Vísir - 18.03.1978, Blaðsíða 14
14
Laugardagur 18. mars 1978 vism
VISIR Laugardagur 18. mars 1978
15
„Ég er sennilega Islandsmeistari í bulli/ þvi
áriö 1976 samdi ég tæplega 70 texta/ sem komu út
á hljómplötum þaö sama ár og þaö er örugglega
íslandsmet/ — ef ekki heimsmet. En alls hafa/
undanfarin 13 ár, komið út rúmlega 200 textar
eftir mig á hljómplötum."
Helgarblaðiö er komið í heimsókn til Þorsteins
Eggertssonar textahöfundar, Ijósmyndara/
teiknara/ rithöfundar, — i stuttu máli „en alt-
muligmand" eins og okkar heittelskuðu ná-
grannar, Danír, rrumdu eflaust kalla hann. Þor-
steinn erþó sennilega fólki kunnastur fyrir texta-
gerö sina og varla til sá íslendingur, eins árs og
eldri, sem einhvern tima, meðvitaðeða ómeðvit-
að, hefur ekki raulað lag með texta eftir hann.
En hvaðan kemur hann og hvenær byrjaði
hann að búa til dægurlagatexta?
„EG ER SENNILEGA IS
L ANDSMEIST ARI í DULLI
rætt við Þorstein Eggertsson, þúsundþjolosmið
Ég er fæddur i Keflavik 1942 og
ólst upp i Garðinuin. Æska min
var ósköp venjuleg og það var
ekki fyrr en ég var 16 ára i lands-
prófi á Laugarvatni, að ég byrja
að syngja og búa til texta. Svo var
það árið 1960 að ég sigraði i dæg-
urlagasöngvarakeppni sem K.K.-
sextettinn stóð fyrir og var mér
eftir hana boðið að ganga i
hljómsveitina. K.K. hafði alltaf
einn kven- og einn karlsöngvara
og söng Elly Vilhjálms meö mér.
A þessum árum stóð fólk alltaf
þráðbeint þegar það söng, en ég
hreyfði mig þó svolitiö, — fór i brú
og svoleiðis. Elvis Presley var þá
nýkominn úr herþjónustu og var
mjög vinsæll. Og þar sem ég stóð
ekki þráðbeinn viö sönginn, var
ég látinn herma eftir Elvis til aö
trekkja að. Þetta var mjög gam-
an, en stóö stutt þar sem
hljómsveitin lagöi upp laupana
nokkrum mánuðum seinna.
Hestasveinn hjá Circus
Benneweis
Svo fór ég til Danmerkur ’63 á
listaskóla og hálfdrap mig úr
sulti, þar sem ég var ekki á nein-
um skólastyrk. Hætti þvi fljótlega
þar og geröist hestasveinn i
Circus Benneweis.Bjó ég þá i
Tivoli og held ég aö þeir séu ekki
margir tslendingarnir, sem þar
hafa búið. Við héldum þar til i
köldum vögnum, angandi af tá-
fýlu og þviumliku. Þarna vann ég
með allra þjóða kvikindum og var
það mjög spennandi, en erfitt.
Var starf mitt fóigið i þvi, að
hirða hestana og skreyta þá fyrir
sýningar, en kom sjálfur aldrei
lengra en að innganginum að
sviðinu.
Um þetta ieyti fékk ég lika
blaöamannapassa frá Alþýðu-
blaðinu og misnotaöi hann að
sjálfsögðu óspart. Komst ég t d á
honum inn á blaöamannafund hjá
The Beatles. Þctta var heljar-
mikill fundur að viðstöddum 200
manns og ég var svo heppinn að
ná mjög góðu sæti beint fyrir
framan John Lonnon. Auk við-
talsins viö hann sendi ég svo einn-
ig nokkrar aðrar blaðagreinar
hingað.
„Húrra"
Svo kom óg heim vorið '65 og
fór að vinna á auglýsingateikni-
stofu. Einnig gáfum viö Haukur
Morthens út um þær mundir ung-
lingarit sem við köllu
um „Húrra”. Það kom nokkuð oft
út og við héldum hljómleika meö
breskri hljómsveit sem hét Brian
Ef (1974)
Pool and the Tremeloes. A þeim
hljómleikum söng ég og einnig .
kom þar fram á sjónarsviðið
hljómsveitin Dátar.
Og þá byrjaði ég á þvi að gera
texta fyrir hljómplötur og hét
minn fyrsti texti ,,Ast i meinum”,
sem kom út meö Savannatrióinu.
