Vísir - 04.08.1978, Qupperneq 8
8
WOLFMAN JACK
j Parker.
ULFURiNN-
Þannig litur maöurinn á bak
viö veinin frægu út.
Þannig leit Ulfurinn ut tynr
um 40 árum. Konan á mynd-
inni er móöir hans, Rosamond
Þeir sem hlusta eitt-
hvað á Kanann i kring-
um miðnætti kannast við
„Úlfinn", Wolfman
Jack. Veinin í honum
fara ekki framhjá nein-
um. Þeir sem sáu kvik-
myndina American
Graffiti munu kannast
við andlit hans.Úlf urinn
var skirður Robert
Weston Smith, en það
nafn þótti ekki nógu
hentugt í „bransanum".
BURTON I
HRYLLINGSMYND
Richard Burton er nú
að leika i hryllingsmynd
sem nefnist „The
Medusa Touch", Þar
leikur hann geðveikan
rithöfund sem myrðir
foreldra sina.
Lee Remick er í hlut-
verki sálf ræðingsins.
Menn eru ekki á eitt
sáttir um það hvort
Burton eigi eitthvert er-
indi i slíkar kvikmyndir.
Amy Carter náöi tali af hetjunni baka til. Þar hrósaöi hún sér af
þvi aö hafa fariö til Kina, sem hann heföi ekki heimsótt.
SHAUN CASSIDY-ÆÐI
Shaun Cassidy, hinn 19
ára söngvari, nýtur si-
vaxandi vinsælda.
Frægð hans hófst með
leik í Hard Boys, sjón-
varpsþætti i Bandarikj-
unum. Söngvarinn hef ur
látið hafa það eftir sér
að hann hefði tök á því
að gera heilan áheyr-
andasal sturlaðan, en
kærði sig ekki um það
vegna þess að það væri
sjúklegt.
Tónleikar hans þykja
mikill viðburður enda
ólmast söngvarinn eins
og hann sé óþreytandi.
Aðdáendurnir flykkjast
að honum hvar sem
hann fer. ( Denver
neyddist Shaun Cassidy
til að dulbúast sem lög-
regluþjónn og aka I lög-
reglubíl, til þess að
verða ekki troðinn
undir.
Shaun er hálfbróðir
David Cassidy, sem
hætti að syngja eftir að
14 ára stúlka hafði látið
lifið á tónleikum hans.