Vísir - 18.03.1978, Side 27
27
VISIR Laugardagur 18. mars 1978
„Það fer
allt of
mikið ó
haugana"
segir Sigurður Ágústsson, en
meðol þess sem honn heldur til
hogo er gott sofn gomollo
fundorboðo*_____________________________
„Fundarboðasafniö kom eiginlega til sem
hliðargrein á frímerkjasafninu, sem ég hef
stundað mjög lengi," sagði Sigurður Ágústsson
rafvirki, þegar Helgarblaðið fékk að glugga í hið
fágæta saf n f undarboða, sem hann hef ur komið
sér upp.
Sigurður er bróðir Haraldar Ágústssonar
viðarsafnara, sem rætt er við hér að framan.
Þriðji bróðirinn, Henrik Ágústsson, sem nú er
látinn, safnaði lengi litlum bílamódelum og átti
orðið gott saf n af þeim. Það hef ur þvi verið mik-
ið um sérstæða söfnun í þeirri f jölskyldu.
Bláar veifur á
háar stangir
Fundarboðin i safni Sigurðar
eru flest prentuð eða skrifuð á
bréfspjöld, sem póststjórnin gaf
út frá 1879 og fram á þessa öld.
Elstu fundarboðin i safninu eru
frá 1904. en alls eru þau eitthvað
á annað hundrað talsins.
Textinn á fundarboðunum
gefur oft skemmtilegar og
gagnlegar upplýsingar um liðna
tið. Þarna er mikið af fundar-
boðum frá Iðnaðarmannafélag-
inu. Hinu islenska bókmennta-
félagi, Hf. Völundi, sem var fél-
ag iðnaðarmanna i byrjun, að
þvi er best verður séð, og ýms-
um félögum, sem nú eru ekki til.
Þar á meðal eru fundarboð frá
Lestrarfélagi kvenna i Reykja-
vik, Menntamannafélaginu og
Telefónfélagi Reykjavikur og
Hafnarfjarðar.
Frá þvi síðast talda er
skemmtilegt fundarboð frá ár-
inu 1906, sem Björn Jónsson,
siöar ráðherra skrifar undir.
Niðurlagsorðin á þvi eru svona:
„Félagsmenn ættu nú aö sækja
almennilega fundinn, þótt ekki
Sigurður Ágústsson með
fundarboðasafn sitt.
væri til annars en að hiröa ágóð-
ann, sem stungið er upp á að
verði 10% ”
Frá Skautafélagi Reykjavik-
ur er send út tilkynning um
dansskemmtun árið 1911, þar
sem aögangur á að kosta 75
aura. t ein$ og eftirmála, segir
að merki veröi gefið þegar svell
Hluti mynda Sigurðar hangir á vegg í stofunni hjá honum. Efstu myndirnar eru
gerðar úr bárupappa.
sé komið á iþróttavöllinn með
þvi að dregnar verði bláar veif-
ur með fangamarki félagsins.á
háar stengur úti á vellinum.
Ypsilonbarátta
á fundarboðum
Sigurður benti okkur á
fundarboð frá Hinu islenska
bókmenntafélagi frá árunum
1915 og 1916. A þeim árum var
Björn M. ólsen forseti félagsins.
Hann baröist mikið fyrir upp-
töku ypsilons i islensktritmál og
kemur sú barátta fram á
fundarboðunum, þvi 1915 var
skrifaö, að skirt yrði frá hag
félagsins á fundinum, en ári
seinna átti að skýra frá honum.
Einhverjum kann aö finnast
aðgangseyrir aö skemmtun
Skautafélagsins lágur. Hann
var þó mun hærri en menn
þurftu að borga á skemmtun
Iðnaðarmannafélagsins árið
1908, því þá var hann aðeins 50
aurar. Snemma kom verðbólg-
an til sögunnar! A þessari
skemmtun átti Stefania Guð-
mundsdóttir leikkona að syngja
„margar gamanvisur”, eins og
það var orðað og Magnús ólafs-
son ætlaði að sýna 130 myndir.
Ekki var mönnum á þessum
tima ætlaður langur timi til
undirbúnings fyrir fundina, þvi
mörg fundarboðanna upplýsa
menn um fund, sem halda átti
sama dag og það var sent. Póst-
þjónustan hlýtur að hafa verið i
góðu lagi i þá daga!
Nú eru 20 ár liðin siðan Sig-
urður byrjaði að safna fundar-
boðunum og enn sagði hann að
fyrir kæmi að hann fengi viðbót
i safnið.
„Ég veit að þetta liggur yiöa,
svo það getur alltaf bæst viö ,
sagði Sigurður. „Annars er
BETRA ER GEYMT
EN GLEYMT
▼▼▼▼▼▼▼▼ WT'
Þetta umslag er frá Jap-
an og er um 100 ára gam-
alt.
mikill hluti safnsins kominn frá
einum mannúSr. Eirikur Briem
var i mörgum félögum og hélt
hann saman fundarboöunum.
