Vísir - 14.03.1979, Side 9

Vísir - 14.03.1979, Side 9
Miðvikudagur 14. mars 1979 Frá frumsýningunni: Bréfritari færir þakkir þeim sem stóðu að frumsýningu á óperunni Pagliacci. íslensk ópera hafi þökk fyrir framtakið Einn á háa C-i hringdi: „Mig langar til að koma á framfæri þakklæti til þeirra sem stóðu að og fluttu óperuna Pagliacci i Háskólabió á sunnu- dagskvöldið. Ég ætla ekki að leggja dóm á frammistöðu einstakra söngv- ara, það verður gert af þar til kvöddum listdómendum. Hins vegar get ég ekki orða bundist yfir þessu lofsverða framtaki að koma þessari óperu á laggirnar. Þetta er búið að vera draum- ur margra söngvara og unn- endur óperunnar að hægt verði að sjá a.m.k. eina óperu á ári á sviði hér á landi. Nú þer þessi draumur orðinn að veruleika (ég er svo bjartsýnn á fram- haldið) Það sem vekur athygli er að það er einstaklingsframtakið sem hefur hrundið þessu i fram- kvæmd en rikisrekin leikhús hafa ekki séð sóma sinn i þvi aö sinna þessu listformi. Sem sagt- íslensk ópera hafi þökk fyrir”. Misnolkun mótmœlt Jónas Kristjánsson ritstjóri Dagblaðsins hefur óskað eftir þvi að Visir birti afrit af bréfi sem hann hefur ritað Náttúru- lækningafélagi Reykjavikur. Bréfið er svohljóðandi: Náttúrulækningafélag Reykja- vikur c/o framkvæmdastjórinn Laugavegi 20 b Reykjavik A aðalfundi NLFR tók ég eftir þvi, að i algeru leyfisleysi var nafn, sem gat verið mitt, á mið- um, er dreiftvar i anddyrinu. 1 framhaldi af fundinum var mér sagt, að nafn mitt yrði sett á prentaðan kjörseðil i fulltrúa- ráðskosningum á framhaldsað- alfundi. Bað ég Egil Ferdinandsson, sem flutti mér þessa fregn, koma þeim skilaboðum til stjórnarformanns NLFR, að ég yrði ekki i neinum kringum- stæðum i sliku framboði. Þrem dögum siðar hringdi Marinó Stefánsson, stjórnar- formaður NLFR, til min og sagði, að skilaboð þessi hefðu borizt of seint. Kvaðst ég þá mundu mótmæla þessari endur- tekinni misnotkun á nafni minu að mér forspurðum. Geri ég það hér með þessu bréfi. Jónas Kristjánsson Afrit af bréfi þessu eru send Dagblaðinu og Visi vegna vill- andi ummæla i lesendabréfum um aðild mína að flokkadrátt- um i NLFR. Visa ég til leiðara i Dagblaðinu 7. mars, þar sem fram kemur, að ég hef ekki dá- læti á neinum fylkingum i þessu félagi. JK BERNHOFTSTORFAN Húsin hrörna meðan beðiö er eftir að tekin sé ákvörðun um afdrif þeirra. Borgin fœr boltann HB hringdi: „Nú er Bernhöftstorfan kom- in ennþá á dagsskrá. Heldur hefurhenni blessaðri farið aftur frá þvi siðast var deilt um til- verurétt hennar. Rikið hefur gefið boltann frá sér og nú á Reykjavikurborg næsta leik. Ætlar hún að þiggja kofana og fúaspýturnar og planta þeim niður i Arbæ eða ætlar hún að þvo hendur sinar af öllum afskiptum af málinu og láta rikinu það eftir. Hvað sem segja má um það hvorteigiað varðveita þessi hús i upprunalegri gerð á uppruna- legum stað læt ég liggja milli hluta. Hins vegar er ótækt að láta árin liða eitt af öðru án þess að nokkur ákvörðun er tekin. Á meðan grotna húsin niður ogaðlokumer ekkert eftir til að varðveita. Ef til vill er það til- gangur þeirra sem draga það á langinn að taka ákvörðun um afdrif húsanna”. OPID KL. 9-9 Allar skreytingar unnar af fagmönnum. Najg bilattaaSi a.m.k. ó kvoldin BIDMfcAVLXriR II \l \ \KS| K l I I siu Bifreiðaeigendur Ath. að við höfum varahluti í hemla, i ailar gerðir amerískra bifreiða á mjög hagstæðu verði, vegna sérsamninga við amerískar verk'smtðjur, sem framleiða aðeins hemla- hluti. Vinsamlega gerið verðsamanburð. STILLING HF.“ ' Sendum gegn póstkröfu 31340-82740. smáŒuglýsingar «86611 Að gera við brotna nögi, eða lengja stutta nögl, tekur aðeins tíu mínútur. Fœst í snyrtivöruverslunum. STEFÁN JÓHANNSSON HF. SÍMI 27655 TÆKNINÝJUNG

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.