Helgarpósturinn - 30.11.1995, Qupperneq 39
39
» CutUII?
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995
i
a
i
i
«
fl
4
4
í
i
fl
fl
1. Hver samdi hið vinsæla lag
sem sungið er við Maístjörnu
Halldórs Laxness?
2. Þekkt íslenskt skáld hét í
rauninni Aðalsteinn Krist-
mundsson, en hvert var
skáldanafn hans?
3. Þessi harðjaxl var yfirmað-
ur herafla Bandaríkjanna í
stríðinu við Japani. Hann var
stundum nefndur „bandarísk-
ur Sesar“ og sagði af sér eftir
deilur við Truman forseta.
Hann hét?
4. Hvaða stjórnmálamaður
gegndi emþætti menntamála-
ráðherra á íslandi samfleytt frá
1958-1971?
5. í hvaða guðspjalli er sú frá-
sögn af fæðingu Jesú sem oft-
ast er nefnd jólaguðspjallið?
6. Hvað heitir þessi fagra kona
sem síðar giftist kvikmynda-
framleiðandanum Carlo Ponti?
7. Portúgalskur landkönnuður
hefur fengið heiðurinn af
fyrstu hnattsiglingunni, þótt
hann kæmist raunar ekki alla
leið og væri drepinn á Filipps-
eyjum. Hann hét?
8. Hvað nefnist vestasti angi
íslands?
9. Þrír frægir fótboltamenn,
Pele, Michel Platini og Marad-
ona, léku allir í skyrtu með
sama númeri. Hvaða?
10. Hvaða ár kom Jóhannes
Páll páfi til íslands?
11. Þeldökkur píanóleikari
spilaði mikið með Bítlunum
síðustu árin sem sú ágæta
hljómsveit starfaði og var
hann jafnvel kallaður fimmti
bítillinn. Hann heitir?
12. í brugghúsi í Dublin er
framleiddur dökkur bjór sem
þykir afar höfugur. Hann heit-
ir?
•ssauuinf) ‘jq
uotsajj knia 'S
'6861 'II
01 JauinN 01
•jeSuB;gjefa '8
uei|aSet\i pueuipjaj 7,
uajoa eiqdos '9
•iliejdsgnSjesejpYi
uoseisio -cj ij[Áo f7
•jnmJV3BW sejSnoQ 'g
•jjeuiatg uuiatg z
uossjiaSsv uof 1
n»eS||0)ie!AJÓAS
Vín vikunnar
flmurinn var lokkandi
Það er ekki að ástæðulausu sem fjölmargir íslendingar eru
komnir með varanlegt ofnæmi fyrir jólagrautnum. Og það er
heldur ekki að ástæðulausu að bæði lögreglan og leigubifreiðar-
stjórar hafa tekið gleði sína í jólaamstrinu á ný. Þetta má hvort
tveggja rekja til sama meinsins, nefnilega þess þegar íslendingar
umturnuðu aldagömlum menningarsið nágrannaþjóðanna og
gerðust óðir jólaglöggsdrykkjumenn fyrir um áratug. Um miðbik
þessa tímabils mátti víða sjá glögg merki óhóflegrar glöggs-
drykkju; lögreglan lýsti miklum áhyggjum af drukknum ökumönn-
um í jólaumferðinni, leigubifreiðarstjórar höfðu ekki undan að
hreinsa upp rauðleita ælu sem festist varanlega í aftursætinu og
þeir, sem innbyrtu hvað mest af glögginu, gátu vart
horfst í augu við jólagrautinn með rúsínunum og
kanilstöngunum á aðfangadag — og geta ekki
enn.
Þeir sem þekkja hvað best til segja að
þótt jólaglögg fáist víða á veitingahúsum
og enn séu haldin jólaglöggsboð hafi
glöggið í sinni sterkustu mynd sungið
sinn svanasöng. Fyrir glöggsdrykkjunni
er nú komið Iíkt og saumaklúbbum, því
svipað og konur taka ekki lengur upp
þráðinn í klúbbunum hefur jólaglöggið
fengið að víkja fyrir bjór- og snafsa-
drykkju. Þess í stað gegnir glöggið
nú hlutverki ilmkertis; örlítið
af því er hitað í potti til að
fylla húsin jólaangan.
Það segir kannski
tm
♦ 4
// ;
meira en
m ö r g
orð að
e n g -
i n n
segir
lengur
„glögg í
g e s t s
augað" í
staðinn fyr-
ir „glöggt er
gests augað“.
Kæti einkennir hina notalegu Kósý,
sem ólíkt flestum sveitum hóf
ferilinn í stofunni heima við
tedrykkju — ekki í bílskúrnum.
hljómsveitinni viljum gjarnan
standa utan við alla pólitík.“
Það lætur vel í eyrum að út-
gáfutónleikar Kósý verða haldnir
í Vinabæ — gamla Tónabíói — í
kvöld. „Ef maður á aðeins að fá
að monta sig vil ég benda á að
við erum afar ánægðir með að fá
að spila í sama hljóðkerfi og Jam-
es Bond gerði um langt skeið á
íslandi."
