum, Morgunbíaðið og
Ríkisútvarpið, munu þurfa að taka
ákvarðanir hvernig þeir hyggjast
bregðast við þessu.
En það er ekki jafnt á með þess-
um fyrirtækjum komið. Menn inn-
an viðskiptalífsins vilja taka þetta
sem dæmi um þann slagkraft sem í
sjóðsstreymi Islenska útvarpsfé-
lagsins felst. Fyrirtækið tekur að
sönnu nokkra áhættu með því að
auka skuldir sínar um 200 milljónir
ofan í 500 milljóna króna mynd-
lyklavæðingu. Miðað við hagnaðar-
tölur virðist þetta yngsta barn fjöl-
miðlunarinnar hins vegar vera fært
um að taka stærstu skrefin eins og
kaupin inn í Frjálsa fjölmiðlun
sýna. -SMJ
Athugasemd
Réttur botn
I Morgunpóstinum á mánudag
er greint frá árshátíð Stangveiðifé-
lagsins og meðal annars sagt frá
besta vísubotninum við fyrri part-
inn:
Nú er sátt um Norðurá
Nú er kátt á Sögu
1 blaðinu er botninn svohljóð-
andi:
Lúsugurþar Össur lá
mitt í miðri þvögu
Þetta er vitaskuld rangt. Botninn
var þannig:
Lúsugur þar Össur lá
leynt í miðri þvögu
Með kveðju,
„Árshátíðargestur“