Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 1
39. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. FEBRÚAR 2001
Frumsýnd í dag!
Mel Gibson Helen Hunt
EHUD Barak, starfandi forsætisráðherra Ísraels,
og Ariel Sharon náðu í gær samkomulagi til bráða-
birgða um samsteypustjórn Verkamannaflokksins
og Likud, hægriflokks Sharons. Hinn síðarnefndi
sigraði nýverið er kosið var til embættis forsætis-
ráðherra og bauð hann þá Barak embætti varn-
armálaráðherra í samsteypustjórn. Í tilkynningu
frá skrifstofu Baraks í gærkvöldi sagði að ráð-
herrann vonaði að hann myndi geta skýrt forystu
flokksins frá endanlegu samkomulagi eftir helgi.
„Myndun stjórnarinnar byggist á því að eining
náist um stefnuyfirlýsingu hennar og þann ágrein-
ing sem enn er eftir að brúa á því sviði,“ sagði
heimildarmaður sem ekki vildi láta nafns síns get-
ið. Hann sagði að Barak og Sharon hefðu verið
sammála um að Verkamannaflokkurinn tæki að
sér ráðuneyti varnarmála og utanríkismála. Ísr-
aelska útvarpið sagði að hvor flokkur fengi sjö ráð-
herraembætti en er Barak varð forsætisráðherra
1999 fjölgaði hann embættunum úr 18 í 23 þrátt
fyrir hörð andmæli þeirra sem sögðu að um bruðl
væri að ræða er ekki ætti sér heldur stoð í lögum.
Shimon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra og
flokksbróðir Baraks, hefur mælt með því að flokk-
arnir tveir gangi saman í ríkisstjórn og sagst vera
reiðubúinn að gegna embætti í henni. Peres er
friðarverðlaunahafi Nóbels og var talinn einn af
helstu höfundum Óslóarsamninganna um frið við
Palestínumenn. Sharon er öflugasti talsmaður
harðlínumanna í Ísrael sem vilja ekki slaka til í
viðræðum við Palestínumenn og hefur hann lýst
fyrirlitningu sinni á Óslóarsamningunum.
Takist Sharon að mynda samsteypustjórn með
Verkamannaflokknum tryggir hann að ríkis-
stjórnin fái starfhæfan þingmeirihluta sem stjórn-
málaskýrendur telja að reynast myndi erfitt ef
hann yrði að leita til ýmissa smáflokka.
Mikil sorg og reiði ríkir meðal almennings í
Ísrael í kjölfar þess að palestínskur bílstjóri ók
rútu inn í hóp af fólki á biðstöð í Tel Aviv á þriðju-
dag. Átta manns fórust og fór útförin fram í gær.
Stjórnvöld bönnuðu alla umferð til og frá svæðum
Palestínumanna vegna atburðarins. Hermenn
skutu í gær til bana vopnaðan Palestínumann í
landnemabyggð gyðinga, Kfar Darom á Gaza.
Maðurinn var félagi í öryggissveitum stjórnar
Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna.
Ephraim Sneh, aðstoðarforsætisráðherra Ísr-
aels, varaði við því að gripið yrði til hefndarað-
gerða. „Það er ekki til nein hernaðarleg lausn, að-
eins samningalausn,“ sagði hann.
Barak og Sharon semja
um samsteypustjórn
Jerúsalem. AFP, AP.
Reuters
Ehud Barak (t.v.) og Ariel Sharon á skrifstofu
hins síðarnefnda í Tel Aviv í gær.
BANDARÍSKA alríkislögreglan
(FBI) og alríkissaksóknari í New
York hafa hafið rannsókn á því
hvort annarlegar ástæður hafi legið
að baki sakaruppgjöf sem Bill Clint-
on veitti kaupsýslumanninum Marc
Rich á síðasta degi sínum í forseta-
embætti. Rich er landflótta vegna
ákæru um skattsvik og býr í Sviss.
Alríkissaksóknarinn Mary Jo
White staðfesti í yfirlýsingu í gær
að rannsakað yrði hvort náðun Rich
bryti í bága við alríkislög. Ekki voru
gefnar frekari upplýsingar um
rannsóknina, en AP-fréttastofan
hafði eftir heimildarmönnum að
kannað yrði hvort Rich hefði greitt
fyrir sakaruppgjöfina með einhverj-
um hætti.
Komið hefur fram að fyrrverandi
eiginkona kaupsýslumannsins, Den-
ise Rich, hefur lagt fram mikið fé í
kosningasjóði demókrata, þ.á m. í
sjóð Hillary Clinton. Þá mun Denise
Rich hafa í fyrra sent Clinton-hjón-
unum húsgögn að andvirði 7.375
dollara, eða um 640.000 króna, fyrir
nýtt hús þeirra í New York.