Og hvað svo?
„Við ætlum að spila hér og þar
um bæinn og svo verðum við á
stórum en notalegum tónleikum
ásamt Páli Óskari í Borgarleik-
húsinu 19. desember. En ég á
ekki von á að við spilum mikið á
pöbbunum, við erum ekki mikið
fyrir fylleríssamkomur. Þótt við
látum ekki hófdrykkju fara í taug-
arnar á okkur finnst okkur
óþægilegt að spila fyrir fullt
fólk,“ segir Úlfur, sem er greini-
lega ekki mikið fyrir að láta raska
ró sinni. gk
Oþarfi að
leggja heila
stjómmála-
stefnu á
herðar okkar
Frá því á hátíðartónleikunum í
MR og nokkru síðar á tónleik-
unum í Kaffileikhúsinu fer um
flesta vellíðunartilfinning heyri
þeir minnst á unglingasveitina
Kósý, líkt og öll unglingavanda-
mál heims hverfi eins og dögg
fyrir sólu. í dag, fimmtudag,
sendir bandið frá sér sína fyrstu
geislaplötu, notalega eða hvað?
„Þótt diskurinn beri heitið „Kósý
jól“ er að finna á honum allt frá
klassík upp í alveg sjóðandi
heita suðræna slagara,“ upplýsir
Úlfur Eldjám sem ásamt þeim
Ragnari Kjartanssyni, Markúsi
Þór Andréssyni og Magnúsi
Ragnarssyni myndar flokkinn.
Úlfur heldur áfram: „Lögin eru
bæði þekkt og minna þekkt; slag-
arar sem við höfum verið að
spila og svo auðvitað nokkur
jólanúmer. Annars var hugsunin
að baki gerð disksins sú að þetta
yrði ekki eingöngu jóladiskur
heldur gæti fólk hlustað á hann á
öðrum tímum ársins einnig.“
Eitt laganna á plötunni heitir
„Rokkum rykið af jólunum" og
var samið með húsmæður lands-
ins í huga. „Við vorum reyndar
einnig að hugsa um mæður okk-
ur við jólahreingerninguna, —
að þær gætu stillt í botn og
gleymt sér við húsverkin fyrir
Káta bandið
Kósý skipað
þeim Úlfi, Magn-
úsi, Ragnari og
Markúsi Þór
heldur í kvöld út-
gáfutónleika á
veitingastað við
hæfi, Vinabæ.
jól. Nú og svo erum við líka með
leynigest á plötunni; Heiðu í Un-
un, sem syngur á móti okkur eitt
lag Ómars Ragnarssonar, lagið
„Jólasvein" sem okkur fannst við
hæfi að breyta í „Jólastelpu"
undir þessum kringumstæðum.“
Er eitthvað hœft í því sem Jón
Baldvin Hannibalsson hélt
fram, að nú væru afsprengi stöð-
ugleikans; Framsóknar og Ihalds,
sem hann kallar kósý-kynslóð-
ina, að vaxa úr grasi — væntan-
lega sem arftaki X-kynslóðarinn-
ar?
„Já, að einhverju leyti, því
uppruna hljómsveitarinnar má
rekja til notalegrar tedrykkju
inni í stofu, en þótt við viljum
halda okkur sem mest í stofunni,
slappa af og hafa það kósý finnst
mér það óþarft af Jóni Baldvini
að klína þessum stimpli á heila
kynslóð. Mér finnst það ekki rétt
af honum að leggja á herðar okk-
ar heila stjórnmálastefnu. Við í
sjónvarp
HP mæiir með:
Slmpson (Stöð 3 fim. 19.30)
Ef Stöð 3 er búin að bísa Simp-
son frá RÚV fyrir fullt og fast
horfir til stórra vandræða fyrir
Hinrik og hans menn við
Laugaveg 176.
Almannarómur
(Stöð 2 fim. 21.50)
Næstsíðasti
þáttur í
þessari geð-
þ e k k u
þáttaröð.
Stefán Jón
H a fst e i n
stýrir kapp-
ræðum í
beinni út-
sendingu af
stakri snilld. Áhorfendum
heima í stofu gefst kostur á að
hringja í þáttinn og vera með
og á móti. Synd og skömm að
þátturinn skuli ekki hafa meiri
áhrif á þjóðmálin en raun ber
vitni. Heilbrigð og hrekklaus
viðhorf í beinni. Er hægt að
hafa það betra?
Engill í sama húsi
(RUVfös. 18.00)
Fyrsti þáttur
jóladaga-
talsins, eftir
v i n i n a
Sveinbjörn
I. og Sigga
Valgeirs. Þó
að þeir séu
foringjar í
sjónvarpinu
þá á það
ekki endilega að útiloka þá frá
því að skrifa sjónvarpsleikrit.
