Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1983, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1983, Blaðsíða 9
 Irska leikrítaskáldio Þegar írski rithöfundurinn og leikrita- skáldiö Brendan Behan dó aðeins 41 árs að aldri árið 1964 var hann löngu orðinn þekktur bæði austan hafs og vestan fyrir villimannslega drykkju sína ekki síður en afrek sín sem meistari hins mælta og ritaða orðs. Þessi villimennska sem svo hefur verið kölluð lýsti af persónu hans þegar hann hafði verið undir áhrifum áfengis langtímum saman, og sögur af hátterni hans áttu greiðan aðgang að slúðurdálkum dagblaða með þeim tví- bentu afleiðingum að fleiri lásu bækur hans og sáu leikrit hans en ella og að sú falska ímynd skapaðist um hann að hér færi friðlausi listamaðurinn per se og írskur kaþólikki í þokkabót, flækingur- inn með stóra hjartað sem ekki fékk af- borið grimmd tímans, iágkúru tíðarand- ans eða hverfula blíöu fagurra kvenna og varð að drekka til að lifa í hörðum heimi. Nú væri stílhreint að segja: En Brend- an Behan drakk til að deyja — og víst er það að hann drakk sig í hel — en sann- leikurinn er betri, þótt hann sé miskunn- arlaus og sár eins og fæðing: Eins og aðrir alkóhólistar drakk Brendan til að svala ógurlegri fíkn. Þar skiptir engu hvort menn eru listamenn eður ei, eða knattspyrnuhetjur, eða bankaritarar. Brendan drakk vegna þess að um hann var rætt í blöðunum. Hann drakk einnig vegna þess að hvergi var á hann minnst____ Líf hans er því öðrum þræði harmsögu- legt, því hann var gæddur hæfileikum langt umfram flesta menn. Sum verka hans leiftra af andagift, ríkulegu skop- skyni, mannást og snilld. Þó hafði of- drykkjan svo sogið úr honum frjómagnið, að hann gat ekki fest síðustu verk sín sjálfur á blað, heldur varð að þola þá niðurlægingu að tala inn á segulband og eftirláta öðrum að vinna skapnað úr Brendan með eiginkonu sinni, Beatrice, 1956. hraflinu. Hér á eftir fara nokkrar svip- myndir úr lífi þessa manns. Þær lýsa frægð og upphefð og grimmri glötun. Sagnamaður — og snemma orðheppinn Brendan Behan sagði oft þá sögu — og hann hafði yndi af að segja sögur og var flestum öðrum snjallari í þeirri íþrótt — að hann hefði alist upp í hinni örgustu fátækt. Eftir því sem gekk og gerðist í fæðingar- borg hans Dýflinni á þeim tímum var það ekki alls kostar rétt, enda er það einkenni sagna að fjalla rétt um það sem er logið en eftirláta sagnfræðingum og stærðfræðing- um það verkefni að skilja sannleikann frá kjarnanum. Föðurafi Brendans hafði verið málara- meistari og í móðurættina átti hann mat- vörukaupmenn að sem sjálfir voru af stönd- ugu bændakyni frá Meath-sýslu á írlandi. Foreldrar Behans bjuggu að vísu í leiguhús- næði — þetta var áður en leigjendasamtök komu til sögunnar og þegar húseigendur, margir vellauðugir, þóttust því betri sem þeir gátu hirt meiri okurleigu án þess að kosta nokkru til við viðhald húsa sinna. En 'Behan-fjölskyldan var engan veginn á vonarvöl, heldur bjó þarna vegna þess að húsnæðið var í eigu föðurömmu Brendans og leigan engin. Faðir Brendans var einnig málari, en þó Guðbrandur Gíslason tók saman í tilefni af jólaleikriti Leikfélags Reykjavíkur, sem verð- ur Gísl eftir Brendan Behan vel menntaður: Hann ku hafa lært til prests, en kaus heldur að mála þök en heyra skriftir. Móðir hans var ljóð- og söngelsk þótt ekki gengi hún menntaveginn. Ekki fer hér mörgum sögum af æskuárum Brendans, en þó skal þess getið að hann þótti snemma orðheppinn og með gott brageyra. Á heimili hans var honum innprentuð föðurlandsást og guðhræðsla. Hann skriftaði vikulega þar til hann lenti í fangelsi á Englandi árið 1940 og var settur útaf sakramentinu. Úr einu fangelsi í annað Frá sextán ára aldri og þar til hann varð tuttugu og tveggja ára, ef undan er skilið sex mánaða tímabil, var Brendan Behan í einu fangelsinu eða öðru, ófrjáls maður. Enskir dómstólar sviptu hann frelsinu fyrir virkan stuðning hans við IRA (the Irish Republican Army), sem enn þann dag í dag er í fréttunum og þá sem nú var ólögleg frelsishreyfing íra sem barðist með oddi og egg fyrir stofnun sjálfstæðs írsks lýðveldis á Irlandi öllu og vildi reka Englendinga af höndum sér. IRA-menn börðust fyrir mark- miðum sínum á Englandi ekki síður en á Irlandi og Norður-frlandi, en eins og kunn- ugt er er Norður-írland undir enskri stjórn. Þegar Brendan gekk til liðs við IRA, skiptust liðsmenn hreyfingarinnar einkum í tvö hópa, annars vegar eldri menn sem höfðu háð frelsisstríðið gegn Englendingum 1919—21 og gátu ekki unað samningum sem gerðir voru í kjölfar þess, og hinsvegar SJÁ NÆSTU SÍÐU 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.