Vísir - 27.02.1979, Side 11
VlSUR
Þriöjudagur 27. febrúar 1979.
Ellilífeyrisþegar í Kópavogi:
DANSA Í
VIÐ
TÍMANN
Á bókasafninu
Viö leöurvinnu
TAKT
Þaö verður ekki annað
sagt um eldri bæjarbúa í
Kópavogi en að þeir séu í
takt við tímann. Þeir eru
að vísu ekki með diskó-
keppni> en á þriðjudögum
dunar dansinn í Hamra-
borg 1/ félagsmiðstöð
aidraðra. Þar láta sextíu
og sjö ára og eidri ekki
sitteftir liggja í tvisti, og
travoltadönsum, frekar
en hinum gömlu hefð-
bundnu danssporum.
Vísismenn litu þar inn í
siðastliðinn þriðjudag og
fengu staðfestingu á því
að aldur er ekki spursmál
um ár. Þann dag er „opið
hús" hjá starfseminni og
mikið um að vera allan
daginn. Að sögn Ásthildar
Pétursdóttur forstöðu-
manns er danskennslan
nýbreytni hjá þeim. Hún
kvaðst hafa komið að
máli við Heiðar Ástvalds-
son um þennan mögu-
leika og hann hefði
brugðið skjótt við og sent
þeim tvo danskennara
einn tíma í hverri viku og
neitaði að taka greiðslu
fyrir! Hefur danskennsl-
an vakið ósvikna ánægju.
Þegar okkur bar að var
verið að spila á spil á
nokkrum borðum. Þá
voru sumir að velja sér
bækur í bókasafni staðar-
ins, aðrir við leðurvinnu
og hárgreiðslukona var
þarna til að leggja hárið á
þeim sem þess óskuðu.
„Ég kem hér alltaf
þegar það er opið, þetta
er erðið annað heimlli
manns", sagði ein konan
við okkur.
Við vorum líka sam-
mála um það eftir heim-
sóknina að enginn þyrfti
að kvíða því að eldast ef
þetta væri sýnishorn af
því félagslifinu sem biði
manns eftir sextíu og sjö
ára aldur.
—JM
Viö spilamennsku
t lagningu
„Nú tvistum viö... beygjum okkur i hnjánum... veifum höndunum... og tvistum áfram...
11
Saióme, sem sést hér i skottis meö danskennaranum. sagöist ekki
hafa dansaö I tugi ára fyrr en I þessum timum. Aö visu heföi hún
stöku sinnuni fariö á dansleiki undanfarin ár, en sér heföi aldrei
veriö boöiö upp”. Ekki þaö aö mér sé ekki sama, maöur er nú ekki
aö ganga á eftir þessum gæjum", bætti hún viö, hress i bragöi.
,,Nú dönsum viö dans sem heitir ,,SImon segir” og er voba vinsæll
hjá krökkunum” kallaöi danskennarinn og Asthildur Pétursdóttir
forstööumaöur dansaöi meö af fullum krafti.
,,Eg er nú á niræöisaldri”, sagöi Salóme, sem er til hægri á mynd-
inni. ,,Já, og ég á áttræöisaldri, en vib erum nú bara krakkar, elsk-
an”, sagöi Sigríöur.