Kjartan Bjargmunds, sá geð-
þekki leikari, verður án eía í
svaka stuði.
Hrafninn flýgur ***
(RÚVfös. 22.45)
Hrafn telst ekki merkilegur
pappír meðal intelligensíunnar
um þessar mundir. En hann er
við alþýðuskap sem og þessi
fína mynd sem er að mestu
laus við tilgerð. Það er helst að
Flosi ofleiki.
HP varar við
Lifshættir ríka og fræga fólks-
ins (Stöð 3 lau. 16.25)
Þetta prógramm er eins úrkynj-
að og titillinn bendir til.
Benny Hill (Stöð 3 lau. 19.00)
Ja, ef Heimir hefði leyft sér að
vera með þennan dónakall á
dagskrá hjá sér er hætt við að
það myndi hvína í tálknunum á
Onundi Ásgeirssyni. En þeir
geta víst ieyft sér þetta í skjóli
einkarekstrarins.
Mariah Carey á tónleikum
(RÚVsun. 14.45)
Þessi söngkona er svosem
ósköp sæt en að hún eigi eitt-
hvert erindi sem tónlistarmað-
ur — það er nú ekki.
Sjónvarpsmaður vðamnar
Ingvi Hrafn Jónsson
Þau leiðu mistök urðu hér í
þessum dálki fyrir hálfum mán-
uði að varað var við Bingó-
lottóþættinum fína. Ingvi
Hrafn Jónsson er einn ágæt-
asti sjónvarpsmaður sem þetta
land hefur alið. Þeir eru ekki
margir svo fjölhæfir að þeir
geti vippað sér úr vandaðri
æsifréttamennsku f kristaltæra
afþreyingu. Og það er hrein-
lega óborganlegt þegar lífsglað-
irlotterísþátttakendur hringja í
þáttinn, segjum Jón Jónsson
frá Siglufirði, og sá veit ekki
hvaðan á sig stendur veðrið
þegar Ingvi Hrafn segir þessum
sama Jóni að þegar hann var
polli þá hafi hann verið á síld-
arplaninu með umsjónarmanni
þáttarins. Um aflabrögð togara
ýmissa byggðarlaga veit hann
betur en heimamenn. Svo hef-
ur hann tekið að sér hlutverk
jólasveinsins allan ársins
hring: Útdeilandi gjöfum og
góðgæti á báða bóga. Þá er tón-
listarlegri smekkvísi hans við-
brugðið. Þeir sem ekki eiga
miða geta dúllað sér við að
raula hið fyrirtaksgóða stef
Magga Kjartans: í bingólottó...
á meðan Ingvi les tölurnar.
popp
Björgvin Halldórsson
og sagan endalausa á
Hótel íslandi. Aðeins
þrjár sýningar eftir á
stórskemmtuninni Þó
líði ár og öld. Hljóm-
sveitin Karma leikur svo
fyrir dansi.
Kol
heldur uppteknum hætti
á Gauki á Stöng.
Fínt fyrir þennan
pening
enn að á Sólon
fslandus, sem nú fær
ærlega samkeppni
handan götunnar.
Krístín Eysteinsdóttir
trúbador, sem nýverið
gaf út eftirtektarverðan
geisladisk, með einsöng
á Blúsbarnum.
Blátt áfram
tekur tónlistardýfu
á Fógetanum.
SUNNUDAGUR
Deep Jimi and
the Zep Creams
með útgáfutónleika
nýrrar „handgerðrar“
geislaplötu. Á Gauknum
í kvöld og aftur á
mánudagskvöld.
Anna Mjöll
aftur komin á kreik.
Hún heldur djasstón-
leika með alþekktum
djasslögum og öðrum
sígrænum söngvum
á Kaffi Reykjavík.
Henni til aðstoðar er
meðal annars faðir
hennar, Ólafur Gaukur.
Bjarni Tryggva
er aftur kominn á fullan
fítonskraft...
áFógetanum í kvöld.
SVEITABÖLL
Staðurínn, Keflavík
Bubbi tekur Hauk
frænda ásamt
Þorleifi Guðjónssyni á
fimmtudagskvöld.
Hótel Húsavík
Sixties með jólaæði
á Húsavík á
föstudagskvöld.
Víkurskáli, Vík í Mýrdal
Bubbi og Haukur frændi
(í anda) enn að rúnta
um landið.
Sjallinn, Akureyrí
Þar í bæ gista Sixties
aðfaranótt laugardags
og skemmta sér vonandi
vel. Um kvöldið setja
þeir svo upp jólaæði í
Sjálfstæðishúsinu.
Apple-umboðið hf.
Skipholti 21, simi: 511 5111
KRINGLUNNI