Vísir - 27.02.1979, Page 1

Vísir - 27.02.1979, Page 1
mJ “íyistai meö íiéttiii^SÍ Þriðjudagur 27. feb. 1979, 48. tbl. 69. árg. Sími Vísis er 86611 Miðstjórn ASÍ leggst gegn frumvarpi Ólafs „STYRJALDAR ÁSTAMD Á WUMDi A SÍ" sagði Karl Steinar Guðnason I morgun „Ég varö að taka fyrri bókunina tii baka, þvi að það varð allt brjálað á fundinum”, sagði Karl Steinar Guðnason við Visi I morgun um bókun alþýðuflokks- manna i miðstjórn ASl við umsögn þess um efnahags- frumvarp ólafs Jóhannessonar. „Ég kallaði þá for- stokkað afturhald i þess- ari bókun og viðhafði fleiri orð i þeim dúr. Það var styrjaldarástand á fundinum i gær”, sagði Karl Steinar. „A undirbúningsfund- inum deginum áður höfðu alþýðubandalagsmenn i ASI lagt fram plagg, sem átti að keyra i gegn. Ég gerði ýmsar athuga- semdir við það. Það var skilningur minn að þegar það yrði lagt fyrir mið- stjórn ASl, yrði það opið til athugasemda. Seinni bókun okkar var efnislega sú sama en styttri og með mildara orðalagi. Við stóðum að henni þrjú i miðstjórninni og ég veit að Jón Helga- son á Akureyri stendur að þessari bókun lika, en hann var veikur. Samþykkt miðstjórnar- innar var neikvæð og fýlutónn i henni. Okkur virðist sem Alþýðusam- bandið vilji láta verða óbreytt ástand i efna- hagsmálum þannig að allt vaði á súðum og verð- bólgan verði 40 til 50%. Við teljum eðlilegt að ASÍ standi við sinar fyrri samþykktir, þar sem krafist er meiri áætlunar- geröar, markvissari fjár- festingastjórnar og bar- áttu gegn verðbólgu”, sagði Karl Steinar Guönason i morgun. I samþykkt mið- stjórnar ASÍ um frum- varpið segir að hún sé andvig kafianum um visi- tölu og launamál og þeim ákvæðum sem hún telur að leiða muni til sam- dráttar i atvinnulifinu. Þá leggst miöstjórnin gegn hugmyndum Ólafs um kjaramálaráð. 1 sam- þykktinni segir að ASI sé algjörlega á móti þvi að skattar og niðurgreiðslur fari úr visitölu og verð- bætur verði frystar til 9 mánaða, hins vegar eru þeir reiðubúnir að ræða með hvaða hætti taka megi upp viðskiptakjara- visitölu. — —KS Meðan ungling- arnir keppa i diskódansi eru dansaðir Travolta- dansar og tvistað i félagsmiðstöð eldri bæjarbúa i Kópa- vogi. Þar fer fram danskennsla einu sinni i viku fyrir sextiu og sjö ára og eldri, auk annarrar félagsstarfsemi. Visir leit þar inn i siðustu viku og sannfærðist um að aldur er ekki spursmál um ár — og menn geta átt jafnvel skemmti- legra félagslif i vændum en þeir höfðu áður þekkt, þegar þeir komast á eftirlaunaaldurinn. Hér sést Sigríður, sem er á áttræðisaldri og Salóme, sem er á níræðis- aldri, tvista í danskennslunni hjá Heiðari Astvaldssyni. Tvistað hjá elli- lífeyris' þegum Saltfiskurinn er númer eitt Ein stærsta saltfiskverkunarstöð á landinu er Fiska- nes h.f. i Grindavfk. Gtflutningsverðmæti fyrirtækisins voru yfir cinum miiljarði á siðasta ári og að jafnaði vinna þar um 40 til 50 manns. A bls. 5 i Vfsi i dag er rætt við Dagbjart Einarsson, framkvæmdastjóra Fiskaness. Þar kemur meðal annars fram að hann telur að netafiskurinn sé besta hráefnið fyrir saltfiskverkunina og að saltfiskverkun sé númer eitt i Grindavik. Miklar umræður hafa oröið um vanda fiskvinnslu á Suðurnesjum og telur Dagbjartur að sá vandi stafi aðatlega af aflabresti undanfarinna ára. Meðalafli netabátanna sé nú um 400 tonn, en meðan best lét var aflinn á vertið að meðaltali 800 tonn og fór allt upp f 1200 tonn. —KS Aukningin gefur 2,7 milljarða Aukning loðnuafla um 100 þúsund tonn gefur af sér 2,7 milijaröa i auknum útflutningstekjum. Fiskifræðingar hafa sagt að óhætt sé að veiöa um 450 þúsund tonn af loðnu á þessari vetrarvertið en það er 100 þúsund tonna meiri afli en þeir hafa áður talið óhætt að veiöa. Hins vegar var loðnuaflinn á vetrarvertið I fyrra um 470 þúsund tonn, þannig að hér er aðeins verið að halda I horfinu og ekki um aflaaukningu milli ára að ræða. Sjá bls. 23. Tap gegn Spánverjum eg ólympíu- draumurinn að engu S|á íþróttir á bls. 11, 13 og 14

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.