Vísir - 18.03.1978, Page 28
Nemendur í Hótel og veitingaskólanum voru mætiir á Lækjar-
torg í gær meö gómsæta rétti sem þeir gáfu þeim sem þiggja
vildu. Þessu var tekið mjög vel og svo virtist sem ananasréttur
sá sem þeir buðu upp á væri afbragð. Nemendur tóku til þessa
ráðs til að minna á sýningu sem verður í dag og á morgun i
húsnæði skólans i húsi Hótel Esju. Þar gefst fólki einnig kostur á
því að bragða það sem fram er ijorið. Mynd Jens/KP
Þotvflug tll
Akureyrar
//Svo virðist sem straumurinn liggi að þessu sinni til Akureyrar/
Húsavikur og Isaf jarðar um páskana"/ sagði Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi Flugleiða í samtali við Vísi.
Aukaferðum hefur þeg-
ar verið bætt viö áætlun á
þessa staði en einnig
verða nokkrar aukaferöir
farnar á Egilstaði,
Sauðárkrók og Patreks-
fjörð.
Sveinn sagði aö fólk
hefði pantað óvenju
snemma far með vélum
félagsins og þvi heföi ver-
ið hægt að skipuleggja
ferðir með góðum fyrir-
vara.
1 dag verða farnar 5
aukaferðir, auk áætlana-
ferða. A sunnudag verða
farnar 2 aukaferðir, 5 á
mánudag, 6 á þriðjudag
10 á miðvikudaginn og 6
ferðir á skirdag. Ekkert
flug verður innanlands á
föstudaginn langa. Á
laugardaginn fyrir páska
verða farnar 2 til 3 auka-
ferðir. Ekkert verður
flogið á páskadag.
„Það hefur verið
ákveðið að önnur Boeing
þota félagsins fari fjórar
til fimm ferðir til Akur-
eyrar á annan páskadag.
Vélarnar taka 126 manns
i sæti svo við gætum flutt
um eitt þúsund manns ef
veöur leyfir”, sagði
Sveinn.
Alls verða farnar 78
ferðir innanlands á einni
viku en þar af eru 58
aukaferðir. Gert er ráð
fyrir aö fluttir veröi milli
fimm og sex þúsund far-
þegar þessa daga.
—KP
Rannsóknarlögregtan
vinnur áfram að könnun á
þvi með hvaða hætti hluti
af danska listanum hefur
komist i umferð manna á
meðal. Samkvæmt upp-
iýsingum sem Vfsir hefur
afiað sér voru fyrirspurnir
Seðiabankans til innistæðu-
eigenda listans sendar út I
ábyrgöarpósti.
Þegar Visir hafði tal af
Jóni Skulasyni póst- og
simamálastjóra i gær-
kvöldi sagði hann að sér
væri ekki kunnugt um að
máliö hefði verið rann-
sakað hjá póstinum, en
starfsfólk væri bundið
þagnarskyldu.
Upplýsingarnar frá Dan-
mörku um innistæðueig-
endur i Finansbanken
munu fyrst hafa borist til
fjármálaráðuneytisins og
siðan til embættis rikis-
skattstjóra og gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans.
Eftir þvi sem Visir kemst
næst munu fyrirspurnir
Seðlabankans ekki hafa
veriö póstlagöar allar
sama daginn. —SG
VÍSIR
ýrslitin á Segu
Keppnin um titilinn
„Fuiitrúi ungu kynslóðar-
innar 1978,, fer fram á Hót-
el Sögu annaö kvöld.
„LEKINN"
RANNSAKAÐUR:
Fynrspumimar
sendar í pósti
Keppnin er haldin á veg-
um Club 32 og Sunnu, og er
liður i Fegurðarsamkeppni
tslands.
Nú þegar hafa verið
valdar stúlkur til þátttöku I
úrslitakeppninni, fjórar ut-
an af landi og þrjár stúlkur
úr Reykjavik.
—GA.
Óf«llkomiwn listi nm reiknishqtfq I F8nqnsbanken q fferðinni:
Þriðjung nafnanna
vantar á listann
Listi með nöfnum 49
áramótin 1976/1977,
dagblaða.
Hann er mjög ófull-
kominn og vantar þar
nöfn 27 þeirra aðila, sem
reikninga áttu i umrædd-
um banka.
Nöfn ýmissa lands^
þekktra manna, sem
fram aö þessu hafa verið
orðaðir við inneignir i
Finansbanken manna á
meðal, eru ekki i hópi
þeirra 49, sem nefndir eru
á þessum lista.
