Vísir - 27.02.1979, Side 21

Vísir - 27.02.1979, Side 21
VÍSIR Þriöjudagur 27. febrúar 1979. 21 Málaferli Lee Marvins: Richard Doughty, 34ra ára leikari, sagði fyrir rétti i Los Angeles i fyrradag, að hann hafði haft kynferðislegt samband við söngkon- una Michelle Triola Marvin á næstum hverjum degi i tvo og hálfan mánuð, á meðan hún bjó enn með kvik- Þaö er af sem áður var, eins og sjá má á þessum myndum af Lee Marvin og frú Hjúskaparbrot eiginkonunnar gota gerbroytt fjárkröfonum myndastjömunni Lee Marvin. Eins og fram hefur komið, eiga þau Michelle og Lee Marvin nú I málaferlum og fer Michelle fram á helming tekn- anna sem hann aflaöi á meðan þau bjuggu saman. Michelle hefur haldið þvi fram að hún hafi gefiö söng- og leikferil sinn upp á bátinn, til að helga lífi sinu algjörlega hinum 54 ára gamla Lee Marvin. Sambúð þeirra lauk árið 1970 eftir sex ár, og hefur Michelle krafist helmings tekna hans á þeim árum, sem munu vera að minnsta kosti þrjár og hálf milljón dollara. Framburður leikarans Doughty gæti þ minnkað lfkurn- ar á þvi' að Michelle fái pening- ana. Enda sagði dómarinn i málinu, Arthur Marshall i gær- dag, að sögu Reuter-fréttastof- unnar, að sannanir á likamlegu sambandi Michelle við aðra á meðan á sambúðinni stóö, sýnduaö Michellehefði brugðist og ekki verið samkvæm sjálfi sér þegar hún ætlaði að helga lif sitt Marvin. Leikarinn Doughty sagði að Michelle hefði beðið sig fyrir fjórum árum aö hafa aldrei orð á þeirra sambandi, þar sem það myndi særa Marvin. Hahn sam- þykkti þaö, en skipti um skoöun, eftir að lögfræöingur Lee Marvins, David Kagon, hringdi til hans i nóvember slðastliðn- um. Doughty kveðst hafa hitt. Marvin og Michelle árið 1969. Michelle hafi þá fljótlega boðið sér i stutta skemmtiferö, og þau hafi þá sofið saman. Doughty viöurkenndi fyrir rétti að hafa sagt Kagon á árinu 1974, að hann hefði aldrei átt mök viðMichelle. Hann var sið- ar spurður hvers vegna hann hefði.neitað til aö byrja með aö hafa átt viö hana mök, en siöar játað. „Ég er 34ra ára núna og reiðubúinn til að viöurkenna þá hluti sem ég hef gert,” svaraöi leikarinn. -EA ELTINGARLEIK- UR UM GÖTUR KEFLAVÍKUR Tveir lögreglubilar eltu jeppa um götur Keflavikur aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt hafði veriö um árekstur rétt fyrir klukkan þrjú um nóttina og hafði öku- maður fyrrnefnds jeppa farið af staðnum. Lögreglan kom slöar auga á jeppann og hóf eftirför. Tóks lögreglumönnum að stöðva öku- manninn og fór einn þeirra út. ökumaðurinn tók þá snögglega af stað og I burtu. Nokkru siðar fór ökumaöur- inn á jeppa sinum út fyrir vegi og i ófærur, og misstu þá lög- reglumenn af honum. Fundu þeir bilinn mannlausan seinna um nóttina en náðu ökumannin- um daginn eftir. -EA Lögtaksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak hjá gjaldendum I Keflavlk, Njarðvik, Grindavik og Gullbringusýslu fyrir þeim hluta eignaskattsauka, sérstaks tekjuskatts og sérstaks skatts á tekjur af atvinnurekstri skv. bráðabirgöalögum nr. 96, 1978, sem féll I gjalddaga 1. janúar 1979 og 1. febrúar 1979 og ógreiddur er. Fer lögtakið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úr- skurðar þessa. Bæjarfógetinn I Keflavik, Njarövik og Grindavik. Sýslumaöurinn i Gullbringusýslu. 20. febrúar 1979. Öifushreppur óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa og um- sjónarmann verklegra framkvæmda hrepps- ins til starfa frá 1. apríl 1979. Tæknimenntun áskilin. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Skrif legar umsóknir, er greini f rá menntun og fyrri störfum, skal skila á skrifstofu ölfus- hrepps, Selvogsbraut 2, Þorlákshöfn, fyrir 5. mars 1979. Sveitarstjóri ölfushrepps. FASJ EFNI: Vísir spyr 2 ■ Svarthöfði 2 ■ £rlendar fréttir 6, 7 - fólk 8 - MyndasÖgur 8 ■ Lesendabréf 9 ■ Leiðari 10 íþróttir 12, 13 - Dagbók 15 - Stjörnuspá 15 ■ Líf og list 16, 17 - Útvarp og sjónvarp 18, 19 - Sandkorn 23

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.