Helgarpósturinn - 06.04.1995, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 06.04.1995, Blaðsíða 19
Sönn íslensk erótík Ein stór fjölskylda HáskólabIó ☆ ☆ Fall söguhetjunnar I einni stórri fjöl- skyldu er nokkurt: úr húsi við Hávalla- götu (eða er það Ægissíða?) og lengst niður í Reykjavík risherbergja og bak- húsa við Laugaveg. Ég hef grun um að Jóhann Sigmarsson þekki betur til við Laugaveginn en á Hávallagöt- unni. Einhverjum kann að virðast sagan ótrúleg. Það er ábyggilega misskiln- ingur. Við búum innan um þjóð þar sem lygilegt fjölskyldumynstur sikk- sakkar holt og bolt í hvern afdal og á öll krummaskuð. Ég hef ekki heyrt að hugtakið „kviðmágur" sé til í neinu tungumáli nema íslensku. (Hann var ábyggilega að Ijúga að mér maðurinn sem sagði að Þjóðverjar notuðu orðið Bauchschwáger?) Á Islandi er kjarna- fjölskyldan frík. Náunginn sem Jón Sæmundur leikur í myndinni eignast fimm börn sama daginn, með fimm konum. Ég sé ekkert ótrúlegt við það; er þetta ekki bara góður og gegn íslenskur re- alismi? Svona menn þekki ég, og það ekki bara af afspurn. Ekki eru síður trúanleg kynnin sem söguhetjan, Jónas Þór svo- kallaður, hefur af konum eftir að hann losnar undan járnhæl unnustu sinnar og tengdafor- eldra. Sé á annað borð til eitt- hvað sem kalla má íslenska erótík, þá hefur henni aldrei verið gerð betri skil í kvik- mynd. Jónas Þór kemst undan með kredít- kort skepnunnar, tengdaföður síns. Hann er þó nokkur kvennaljómi, hann hittir stelpur, mestanpart fyrir tilviljun; þvælist með þeim stundarkorn af ei- lífðinni og einhvern tíma í leiðinni verður til nokkurs konar samningur, alsendis þegjandi, um að piltur og stúlka hátti saman. Vesenislaust, bara sisvona. Mjög þjóðlega erótískt. Viðbrögð kærustunnar: „Hvernig gastu farið svona á bak við mig?" Svar: „Það var enginn vandi." Ég man ekki eftir að hafa heyrt flottari replikku í íslenskri kvikmynd. Nú ber myndin þess reyndar merki að hún hefur orðið til með dálitlum harmkvælum; náttúrlega er hún gerð fyrir lítið brot af því sem venjulega tíðkast um bíómyndir. Kannski hefur Jóhann heldur ekki reynt að fá sér til hjálpar fólk með æskilega kunnáttu. Stundum finnst manni að urgi og surgi í hátölurum og orðaskil heyrast illa; tónlist (sem óvænt er ekki bylj- andi rokk heldur í bráðskemmtilegum mið-evrópskum kaffihúsastíl) er notuð til að breiða yfir vandræðaleg samtöl og misfellur í hljóði. Klippingin ber á pörtum vott um talsvert kunnáttuleysi í því fagi. Það er tæpast hægt að segja að myndin sé leikin í venjuleg- um skilningi þess orðs; auðvitað er heldur ekki reynt að fela að þarna eru alls engir stórleikarar í hlutverkum. Jóni Sæmundi tekst raunar ágæt- lega að vera í senn vænsti piltur og frekar ósvífinn kauði, tengdafaðirinn er skemmtilega leiðinlegur íslenskur karl, aðrir leikarar gera ekki mikið meira en að detta inn í og út úr mynd. Því er ekki furða að útkoman verði gloppótt í meira lagi; þegar vel tekst til virðist myndin sniðuglega hrá en ekki sjaldnar hálfköruð. Samt hefur hún yfir sér einhvern Reykjavíkurk- ómedíublæ sem er bæði sannur og sjarmerandi. Á einhvern hátt minnir hún mann á reykvíska sumarnótt þeg- ar allt lendir í broslegri endaleysu. Ég held ég Ijúgi engu þegar ég segi að Jóhann þekkir flest fólkið sem hann fjallar um. Aðallega eru það þó einstök atriði sem eru virði bíómiða, sum raunar ískrandi fyndin, og sýna að Jóhann getur farið miklu lengri spöl með meiri natni og betra fólki. Nefnum til dæmis atriðið þegar Jónas Þór er kominn á vergang og er að leigja sér pláss í bakhúsi við Laugaveg. Konan sem vill leigja út húsnæðið tjáir honum að „ýmislegt sé innifalið". Þarna inni er þó ekki annað en klæðaskápur sem hún opnar, rúmdýna á gólfinu sem hann drepur fæti á svo ískrar í gorm-. um — þvínæst fiktar hann í rofa og það kviknar á nakinni Ijósaperu í loft- inu. Klipp. Ef þetta er ekki fínn íslenskur real- ismi — þá veit ég ekki hvernig hann ætti að vera? -EGILL HELGASON -,-V opnum 10 á morgnana: pan con chocolate croissant salöt tapas kökur súpur bocadillos réttir dagsins Klapparstíg 26 s. 562 5059 GLÆSILEG LÚXUSBIFREIÐ Kjósum Mörð Árnason þingmann Reykvíkinga. á.takk! Pjóðvaki - hreyjing fólksins. MITSUBISHl PAJERO ER BÚINN MÖRGUM GÓÐUM KOSTUM SEM BÍLSTJÓRAR KUNNA AÐ META. ÞAR MÁ MEÐAL ANNARS NEFNA FALLEGT ÚTLIT, FRAMÚRSKARANDI AKSTURSEIGINLEIKA OG ALDRIFSBÚNAÐINN MEÐ FJÖLVALI. ÞÁ SITUR ÖRYGGl BÍLSTJÓRA OG FARÞEGA í FYRIRRÚMI. MITSUBISHI PAJERO STENDUR TIL BOÐA MEÐ KRAFTMIKLUM BENSÍN- EÐA DIESELHREYFLI. PAJERO DIESEL MEÐ FORÞJÖPPU OG MILLIKÆU KOSTAR FRÁ 3.494.000 TILBÚINN Á GÖTUNA! STAÐALBÚNAÐUR í PAJERO ER M.A. ÚTVARP OG SEGULBAND, RAFDRIFNAR RÚÐUR, RAFSTÝRÐIR ÚTISPEGLAR, FJAÐRANDI OG UPPHITUÐ FRAMSÆTI, 3JA STIGA STILLANLEG FJÖÐRUN, ÖKUHRAÐASTILLIR. HEKLA -f///e///a áest/ Laugavegi 170-174, sími 569 5500 MITSUBISHI MOTORS

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.