Helgarpósturinn - 06.04.1995, Side 14

Helgarpósturinn - 06.04.1995, Side 14
ESTER „ Velgengnin hefur ekki skaðað okkur. Það sárasta við hana er öfundin." KARL „Fyrstog fremst byggist þetta á því að vera allt í öllu, að vera sendi- sveinninn og kannski for- stjórinn líka. Að vera allt í öllu og spara." ESTER „Kaiiiáað vera í okurlán- unum, hann á að vera svindl- ari, hann á að hafa setið inni fyrir dópsölu og ég líka. Við erum sögð eyðsluseggir og skemmt- anasjúk." Karl J. Steingrímsson og Ester Ólafsdóttir í Pelsinum eru með umtöluðustu hjónum bæjarins. Brunabótamat fasteigna í þeirra eigu nema 640 milljónum króna og lifnaðarháttur þeirra og veislur hafa vakið mikla athygli. Hrein eign þeirra er nálægt 400 milljónum króna Kynntust á samkomu Hvítasunnusafnaðarins. Hjónin Karl Steingrímsson og Ester Ólafsdóttir í Pelsinum eru sterkefnuð. Þau ólust upp við kröpp kjör en hafa byggt upp peningalegt stórveldi. Pelsinn er afar arðbært fyrirtæki og þau hafa hagnast á kaupum og sölu á íbúðum sem þau hafa gert upp. TEKJULÁGIR STOREIGIUAMEIUIU Undanfarin ár hafa fjölmiðlar birt upplýsingar úr skattskrám þjðóðþekktra Islendinga og hefur vakið athygli hve margt stór- eignafólk borgar lága tekjuskatta. Hjónin Karl og Ester eiga eignir upp á hundruð milljóna króna sem reyndar flestar eru skráðar á fyrirtæki þeirra, Kirkjuhvol. Engu að síður hafa tekjur þeirra verið efni í umfjöllun blaða. Þegar skattskráin var opnuð árið 1993 kom í ljós að meðalmánaðartekj- ur Karls Steingrímssonar voru 193 þúsund krónur og í haust kom í ljós að þær höfðu enn lækkað. Þá var Karl með meðal- mánaðartekjur upp á 160 þúsund krónur og Ester var þá með 84 þúsund krónur á mánuði. Pressan sáluga spurði Karl að því haustið 1993 hvort ekki væri erfitt að láta enda ná saman á ekki hærri tekjum. „Ég held utan um þetta ó þess- um tekjum. Það hefur ekki verið erfitt að ná endum saman hingað til, við skiptum þessu bara mjög vel upp. Við náum endum sam- an, “ svaraði Karl. GLÆSIVEJSLUR í LAUGARASIUUM Þótt Karl vilji ekki kannast við neina veislugíeði þeirra hjóna eru þau umtöluð fyrir glæsilegar og íburðarmiklar veislur. Við- mælendur blaðsins báru þeim allir góða sögu og sögðu þau vera höfðingja heim að sækja í alla staði. Sem gestgjafar fengu þau hæstu einkunn. Sem dæmi má nefna að árlega bjóða þau leigjendum sínum í jólaboð og láta þeir vel af þeim velgjörðum. Þau hafa lagt mikið í heimili sitt í Laugarásnum og er það sagt með glæsilegustu húsum bæjarins. í jólablaði Gestgjafans á hátindi uppatímans 1986 voru þau gest- gjafar blaðsins. Þar segir að þau hafi sérlega gaman af því að bjóða gestum í mat, enda bjóði starfið upp á það og þau séu í stórum matarklúbbi. Þessi veisla var hin glæsilegasta eins og þeim hjónum er von og vísa. Boðið var upp á laxahrogn á lummukökum, kryddjurtakrapís, nautalundir með ostapiparsósu og rjóma- kartöflum og kaffi og koníak. Þessu var skolað niður með Paul Masson freyðivíni, frosnu Ála- borgarákavíti, Santa Christina Classico 1984, Hennessy XO og Tia María. Rúsínan í pylsuendan- um var pakki við disk hverrar konu sem opnaður var að aflok- inni máltíð. „Karl Steingrímsson varð fer- tugur þennan dag,“ er fyrsta setningin í bók Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar um stofnun Borgara- flokksins. „Frú Ester veitti bæði vel og höfðinglega og var margt um manninn. Félagar Kalla úr JC- hreyfingunni settu svip sinn á hófið og afmælisbarnið var tekið í tölu Senatora með dynjandi lófataki." Ásgeir segir að þarna hafi Borgaraflokkurinn orðið til í hans huga því þennan sama dag hafði Þorsteinn Pálsson krafist af- sagnar Alberts Guðmundssonar í kjölfar skattamála hans. í afmæl- isveislunni voru gefin loforð um fjárveitingar í kosningasjóð Al- berts en gestgjafarnir „báru fram heilan grís með epli í kjaftinum.