Vísir - 07.06.1975, Side 11
Visir. Laugardagur 7. júni 1975
1————
11
Shariff er betri leikari
i.ancia-bridgesveitin undir
forystu Omar Shariff hefur nú
spilað alla fjóra leiki sina i
Bandarikjunum og fóru leikar
svo, að þessi fræga sveit vann
aðeins einn leik. Belladonna-
Garozzo-Forquet-Avarelli niega
muna sinn fifil fegri, en saman-
lagt hafa þessir menn unnið
fleiri heimsmeistaratitla en all-
ir aðrir til samans. Lancia-
sveitin lagði undir fimm Lancia
bila i hverjuia leik og kostar
hver gripur um sjö þúsund
dollara. Fimmtán bila urðu þeir
að skilja eftir i Bandarikjunum
og þykir mér trúlegt að þeir séu
fleiri en Lanciamenn gerðu ráö
fyrir.
Fyrsti leikurinn var i New
York og þar tapaði Lancia-
sveitin með 25 IMP. Andstæð-
ingarnir voru Sonntag-Weich-
sel-Granovetter-Rubin.
Næsti leikur var i Los Angeles
og aftur tapaði Lancia-sveitin
og nú með 67 IMP. Nú voru and-
stæðingarnir Kantar-Eisenberg-
Katz-Cohen.
Þriðji leikurinn var i Chicago
og loks vann Lancia-sveitin og
með 43 IMP. Andstæöingarnir
voru Rosen-Rosenberg-Les
Bart-O'Neill.
Fjórði leikurinn, sem var
spilaöur i Miami, var eins og
klipptur út úr kvikmyndahand-
riti, enda lék Omar Shariff aðal-
hlutverkið i siðasta spilinu.
Staðan var a-v á hættu og suð-
ur gaf.
4 A-K-G-10-2
¥ A-9
♦ A
* A-D-10-9-2
6 Enginn 4 9.6-3
V G-10-8-5 ¥ K-7-4-2
♦ K-D-7-3 4 G-8-6-5-4-2
♦ K-G-8-6-5 4 ekkert
é D-8-7-5-4
V D-6-3
4 10-9
4 7-4-3
Bandarikjamennirnir Rosen-
kranz-Dobson-Bates-Mohan
höfðu haft nauma forystu af og
til i leiknum og þegar tiu spil
voru eftir þá voru þeir 2 IMP yf-
ir.
1 lokaða salnum spilaði
George Rosenkranz fjóra spaða
i suður og vann sex.
i opna salnum gengu sagnir
hins vegar á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
Shariff Mohan Garozzo Bates
P P 1* P
1 4 1 G D 24
24 P 6é D
P p p
Austur gerði sitt bezta til þess
að bana spilinu með þvi að út-
spilsdobla. en vestur hefur mis-
skilið doblið. þvi hann spilaði út
tigulkóng. Shariff drap á ásinn,
tók tvo hæstu i trompi og spilaði
sig heim á trompdrottningu.
Siðan svinaði hann laufaniu og
tók hjartaás, en vestur lét
hjartagosa. Nú var staðan
þessi:
* 10-2
¥ 9
4 enginn
* A-D-10-2
4 enginn 4 enginn
¥ 10-8 V K-7-4
♦ D 4 G-8-5-4
* K-G-8-6 4 ekkert
4 8-7
¥ D-6
10
* 7-4
BR HELDUR AÐALFUND
Aðalfundur Bridgefélags
Iteykjavfkur verður haldinn
miðvikudaginn 11. júni i Pomus
Medica og hefst kl. 20.
A dagskrá eru venjuleg aðal-
fundarstörf, en einnig verða af-
lient verðlaun fyrir keppni vetr-
arins. Verðlaunahafar og aðrir
félagsmenn eru beðnir að fjöl-
menna.
Shariff ætlaði að spila austur
upp á hjartakóng og þvi spilaði
hann hjartaniu. Austur lét um-
svilalaust fjarkann, þvi hann sá
enga von ef suður ætti hjarta-
drottningu.
