Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Side 30

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1965, Side 30
hannes fór því næst að stýrinu og stýrði eins nærri vindi og unnt var, eða um það 'bil beint til hafs. Ski-pið lagðist þegar upp fyrir þilfarsbrún, og þegar á það komu krappar öldur, fleygðist það svo, að öldustx>kikurinn til hilés fór á bóla kaf. Og ekki varð séð, að gamli maður- inn brygði sér upp við þetta. Hann stóð við stýrið, japlaði munntóbakstölu, sté fram á fótinn, raulaði rímnaerindi og spýtti annað veifið um tönn. eir Ludvig og Guðni höfðu setzt á káetukappann. Guðni virtist áhyggju- fuliur, en Ludvig virti allt fyrir sér með undrun og forviitni. Hann hafði aldrei verið á siglingu á svona skipi, og að sjá það vaða svona, annað veifið leggja í bóginn, svo að sjófyllan valt aft- ur eftir þilfarinu og sameinaðist þar þeirri straumelfi, sem rann inn aifitan við höfuðböndin, þegar skipið lagði öldu- stokkinn í sjó, — það var Ludvig ekki skelfingarefni, heldur vakti það honum sívaxandi undrun. Allt í einu mundi hann eftir Njáli. Hann hafði nálgast Kristján, meðan verið var að seglbúa hann, en aldrei komið svo nærri, að Sigurður reyndi að kalla á milli skipanna. Nú stefindi Njáll austur á bóg- inn. — Sigurður þóttizt sjá, hvað fyrir gamla manninum vekti, og hafði svo ákveðið, að freista þess, að ná á Njáli fyrir Barðann og á Önundarfjörð. „Ég vissi að það var norðurfall,“ sagði hann seinna, þegar Ludvig hitti hann og spurði hann, hvernig honum hefði litizt á, „og ég treysti því, að mér mundi endast það norður fyrir Barðann, en hins vegar væri sjórinn ekki það úfinn, að ég þyrfti að óttast, að báturinn bæri ekki af sjóina. Ja, hann Jói, — nei, ég varð ekki svo hissa, — þetta er sjóhund- ur og hörkutól, sem ekkert hræðist og a-lltaf er jafnsallarólegur, — en auðvitað var þetta frá sjónarmiði venjulegs manns — ja, ég veit ekki, hvað ég á a'ð kalla það.“ Ludvig sagði honum, hvað Jóhannee hefði veri-ð að segja við skipið. „Já, einmitt," sagði Sigurður „stendur heima......En drengur minn, svo und- arlegt sem það er, þá er eins og þessir menn af gerð Jóhannesar, geti skynjað einhverjar meiningar hjá skipunum sin- um — eins og viti, að þau hugsi og eigi sér metnað — já, og hvað þau hugsi, og hver metnaðurinn sé.“ Jóhannes söng — nú það var bara hestá- og barnagæla: „Fallega Skjóni fótinn ber framan eftir hlíðunum. Af góðum var hann gefinn mér, gaman er að ríða honum.“ Já, það sýndist næstum svo, að Jó- hannesi þætti gaman að ríða þessum Skjóna, og þá mundi honum láta að halda í taumana á honum. Ludvig — það var eins og nú hefði honum opnazt nýr heimur, ný útsýn til mannþekkingar, minnsta kosti til þekkingar á þeirri mót un, sem fylgdi erfiðu og vandasömu ævi- starfi, sem reyndi á manninn til þess ýtrasta, hvorf sem var á sjó eða landi. Ekki varð það séð á Jófhannesi, að honum kólnaði, en hins vegar sá Lud- vig, að Guðni ók sér og yppti öxlum, og sjálfur fann hann fara um sig ónot. Nú var líka orðin ágjöf, jafnvel þarna aft- ast á káetukappanum. Svo fór þá Lud- vig að berja sér til handa, og Jóhannes leit á hann og sagði: „Hvað er að sjá til þín, drengur? Ég segi nú barasta eins og S'turla gamli Ólafsson: „þið ættuð að sjá Franzmenn: Þarna standa þeir við færið í gaddhörku frostinu, þegar tennurnar frjósa í kjaft- inum á þeim, berfættir í vettlingunum og berhenitir í sokkaræflunum, og sér þá aldrei nokkur maður berja sér“. Jæja, berðu þér nú duglega, drengur minn, og hafðu ekkert hálfkák á því.... En sko, — fallega tók hann þessa báru hann Stjáni litli — þetta verður reglulegur lystitúr, það finnst honum." „Mér finnst nú,“ mælti Guðni og var dálítið þungur á brún, „að hvað sem öðru líður, þá hefðir þú sem skipstjóri, getað verið þekktur fyrir að hafa með einhvern bita og vatnssopa, og eitthvað í eldinn. Það verður ekkert notalegt, að hírast svona hlifarlaus og án þess að geta svo mikið sem velgt sér kaffisopa." „Hoh, berðu þér bæði við kulda og sulti, Guðni, garmurinn, en af vætunni hugsa ég þú fáir nóg. Svo verður nóg að Sigurður Fr. Einarsson. éta og drekka, þegar til Flateyrar kemur. Já, ég ætla að fá mér hjá ihonum Kjart- ani góðan snafs af brennivíni og lýsi, — það er brjóstbirta, sem segir sex. En þið getið nú skriðið í skjó-1 í káetunni, geyin mín, og svo ættir þú að geta hald- ið í stýri, — ég skil varla, að báturinn taki það illa upp.....Nei, nei, — ekki strax ofan í: Ég ætla að biðja þig, Guðni minn, að skondra hérna fram að spilinu og ná í enda af tóinu, koma með hann aftur eftir — kuiborðsmegin vitaskuld — og setja hann fastan, vel strekktan, héma aftur í skautbommuna. Það er gott að hafa hann til stuðnings, minnsta kosti þegar að því kemur að venda.“ Guðni brá við. Hann hafði fyrst stuðning af káetukappanum, en greip síðan í öldustokkinn til kuls, beygði sig og lét skjólborðin hlífa sér, þegar kom fram á miðsíðuna, þar sem ávallt hellt- usit inn yfir öldustokkinn hvítlöðrandi hnyklar. Ludvig horfði á hann. Það var ekki dónalegt eða hitt þó heldur að fá þessar gusur yfir sig, svona hlífalaus eins og Guðni var. En ekki varð séð, að honum brygði við steypiböðin. Sko, nú kom hann aftur efitir með gildan kaðalendann. Hana, þar dýfði skipið honum í, sá ekki nema á bláhöfuðið upp úr sjófyllunni. Ludvig var hissa. Hann hefði aldrei getað hugsað sér, að skip gæti svamlað svona heilu og höldnu næstum eins mikið neðan sjávar og ofan, honum datt í hug Sæfarinn, eftir Júlíus Verne, og það, sem hann hafði ’heyrt um kafbátana, sem stór- veldin vora farin að búa til...... Þar dýfði skipið sér aftur, og það skalf og nötraði frá bugspjótshnokka og allt aftur í hæl. Ög-Ludvig heyrði, að Jóhannes tautaði: „Ha? Var ég nú Maufi? Nei, það er mesti misskilningur hjá þér, Stjáni minn. Þú skyldir hafa fundið fyrir því, ef ég hefði gefið þér stormklýfinn láka, en nei, það þori ég ekki að eiga við, — ekki 30 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS með svona mannskap. Við verðum bara að hafa frábóginn lengri, lagsmaður.... O, hvert í sótsvart ....... Ljót er hún þessi. Heh, þar sástu, við lékum á hana, og nú spýti ég í hana af foragit, um leið og hún fer aftur með.“ Og Jóhannes spýtti í vindátt, en allt fór það á bring- una á honum. Nú var Guðni kominn aftur eftir með tóið, og svo strengdu þeir þá á þvi, hann og Ludvig, og fesitu það eins og Jóhannes skipaði fyrir. Svo sagði gamli maðurinn: ,Nú er það ykkur sjálfum að kenna, ef þið farið fyrir borð, þó að þið skjótist fram á og hann dýfi ytkkur í — eins og Einar draujari, þegar hann var að skíra kerlingarnar í Hvammsánni hérna um árið .... Nema nú skuluð þi'ð bregða ykkur ofan í og taka af ykkur gust. Það sér ekki á Jóa Bjarnasyni, þó að um hann svelji. Annars kemur þú eftir stundarkorn, Guðni, og tekur stýrið, — ég held það eigi að vera óhætt.... Ha? Stjáni minn, — þú sættir þig við það Nema hvað? Púðurlið, segirðu, — ja, við erum vitaskuld ekki nema þrír, en Guðni er bæði vanur og laginn — og drengur- inn, hann er að minnsta kosti ekki hræddur. Ætli þú eigir