“ KYNIUTUST Á HVÍTA- SUNNUSAMKOMU Karl J. Steingrímsson er fædd- ur 1947 og er því nýorðinn 48 ára gamall en Ester er fjórum árum yngri. Bæði eru þau af alþýðu- fólki og skólagangan var ekki löng. Reyndar tók Karl vetrar- langt námskeið fyrir gagnfræð- inga í hagnýtum verslunar- og skrifstofufræðum í Verslunar- skólanum. Þau hófu sambúð þegar Ester var 15 ára en Kalli 19 ára en þau kynntust á samkomu hjá Hvíta- sunnusöfnuðinum. Fyrstu sjö ár- in í sambúð bjuggu þau hjá for- eldrum Esterar í 25 fermetra íbúð með 190 sentímetra lofthæð. „Okkur leið afar vel þarna í þrengslunum, vorum svo nálægt hvort öðru,“ sagði Ester um þessi upphafsár þeirra í viðtali við Jónas Jónsson í Mannlífi. Þegar elsta barn þeirra, Aron Pétur var orðinn fjögurra ára keyptu þau sína fyrstu íbúð. Samhliða seldu þau bílinn sinn og voru bíllaus í mörg ár á eftir. Yngri börn þeirra eru þau Styrmir Bjartur og Hrafn- tinna Viktoría. Þau unnu myrkr- anna á milli eins og ætíð en þau skúruðu, auk þess sem hún vann á tannlæknastofu og hann hjá ísal í Straumsvík. Þegar þau höfðu gert húsið upp og ætluðu að flytja inn, hættu þau við og ákváðu að selja það. í kjölfarið hófst sú starfsemi sem hefur ver- ið umsvifamest hjá þeim ætíð síðan, að gera upp og selja fast- eignir. Margir tugir íbúða hafa þannig farið um þeirra hendur. Flestar þeirra hafa verið gerðar upp frá grunni og seldar með ágætum hagnaði. Upphafið af flaggskipinu Pels- inum má hins vegar rekja til ferð- ar þeirra hjóna til London. Þá var Ester 19 ára og gat ekki valið á milli tveggja kanínupelsa. Úr varð að hún keypti þá báða en seldi svo þegar heim kom með góðum hagnaði. í kjölfarið opn- uðu þau Pelsabúð á Njálsgötunni en lengst af hefur hún verið rekin við Kirkjutorg. REFUR í VIÐSKIPTUM Kalli þykir mikill refur í við- skiptum og nýtni er þeim báðum í blóð borin, níska segja sumir. Sem dæmi um það má nefna að fyrir hálfum öðrum áratug voru þau áskrifendur af Mogganum eins og gengur og gerist. Þá kost- aði áskriftin 80 krónur en Kalli gerðist svokallaður aukaáskrif- andi hjá blaðburðardrengnum og borgaði fyrir það 70 krónur. Þeg- ar áskriftin hækkaði í 90 krónur vildi drengurinn fá 80 krónur fyr- ir aukaáskriftina en Kalli tók það ekki í mál. Hvorugur gaf sig en rúmum mánuði síðar gerðist Karl aftur áskrifandi að Morgunblað- inu með formlegum hætti. „Kalli á að vera í okurlánunum, hann á að vera svindlari, hann á að hafa setið inni fyrir dópsölu og ég líka. Við erum sögð eyðslu- seggir og skemmtanasjúk,“ segir Ester í áðurnefndu viðtali og furðar sig á þessum kjaftagangi, heima hjá henni hafi aldrei verið talað illa um nokkurn mann. „Vel- gengnin hefur ekki skaðað okkur. Það sárasta við hana er öfundin. Svo er líka kalt uppi þar sem við erum. En við tökum bara utan um hvort annað. Þá verður okkur hlýtt.