Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1948, Side 15
a
lá
'U þ,
orannóánn:
E L D E
FYRIR 50
EFTIR AÐ við nökkrir Miðnes-
ingar komum heim af Keflavík-
inni (kútter H. P. Duus í Kefla-
vjk), hir.n 20. ágúst 1897, var veð-
urlag blítt og bjart í nokkurn tíma
hjer á suðvesturlandi og sjór að
sama skapi kyrr og hrimlaus. Eft-
ir heimkomuna fengum við fliótt
að vita, að Sigurður Ólafsson bóndi
í Hvalsnesi og oddviti Miðnes-
hrepps hafði gert samkomulag
við Hjalta Jónsson, er þá bjó í
Höfnum, um það, að fara til Eld-
evjar að afla Súlu-unga er hann
vaeri fullgerður, sem kallað var,
það er fullvaxinn og að því kom-
inn að vera fleygur, -og þegar
frískir karlmenn, duglegir til þess
að manna skipin væru komnir
heim af skútum eða úr kaupa-
vinnu, sem þá var sumaratvinna
flestra verkfærra manna á Suður-
nesjum, er að heiman komust. Far-
ið skyldi á 2 stórskipurn, öðru úr
Höfnum en hinu úr Hvalsnesvör
(stórskip voru þau kölluð þá, sem
höfðu 4—6 árar á borð). Eina stór-
skipið — og það síðasta — sem var
í förum af Miðnesi var „Hreggvið-
ur“ Sigurðar Ólafssonar, tíæringur,
með loggortu sigling, fagurt og
gott skip, ágætlega búið að segl-
um.
Ekki man jeg daginn, sem farið
var, en sama blíðviðri var þá og
verið hafði undanfarið, logn að
morgni og bjartviðri, en hæg vest-
an kylja (útræna), er fram á dag-
Magnús Þórarinsson
inn kom. Á leiðinni til evar voru
þeir (á okkar skip') valdir, er
greiða skyldu uppgöngu á Eldey.
Urðu þessir fyrir vali: Sigurður
Ólafsson, Magnús Einarsson og frá-
segjandi, sem undraðist valið og
kom það á óvart. Óreyndur ung-
lingur, uppalinn á flatlendi Suður-
nesja, sem varla hafði fjöll sjeð,
nema bláa toppana í ijarska, sýnd-
ist mjer ekki efnilegur bjargmað-
ur eftir því, sem jag hafði sögurn-
ar heyrt. En best var að láta
skeika að sköpuðu, og svo revnd-
ist að jeg þurfti ekki frekari fyr-
irgreiðslu en öðrum var veitt.
Gengið á Eldey.
Er við komum að Eldey biðum
við eftir Hafnaskipinu, sem var á
leiðinni. Formaður á því var
auðvitað Hjalti, enda var hann for-
maður allrar fararinnar. Strax og
hann kom rendi hann stafni að
Frh. á bls 574
ARFERÐIR
ARUM
Eldey.