það ekki hon- um að þakka, að þú ert ekki núna að . liðast í sundur í stórgrýtinu í Kross- víkinni?" Þeir Ludvig og Guðni fóru nú ofan í káetuna, og þó að þar væri kalt og hráslagalegit, var þar að minnsta kosti enginn gustur. Þeir húktu þar á bekkj- unum, urðu að rígihalda sér, höfðu þar engan frið fyrir loftköstum og dýfum skipsins, og svo fóru þeir þá inn í koj- urnar og teygðu þar úr sér á berum fjölunum. Ludvig sá, að það draup úr Guðna, þegar hann smeygði sér inn í kojuna, nei, það draup ekki, heldur hripaði. „Ja, þvílíkt stand,“ sagði Guðni, þeg- ar hann hafði sett handlegg undir höf- uð. „Það held ég kallinn sé hringlandi bandvitlaus, siglir til hafs í staðinn fyrir að lensa inn á Þingeyrarlægi og liggja þar þangað til hægir. Hann má fara yzt út á Barðagrynni, ef hann ætiar að ná á Önundarfjörð, svona með fokkuna sém eina forseglið.“ „Heldurðu ekki, að Sigurður hafi haft það norður fyrir?“ spurði Ludvig. „Jú, ég hugsa að hann hafi sagað það. Hann hafði fallið með sér. En varla hefði hann haft það núna. Veðrið hefiur hert síðan.“ L udvig stökk fram á gólfið og tók að gera Möllersæfingar. Þetta hleypti hita í skrokkinn. En brátt fleygði skip- ið honum flötum á bekkinn fyrir fra-m- an reikkjúna, sem Guðni var í. Skútan henitist svo á hlésíðuna, að káetugólfið stóð næstum lóðrétt, og svo reif hún sig upp á ný með snöggu kasti. Það brast og gnast, ískraði og um-d-i í viðum og saumi og söng í segli og tói. Káetuhurð- in hrökk opin, og gegnum þessi óhljóð og öskur vinds og sjóa skar sig dimm hálfhás, en undrasterk rödd Jóhannesar: „Æsist vindur, aldan hvín. Undur finnst mér gaman. Skemmtileg er skútan mín. Skætli ég mig í framan. Aðeins andartak þagnaði hann, og svo kvað hann: „Amórates ýtti úr vör öldudýrinu káta. Am-orsibruninn flýtti för fram úr öllum máta.“ Guðni snaraðist fram úr rekkjunni og sagði: „Það er engin bót í -að liggja hér eins og ska-ta. Ég snara mér upp og tek við stýrinu af gamla manninum, svo að hann geti þó no-tið skjóls stundarkorn.“ Svo kom þá Jó'hannes niður. Hann leit rannsóknaraugum á Ludvig og sagði síð- an: „Þér er sosum engin vorkunn, úr því að þú ert ekki sjóveikur — og ekki sjó- hræddur heldur. Það er ungt og heitt í þér blóðið, en reyndu, geyið mitt, að hailda á þér hita með að berja þér. Þetta gengur alit eins og í sögu. Við förum nú bráðum að venda, og þá skilar h-on- um óðum til ’lands. Það er bara gaman að þessu fyrir ungu mennina, og þeir fá að vita, hvernig sjómannslífið h-ér á ís- landi var hjá mörgum manninum í gamla daga, ekki neitt til neins, kall minn, nema kjarkurinn og seiglan, sem skaparinn hafði g-efið þeim.“ Eftir situndarkorn fóru þeir báðir upp, Ludvig og Jóha-nnes, og Jóhannes tók á ný við stýrinu: „Fallega gerir hann það, Guðni minn, veður þetta með lunninguna í kafi og lyf-tir sér hæfilega, 'þó að í honum séu 30 tonn. Hefurðu tekið eftir því, að nú stend ég ekki í mjóalegg við stýrið. (Þetta er rétt mátu-leg hleðsla fyrir svona sigl- ingu.“ „Við skulum segja það“, mælti Guðni þurrlega. „En feginn verð ég að stappa niður f-ótum eftir stöðuna við stýrið, ekki betur en ég er búinn til fó-tanna." Jóhannes lét eins og hann heyrði þetta ekki. Hann kíkti 'til lands, sagði síðan: „Sko, nú vendum við, bræður, og þá er þetta sama og komið. Við erum vissir me'ð horf á Sauðanes, og þegar upp kem- ur, fáum við norðurfallið, og þá er ekki að tvíla, að við náum á Önundarfjörð. Sko, við erum búnir að sigla 1-andið í 24. desember 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.