“ Eitt sinn þótti Karli nóg komið af orðrómi um meint okurlán og skrifaði grein í Morgunblaðið sem hann nefndi „Dæmið ekki“. Þar vitnaði hann óspart í biblíuna og gekk undir nafninu séra Karl í kaffiklúbbnum á Hótel Borg lengi á eftir. FASTEIGNIR FYRIR 650 MILUONIR Brunabótamat á þeim fasteign- um sem pósturinn fann í eigu þeirra hjóna nemur 640 milljón- um króna. Miðað við umfang þeirra eru þessar fasteignir furð- anlega lítið skuldsettar og vel- flestar að skila góðum leigutekj- um. Karl er sjálfur skráður fyrir tveimur fasteignum. Annars veg- ar er það hið glæsilega 290 fer- metra einbýlishús þeirra að Laugarásvegi 35 sem að auki er með tvo 30 fermetra bílskúra. Brunabótamat þeirrar eignar er reyndar aðeins 20 milljónir en engar áhvílandi veðskuldir eru á húsinu. Karl er einnig skráður fyrir 2 herbergja kjallaraíbúð að Rauðarárstíg 5. Brunabótamatið er 2,3 milljónir og engar áhvíl- andi veðskuldir. Eignarhaldsfélagið Kirkjuhvoll sem er í eigu þeirra hjóna er Einbýlishús þeirra hjóna að Laugarásvegi 35 sem hýst hefur margar glæsilegar veislur. Pelsinn við Kirkjutorg 4 er flaggskip þeirra hjóna en brunabótamat Kirkjutorgs og Teplarasunds 3 er 200 milljónir króna. Húsin voru í niðurníðslu þegar þau voru keypt af Sigríði Valdimars- dóttur. Garðakaup við Garðatorg er metið á 260 milljónir króna. Hagkaup hefur sýnt húsinu áhuga en finnst leiguhug- myndir Karls „allt of háar". Turnhúsið í Tryggvagötu hefur að mestu staðið autt í á annað ár. Naustið og Naustkjallarinn á Vesturgötu er í eigu Kirkjuhvols, eignarhaldsfyr- irtækis þeirra hjóna. skráð fyrir öllum öðrum fasteign- um þeirra. Stærsta eignin er Garðakaup að Garðatorg 1 í Garðabæ en þau eru skráð fyrir 93 prósenta hlut í því stórhýsi. Brunabótamatið er 260 milljónir króna en veðkröfur nema 50 milljónum samkvæmt veðbókar- vottorði og er Verslunarlánasjóð- ur með 33 milljónir af því. Brunabótamat á Kirkjutorg 4 er 116 milljónir og veðskuldir nema 50 milljónum, Verslunar- lánasjóður með 42 milljónir og Búnaðarbankinn 8 milljónir. Um er að ræða 830 fermetra verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði. Hand- an við hornið er Templarasund 3 en brunabótamat þess er 85 milljónir króna. Veðkröfur eru 45 milljónir og er Búnaðarbankinn skráður fyrir 8 milljónum. Ólafur Torfason er skráður fyrir 37 millj- ónum en hann seldi þeim hjón- um Garðakaup nýverið. Karl og Ester eiga einnig Turn- húsið að Tryggvagötu 8 sem er 780 fermetrar en brunabótamat þess er 60 milljónir. Veðskuldir nema 28 milljónum, 18 milljónir eru skráðar á Steinavör hf. en 10 milljónir á handhafa víxla. Að lokum eru þau eigendur af rúm- lega 700 fermetra húsnæði Naustsins og Naustkjallarans sem að brunabótamati er yfir 90 milljónir króna. Veðkröfur nema 40 milljónum og eru allar skráðar á íslandsbanka. STÓRMARKAÐA- STRIÐ I GARDABÆN- UM í ársbyrjun keyptu þau Garða- kauphúsið í Garðabæ en afsalið er gefið út þann 10. mars. Bruna- bótamat þess er 260 milljónir og kaupverð hefur verið nefnt 230 milljónir. Það fékkst ekki staðfest en seljandinn, Ólafur Torfason, er með 37 milljóna króna veð í Templarasundi 3. Það var Ólafur sjálfur sem reisti húsið og rak þar verslunina Garðakaup. Síðar voru þar meðal annars reknar verslanirnar Grundarkjör, Kjöt- miðstöð Hrafns Backmans og Mikligarður en reksturinn hefur gengið mjög brösuglega. Ólafur hefur að undanförnu rekið sjálfur Garðakaup í húsinu og þótt Karl eigi nú húsnæðið er Ólafur bund- \

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.