Vísir - 04.08.1978, Side 4
Gallerí Suðurgata 7:
„Miðstöð Brunchiskror
hugsunar ó íslondi"
Þaö er óhætt að segja að þaö
sé gróska I starfi Galieri Suður-
gata 7. A morgun verða hvorki
meira né minna en tvær sýn-
ingar opnaðar þar.
A neðri hæð hússinsopnarArni
Ingólfsson sina fyrstu einkasýn-
ingu. Arni stundaði nám við
myndlistarskólann og handiða-
skólann i fjögur ár en er nú
nemandi við Rijksakademi van
Beelde Kunsten i Amsterdam.
Arni hefur unnið með alls kyns
efni en að undanförnu hefur
hann lagt áherslu á ljósmynd
sem miðil. Sýning Arna er tvi-
skipt. Annars vegar saman-
stendur hún af sjálfstæðum
myndverkum sem hafa vissan
samhljóm, en hins vegar af
sjálfstæðu myndverki og hlut.
Erlendur listamaður, Stephan
Kukowsky að nafni er á efri
hæðinni. Sýning Kukowsky er
einnig tviskipt. Hann sýnir
nokkurs konar þrividdarljóð og
svo hefur hann komið fyrir i
einu herbergi Gallerisins „mið-
stöð Bruchiskra hugsana á Is-
landi.”
Stephan Kukowsky er búsett-
ur i Oxford þar sem hann starf-
rækir „Bureau og fotleian res-
aerch” og gefur út ritið „Bone”.
Hann var auk Adam Czar-
novsky meðstjórnandi „Blitzin-
formation.” Þá var Kukowsky
einnig einn af stofnendum „The
Brunch museum” ásamt
George Brecht.
Brunch- safnið er stofnað i
kringum hinn merka visinda-
mann og hugsuð W.E. Brunch
(1889-1974) en tilgangur safnsins
er sá að safna og varðveita þau
gögn og þá gripi, sem varpað
geta frekari ljósi á hið merki-
lega starf, sem hann leysti af
hendi á langri ævi.
Sýningarnar verða opnar
laugardaginn kl. 16 og lýkur
þeim sunnudaginn 20. ágúst.
Galleriið er opið daglega frá kl.
16-22. —ÞJH
Tjöld, svefnpokar,
tjalddýnur, vindsœngur
og annar viðleguútbúnaður
í miklu úrvali
Póstsendum.
TémíTUnDflHÚSIB HF
lauoauecil lUVReMtjautt: &S1961
Hér sjáum við Ingveldi við sin
daglegu störf i Iðnaöarbankanum
I Hafnarfirði
Kvœðasöngur
og þjóðlög
Norrœna húsið i kvöld
1 kvöld klukkan 9 hefjast 4.
tónleikarnir sem Féiag islenskra
einsöngvara gengst fyrir. Tón-
leikarnir verða i Norræna húsinu
og þar koma fram 3 söngvarar
þau Ingveldur Hjaltesteö, Ragn-
heiður Guðmundsdóttir og Ólafur
Magnússon frá Mosfelli.
„Ég kem til með að syngja
þarna verk eftir Sigvalda
Kaldalóns. Emil Thoroddsen og
Sigfús Einarsson.” sagði Ingveld-
ur Hjaltesteð er haft var tal af
henni.
Aðspurð sagði hún að i Félagi
einsöngvara væru um 45
einstaklingar, sem hefðu komið
fram á tónleikum félagsins eftir
þvi sem timi ynnist til. Þessir
tónleikar væru þeir fyrstu i sum-
ar, en margir af félögunum væru
ekki i bænum i sumar.
A tónleikunum verða þeir Njáll
Sigurðsson og Magnús Jóhanns-
son með kvæðasöng.
Undirleik annast þær Jónina
Gisladóttir og Málfriður
Konráðsdóttir A dagskrá eru
aðallega islensk þjóðlög og
kvæðalög, en einnig verða flutt
sönglög eftir islenska höfunda.
Tónleikarnir munu einkum
vera hugsaðir fyrir ferðafólk.
—BA
Manuela Wiesler
Leikur einleiks-
verk á flautu
Enn einn tónlistarviöburðurinn
verður i Skáiholti þessa helgi.
Manuela Wiesler flautuleikari
heldur þar tónleika bæði laugar-
dag, sunnudag og mánudag kl. 15.
Á efnisskránni eru verk eftir
G.PH. Telemann, P. Kont, J.S.
Bach og A. Jolivet. Enn sem fyrr
eru þau verk er Manuela hefur á
takteinunum hvort heldur frá 17.
eða tuttugustu öld.
