Vísir - 17.03.1979, Side 10

Vísir - 17.03.1979, Side 10
10 Laugardagur 17. mars 1979 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: úlafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrln Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor- valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylf i Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmynd- ir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Haf- steinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Slðumúla 8. Simar 86611 og 87260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Sfðumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 1000 á mánuöi innanlands. Verð I _ . , lausasölu kr. 150 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f !■■■■■ ■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■! „Eigendur" launafólks og hinir leikararnir Þá hefur efnahagsmálafrum- varp Olafs Jóhannessonar, for- sætisráðherra, verið lagt á borð þingmanna og er það nú form- lega komið inn á alþingi þjóðar- innar. Það hef ur þó þegar verið karpað um það aðallega utan dagskrár f ram að þessu og utan þings, einkum í ríkisfjölmiðl- um, þar sem stjórnarf lokkarnir hafa keppst um að pota inn tals- mönnum sínum til þess að f lytaj kosningaræður í fréttatímum. Þeir hafa ekki rætt saman heldur hver flutt sína ræðu og aðeins kynnt málið frá sinum sjónarhóli þannig að almenn- ingur hefur átt erfitt með að átta sig á, hvernig dæmið liti út í heild sinni. Lúðvík telur að þarna sé á ferðinni kauplækkun og því til staðfestingar hagræðir hann skýrslum og útreikningum Þjóðhagsstofnunar. Steingrím- ur og Kjartan koma svo í kjöl- farið og segja að ekkert sé að marka Lúðvík og útreikninga hans, því sannleikurinn sé sá, að kaupmátturinn muni aukast hjá launafólki, þótt kaupið hækki lítið sem ekkert í krónu- tölu. Auðvitað er kaupmátturinn það sem skiptir máli. Það er til lítils að hækka kaup um allt að 50% eins og gert var á síðasta ári ef kaupmátturinn eykst samhliða launahækkuninni að- eins um 6 — 8%. Þetta hlýtur hver heilvita maður að skilja, en Lúðvík heldur dauðahaldi í krónutöluna. Það er ekki hægt að segja annað en f jörugt sé á hinu póli- tíska sviði þessa dagana enda upplausnarástand í herbúðum stjórnarinnar. Til viðbótar þeim skrípaleik kemur svo hrá- skinnaleikur mismunandi mik- illa komma í Alþýðubandalag- inu, sem þykjast vera að deila um orðalag og ákveðnar greinar í frumvarpi Olafs Jóhannes- sonar, en eru í raun að gera upp gamlar syndir sín á milli. Þannig er til dæmis Ijóst, að Ásmundur Stefánsson hagfræð- ingur stekkur nú inn á sviðið og gerir ráðherrum Alþýðubanda- lagsins hinn versta grikk með yfirlýsingum í nafni Alþýðu- sambandsins, til þessað klekkja á þeim, ekki síst Svavari Gests- syni, sem varð til þess, að Ás- mundur komst ekki í öruggt þingsæti í fyrrasumar. Það vekur furðu að forseti Alþýðusambandsins, Snorri Jónsson, skuli vera í feluleik þessa dagana. Hann neitar að gefa yfirlýsingar í fjölmiðlum og lætur helst ekki ná sambandi við sig. Er Alþýðusambandið forystulaust? Eiga launþegarn- ir í sambandinu engan tals- mann? Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur, að þeir þurf i að leita inn í raðir Bandalags háskólamanna til þess að finna talsmann. Ásmundur Stefáns- son, lektor við Háskólann, er ekki fulltrúi verkamanna. Olaf- ur Ragnar Grímsson, próf essor við Háskóla lslands,er heldur ekki réttur talsmaður þessa fólks. Það er hrein móðgun við þá, sem vinna hörðum höndum að Ásmundur lektor skuli taka þannig til orða „Við getum ekki sætt okkur við kaflann eins og hann er." Hann er ekki einn þeirra, sem þiggja laun sam- kvæmt samningum Verka- mannasambandsins eða ASI. Þessir menn verða að fara að átta sig á því að þeir eiga ekki launafólkið í landinu. Það á sig sjálft og á að hafa rétt á að láta talsmann úr sínum hópi segja á- lit sitt á fyrirhuguðum ráðstöf- unum, sem það munu snerta. Svo kemur Guðmundur jaki Guðmundsson fram á sjónar- sviðið, sæll og rólegur, gætir. þess vel að gefa engar yfir- lýsingar sem hann gæti þurf t að kyngja, segist flakka milli hressingarskála, pylsuvagns og stjórnarráðshúss, og biður menn bara að vera rólega. Hann boðar ekki fund í stjórn Verkamannasambandsins vegna þess að kratarnir eru þar með meirihluta, þannig að yf ir- lýsing þaðan gæti verið óheppi- leg í stöðunni, heldur hugsar hann sér að sviðsetja eigin lausn á vandanum, sem nú hefur komið upp og þar á eftir verður hún innsigluð með ályktun frá Verkamannasambandinu. Þessi trúðleikur tekur nokkra daga og á meðan munu þing- menn rífast í leikhúsinu við Austurvöll. Eftir að þessum þætti lýkur verður svo tjaldið dregið á ný f yrir pólitíska sviðið og við fáum hlé í nokkrar vikur. V ANG AVELTUR efftir Sigvalda Hfálmarsson Þar stendur hnífurinn í kúnni i MIKLU FJAÐRAFOKI viö að bjarga þjóöinni frá glötun hefur ýmsu kynlegu veriö þyrl- aö upp I kringum vora þrlbreiöu rlkisstjórn — sem lent hefur oft- ar og I meiri sálarháska á skömmum tima en dæmi finnast til um stjórnir I samanlagöri kristninni. Eitt þykir mér Ihyglisvert: Tillaga Vilmundar Gylfasonar um þjóöaratkvæöi — enda sú til- laga örguö niöur einsog gert var viö blásaklausar álftir á heiöum uppi I gamla daga fyrir noröan, þótti vitlausust allra tillagna og fékkst ekki tekin á dagskrá I þinginu hvaö þá meira. Kannski þingmönnum finnist litill visdómur I aö gefast upp viö aö beita þeim ráöum sem þeirhöföu undir rifi hverju fyrir kosningar og kinoki sér viö aö hlaupa heim meö lafandi skott I nýbyrjuöu kjörtimabili og spyrja sjálfan pöpulinn hvaöa skemmtiatriöi eigi aö koma næst? Þjóðaratkvæöi ætti ekki aö teljast nein fjarstæöa, þaö hefur stoö i lögum. Lýöræöi felst i þvi meöalann- ars aö almenningur fær aö velja þann eða þá sem sinna skulu þvi starfi aö ráða, og þeir sem þannig hljóta kosningu, þeir stjórna eöa myndast viö að stjórna einsog guð gefur þeim vit og vilja til. En gallinn er bara sá að þeir bera afskaplega takmarkaöa ábyrgö, sannast sagna reynast þeir gersamlega ábyrgöarlausir menn á háum eftirlaunum þegar þeir eru fallnir aö lokum, rétt einog Jón Jónsson úr Flóanum sem aldrei réöi neinu — nema hvaö hann fær einungis sultarleg ellilaun! Almenningur er ævinlega sá sem ábyrgðina ber, þjóöin sjálf. Aldrei telst hollt aö biliö sé breitt milli ákvöröunar og ábyrgöar. Þaö er þá sem mál taka að ganga úrskeiöis. Það er einmitt þar sem hnifurinn stendur i kúnni: Myndast hefur undarlegt tómarúm sem aö- greinir stjórnarathafnir