Í yfirlýsingu sem Bill Clinton
sendi frá sér á miðvikudagskvöld
vísaði hann því á bug að óeðlilega
hefði verið staðið að sakaruppgjöf
Rich.
„Ég tók ákvörðun um að náða
Marc Rich á grundvelli þess sem ég
taldi rétt að gera,“ segir í yfirlýsing-
unni. „Ásakanir um að óeðlilegir
þættir, á borð við fjáröflun fyrir
[Demókrataflokkinn] eða bókasafn
mitt, hafi haft áhrif á ákvörðunina
eiga ekki við nein rök að styðjast.
Ég mun með glöðu geði aðstoða við
rannsókn málsins.“
Alríkislögreglan og saksóknari í Bandaríkjunum
Opinber rannsókn á
sakaruppgjöf Rich
New York, Washington. AFP, AP.
Sakaður um/27
BIBLÍUHETJAN Samson, sem fyrir
3.000 árum braut niður hof og eitt
sinn felldi þúsund Filistea hjálp-
arlaust með asnakjálka að vopni,
var þjáður af geðsjúkdómi sem birt-
ist í andfélagslegri hegðun, að sögn
taugasérfræðings í Kaliforníu.
Sérfræðingurinn Eric Altschuler
fullyrðir að lýsing Gamla testament-
isins á manninum sé eins og ná-
kvæm greining á ákveðnum geð-
sjúkdómi. Einkennin séu meðal
annars slæm óþekkt á æskuárunum,
ósannsögli, kæruleysi og skortur á
hæfileikum til að laga sig að sam-
félaginu. Samson hafi t.d. verið afar
kærulaus er hann sagði Dalílu, sem
hafði þrisvar reynt að myrða hann,
að líkamskraftarnir tengdust síðu
hárinu. Dalíla klippti þá lokkana af
Samson.
Samson
geðsjúkur?
London. The Daily Telegraph.
STJÓRN Serbíu lofaði í gær að
framselja stríðsglæpadómstól Sam-
einuðu þjóðanna í Haag meinta
stríðsglæpamenn frá Bosníu og
Króatíu, sem ekki eru með júgó-
slavneskan ríkisborgararétt, eða
vísa þeim úr landi. Talið er að
nokkrir af forystumönnum Bosníu-
Serba, þeirra á meðal Ratko Mladic
hershöfðingi, dvelji í Serbíu, en
ekki er vitað hvort þeir eru með
borgararétt í Júgóslavíu, sam-
bandsríki Serba og Svartfellinga.
Serbneska stjórnin hefur ekki í
hyggju að framselja Slobodan Milo-
sevic, fyrrverandi forseta Júgó-
slavíu. Stuðningsmenn Milosevic og
Mladic komu saman í Podgorica í
Svartfjallalandi í gær til að mót-
mæla viðræðum þarlendra stjórn-
valda við Carla Del Ponte, saksókn-
ara stríðsglæpadómstólsins.
Styðja
Milosevic
Reuters
STUÐNINGUR við Framfaraflokk-
inn norska mældist 6% minni eða
17,1% í fyrstu skoðanakönnun sem
gerð var eftir nauðganahneykslið sem
nú skekur flokkinn. Hefur hann misst
nær helminginn af stuðningnum sem
hann hafði meðal kvenna. Verka-
mannaflokkur Jens Stoltenbergs for-
sætisráðherra bætir við sig, hefur
32,3% og einnig Hægriflokkurinn
sem á ný er orðinn næststærsti flokk-
ur landsins og fær 18,5%.
„Þetta kemur ekki á óvart,“ segir
aðalritari Framfaraflokksins, Geir
Mo. „Við höfðum gert ráð fyrir ein-
hverju af þessu tagi.“
Lögreglan rannsakar nú ásakanir
um að alls níu manns, þar af tveir
karlar, hafi orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi af hálfu ráðamanna í Fram-
faraflokknum. Sautján ára stúlka sem
sagðist hafa orðið fyrir ofbeldi af
hálfu Terjes Søviksnes, fyrrverandi
varaformanns flokksins, hefur ekki
fullyrt að hann hafi beinlínis nauðgað
sér, að sögn lögmanns stúlkunnar,
Roars Vegsunds. Hann segir enn-
fremur að stúlkan muni að sínu ráði
bíða með að ákveða þar til eftir
helgina hvort hún kæri Søviksnes.
„Það er mikill léttir að þetta skuli
koma fram eftir allar stóru fyrirsagn-
irnar í blöðunum síðustu dagana,“
segir Søviksnes.
Minnkandi fylgi
í könnunum
Ósló. Morgunblaðið.
Norski Framfaraflokkurinn
Stefna Bush/28
Kosningasigur /35