Skömmu seinna fór Ólafur
Gaukur að gefa út timarit og fékk
mig til liðs viö sig. Þaö var i dag-
blaðsformi og hét Pósturinn. Það
kom aðeins út þrisvar, en heppn-
aðist þó ágætlega. Ólafur er alveg
frábær blaðamaður, með gott
auga fyrir þvi sem skiptir máli,
en dreifingarkerfið var eitthvað
gallað. Um haustiö fór ég svo að
kenna teikningu og hef haldið þvi
áfram alltaf af og til. Ég fluttist
aftur til Keflavikur, þar sem ég
starfaði með leikfélaginu og hóf
að semja texta fyrir Hljóma.
Textahöfundur ársins
Svo er það árið 1968, að ég er
kominn vel i gang við textagerö-
ina. Þá voru i fyrsta skipti haldn-
ar kosningar um lagasmið ársins,
hljómsveit ársins o.s.frv. og var
ég kosinn textahöfundur ársins,
þó fyrir lélegri texta en þá sem
ganga i dag. í dentid voru ekki
gerðir eins góðir textar og
Megas.Halldór Gunnarsson og
Spilverkið semja nú. Þá geröi ég
hinn írumlega texta „Slappaöu afy/
fyrir hljómsveitina Flowers. Sá
texti varð mjög frægur af þvi að
Róbert Arnfinnsson leikari las
hann upp i skemmtiþætti Svivars
Gests i sjónvarpinu og átti að
vera dæmi um leirburð. Lagið var
einnig notað sem nokkurs konar
útgöngusálmur við fyrstu popp-
messuna, en hún var haldin i Há-
teigskirkju. Þá stirönaði gamia
fólkið upp. Þetta er nefnilega dá-
litið orðljótur texti og ekki beint
kirkjulegur, i venjulegri merk-
ingu orðsins.
Fyrir peningana
Annars finnst mér dálitið skrit-
ið aö ég skuli hafa leiðst út i texta-
gerð. Ég hafði aldrei ætlað mér
að verða skáld eða neitt svoleiðis
og mér leiddust Ijóð ákaflega mik*
ið i barnaskóla. Það var Þórir
Baldursson sem kom mór upp á
þetta
— Nú hefur þú oft verið mikið
gagnrýndur fyrir textagerö þina,
— hvað viltu segja um það?
Ég er bara I þessu fyrir pening-
ana. Ég geri þó ágæta texta
stundum, en yfirl. fæ'ég þá aftur
i hausinn, — þeir fara ekki á plöt-
urnar. Afturámóti gengur hráka-
Myndskreyting við frumsamda
smásögu,
1 faðmi fjölskyldunnar. Þorsteinn með konu sinni Þóru
Hreinsdóttur og frumburöinum Valgerði.
smið einsog „Heim I Bdðardal” á
plöturnar, en þann texta gerði ég i
kjallarakompu i Keflavik eitt
sinn, þegar ég var að verða alltof
seinn I bió. Ég hugsa að ég fái þó
mesta gagnrýni fyrir það að ég
hef enga pólitiska skoðun. Ég er
taóisti og á móti pólitik.
Pólitiskar mótsagnir
— Er þá taóismi ekki pólitlk?
Jú, taóisini er pólitik. Afturá-
móti er hann ekki flokksbundinn,
Mér finnst flokkapólitikin meira
en litið skrltin. Mór þykja flokk-
arnir ofl I miklu ósamræmi við
sjálfa sig, Ef við tökum þann
flokkinn sem hér er lengst viö
vinstri sem dæmi þá sækir
Alþýðubandalagið ýmislegt s.a.
málfrelsi, feröafrelsi o.s.frv, til
Bandarikjanna, A meðan ó Sjálf-
stæðisflokkurinn það sameigin-
legt meö rússneska kommúnista-
flokknum að þeir eiga báöir for-
sætisráðherra, sem eiga það aftur
saineiginlegt að vera rikustu
mennirnir, hvor i sinu landi. 1
Alþýðuflokknum eru svo þessir
bitlingar. Nú, Framsóknarflokk-
urinn, sem berst fyrir jafnvægi i
byggð landsins, ræður yfir S.J.S.-
bákninu og dregur bændurna til
sin. Þeir bændur sem flosna upp
af jöröum sinum fara bara og
vinna á lagernum hjá þeim,
?annig felast mótsagnir i öllum
lokkunum. Ég fer þó alltaf á
tjörstað, en skila auðu og þaö er
|ú pólitik útaf fyrir sig lika.