frá almenningi og ábyrgö frá stjórnendum — þvi eigi tapa þingmenn mest á veröbólgu, þeirra kjör rýrast varla aö marki þótt verðlag fari hækk- andi, enda hægurinn hjá aö hækka viö sig launin! Nú er ekki meiningin (aldrei þessu vant) aö fara aö skamma pólitikusa. Ég sé beinlinis ekki hversu koma megi fram ábyrgö á hendur þeim svo aö gagni veröi. Þeir vinna sin verk upp og ofan ekkert verr en aðrir, og mega kannski teljast einn af þrýstihópunum. Ekki ráöa þeir sig heldur uppá hlut né vinna samkvæmt uppmælingu! Aukþess reynist haldlitiö aö reka kapteininn þegar búiö er aöstranda skútunni, hún rennur ekki á flot fyrir þaö eitt. En má ekki leyfa almenningi aö finna betur til ábyrgðarinnar sem hann ætið ber með þvi aö leggja honum á heröar ööru- hverju að tjá vilja sinn um ein- stök mál I þjóðaratkvæöi? I Sviss gildir hiö þráöbeina lýðræði i og meö, og varla eru gömlu hreppsfundirnir Islensku aflagöir meö öllu, en þar tóku hreppsfélagar ákvaröanir meö atkvæðagreiöslu um mál sem alla varðaði og allir báru ábyrgð á aö lokum. Nú er þaö staöreynd aö fólk tekur mikinn þátt i pólitik og ræöur heilmiklu utan þingkosn- inga, lætur i ljós vilja sinn I ræöu og riti og meö fáránlegu þjarki við kurteisa ráöherra á „beinni linu” I útvarpinu núorö- iö. Og málum er oftlega skotiö undir almanna dóm i hags- munasamtökum þarsem kamarmokarar þykjast verr settir en fjósamenn og hver tog- ar i sinn spotta uns svo fer aö allir tapa. Hvi ekki leggja slik mál held- ur fyrir alla þjóöina þegar ástæöa þykirtil? Hún greiöir launin, hún tekur launin. Af hverju ekki prófa? Hvaö óttast ráðamenn? Stjórnarherrar eru kjörnir til aö stjórna. En þeir eru ekki kjörnir til aö ráöa skoðunum almennings. Inná þaö sviö reyna þeir samt aö seilast meö áróöri, skrumi og fagmannleg- um oröaskylmingum i sjón- varpi. I kosningum eru málin flækt meö ismeygilegri starf- semi stjórnmálaflokka þarsem glimt er um völd og aöstööu ekki siður en úrræði i vandamálum samfélagsins og fólk ginnt til þátttöku i baráttu fyrir hugsjón- um þótt allir séu jafn-hugsjóna- lausir og allir flokkar stjórni eins, séu þeir viö völd, og hagi sér jafn-oflátungslega I stjórn- arandstööu. Kannski er eölilegt þeir vilji ekki leggja einstök mál undir dóm þjóöarinnar? Kannski er eðlilegt þeir kjósi fremur aö leita til hagsmunahópa þvi þeir eru hvort sem er flestir ein- hverskonar flokkspólitisk næturgögn og segja já eða nei eftir þvi hvur ber úrræðiö fram, ekki hvaö þaö er. Þjóðaratkvæði á ekki aö vera mikiö fyrirtæki i dag. Ef hug- vitsmenn leggja sig fram nú á öld tölvutækni og hraöa ætti.aö finnast einföld aöferö sem fljof- legt er að gripa til þegar þurfa þykir. Varla þarf samt að fara i grafgötur um að ekki veröa úr- slit þjóöaratkvæöis neinn Salómonsdómur fremuren atkvæöagreiösla á þingi. Vit- lausasti kosturinn lendir gjarna ofaná, þvi viö erum upp og ofan ekkert sérstaklega vitur eöa framsýn. En þá er ekki viö neinn aö sakast þvi sá sem ábyrgöina ber tók ákvöröunina. Vill þjóöin herinn eöa vill hún hann ekki? Vill hún frumvarp Ólafs eöa vill hún þaö ekki? Og þaö sem hún vill situr hún uppi meö og verður þá aö sleppa allri dispútan þar um bil. —8.3.1979

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.