Helgarpósturinn - 30.11.1995, Page 2
2
/j*
HP spyr
Hvemig stendur á því
að tekjur einhleypra
karla hafa lækkað um
heil 4% síðan 1991 á
meðan ögiftar konur og
giftir hafa hækkað í
launum á sama tíma?
Lárus Halldórsson,
markaðsfulltrúi hjá Ice-
land Safari: „Það eru
þessar meðlagsgreiðsl-
ur sem eru að sliga ein-
hleypa karlmenn. Það er
eina skýringin sem ég
sé. Þeir eru svo margir
sem eru að títa út um
allan bæ.“
Örlygur Auðunsson,
afgreiðslumaður og fram-
kallari: „Fleiri konur í
ríkisstjórn.“
Bergur Rósinkrans
hagfrœðingur: „Er hægt
að setja þetta í eitthvert
samhengi? Þeir hafa
bara gleymst í kvenna-
þjóðfélaginu íslandi."
Vilhjálmur Árnason,
fiskvinnslustarfsmaður
númer 469: „Ég hef bæði
verið giftur og ógiftur.
Það er meiri ábyrgðar-
tilfinning sem maður
hefur þegar maður þarf
að standa við skuid-
bindingar gagnvart ein-
hverjum öðrum en sjálf-
um sér. Hin staðlaða
hugmynd atvinnurek-
enda að giftur maður sé
betri í vinnu hefur áhrif
á launin þó að það ætti
kannski ekki alltaf að
vera þannig."
Einar Daníelsson
einhleypingur: „Við
erum ekki nægjanlega
öflugur þrýstihópur,
ekki nógu áberandi og
máttlausir í kjarabarátt-
unni.“
Kristján Ágúst Njarðar-
son, öryrki og nemi: „Ég
bara veit það ekki.“
a«*___-
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995
hann vildi frekar — vegna afstöðu pólitískt
skipaðs útvarpsráðs. Hætt er við að fáir
fréttastjórar og ritstjórar myndu sætta sig
við þetta og væntanlega skilur Mörður það
öðrum betur sem gamall Þjóðviljaritstjóri.
Ekki fer sögum af undirtektum annarra þing-
manna við þessu uppátæki nýliðans.
til b j argcir
Boga
Það hefur ekki farið hátt, en einn stjórn-
málaskýrenda Helgarpóstsins, Mörður
Árnason, tók sæti á Alþingi í vikunni í
fjarveru Jóhönnu Sigurðardóttur og lét vit-
aniega strax til sín taka. Hann hefur lagt fram
frumvarp sem á að auðvelda Boga Agústs-
syni fréttastjóra og öðrum yfirmönnum hjá
Ríkisútvarpinu að vinna vinnuna sína. Mörð-
ur leggur til að afnumin verði heimild út-
varpsráðs til að skipta sér af mannaráðning-
um svo sem mörg dæmi eru um fyrr og síð-
ar. Nýjasta dæmið um slíkt er af ráðningu
Þorflnns Ómarsson-
ar í stöðu frétta-
manns á Sjónvarpinu.
Bogi hafði mælt með
Loga Bergmann Eiðs-
syni í starfið, en útvarpsráð veitti Þorfinni
atkvæði sín og eftir því fór Heimir Steinsson
við ákvörðun sína. Engin ástæða er til að
ætla að Bogi hafi neitt upp á Þorfinn að
klaga, enda ágætur fréttamaður, en Bogi var
sem sagt settur í þá undarlegu stöðu að fá
undir sína stjórn mann í stað annars sem
Einstaklega
seinheppið
leynifélag
ær voru heldur seinheppnar konurnar
sem hugðust hittast með ieynd um dag-
inn til að ræða þverpólitíska samstöðu
kvenna um forsetaframboð. Fundarstaður-
inn var líklega sá aiversti til að stofna á
leynifélag, en það var efri hæðin á Kaffi-
barnum við Bergstaðastræti. Kaffibarinn er
nefnilega Iíklega
með vinsælli sam-
komustöðum
blaðamanna í mið-
bænum og Helgar-
pósturinn sann-
fregnar að þegar
konurnar hittust
seinni part sunnu-
dags hafi ekki færri
en tveir blaðamenn
setið þar yfir kaffi-
bolla. Eitthvað kom þessi sjón á sumar
kvennanna þegar þær mættu til fundarins
og hrökklaðist að minnsta kosti ein út aftur,
en þó aðeins um stundarsakir og fór því
betur en á horfðist.
Ekki fór betur síð-
astliðið mánudags-
kvöld, þegar tveir
blaðamenn HP hugð-
ust fá sér snarl á
Hótel Borg. Þar sátu
í huggulegheitum
engar aðrar en Ás-
laug Ragnars, sem
hafði frumkvæði að
Kaffibarsfundinum,
og Kristín Ástgeirs-
dóttir alþingiskona, sem var boðuð á fyrri
fundinn, en komst ekki. Þarna átti sem sagt
að bæta úr því, enda voru þær stöllurnar
ábúðarmiklar og alvarlegar á svip. En allt
kom fyrir ekki: HP hefur augun alls staðar.
Sameiningarkratar foxillir vegna
Svavars-leiðara Alþýðublaðs
Sameiningarsinnuðum krötum brá illilega
í brún þegar þeir flettu Alþýðublaðinu
sínu í gærmorgun (miðvikudaginn 29. nóv-
ember) og uppgötvuðu beinskeytta aðför
leiðarahöfundar dagsins að Svavari Gests-
syni. Umfjöllunarefnið var meintur fortíðar-
vandi Svavars og hann atyrtur í hvívetna fyr-
ir að viðurkenna hvorki né takast á við sósí-
alíska fortíð sína. Síðustu línurnar hljóða
svo: „Sameining eða samstarf vinstri manna
hér á landi gerist ekki á grundvelli fortíðar-
innar, en það er mikilvægt að viðurkenna á
heiðarlegan hátt rætur þeirrar sundrungar
sem við búum nú við. Sérstaklega er mikil-
vægt að viðurkenna hlut Sovétríkjanna í því
efni á heiðarlegan hátt. Það hefur Svavar
Gestsson ekki gert.“ Sameiningarkratarnir
álíta Svavar einn af lykilmönnunum í ferli
samvinnu og hugsanlegrar sameiningar við
Alþýðubandalagið og/eða aðra flokka og
ógerlegt sé að fara framhjá honum í þeim
viðræðum. Sameiningarkrötum þykir þar af
leiðandi skjóta afar skökku við að ráðist sé
að Svavari á svo ótaktískan hátt í sjálfu mál-
gagni jafnaðarmanna og ræða foxillir sín á
milli um róttækar aðgerðir í málinu.
Umrœðuefni vikunnar
Davíð Oddssyni skríkaði fótur í líkinga-
fræðinni þegar hann hæddist að Jóni Bald-
vini og Evrópu-félögum hans fyrir að
stökkva yfir Evrópu-lækinn áður en þeir
komu að honum og reyna að veiða at-
kvæðaseiði úr Evrópu-hylnum án þess að
kunna á stöngina. Hvernig er hægt að
veiða í læk sem er of langt í burtu til að
hægt sé að stökkva yfir hann?
Árni Johnsen sneri upp á eyrað á Öss-
uri Skarphéðinssyni og sparkaði svo í
rassinn á honum. Það sá ekki högg á vatni.
Magnús Scheving sigraði í karlaflokki
á úrtökumóti fyrir heimsmeistaramótið í
þolfimi. Það þótti ekki draga úr sigurlík-
um Magnúsar að hann var eini keppand-
inn í sínum flokki.
Reykavíkurborg sagði að Tómas Tóm-
asson hefði keypt húsið í Pósthússtræti á
VISA-raðgreiðslum. Biðraðirnar hjá Hús-
næðisstofnun tæmdust umsvifalaust en
VISA klippti á kortið hjá Tomma.
ÁStöð2að
greiða afnota-
gjöld af þúsund-
um afruglara til
RUV?
Afruglarar þeir sem Stöð 2
lánar eða leigir áskrifend-
um sínum eru þeim ágætis-
kostum búnir að þeir virka
sem fullkomin viðtæki fyrir út-
sendingar Ríkissjónvarpsins —
í víðómi og NICAM-flottheitum.
Aftan á tækjunum eru nefni-
lega tenglar fyrir mónitora eða
sjónvarpsskjái þannig að ekki
er nauðsynlegt að kaupa sér-
stakt sjónvarpsviðtæki eigi
menn afruglara. Þetta hefur
fjöldi áhorfenda Stöðvar 2 nýtt
sér, þrátt fyrir að almenningur
hafi kannski ekki áttað sig á
þessu enn. Sömu sögu er
reyndar að segja um öll mynd-
bandstæki sem til eru í land-
inu: þau eru fullkomin viðtæki
fyrir /?í/V-sendingarnar. Eig-
endur allra sjónvarpsviðtækja
í landinu (burtséð frá því hvort
einhver er með þau í láni eða
leigu) greiða afnotagjöld til
Heimis og félaga í Efstaíeiti. Og
þá vaknar þessi spurning:
Þurfa sjálfir eigendur þessara
afruglara (Stöð 2 og Islenska
útvarpsfélagið) ekki jafnframt
að greiða afnotagjald til Ri/V? í
öllu falli þurfa þeir sem horfa á
Ríkissjónvarpið með aðstoð
myndbandstækis og mónitors
að greiða afnotagjald og hvers
vegna ekki þá Stöð 2 aí afrugl-
urum í sinni eigu? Á kannski
frekar að rukka fyrir mónitor-
inn en afruglarann vegna þess
að móttökutæki gagni lítið ef
enginn sé skjárinn? Og enn má
spyrja: Hvað með eigendur
hinna þúsunda margmiðlunar-
tölva sem geta tekið á móti
sjónvarpsútsendingum? Þurfa
þeir að borga? Hvernig ætla
æðstiklerkur og hans menn í
Efstaleiti að snúa sér í þessu
mjög svo ruglingslega máii?...
... Davíð Oddsson fyr-
ir að kasta af sér grímu
passífa landsföðurins,
sem sannast sagna fer
honum ekki vel. Á fræg-
um fundi í Valhöll síðast-
liðinn laugardag kom
gamli góði Matthildingur-
inn loksins upp á yfir-
borðið eftir langa og
stranga bið aðdáenda
hans. Hann krítíseraði
Jón Baldvin, fyrrverandi
vin sinn, fyrir að hafa
reynt að veiða atkvæði
þeirra sem vilja aðild að
EB í síðustu kosninga-
baráttu. „Menn verða að
kunna að fiska," sagði
gamli góði Dabbi, en
honum sýnist sem for-
maður Alþýðuflokksins
hafi þurft frá að hverfa
með öngulinn í rassinum
þar sem hann sat og var
að dorga Evrópuseiði í
gruggugri tjörn.