Helgarpósturinn - 06.04.1995, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 06.04.1995, Blaðsíða 21
Lífiðe, IEINN TVOFALDAN KRATA OG TVO DÓRA OG Eh Á kosningakvöldum vilja menn oft verða ansi þurrir í kverkunum, hvort sem þeir eru staddir á kosn- ingavöku einhvers flokks- ins eða fyrir framan imba- kassann heima hjá sér. PÓSTURINN fór á Naustið og fékk Gunnar Hilmarsson, ís- landsmeistara í kokkteil- hristingi, til að útbúa nokkra kosningakokkteila til að skola niður tölunum jafnóðum ogþcer birtast. Og Gunnar QKU 1 passaði að sjálf- sögðu uppá það, að kokkt- eilarnir vœru í réttum lit- um. Þeir, sem leggja leið sína í Naustið á laugar- daginn geta því pantað sér sinn flokkteil án nokkurra vandkvœða og þeir sem fara annað geta bara tekið PÓSTINN með sér ogpantað samkvœmt upp- skriftunum, sem hér fara á eft- ir með góðfús- legu leyfi JÓKA EÐA „X-J" 2 cl Vodka 2 d Galliano 1 d Amaretto Hristur, settur í glas og léttþeyttum rjóma rennt varlega ofaná. Amaretto-bragðið kemur vel í gegn og þegar sötrað er í gegnum rjómalagið verður þetta bara nokkuð mjúkur K~- ' drykkur, sem vel má verða mjúkur af, sérstak- lega ef vel gengur. 1/2 d Vodka 3 cl De Kuyper Cherry Brandy 1/2 d Creme de Banana cl rjómi f skvetta af Grenadine ' Hristur, skreyttur með súkkulaðispænum. I Þó að kvenleikinn sé í fyrirrúmi og eigi I að birtast i bleika litnum, þá vantar ekki ' kraftinn i þennan últramjúka kokkteil. En ' Vodkaneistinn er vel falinn i rjómanum og ' líkjörnum, svo lengi sem drukkið er hratt. f Frekar væminn drykkur til lengdar, en ! ágætur til ískálunar. 2 cl Vodka 2 cl Creme de Banana 2 cl Blue Curapao skvetta af sítrónusafa Hristur, skreyttur með jarðarberi. Fallega blár en frekar meinlaus, og sitrónusafa- skvettan gerir það að verkum að heldur dregur úr sætleikanum, svo það má vel fá sér fleiri en einn og jafnvel fleiri en tvo án þess að verða meint af. KRAT1 EÐA „X-A" 2 d Vodka 2 d Creme de Banana 2 cl Cherry Heering Hristur, fylltur með kampa- eða freyði- víni. Skreytt með rós. Þessi kokkteill lítur afskaplega vel út og bragðast ekki siður. Freyði- vinið gefur honum ákveðinn fersk- leika og rósin er ekki bara til skrauts, heldur leggur ilminn af henni að vitum kratans i hvert skipti sem hann dreypir á. SÁLM a steitabauamlmítimní Flest bendir til þess að ein vin- sælasta sveitaballahljómsveit síðari ára sé að koma aftur sam: an eftir ríflega eins árs „hætt“. í samtali við blaðið staðfesti Stef- án Hilmarsson söngvari að við- ræður hefðu átt sér stað á milli allra þeirra meðlima sem síðast stóðu að hljómsveitinni. Hann vildi þó ekki mikið um málið segja eins og sakir standa..en ég bendi á að við lögðum mikla áherslu á það á sínum tíma að við værum ekki hættir heldur komnir í langt óákveðið frí,“ sagði Stefán orðrétt í samtali við blaðið. Ákvörðun hljómsveitarinnar um að hætta þegar hæst lét kom öllum að óvörum en skýringuna á því segir Stefán vera þá að hljómsveitin tók orðið allan þeirra tíma og því hefði hugsunin með fríinu verið sú að hleypa öðr- um hugðarefnum að. „Ég viðurkenni að það hefur verið ákveðinn utanað- komandi þrýsting- ur á bandið að byrja aftur, allar götur frá því við fórum í frí,“ sagði Stefán og vildi ekki segja orð meira um málið. En eftir því sem pósturinn kemst næst er góður ví- bri í gamla hópn- um sem þýðir að líkurnar á því að Sálin leggi ekki land undir fót séu Miklar líkur benda til þess að sálin hans Jóns míns, eins og hún var upp á sitt besta, með þá Guðmund Jónsson og Stefán Hilmarsson fremsta í flokki, komi saman og leggi land undir fót. Það þýðir jafnframt að Pláhnetan liðast í sundur og Bong verður af einum gítarleikara. h v e r f a n d i . Stemmningin mun vera sú að hita upp saman í hljóðveri og taka upp áður en Iagt verði í’ann enda verði menn að stilla saman strengi sína eftir að hafa verið út og suður í dágóð- an tíma. Samstill- ing Sálarinnar þýðir jafnframt að nokkrar aðrar hljómsveitir liðast í sundur. Þar ber fyrst að nefna Plá- hnetuna sem til stóð að yrði eitt af aðalnúmerunum á sveitaböllum sumarsins, en úr henni fara þá bæði Stefán Hilmarsson og Frið- rik Sturluson bcissaleikari. Þá mun Bong verða af einum gítarleikara er Guðmundur Jónsson fer til gömlu félaganna. Jens Hansson blástursleikari og Atli Örvarsson munu vart særa nokkurn mann því Jens hefur verið í verkefnum út og suður, nú síðast með dú- óinu Fínt fyrir þennan pening, og Atli í SSSól sem að því er virðist er ekkert á þeim buxunum að halda áfram. Oljóst er hins vegar hvort Birgir Baldursson, sem síð- ast þegar fréttist var að leika með Birni Jörundi Friðbjörnssyni, muni aftur berja á bumbur með Sálinni. Fregnir herma einnig að Bylgj- an ætli að fylgja Sálinni úr hlaði í sumar í samvinnu við hin og þessi auglýsingafyrirtæki. -GK kalt Kosningakaffi Skítt með aTlan kosn- ingaskjálfta sem felur í sér æ fegurri og inni- haldsrýrari fyrirheit flokkanna með hverj- um deginum sem líður. Það sem ekki má van- meta í hita kosninga- baráttunnar er kaffið og kökurnar sem hægt er að háma í sig ókeyp- is á skrifstofum flokk- anna. Ef til vill eru fjögur ár í að maður komist í aðrar eins hnallþórur. Mittatkvæði- skiptir-ekkimáli- Surinn væði tii eða frá nokkru sinni skiptsköpum í Alþing- iskosningum á íslandi. Ó-nei. Það vitum við - hinir heitu - sem ætl- um að sitja heima á kjörstað og láta kosn- ingahelgina liða hjá eins og hverja aðra helgi. Okkar tími er ekki kominn. Samkvæmi eftir böll volgna nú með hverri helginni sem líður. Það segir sig sjálft fyrst menn eru hættir að berjast um að komast í eina eftirpartiið i bæn- um eftir lokun öldur- húsa. Fleiri partíhaldar- ar eru ævinlega til í tuskið þegar páskarnir nálgast og þar með vorið. Ö6 Hollusta Jafnvel þótt hún sé allra meina bót er hún bara svo megahallæris- leg. Allt sem heitir hreyfing, hrökkbrauð með gúrkum, skreyttar gulrætur og grænmet- issoð hlómar svo ósexí. Þegar menn fara að finna upp orð eins og drykkju- hollustu, súkkulaðifjör- efni og fram- hjáhaldsfeg- urð verður gaman að lifa. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.