Tónleikarnir hefjast á Fantasiu
i A moll eftir Telemann og söngv-
um úr fangelsi eftir Kont. Þá flyt-
ur Manuela partitiu i a moll BWV
1013 eftir Bach og þriskipt verk
eftir Jolivet er nefnist Meinlæti.
Fyrsti kafli verksins heitir: „Svo
leyndardómurinn megi vara sig
verðum við að fara hljoð i gegn-
um þögnina”, annar hlutinn heitir
„Efnið hið þrefalda djúp stjarna,
öreinda og kynslóða”, og þriðji
hlutinn heitir „Ó kona sem veist
ekki að þú barst i þér heiminn.”
Flaututónleikunum lýkur svo á
fantasiu i d moll eftir Telemann.
ÞJH
Leilcsýning inn-
an um myndir
Hér sjáum við hópinn sem hyggst sýna kunnáttu slna á mynd-
listarsýningunni á sunnudag.
„Valhoppaðu
í Víðihlíð
„Við töldum nauðsynlegt að
þátttakendur á þessu leiklistar-
námskeiði heföu eitthvað
ákveðiö að stefna að og afréðum
þvi að efna til þessarar sýning-
ar.” sagði Arni Pétur Guðjóns-
son sem haldið hefur leiklistar-
námskeið þessa viku fyrir 16
einstaklinga. Gallcriið á Suður-
götu 7 stendur fyrir þessu nám-
skeiði en fékk Arna Pétur til að
leiðbeina fólkinu, en hann starf-
ar með leikhópnum Kröku i
Kaupmannahöfn.
Sýningin verður á Kjarvals-
stöðum á sunnudaginn klukkan
4 og fer fram i sal þar sem
myndlistarsýning stendur yfir.
Það eru þeir Friðrik Þór Frið-
riksson og Steingrimur Eyfjörð
Kristmundsson sem þar sýna.
„Sýningin er unnin út frá
þeim áhrifum sem myndirnar
hafa haft á okkur.” sagði Árni
sem kvað þátttakendur i náms-
skeiðinu vera frá Hólmavik,
Borgarnesi og Reykjavik.
Sýningin mun taka um eina
klukkustund og notaðir verða
'eikbúningar og ýmis tækni -
sýnd.Leiktjöld verða hins vegar
enginn og Arni Pétur sagði að
sýningin væri mjög óformleg.
Leiklistarnámsskeiðið hófst
siðastliðinn mánudag og lýkur
með sýningunni á sunnudag.
Þátttakendur eru á öllum aldri
og eru þeir yngstu 14 ára.
Arni Pétur hélt leiklistar-
námsskeið i desember siðast-
liðnum og munu nokkrir af þátt-
takendunum þá hafa sótt nám-
skeiðið i þessari viku. A
Þorláksmessu héldu þeir sem
sóttu það námsskeið heljar-
mikla uppákomu i Austurstræti.
Sagðist Arni helst hefði viljað
halda aðrar slika útisýningu.
Veðrið væri hins vegar svo erfitt
að treysta á og rigning gæti al-
veg eyðiíagt slika sýningu. Það
hefði þvi verið ákveðið að halda
hana inni að þessu sinni.
—BA.
— Dansleikir i Víðihlíð í Skagafirði
Deildarbungubræður hafa
ferðast viöa um landið i sumar
og láta siður en svo deigann siga
nú um versiunarmannahelgina.
Þeir hafa viðdvöl i Víðihllð i
Skagafirði bæði föstudag og
laugardag og leika bæði kvöldin
fyrir dansi. Deildarbungu-
bræðrum til aðstoðar á dans-
leikjunum er Tröllabakkatrió
sem sér um eldri dansa músikk-'
ina. Þetta er i fyrsta skipti sem
trióið kemur fram með Deildar-
bungubræðrum og ef að likum
lætur mun þetta ekki verða i sið-
asta sinn.
Við Viðihlið verða tjaldstæði
og söluskáli er þar rétt hjá.
Axel Einarsson, einn meðlima
hljómsveitarinnar sagði okkur
að þeir væru bara ánægðir með
aðsóknina að dansleikjunum
sem þeir hefðu leikið á. Það
væri alltaf þrumustuð.
„Við ætlum að halda áfram að
ferðast um landið og svo er i
bigerð hjá okkur að taka upp
plötu, jafnvel með Tröllabakka-
trióinu.”
ÞJH
Deildarbungubræður: Axel Einarsson, Agúst Ragnarsson,
Ólafur Kolbeinsson og Jón Ragnarsson.
Kjarvalsstaðir sunnudag: