Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1953, Side 8
606 ' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS lllgresi ræktað í gróðurhúsum 09 veggjalýs aldar upp í stérum stil Hér sést nokkur hluti af rannsóknastöðinni í Beltsville. Fremst eru gróðurhús, en að baki rannsóknabyggingarnar. Þarna er rannsakað allt, sem að gróður- magni jarðar lýtur, gerlagróður og sýrur í jarðvegi, alls konar áburðarteg- undir, alls konar illgresi og þar eru gerðar kynblandanir jurta. TÓLF mílur frá Washington er til- raunastöð fyrir landbúnað, en vinnur á allt öðrum grundvelli en venjulegt er. Hún heitir Beltsville. Þar starfa mÖrg hundruð vísinda- manna og auk þess 2000 verka- menn. Þetta er því dýr stofnun, en þjóðin græðir meira á henni en flestum öðrum stofnunum. Og þangað streyma menn úr öllum löndum heims til þess að kynnast starfi stofnunarinnar og læra. í fyrra komu þangað til dæmis 10.000 gestir. Vegna starfsemi þessarar stöðv- ar og annarra tilraunastöðva í öll- um Bandaríkjunum, er nú að ger- ast bylting í öllum landbúnaði þar. Búskapur hefur breyzt meira nokk- ur seinustu árin, heldur en hann hafði áður breyzt frá því er land byggðist. Búnaðarvísindin hafa áhrif á líf allra stetta í landinu. Fyrir til- verknað þeirra hefur þjóðin nú meira og betra og hollara viður- væri en hún hefur nokkuru sinni haft áður, og lifir þess vegna betra lífi. Stærsta tilraunastöðin Beltsville er stærsta tilraunastöð landbúnaðarins í Bandaríkjunum. Þegar það lcom til orða að stofna hana fyrir 43 árum, sendi land- búnaðarráðuneytið menn á stað til þess að velja stað handa henni. Þeir ferðuðust ekki sem stjórnar erindrekar, heldur sem bændur. Þótti það vissara, því að mönnum hættir til að vilja selja með upp- sprengdu verði allt, sem þeir vita að hið opinbera vill kaupa. Meðal annars skoðuðu þeir landið hjá Beltsville. Það hafði þann kost, að járnbrautarstöð var þar nálægt, og það hafði líka þann kost að vera ódýrt, — en það var „magurt“ land, og sendimenn sögðu ráðherr- anum að sér litist ekki á það þess vegna. Ráðherrann, sem þá var, James Wilson, rauk upp og sagði: „Það er enginn vandi að fá góða uppskeru á góðu landi. Kaupið þetta land undir eins og notið á það nóg af kúamykju.“ Svo var landið keypt. Það er 11.000 ekrur að stærð og nú standa á því 930 byggingar og þar er flug- völlur. Þarna fara svo fram hinar víðtækustu og fjölbreyttustu til- raunir og má þar þá fyrst nefna kynbætur húsdýra og jarðargróð- urs. Og þetta hefur haft hinar stór- kostlegustu framfarir í för með sér fyrir landbúnaðinn. Nú fá bændur til dæmis 750 milljón bushels meiri uppskeru af ökrum sínum en áður, vegna þess að þeir nota kynbland- aðar korntegundir. Fyrstu kyn- blönduðu korntegundirnar voru reyndar til útsæðis 1922. Nú eru um 80% af öllu útsæðiskorni kyn- blandið, og í stærstu kornræktar- héruðunum er ekki borið við að sá öðru en kynblönduðu fræi. Vegna þekkingar manna á erfðalögmálinu, geta vísindamenn nú tekið tvær tegundir jurta og látið þær geta afkvæmi, sem hefur alla beztu eig- inleika foreldranna, en er laust við ókosti þeirra. Kynblöndunin verður til þess að afkvæmið verður hraust- ara og betra heldur en foreldrarn- ir. Þetta kemur ákaflega víða fram, t. d. í grasi því, sem nú hefur verið framleitt í Beltsville og þeir kalla „The Combination“. Það er þannig til komið, að amerískur maður, sem Meyer hét, safnaði ýmsum fræteg- undum í Asíu og sendi heim. Þar á meðal fræ af grasi, sem nefnist

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.