Helgarpósturinn - 30.11.1995, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 30.11.1995, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995 Egill Helgason fór í bfltúr um höfuðborgina. Hann ætlaði að skoða ýmsar byggingar 2. Nyrisin bensínstöð við Kalkofnsveg. Sé horft á hana úr suðri og austri sést varla lengur í hið dýra giæsihús Seðlabankans sem gnæfir á Arnarhóli. Raun- og kennileiti, en hvert sem hann fór blöstu við honum glæsilegar bensínstöðvar. Sar byrgir hún líka sýn til forljóts inngangsins i bílageymsiuna í Kolaportinu. Ef horft er úr suðvesturátt er heldur ekki alveg víst að sjáist í Reykjavíkurhöfn. mmmmmmmmm Sérstæð menninearsetur IBImvnHirS vlrlrnr p»f QtaprSi ^■■i I Imyndið ykkur ef stæði bensínstöð á Trafalgartorgi í London. Eða fyrir framan Eiffelturninn í París. Eða á Kóngsins nýjatorgi í Kaup- mannahöfn. Reykvíkingar hafa að vísu ekki sett niður bensín- stöð á Austurvelli, ekki ennþá, en bensínstöðvar í borgarland- inu eru þeirrar náttúru að þær eru fjarska sýnilegar, ólíkt því sem gerist víðast í erlendum borgum þar sem bensínstöðv- ar eru settar niður lengst burtu í úthverfum eða faldar í afkimum. Nei, þvert á móti. Bensín- stöðvar í höfuðborginni eru al- vöru mannvirki, þær er aldeilis ekki reynt að fela, heldur eru þær byggðar á áberandi stöð- um þar sem þær setja svip á borgarmyndina. Líkt og helstu táknmyndir lýðveldisins, bygg- ingar og styttur, eru þær glæsi- lega uppljómaðar — það mætti eiginlega halda að borgarbúar og borgaryfirvöld væru yfir- máta stolt af þeim menningar- setrum sem bensínstöðvarnar eru. Eða finnst kannski ein- hverjum að bensínstöðvar eigi ekki heima hvar sem er í borg- arlandslaginu, að kannski væri smekklegra að þær létu ögn minna yfir sér? Eins og stendur á vísum stað: Gáum að því. 716 69.9 1. Bensinstöð við Haga- torg, nýendurbætt og stækkuð til muna. Sé horft á Itana úr suðurátt skyggir hún á Pjóðar- bókhlöðuna nýju og hinn glæsilega glerskála sein er inngangur hennar. Sé horft á itana úr norðri ber hana við Hótei Sögu og Háskólabíó, en sé horft úr vestri skyggir hún á Melaskóla sem tnargir telja eitthvert stilhreinasta hús í Reykjavík. Vart þarf að taka frant að þegar kvöldar er bensínstöðin uppljómuð á tilkomu- mikinn hátt. 6. Kópavogsbúar hafa oft verið mjög hugkvæmir í skiptiiagsmálum. Petta er líklega eina bensínstöðin á landinu sem hefur verið valinn staður í miðri íbúðarblokk. Bensínstöðin við Suðurfell. Vilji Breiðholtsbúar njóta útsýnisins yfir borgina er lík- lega heppilegra að standa á planinu fyrir framan bens- ínstöðina en fyrir aftan hana. HÆGÆBÆ Fljótlega kemur að því að íslendingar geti fengið sér persónuleg bílnúmer með bókstöfum einum saman, sérhönnuð fyrir hvern og einn, eins og gert er í henni Ameríku. Stafirnir mega þó ekki vera fleiri en sex og auðvitað má ekkert standa þar sem gæti rask- að hugarró eða sært siðferðiskennd viðkvæmrar þjóðar. HP tekur hér forskot á sæluna og ber upp tillögur um hvernig nokkrir þjóðþekktir einstaklingar gætu notað sér nýju reglurnar. Ikringum mig ríkir stríðs- ástand. Á stéttinni fyrir fram- an liggur einhver dauður. Hin- um megin við götuna bera tveir menn félaga sinn á milli sín, verulega skaddaðan, haus- inn liggur út á hlið og úr munn- inum lafir letilegur sleftaumur. Augun eru iokuð, það er erfitt að sjá hvort hann er dauður Satt að segja. Sigrún Stefánsdóttir ______________ Þetta væri kærkomið tækifæri fyrir Sigrúnu að festa það rækilega í vitund þjóðarinnar að hún er þrátt fyrir allt doktor. Karl Steingrímsson í Pelsinum __________ Kalli er enginn Jón úti í bæ og undirstrikar það með upphafi nafns síns en notar þetta tækifæri smekklega til að koma Pelsinum að. KALPEL gBJÁJN ARj Þarna gæti Jónas á einfaldan hátt rétt þjóðinni puttann eins og hún á skilið. Jónas Kristjánsson Herra Ólafur Skúlason Undirstrikar sérstakt samband hans við almættið og með ensk- unni tekst að fá aðeins meiri poppfíling, sem veitir sannarlega ekki af í samkeppninni við stuðprestana. OHLORD ÆGÆBÆ Hermann Gunnarsson Hemmi fórnar sjálfum sér fyrir þjóðina og númeraplötu sinni einnig: Allt fyrir eitt lítið bros. LINDA Linda Pé. Það er og verður bara ein Linda og þjóðin er aldrei of oft minnt á það. Rúni Júll Eins og aðrir sjálfstæðir listamenn þarf Rúnar á allri auglýsingu að halda sem völ er á. Þarna eru upphafsstafirnir hans og til að nýta plássið er rétt að setja smástuð í þetta. DO IS L Davíð Oddsson Davíð kemur sér beint að efninu: upphafsstafirnir plús sjálfsögð áminning um að hann er jú aðal á íslandi. DULLAN Rósa Ingólfsdóttir Rósa er dúlla númer eitt á íslandi og þetta númer færi vel á bleikri Volkswagen-bjöllu, sem Rósa ætti endilega að fara að koma sér upp. HOP H U Magnús Scheving Lífsspeki úr smiðju eigandans sem lýsir honum einkar vel: einfalt, auðmelt og kallar fram gleði í hverri sál. Huldar Breiðgörð eða lifandi. Stuttu síðar mæti ég ungri hlandblautri stúlku, útgrátinni og móðursjúkri. Á eftir fyigir tautandi, stjarfeygð- ur maður með fossandi blóðnasir. Það er föstudags- kvöld í Reykjavík. Ég skáskýt mér milli ælupolla og held áfram göngunni niður Lauga- veginn. Að fara edrú á skemmtistað er eflaust ekki ósvipað því að stökkva allsber upp á svið fyrir troðfullu Þjóðleikhúsi og ætla sér að vera með í sýningunni. Þótt maður kunni rulluna þá leikur maður bara ekki vel alls- ber, eða edrú. Hinir skynja fljótlega óöryggið, verða fyrst dálítið hissa, sjá svo út hvernig er komið fyrir þér og nenna ekki að „leika“ við þig. Að lok- um ertu púaður niður fyrir að vera svona stressaður, stífur og glataður. Og endar úti í horni. Útskúfaður og sýpur kaffið með nagandi samvisku- biti yfir að vera þessi helvítis leiðindapúki að myrða stemmninguna með þvl að vera þú sjálfur. Á skemmtistaðnum hafði fólkið hoppað um eins og spastískir bavíanar og gert sitt besta til að heilla dansfélagann með llkamsstrokum, hnykkjum vinstri hægri og hröðum klof- kýlingum fram og aftur. Ég reyndi að ríma við stuðið með því að þykjast öfgahress, taka nokkra hnykki og hiæja hátt; „Hahaha, djöfull er geðveikt að vera til, haaaaa!" En áttaði mig fljótlega á að stífur limaburð- „Stuttu síðar mœti ég ungri hlandblautri stúlku, út- grátinni og móðursjúkri. Á eftir fylgir tautandi, stjarfeygður maður með fossandi blóðnasir. Það er föstudagskuöld í Reykjauík. “ urinn, kyrkingsleg sporin og tilgerðarlegir taktarnir létu mig líta út eins og iila þjakaðan af kiáðamaur. Þegar ég leit yfir skemmtistaðinn fannst mér ég horfa inn í þvottavél, aliir á urrandi snúningi löðrandi í svita og bjórfroðu. Enda ég bláedrú og vitlaus og orðinn það tjúnaður að ég var byrjað- ur að bryðja tyggjóið og húðin á mér farin að hnökra. Eg kom mér út. Og ég held göngunni áfram niður Laugaveginn. Sljóeygð kona um fertugt situr á hækj- um sér, undan pelsinum liðast kæruleysisleg hlandspræna. Maðurinn hennar stendur hikstandi við hliðina með auia- bros og rembist rangeygður við að ná fókus á remúlaðipart- íið sem hann öðru hvoru treð- ur í andlitíð sem lítur út eins og umferðarslys. Aðeins neðar stendur eitthvert pungsítt grey með buxurnar á hæiunum flissandi og sannar fyrir vinum sínum að hann sé „ískaldur nagli að norðan" með því að dingla eineygða kvikindinu framan í bílaumferðina. Annað- hvort er hann með sviðsskrekk eða skítkalt, jjví það sem hann hafði hugsað sem hvalreka fyr- ir „Reykjavíkurdrottningarnar" er orðið að skorpinni sardínu. Torgið hefur breyst I sjabbí sjússapartí og þúsundir manna sem hafa skíttapað fyr- ir töffaranum Bakkusi skakklappast á eyrnasneplun- um yfir aðra sem rangla um á herðablöðunum og halda að þeir séu að skemmta sér. í bland fullorðið fólk og fullorð- in börn. I gegnum þvöguna lið- ast „rúnturinn“. Undir stýrum sitja graðeygðír einmana Öskjuhlíðarkarakterar með rykfallin spjót í klofinu, eöa op- inmynntir útlendingar sem ým- ist telja sig lenta í miðri borg- arastyrjöld eða falinni mynda- vél. Eins og vanalega eru nokkrir viðreynslustílar í gangi. Sumir arka hoknir með hendur djúpt I vösum fram og aftur milli kvenfólksins og segja ákveðn- ir; „Partí. Viltu koma I partí. Núna! Ha!“. Ef hún segir „nei“, þá spyr hann vinkonu hennar og ef hún er ekki heldur til í „partí“ er farið að næstu. Reyndar segja fæstar „nei“. Aðrir fara fínna í hlutina: Hann: „Jájá, hmm. Já er það? Og hvað, ertu bara ein?“ Hún (Kt- ur á vinkonurnar sem standa I þriggja metra fjarlægð): „Nei, sko. Ég var með vinkonum mínum sko. það var bara svo geggjað stuð að við týndum al- veg hver annarri sko.“ Þau laumast í burtu. Hann svona fimm skrefum á undan til að enginn „fattí“. Svo eru það þeir sem ætla sko ekki að selja sig of ódýrt: Hann: „Heyrðu beib! Víst er ekkert annað en feer að þú borgir taxann, því ég þarf að splæsa í smokka! Díll.“ Hún: „Ókei, frekja.“ Þegar þau ganga í burtu heyri ég hann spyrja: „Hvað heitirðu annars?" Þeir sem ekki nenna að versla á ódýrasta „kjötmark- aði“ í heimi fara í iðandi hyst- eríuna við sjoppuna, kaupa popp, og fá í leiðinni tækifæri til að prófa hvernig Bítlunum leið þegar þeir voru á toppn- um. Og svo eru það hin sérviður- styggilegu viðrini sem ganga um ber að ofan með geðveikis- glampa í augunum og minna á gölluð vélmenni sem upphaf- lega voru hönnuð til að hand- rúnka írskum stóðhestum við sæðingar. En lentu á íslandi fyrir mísskilning hjá þýskum póststarfsmanni sem var að flýta sér á stefnumót og las vit- laust á pakkann. Það fólk sem ekki hefur týnt sjálfu sér er farið að tínast úr bænum. Þeir allra „hörðustu" ganga í hringi gráti næst af greddu. Einhverjir renna hýru auga til villikatta sem tipla framhjá. í leigubíiaröðinni líður mér eins og rollu sem eigin sam- viska hefur smalað heim á leið. Þegar ég geri þau mistök að stíga einu skrefi of langt fram tryllist eitthvert dökkhært lufsukryppildi sem virðist illa þjakað af riðuveiki. Ég segi honum að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir og bið hann svo að halda kjafti.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.