Vísir - 04.08.1978, Qupperneq 9
9
Upptökuheimili ríkisins i Kópovogi:
Góð hugmynd — mis-
heppnuð í framkvœmd
— segir bréfrítari
Rannveig Þórðardóttir
skrifar:
Ég finn mig knúða til að fara
nokkrum orðum um Upptöku-
heimili rfkisins i Kópavogi en
um það er þagað þunnu hljóði.
Ég tek fram áð þetta er ekki á-
deila á starfsfólk stofnunarinn-
ar beinlinis, sem verður að
vinna þarna við erfið skilyrði.
Ég er ein af þeim sem eru
þeirrar skoðunar, að börn og
unglingar geti orðið fyrir tjóni,
jafnvel varanlegu tilfinninga-
lega á þvi að dveljast langtim-
um á stofnunum almennt.
Flestir vita, til dæmis, að börn
sem alast upp á barnaheimilum
fara þvi miður á mis við þau til-
finningasambönd sem myndast
á milli foreldra og barna en er
mikilvægur hvati fyrir þroska
barnsins og ef til vill alla lik-
amsstarfsemi. Án þess verða
börn og unglingar oftlega
taugaveikluð og öryggislaus.
Vélræn börn
Ýmsir álita að heilbrigð börn,
sem alast upp á stofnunum
verði vélræn og ómanneskju-
legrien önnur, enda nái tilfinn-
ingaþroski þeirra við slfk skil-
yrði ekki framgangi sinum. Ég
leggengan dóm á þessa skoðun
en illt er ef satt er, Allir geta i-
myndaðsérhveráhrifþað hefur
áungling sem hefur á einhvern
hátt misstigið sig eða hlotið
slæma „reynslu” af einhverjum
ástæðum að bera sinar innstu
tilfinningar á borð fyrir hina og
aðra mishæfa gæslumenn eða
gæslusystur sem alltaf eru að
koma og fara eins og gengur á
sh'kum stöðum.
Ef unglingnum liður illa eða
hann þarf að fá ráð (eða lokar
sig inn i sjálfum sér ella) þá er
undir heppninni komið hversu
skilningsrik manneskjan er,
sem hlustar. Og þá er komið að
aðalumræðuefninu en það er
Upptökuheimili rikisins.
Ekki spara við
,, framtið íslands”
k>að er sorgleg staðreynd að
það ris ekki undir nafni þrátt
fyrir að tilgangurinn með sliku
heimili sé þarfiir og brýnn.
Nauðsyn þess, að unglingar i
nauðum staddir hafi athvarf er
hverjum manni augljóst. En þó
hugmyndin sé góð hefur hún
misheppnast i framkvæmd, að
minu áliti.
Slikt heimili verður að upp-
fylla þau skilyröi sem að
minnsta kosti mannsæmandi
megi teljast i nútíma þjóðfélagi.
Það þýðir ekkert að spara i
þessum efnum þegar „framtið
íslands” á i hlut. Er ekki hægt
að reka svona stofnun betur?
Hvar eru sálfræðingarnir, fé-
lagsráðgjafarnir og uppeldis-
fræðingarnir, sem búist er við
að þarna séu að störfum? Eiga
þeir ekki að vera til staðar að
reyna að leysa úr foreldra- og
unglingavandamálum með
kunnáttu sinni ef með þarf?
Hvaða fyrirbyggjandi ráðstaf-
anir eru gerðar fyrir unghng
sem lendir þarna? Svaróskast!
Hvar er fólkið sem útskrifað-
ist Ur skóluirt til shkra starfa?
Félagsmálastofnunin heldur
sennilega sinni verndarhendi
yfir staðnum en foreldrar, ung-
lingar og jafnvel lögreglan
standa varnarlaus og ráðþrota
fyrir framan þessi vandamál.
Auka sálfræði-
þjónustu
Eins og þetta heimili er rekið
núna finnst mér skilyrðislaust
ætti að loka þvi, þar til búið er
að endurskipuleggja það og
koma unghngum fyrir á örugg-
um stað á meðan. Koma þarf á
stóraukinni beinni sálfræðiþjón-
ustu þarna. Núna ráðfæra for-
stöðumaður og starfsmenn sig
við tvo starfandi sáhræðinga,
sem eru ekki á staðnum, Ut af
einstökum vandamálum ung-
linganna. Ekki hafa þeir sjálfir
viðtöl við þá.