A listanum eru einungis
nöfn viðkomandi aðila
manna og fyrirtækja af þeim 76, sem áttu reikninga í Finansbanken í Danmörku um
hefur undanfarið gengið manna á milli í höfuðborginni, og m.a. borist á ritstjórnir
og þeirrar byggðar, sem
þeir búa i. Engar upplýs-
ingar eru á listanum um
þær fjárhæðir, sem þessir
aðilar áttu i Finansþank-
en, né hvernig þær eru til-
komnar. Ekki fylgja
heimilisföng viðkomandi
aðila né starfsheiti og
heita þeir þó margir
hverjir algengum nöfn-
um.
Listinn þessi var birtur
i Dagblaðinu i gær, en
Visir hefur ekki talið sér
fært að birta nafnalista,
sem er svo mörgum ann-
mörkum háður.
Garðar Valdimarsson,
skattrannsóknastjóri,
hefur tjáð Visi að mikill
munur sé á þeim upphæð-
um, sem áðurnefndir 76
aðilar áttu á reikningum
sinum i Finansbanken, en
reikningarnir voru 81
talsins.
Sá aðilinn, sem hæstu
upphæðina átti, haföi 400
þúsund krónur danskar á
reikning sinum, en þaö
jafngildir um átján
milljónum islenskra
króna á núverandi gengi.
Lægstu upphæðirnar,
sem teknar voru með,
voru hisnvegar 10 þúsund
krónur danskar, eða um
450 þúsund. sex menn
meira en 200 þúsund
krónur danskar, eða niu
milljónir islenskra króna
og fjórir til viðbótar áttu
milli 100 og 200 þúsund
krónur danskar, sem
jafngildir 4.5 til 9 milljón-
um islenskum.
Þeir sem áttu innstæð-
ur yfir 50 þúsund krónur
danskar (2.2—2.3 milljón-
ir islenskar), voru 24 álls.
“Hinir áttu allir lægri upp-
hæðir á reikningum sin-
um.
Yfirvöld hafa leitað
skýringa, og óskað
gagna, hjá reikningshöf-
um, og hafa þau borist.
—ESJ.
Allir eru velkomnir á sýn-
ingu Lindu Schapper.
Tepposýn-
ing hefst
klukkan sex
Sýning bandarisku lista-
konunnar, frú Lindu
Schappér, á stoppuðum
teppum i Kjarvalsstöðum
hefst klukkan sex siðdegis i
dag, en ekki klukkan fjögur
eins og áður hafði verið
getið.
Linda Schapper hóf að
fást við þessa sérstæöu
teppagerð 1975. t teppum
sinum blandar hún saman
ævafornri arabiskri hefð
við teppagerð og tækni sem
notuð er við gerð slikra
teppa i Bandarikjunum.
—GA.
8% fyrir hvorn
verkfallsdaginn
Þeir starfsmenn rikisins
sem tóku þátt i verkfallsað-
gerðunum 1. og 2. mars
missa sem svarar 8% af
föstum launum vegna eins
dags f jarvistar en 16% hafi
þeir verið f jarverandi báða
dagana samkvæmt
ákvörðun i rikisstjórninni.
„Þessiákvörðun þýðir að
dregið verður af launum
manna á yfirvinnukaupi”,
sagði Kristján Thorlacius,
formaður BSRB við Visi i
gærkvöldi. „Og hafa þvi
kröftug mótmæli gegn
þeim fyrirætlunum haft
álirif”
„Hótað hafði verið að
draga frá launum sem
samsvaraði tvöföldu yfir-
vinnukaupi eða 32% af
launum fyrir báða dagana.
Þetta er aðeins helmingur
þess sagði Kristján. „Hins
vegar er þetta meira
heldur en venja hefur verið
að draga frá launum þegar
opinberir starfsmenn hafa
áður gripið til mótmælaað-
gerða þvi þá hefur ýmist
ekkert veriö dregið af laun-
unum, eða þá dregið frá á
dagvinnukaupi. Þvi tel ég
að hér sé óhæfilega mikill
frádráttur miðað við fram-
kvæmd íaganna hingað
til.” —ESJ
Bremsurnar
í ólagi - og
bíllinn inn
um glugga
Þegar ökumaður ætlaði
að stöðva bii sinn við
verslunina Fjöðrina i
Skeifunni i gærdag rétt
eftir kl. 6 reyndust
bremsurnar vera i ólagi og
hélt bfllinn áfraqi. inn i
gegnum glugga. Stöðvaðist
hann þannig að afturhjólin
urðu eftir fyrir utan.
. Glugginn er mjög stór og
er við hliðina á inngangin-
um i verslunina. Fyrir inn-
an var búðarborð sem
færðist að sjálfsögðu úr
stað. Simar slitnuðu og ein-
.hverjar skemmdir urðu á
•vörum sem voru fyrir inn-
an. Engin slys urðu þó á
mönnum.. _EA