Börnum leiöist skáldskap-
ur
— Þú sagðir áðan, aö þér hafi
leiðst skáldskapur þegar þú varst
i barnaskóla. Leiðist þér hann
ennþá?
Ég held að öllum börnum leiðist
skáldskapur. Kennsluaðferðirnar
eru sennilega eitthvað vitlausar.
Jú jú, Ég hef gaman af einstökum
ljóðskáldum s.s. Steini Steinarr.
Ég hef gaman af bókmenntum og
listum yfirleitt og stúdera þetta
mikið.
— Þú ert kannski með skáld-
sögu i smiöum?
Ég skrifa svolitið af smásögum
og ritgerðum, en hef bara ekki
nógu mikið úthald i að skrifa heila
bók. Eftir 5-6 blaösiður er efnis-
þráðurinn oftast búinn. Mig lang-
ar þó mikið til þess að skrifa bók
og tel mig hafa efni i tvær.
Reyndar hef ég tilbúna bók sem
er ýmis konar samtiningur og
mun eitthvað úr henni birtast i
Samúel á næstunni, en ég skrifa
svolitiö fyrir hann um þessar
mundir.
Litill //kúnstner"
— Þú teiknar lika heilmikið, er
það ekki?
Jú.myndlist er mikiö áhugamál
hjá mér svo og ljósmyndun. Ég
hef haldið tvær einkasýningar og
veriö meö á nokkrum samsýning-
um. Eg lit þó ckki á mig sem
skapandi listamann. Ég hef bara
svo gaman af þessu og bý aðal-
lega til myndir sem mig langar
sjálfan til að sjá.
— Megum viö eiga von á þvi að
þú haldir sýningu á næstunni?
Nei, þaö held ég varla. Ég er
nefnilega svo litill „kúnstner” að
ég sel allt um leið og þaö þykir
vist ekki efnilegt. Það er þó ansi
gaman að halda sýningar og
maður lærir mjög mikiö af þvl,
Ég held aö þaö séu engir mögu-
leikar fyrir mig aö ná langt á
þessu sviöi, þvi það er til svo mik-
iö af ungum og frábærum mönn-
um sem standa mér miklu fram-
ar i myndlistinni. Þessir mið-
aldra myndlistarmenn hafa
náttúrulega ekkert lengur merki-
legt að segja. Þeir eru bara til
þess að hengja uppá vegg og búið
spil.
Heimavinna
— Við hvað ertu að starfa þessa
dagana?
Núna er ég bara aö vinna heima
hjá mér. Ég starfræki hér dálitla
teiknistofu og vinn þar við að
hanua og teikna alls konar um-
búðir, vörumerki, hljómplötuum-
slög og þar fram eftir götunum.
Einnig geri ég mikið af textum
t.d. er ég aö gera texta fyrir
Brimkló, Geimstein og Fjörefni,
svo eitthvað sé nefnt.
— Græðirðu mikið á þessu?
Ég hef það ágætt, þakka þér
fyrir, þetta er bara spurning um
nægjusemi.
Aö rífa niður gamlar bygg-
ingar
— Þú ert meðlimur i Grjóta-
þorpssamtökunum, ekki satt?
Jú, allt frá þvi að ég var strák-
ur, þá hefur mér fundist það svo
leiðinlegt, að það er ekki neitt til
af gömlum mannvirkjum hér á
islandi, — nema ef væri kannski
Snorralaug. Og þaö finnst mér
ansi einkennileg árátta, —
kannski er það bara minnimátt-
arkennd, — i íslendingum, að
þurfa alltaf að vera aö rifa niður
gamlar byggingar og byggja nýj-
ar. Ég get nefnt sem dæmi, aö ég
var ungur i sveit i Laxárdal. Bær-
inn sem ég bjó i var gamall
burstabær, með moldargólfi i eld-
húsinu og öllu tilheyrandi. Það
var allt annar andi og sál þar en
maður finnur i húsum nútildags.
Sama sumar var svo byggt nýtt
hús. Og viti menn, gamli þjóðlegi
burstabærinn var bara hreinlega
jafnaöur viö jöröu og þótti alveg
sjálfsagt. Þetta er alltaf að ger-
ast. Fyrir skömmu bjó ég i
Grjótaþorpi, sem er ákaflega lif-
rænn staöur. Aö búa þar er eins
og aö búa I þorpi i miðri höfuö-
borg, Og ef það á aö byggja þetta
glerskrimsli i miöbænum, eins og
yfirvöld hafa i hyggju, þá hlýtur
Íað aö kalla á heilmiklar um-
verfisbreytingar seinna meir.