Fundir eru haldnir á hver jum
morgni með unglingum og
starfshði og hegðun og fleira
rætt og reglur settar. Enginn
sérstakur læknir er við stofnun-
ina en hann ætti að koma þarna
reglulega af augljósum ástæð-
um. Forstöðumaöur má gjika
svo vel að leita til héraðslæknis i
Kópavogi 1 alvarlegum tilfell-
um. Auka þarf eftirlit vegna
hreinlætis á staðnum (sérstak-
lega á herbergjum ungling-
anna).
Ófullnægjandi
húsnæði
Einnig er hUsnæðið ófullnægj-
andi. Sérstaklega er „hlýjan”
(sem notuð er sem einangrun)
lélegt húsnæði en plast er f
gluggunum og séstillaútum þá.
Enginn samkomusalur er á
upptökuheimilinu. Mér býður I
grun, að of mikil ábyrgö hvili
þungt á herðum forstöð-
umannsins þvi þarna þarf sér-
lært fólk til.
Brýn þörf er að hafa ofan af
fyrir unglingunum á kvöldin til
þess 'að þau þurfi ekki að leita
annað meðanþau eruþarna. Til
dæmis væri hægt að hafa kvik-
myndasýningarog fræðslukvöld
o.s.frv.
Það er ósiður sumra foreldra
að hýsa börn og unglinga sem
þeir vita engin dehi á, spyrja
þau jafnvel ekki að nafni. Upp-
tökuheimiliðþarf aðhafa eftirlit
með „sinum” unglingum á
kvöldin en ekki láta þau flækjast
um allt eftirlitslaus.
Hvar eru unglingarnir
á kvöldin?
Veit starfslið stofnunarinnar
hvert unglingarnir fara á kvöld-
in eða i frlum eða hvort þau eru
þannig á sig komin að það sé
heppilegt fyrir þau að leita sér
að skemmtunum á eigin spýtur i
hvernig ástandi sem þau kunna
að vera sálarlega.
Astandið þarna þarf að bæta.
Það kostar ef til vill peninga, en
ég skora á þau stjórnvöld, sem
þarnaeruað verki og um þessi
mál fjalla, að kynna sér þessi
mál án tafar og bæta Ur ástand-
inu, þvf ,að snertir aha.
(Bréfið er litillega stytt)
hefur
okkar"
„Alþýðuflokkur
brugðist vonum
segir „reiður kjósandi
R.S. hringdi og vildi
kalla sig „Reiðan
kjósanda”:
„Það er ákaflega fróðlegt
fyrir okkur fyrrverandi
kjósendur Alþýðuflokksins að
sjá brölt þessara manna nú eftir
kosningar. Algjörlega hafa þeir
brugðist vonum okkar.
Þeir hafa engin úrræði fremur
en hinir flokkarnir og þessir
menn sem maður hélt að væru
með lausnirnar á reiðum hönd-
um, þeir sýnast nú vera jafnvel
ver i stakk búnir til þess að
leysa vandamálin heldur en þeir
gömlu. Rósin þeirra er endan-
lega fölnuð og aldrei mun ég
asnast til að kjósa krata aftur.
Frekar held ég mig við Sjálf-
stæðisflokkinn, kjölfestuna.
Eftir siðustu atburði hefur
það nefnilega sannast óum-
deilanlega að hann er sú kjöl-
festa sem islensk stjórnmál
byggja á. Til hans er alltaf leit-
að þegar i nauðirnar rekur og þá
bregst hann alltaf reiðubúinn
við.
Þess vegna hvet ég alla til
þess að snúa sér af alefli til þess
að stuðla að þvi að Sjálfstæðis-
flokkurinn nái hreinum meiri-
hluta og hvet þá sem létu
blekkjast af áróðri krata nú,
eins og ég reyndar gerði, til þess
að styðja þennan sterkasta
stjórnmálaflokk landsins i
reynd.
Vera má að um hrið séu erfið-
leikar með forystu á þeim bæ.
En það eru vandamál sem allir
flokkar eiga við að etja. Annað
er blekking.
Eftir að kratar brugðust,
þessi ofdekruðu pabbabörn án
úrræða, þá er ekkert eftir nema
að vona að Sjálfstæðisflokknum
auðnist að ná meirihluta. Vinn-
um að heill þjóðarinnar með þvi
að stórefla Sjálfstæðisflokkinn.
Þar er stefnan og þar er mann-
valið mest”.
Lokað
laugardaginn 5. ógúst
Allor stœrstu bílosölur landsins hafa
lokað laugardaginn 5. ógúst
Bílasalar á höfuðborgarsvœðinu