Kf Shariff hefði látið drottn-
inguna, þá vinnur hann yfirslag,
en þegar kóngurinn kom ekki
frá austri, þá skipti Shariff um
skoðun og lét lágt. Vestur drap á
tíuna, spilaði meira njarta og
skyndilega var spilið óvinnandi.
Hjartadrottningin hefði ekki
einungis unnið 22 IMP og leikinn
með 5 IMP, heldur hefðu for-
ráðamenn Lancia bifreiðaverk-
smiðjanna einnig átt fimm bil-
um fleira.
Fáir hefðu trúað þvi að Omar
Shariff spilaði svona, nema eftir
kvikmyndahandriti, en Shariff
er vist betri leikari en spilari.
Sigurður Sverrisson...1827
5. Simon Simonarson —
Stefán Guðjohnsen.....1822
6. Guðlaugur Jóhannsson —
örn Arnþórsson........1799
öll eru þessi pör frá Bridge-
félagi Reykjavikur.
Árið 1953 var fyrst keppt um
tslandsmeistaratitil i tvimenn-
ing, en árið eftir var ekki keppt.
Siðan hefur verið keppt á hverju
ári og hafa 28 menn unnið titil-
inn einu sinni eða oftar.
Þeir sem hafa unnið oftar en
einu sinni eru:
Ásmundur Pálsson 7 sinnum
Hjalti Eliasson 7 sinnum
Simon Simonarson 3 sinnum
Þorgeir Sigurðsson 3 sinnum
Eggert Benónýsson 2 sinnum
Páll Bergsson 2 sinnum
Þeir Guðmundur og Karl voru
einnig i sveit Jóns Hjaltasonar,
sem vann íslandsmótið i sveita-
keppni fyrir stuttu.
Nýlega lauk Islandsmeistara-
móti i tvimenning og urðu is-
landsm eistarar Guðmundur
Pétursson og Karl Sigurhjartar-
son frá Bridgefélagi Reykjavík-
ur. Röð og stig efstu para var
þannig:
1. Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson.... 1960
2. Ásmundur Pálsson —
Hjalti Eliasson.......1953
3. Gylfi Baldursson —
Sveinn Helgason.......1835
4. Valur Sigurðsson —
íslandsmeistarar i tvimenning 1975 Karl Sigurhjartarson og Guö-
mundur Pétursson.
GUÐMUNDUR OG KARL
ÍSLANDSMEISTARAR
Láttu ganga
Nú eru menn farnir að sparka i bolta hér
uppi á Islandi og kalla slikt knatt-
spymuvertið eða knattspyrnutimabil, allt
eftir þvi, hvað viðkomandi er þjóðlega
sinnaður. Síðan bjóðum við hingað út-
lendingum að sparka i bolta með okkur og
köllum slikt knattspyrnukappleik. Ekki
hefur okkur tekist að ná góðum árangri i
sparkinu og er það að fróðra manna sögn
fámenni okkar að kenna. Þegar ég hef séð
svona keppni i sjónvarpi hef ég þvi alltaf
talið i báðum liðum og aldrei getað betur
séð en að okkar menn væru nákvæmlega
jafnmargir og andstæðingamir. Aftur á
móti hafa þeir útlendu yfirleitt sparkað
helmingi oftar i boltann en við. A meðan
þeir útlendu hafa verið að sparka i
boltann, hafa okkar menn verið á ráfi um
leikvöllinn i einhverjum allt öðrum
erindagjörðum en þeim ber eðli leiksins
samkvæmt. Ég held að eina ráðið til úr-
bóta i þessu efni sé það, að islendingar fái
alltaf að hafa sinn eigin bolta i svona
leikjum, og andstæðingunum verði
umsvifalaust visað af velli, ef þeir svo
mikið sem koma nálægt honum.
ALDRB NÆGJA ORDIN TÓM
í fótboltanum færri mörk
en flestir landinn setur.
En okkar miklu asnaspörk
enginn varið getur.