Ég fékk þau siöan frá Akur-
eyri.”
Sigurður á margt annað
skemmtilegt i fórum sinum. Þar
á meðal má nefna gott safn
gamalla japanskra bréfa. Eitt
þeirra er um 100 ára gamalt.
Það fékk Sigurður á sýningu i
Sviþjóð , en flest bréfanna hefur
hann annars fengið frá Japana
sem hann hefur samband við.
Við spurðum Sigurð, hvað það
væri, sem hann teldi ánægjuleg-
ast við söfnun.
„Það er kunningsskapurinn
sem maður aflar sér við aðra,
sem veitir mesta ánægju, sagði
hann „Ég hef kynnst fjölmörg-
um mönnum innanlands og er-
lendis og þá kannski sérstak-
lega gegnum skátasafnið. Það
eru frimerki sem hafa verið gef-
in út i sambandi við skáta. Ég á
nú slik merki frá 130 löndum.
En ég hef lika verið á kafi i
Frimerkjafélaginu hér lengi.
Mér hefur aldrei leiðst og það
var til dæmis fyrst fyrir nokkr-
um dögum, sem ég fékk sjón-
varp.
Of mikið fer út á hauga
Siguröur heldur ýmsum hlut-
um vel til haga, sem öðrum
finnst ef til vill einskis nýtt. Or
þessu býr hann til finleg lista-
verk með hjálp tússpennans. A
lok af skyrdósum er til dæmis
hægt að gera fallegar myndir,
úr bárupappa má búa til list-
rænar klippimyndir og tómir
rakvélapakkar, lok af niður-
suðudósum og fjölmargt annaö
verður Sigurði efni i listsköpun.
Hann hefur aldrei lært neitt i
myndlist, en hefur fengist við
myndgerðina i um 20 ár. Sér-
staka athygli vekur að i flestum
myndanna er mikiö af örlitlum
svörtum manneskjum. Þetta
sagði Sigurður að væru svörtu
kallarnir sinir, sem fylgdu sér
viða. Raunar virtist okkur aö
þeir væru eins konar fanga-
mark. Þeir skjóta upp kollinum
á fyrsta dags umslögum og við-
ar og eru engu likir.
„Jú, það er margt sem ég nýti
og geymi,” sagði Sigurður. „Ef
vel er um hlutina gengið, geta
þeir geymst lengi. Það fer allt of
mikið á haugana. Það er aldrei
að vita nema einhver geti haft
gagn af þvi sem geymt er.”
Hér eru „litlu svörtu kall-
arnir" í römmum úr tóm-
um rakvélablaðaköss-
um.
'M;
Myndir: Jens Alexondersson 09 Ðjörgvin Pálsson
Þetta borð smíðaði Haraldur úr afgöngum af viðar-
sýnum. I borðplötunni eru 110 mismunandi viðarteg-
undirog með borðinu fylgir skrá yfir þær allar.
Sagðist hann hafa taliö þýsku safni Haraldar um viö eru á
henta iðnaðarmönnum betur en þýsku.
enska. Flestar bækurnar i bóka- A milli þess sem Haraldur
skrifar bækur um viö safnar
hann islenskum oröum tengdum
fræöigreininni, ýmist orðum
sem honum dettur i hug að nota
megi eða gömlum oröum, sem
hann vill varðveita.
Skriftirnar
ganga fyrir
„Skriftirnar hafa orðiö til
þess aö ég hef ekki haft eins
mikinn tima til að sinna safninu
ogskyldi,” sagði Haraldur. „Ég
býst við að þannig veröi það
áfram. Ég vil láta skriftirnar
ganga fyrir.”
Þrátt fyrir það bætist viö
viðarsafnið á hverju ári og telur
það nú, eins og áður sagöi, rúm-
lega 1500 sýni. Til marks um það
hversu stórt safniö er á heims-
mælikvarða má geta þess, að
fyrir nokkrum árum fékk Har-
aldur styrk úr Visindasjóöi til að
læra að skera niður tré i Osló. I
viöarsafni skólans voru þá 450
sýni, en á sama tima voru i safni
Haraldar 1200 sýni.
PASSAMYNDIR
teknar í litum
tilbúnar strax I
barna x. f lölskyldu
Sift
OSMYNDIR
TURSTRÆTI 6 S.12644
Bifreiðastillingin
Smiðjuvegi 38, Kópavogi
simi 76400.
Allar bifreiðastillingar og viðgerðir á
sama stað. Fljót og góð þjónusta.
Bifreiðastilling
Smiðjuvegi 38, Kópavogi
Simi 76400