Vísir - 04.08.1978, Blaðsíða 8

Vísir - 04.08.1978, Blaðsíða 8
 8 WOLFMAN JACK j Parker. ULFURiNN- Þannig litur maöurinn á bak viö veinin frægu út. Þannig leit Ulfurinn ut tynr um 40 árum. Konan á mynd- inni er móöir hans, Rosamond Þeir sem hlusta eitt- hvað á Kanann i kring- um miðnætti kannast við „Úlfinn", Wolfman Jack. Veinin í honum fara ekki framhjá nein- um. Þeir sem sáu kvik- myndina American Graffiti munu kannast við andlit hans.Úlf urinn var skirður Robert Weston Smith, en það nafn þótti ekki nógu hentugt í „bransanum". BURTON I HRYLLINGSMYND Richard Burton er nú að leika i hryllingsmynd sem nefnist „The Medusa Touch", Þar leikur hann geðveikan rithöfund sem myrðir foreldra sina. Lee Remick er í hlut- verki sálf ræðingsins. Menn eru ekki á eitt sáttir um það hvort Burton eigi eitthvert er- indi i slíkar kvikmyndir. Amy Carter náöi tali af hetjunni baka til. Þar hrósaöi hún sér af þvi aö hafa fariö til Kina, sem hann heföi ekki heimsótt. SHAUN CASSIDY-ÆÐI Shaun Cassidy, hinn 19 ára söngvari, nýtur si- vaxandi vinsælda. Frægð hans hófst með leik í Hard Boys, sjón- varpsþætti i Bandarikj- unum. Söngvarinn hef ur látið hafa það eftir sér að hann hefði tök á því að gera heilan áheyr- andasal sturlaðan, en kærði sig ekki um það vegna þess að það væri sjúklegt. Tónleikar hans þykja mikill viðburður enda ólmast söngvarinn eins og hann sé óþreytandi. Aðdáendurnir flykkjast að honum hvar sem hann fer. ( Denver neyddist Shaun Cassidy til að dulbúast sem lög- regluþjónn og aka I lög- reglubíl, til þess að verða ekki troðinn undir. Shaun er hálfbróðir David Cassidy, sem hætti að syngja eftir að 14 ára stúlka hafði látið lifið á tónleikum hans.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.