Helgarpósturinn - 30.11.1995, Qupperneq 9
f?3f! .Æ
FlMIVmJDAGUR 30. NÓVEMBER1995
9
Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri. Leiddi hátt í þrjátíu manna
sveit rannsóknamanna og lögregluþjóna sem gerði leiftursókn inná fimm
veitingastaði fyrir skemmstu. Aðgerðirnar eru umdeildar.
samir veitingamenn betur
uppá bókhald sitt og aðrir veit-
ingamenn sjái kannski að sér
ef þeir séu á annað borð í
skattsvikahugleiðingum.
Samkvæmt heimildum
blaðsins er ekki rétt, einsog
heyrst hefur fleygt, að þeir
staðir sem lentu í ieiftursókn
skattrannsóknarstjóra standi
allir við Laugaveg. Eins er það
rangt að þeir teljist allir til
skuggalegri hluta íslenskrar
veitingahúsaflóru. Þráttfyrir
að orðspor einhverra stað-
anna sé ófagurt þá er semsagt
enginn óhultur.
Heimildamaður blaðsins
segir að þessi skyndirannsókn
skattrannsóknarstjóra hafi
komið til vegna gruns um
nokkuð stórfelld skattsvik hjá
viðkomandi aðilum. Algeng-
ustu brotin munu meðal ann-
ars vera þessi: tekjur ekki
færðar inní sjóðvélar, starfs-
menn á duldum launum, áfengi
keypt prívat og selt á veitinga-
staðnum — framhjá vínbúð —
og sérílagi á það við bjórsölu.
Vanskil á launatengdum gjöld-
um voru ekki tekin inní ákvörð-
un um aðgerðirnar, en hins-
vegar var einn aðilinn grunað-
ur um umtalsverð undanskot
frá virðisaukaskatti.
í stuttu samtali Helgarpósts-
ins við Skúla Eggert Þórðar-
son skattrannsóknarstjóra
vildi hann ekkert tjá sig annað
um málið en það, að hann væri
fullkomlega sáttur við aðgerð-
irnar og teldi þær velheppnað-
ar. - shh
Harkan á sjónvarpsmarkaðnum eykst með hverjum degi og gneistar af sögusögnum. Ein gengur
til dæmis útá að Stöð 3 hafi lent í erfiðleikum vegna óvandaðs afruglarafyrirtækis.
Trúi ekki að
samkeppnisaðilarnir
standi fyrir þessu
- seg/r Úlfar Steindórsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 3,
og kveður söguna alfarið úr lausu lofti gripna.
Harkan á sjónvarpsmark-
aðnum eykst með hverj-
um degi og sérstaklega
gneistar milli frjálsu stöðv-
anna. Sú saga hefur þannig
gengið fjöllunum hærra undan-
farið, að Stöð 3 hafi lent í ákaf-
lega slæmum málum með inn-
kaup á afruglurum sínum.
Stoðum undir þetta rennir sú
staðreynd, að þráttfyrir að ör-
bylgjuloftnetin, sem þarf til að
ná sendingum stöðvarinnar,
séu komin og uppsett víðast
hvar, þá bólar lítið á afruglur-
unum.
Sagan segir jafnframt að Stöð
3 hafi fengið sýnishorn af af-
ruglurum að utan og ákveðið
svo að panta 20 þúsund stykki
af einni sérstakri tegund og
sent út bankaábyrgðir í því
skyni. Þegar afruglarafyrirtæk-
ið ytra var hinsvegar nánar
skoðað á að hafa komið í ljós,
að það var í meira lagi vafa-
samt og reyndar mestmegnis
til á pappírunum. Sagan herm-
ir að kaupin hafi af þessari
ástæðu gengið tilbaka og Stöð
3 neyðst til að huga að öðrum
úrlausnum á sínum málum. Og
þarna á að vera komin ástæð-
an fyrir því að lítið hefur borið
á afruglurum stöðvarinnar.
Úlfar Steindórsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 3, segir
þessa tilteknu sögu úr lausu
lofti gripna: „Við vorum að
velta fyrir okkur tveimur teg-
undum af afruglurum. Eftir að
hafa íhugað málið ákváðum
við að nota frekar aðra tegund-
ina en hina. Og sú ákvörðun
snerist alfarið um tækin og þau
kjör sem í boði voru, en ekki
fyrirtækin sjálf. Fyrirtækið sem
við eigum viðskipti við er stað-
sett í Tampa í Flórída og það
hefur til dæmis ekki nokkur
skapaður hlutur komið upp í
tengslum við það,“ sagði Ulfar.
„Við fáum afruglarana jafnt og
þétt að utan í samræmi við eft-
irspurn hér heima — og það
gerist bara hægt og bítandi.
Fyrstu afruglararnir koma til
landsins á næstu dögum. Það
virðast vera búnar til allskonar
sögur þessa dagana og ég skil
ekkert í því, vegna þess að
áhrifin af slíku geta ekki verið
nokkur til lengri tíma litið.
Maður veit ekki hvernig svona
sögur kvikna, en ég trúi að
minnsta kosti ekki að sam-
keppnisaðilar okkar standi fyr-
ir þessu.“
-shh
Úlfar Steindórsson sjónvarpsstjóri:
Maður veit ekki hvernig svona
sögur kvikna.
NYJAR VÖRUR
á hverjum deqi