Göngugötur eru mesta þarfaþing. Það
má jafnvel segja, að i nútimaþjóðfélagi,
hvaðsvo sem það nú er, séu þær nauðsyn-
legar, þvf að i þessu nútfmaþjóðfélagi,
sem égveitekki hvaðer, mun hreyfingar-
leysið öðru fremur vera að gera út af við
fólk. Við eigum eina göngugötu, sem auk
þess að vera það er lfka verslunargata. 1
nútimaþjóðfélagi, og enn er ég engu nær,
þykir hlýða að fólk hafi stöðugt glymjandi
I eyrum sér tónlist, mörgum til hinnar
mestu armæðu.
Göngugötuverslunareigendum hefur
þótt hlýða að koma til móts við þá sem
slikt vilja og útvarpa þvi hávaða upp á svo
og svo mörg desibil i eyru þeirra sem um
umráðasvæði þeirra fara.
Glamrar þarna I glymskröttunum.
Með góðvilja skal á það bent,
að þeir lækki á útsölunum
einnig slikt um tfprósent.
Við eigum okkar þjóðhátiðardag. Við
eigum einnig fyrsta maf, okkar sumar-
dag, vetrardag og þannig mætti lengi
telja. En nú höfum við lika eignast dag
hársins. Er það góð framför og sérlega
upplifgandi fyrir sköllótta menn.
Um hárið okkar allt nú snýst,
já, okkar, það er hins sterka kyns.
En eitt má telja alveg vist,
það er ekki dagur Þórarins.
Það virðist lenska hér að tala illa um
stjórnvöld. Ekki veit ég af hverju þetta
stafar.en hitt veit ég, að þetta getur ekki
verið vegna þess að stjórnvöld séu svo
slæm, að þau eigi þetta skilið. Mér hefur
alltaf þótt vel stjórnað hér, ef einhverju
hefur á annað borð verið stjórnað. Það
ber að þakka sem þakkar er vert og nú
nýverið var felldur niður söluskattur af
ýmsum vörutegundum. Þakka ég hér með
fyrir það.
Að kaupa í matinn oft er ógnar streð.
Vors efnahags er löngum mikill bratti.
En gott er það, nú skuli hafa skeð,
að skonrokið er undanþegið skatti.
Fyrir þetta stjórnin eflaust á
allt gott skilið, sérstaklega Matti.
Af ávöxtum vér skulum þekkja þá,
þeim, sem eru undanþegnir skatti.
Ég nefndi um daginn nokkur atriði til
sannindamerkis um það, að vorið væri
komið. Ég gleymdi þá að geta aðalat-
riðisins, en það er, að þegar veður fer að
batna fara lögreglumenn að láta sjá sig á
hinum óliklegustu stöðum, þvi miður.
Þeir eru þá gjarnan með ýmis tól, sem al-
menningi er ekki allt of vel við og virðast
ekki þola kulda.
Radaraugaö allt vist sér,
það ökuinenn ei gleður.
Upp það sett er aðeins hér.
ef að gott er veður.
Þegar frost er Fróni á
fögnuð að oss setur.
Radaraugað ekkert sá
i allan heila vetur.
Stundum ek ég ensi greitt,
þótt engan Radar blekki.
Sá akstur kostar ekki neitt,
ef hann sér mig ekki.
En, ef öll þau brot sem af ég kvelst
á einu greiddi bretti.
Sektarféð þá held ég helst
á hausinn strax mig setti.
Mér varð á i messunni i siðasta þætti.
Þar hélt ég þvi fram, að allir fengju sinn
dóm i lifinu. Nú hefur komið fram i
sjónvarpi að þetta erekki rétt. Þaðfá ekki
allir sinn dóm. Það eru aðeins þeir, sem
ekkert brjóta af sér, sem dæmdir verða.
Hinir sleppa og býst ég við að þetta muni
verða mörgum til hugarhægðar.
Aldrei nægja orðin tóm
á oröin skal þvi vera spar.
Ymsir hljóta ekki dóm,
þótt ættu, að dómi Vilmundar.
Þar með verð ég að ljúka þættinum bvi
að: ’ F
Pegasus ekki gengur greitt,
þótt galvaskur ég bölvi og sverji.
Og ei mérN finnst hann fjörgast neitt,
þótt fótastokkinn talsvert berji.
Ben. Ax.