Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1948, Síða 25

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1948, Síða 25
* ijjncjótu íeóendumir BERNS ÞAÐ höfðu gengið stórhríðar mest- alla jólaföstuna. Snjónum hafði kyngt niður og það voou komnir stórir skaflar kringum bæinn. Ef upprof kom, sem sjaldan var, skut- umst við strákarnir út til að renna okkur á bossanum niður af skafl- inum sunnan við bæinn. Það var nú reglulega gaman, en stúlkurnar sögðu að^ við skemmdum buxurnar okkar á því, en við skeyttum því víst lítið. — En svo brá til hláku v;ku fyrir jólin. Stóru skaflarnir urðu að dálitlum hæðum og í laut- unum varð eintómt k>'ap. Rjett fyrir jólin frysti svo. Skaflarnir urðu glerharðir svo að við gátum ekki fótað okkur á þeim, en í laut- unum, þar sem krapið var áður, kom nú spegilsljett svell, sem við gátum rent okkur á fótskriðu því enga áttum við skautana og kunn- um heldur ekkert á þeim, en við ófunduðum strákana á næsta bæ, sem voru dálítið eldri, þeir kunnu á skautum og einn þeirra átti skauta. Fullorðna fólkið varaði okk ur við að svellið gæti verið vara- samt, og svo yrðum við líka að passa okkur að detta ekki á því. Við töldum nú ekki hættu. á því, en svo einu sinni þegar jeg var þar sem svellið og fönninn mættust þá vissi jeg ekki fyrri til en að jeg var með allan neðri hlutann niðri í svellinu en hendurnar og hausmn upp úr. Jeg hafði mig ekki upp og þar orgaði jeg þangað til að Inga vinnukona kom út og dró mig upp úr og rak mig inn í bæ. Þar svipti hún af mjer öllum fötunum að neð anverðu, þurrkaði af mjer mestu bleytuna og sagði mjer að vera niðri undir þangað til fötin mín KU MIIMIMIISIG AR UM JÓLIM HJER SEGIR gamall maður frá fyrstu jólunum, sem hann man eftir. Þá var alt með öðrum svip en nú er, en fyrir börnin í sveitinni voru jóiin þá sannkölluð hátíð. Og endurminningin ljómar sltrert fram á elliái. Megi jólagleðin verða öllum litlum börnum jafn minnisstæð og þessum gamla manni. væru orðin þurr. Jeg varð auðvit- að að hlýða þessu, ekki af því að jeg vildi það, heldur af því að jeg gat ekki farið út berstrípaður, en hart fannst mjer að þurfa að hætta að renna mjer á svona góðu svelli eins og þarna var. Gvendur vinnumaður var sendur í kaupstaðinn. Hann átti að sækja eitt og annað sem vantaði til jól- anna. Hann var tvo daga í burtu og mikið fannst okkur hann vera lengi. Þó var Gvendur mesta göngu rofa. Við vorum nú náttúrlega úti meira og minna á daginn, en vör- uðumst að vera á viðsjálustu svell- unum. Það var komið tunglskin á kvöldin, en þá þorðum við ekki að vera úti af ótta við jólasveinana. Við höfðum heyrt fullorðna fólkið tala um þá og við vorum þess full- viss, að þeir væru á ferðinni og kæmu á hvern bæ fyrir jólin, og þeir voru hálfgerðir viðsjálsgripir fyrir börn. Við vorum að spjalla um það okkar í milli hvort jóla- sveinarnir mundu nú koma utan að eða sunnan að bænum; á hvaða bæi þeir væru nú búnir að koma og hvar þeir mundu nú koma í kvöld. Við vorum á gægjum hvort við sæum nú engan þeirra og þó við værum blóðhrædd við komu þeiira þá hlökkuðum við líka til hennar, því við vissum að ekki gátu jólin komið nema jólasveinarnir kæmu líka. Svo rann Þorláksdagur upp, Það var nú alveg víst, að jólasveinninn sem átti að koma þann dag, hann hjet Tumi. Þann dag var líka von á Gvendi heim. Við vorum altaf að gæta að hvort við sæum ekki annað hvort Gvend eða Tuma. Helst hjeld um við nú að þeir kæmu báðir saman, að Tumi hefði nú slegist í förina með Gvendi. Það hlaut að vera svo miklu skemtilegra fyrir þá að verða samferða. En svo leið dagurinn, að við sáum hvorugan þeirra. Rökkrið kom og við þorðum ekki að vera úti þegar fór að dimma. Það var ógaman að vita kannske ekki af fyrr en einhver jólasveinanna var kominn fast að manni og kannske þreif í mann. Við fórum því inn. En hvað var nú á ferðum í búrinu? Mamma var þar og hafði látið eitthvað í strokkinn. Hún hafði líka breitt stórt hert sauðarskinn á búrgólfið og lagt vfir það tvær lángar spýtur samsíða. Milli þeirra voru svo lagðar marg- ar mjóar smáspýtur með löngum ijósagarns rökum. Þessum rökum drap svo mamma niður í það sem í strokknum var, setti svo spýturn- ar á milli ránna og ljet þær hanga þar nokkra stund. Þá sáum við hvað var í strokknum; það var tólg,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.