„Og þar sem ég stóð ekki þráö-
beinn við sönginn var ég látinn
herma eftir Elvis.,,.”
Grjótaþorpið verður látið grotna
niður, Dómkirkjunni sðpað i
Tjörnina og allt fær á' sig óper-
sónulegan blæ. Ég á lika eftir að
sjá það, að einhver vilji búa i
glerskrimslinu. Það er ekki hægt
að lifga upp á gamla bæinn, sem
er þó vissulega nauðsynlegt, með
einhverjum steingeldum glerhús-
Afturámóti er vist verið aö
reisa nýjan miðbæ uppi i Kringlu-
mýri og þar er alveg sjálfsagt að
byggja svona hús, þvi að þau
veröa þar i samræmi við um-
hverfið. En þaðsem stendur til að
gera i gamla miðbænum verður
það siður en svo.
Leiður á poppinu
— Hver er þin uppáhaldstón-
list?
Satt best að segja, þá er ég orð-
in nokkuð leiður á poppinu. Mað-
ur er búinn að hlusta á það i 25 ár.
Núna hlusta ég mest á þunga
klassiska tónlist og einnig er alls
konar sérkennileg tónlist frá
óþekktum heimshornum mér
mjög að skapi, Afturámóti finnst
mér fátt eins leiðinlegt og karla-
kórar og harmónikkutónlist.
Popptónlist á ekki að endast óg
það er kannski stærsti plúsinn við
hana, að það þarf alltaf að vera
að endurnýja lögin sem ganga
hverju sinni. Þvi er það allt i lagi
þó að textarnir séu algert bull.
Þeir eru gleymdir eftir 2-3 mán-
uði. Ef þetta væri ekki svona þá
myndi ég ekki gera texta. Hugsiði
ykkur bara, hve skelfilegt þaö
yröi, ef viö þyrftum að hafa „Sið-
ustu sjóferðina” glymjandi fyrir
eyrunum til aldamóta.
-pp
Sá‘‘’ *
Með mynd sina Askur Yggdrasils. „Ég gæti vel hugsað mér að gera myndaserlu uppúr Snorra-Eddu.”
Einvigi aldanna (1972, ófullgerð eigandi: Keflavikurbær)
Njálsbrennuhátið
Buldi við brestur
— og bærinn i spað
A nærbrókum Njáll kom i dyrnar og kvað:
„Nlðingar! Þið hafiö kveikt l mór hjá!"
l'losi þá flissaöi:
„Fyrr má nú sjá,”
Fékk sér I staupin' og færði sig nær.
„Ferlega var þetta hrörlegur bær”,
sagö’ann og saup á I annaö sinn.
Syngjundi fullur vnr mannskapurlnn.
Kári þá rústunum klifraöi úr.
Kolsvartur var'ann og svipurinn súr.
Vildi hann hefna sin hiklaust og skjótti
hefndarþorstinn ei gerð’onuni rótt.
Ilann vildi helst byrja næstu nótt.
Skarphóðinn stóð nú I eldinum einn,
óhemju sybbinn og svifaseinn.
Hugðist þó klifru úr kofanum út
— koibrenndnn fókk á sig eikartrésbút.
Itotaðist kappinn en rankaöi viö,
ringlaður var fram i andlátið.
Mátt heföi not'ann i mannætusvið.
Kuldi við brestur
og brennan var öll.
Glumdu þá „húrra" og hlátrasköll.
HeimleiöU Flosi með liðsaflnnn fór.
Sólin var >iest —
— það var sléttur sjór,
1964
Þórir Bnldursson sá þennan texta hjá mér og vildi fá mig til aö
gera texta fyrir sig og Savanna trióið. Þnö var upphafiö að ferli
minum sem textahöfundar.
Morgunhugleiðing fyrir messu
sigga litla systir min,-
situr úti götu
Er að injólka ánamnðk...
Kafli úr Mannkynssögunni
Kiminlán þifsund hrauxtir hermenn
stóðu á verði i holunni
— og geispuðu golunni.
Askrifendagetraun
oGT
Viðtai: Póll Pálsson
Mynáir: Jens Alexondersson o. fl.
I