Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 14

Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 14
FRÉTTIR 14 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ „Stórbrotnar geðsveiflur“ „...bráðskemmtileg en vekur eigi að síður til umhugsunar“ - Halldóra Friðjónsdóttir, DV. „...áhrifarík sýning“ „Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður leikur og vönduð umgjörð“ - Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið. Næstu sýningar: Boðið er upp á mat á góðu verði fyrir sýningu. Háaloft - geðveikur svartur gamanleikur. Frábærir dómar segja það sem segja þarf um sýninguna: Höfundur og leikari: Vala Þórsdóttir Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Hluti af einleikjaröð Kaffileikhússins „Í öðrum heimi“ Laugardaginn 17.febrúar Þriðjudaginn 20.febrúar Sunnudaginn 25.febrúar Föstudaginn 2.mars Þriðjudaginn 6.mars STÓR HÓPUR belgískra mennta- skólanema heimsótti á miðvikudag forseta Íslands og fékk að skoða sig um á Bessastöðum. Krakkarnir eru í vikulangri Íslandsheimsókn sem er liður í nemendaskiptum skólans þeirra, Koninlijk Athen- eum Laken, og Menntaskólans við Hamrahlíð. Belgarnir dvelja hjá fjölskyldum íslensku nemendanna og sækja saman tíma í menntaskólanum. Auk þessa hafa krakkarnir farið í skoðunarferðir og heimsótt fjölda safna og stofnana. M.a. hefur verið farið að Gullfossi og Geysi og að Þingvöllum. Nemendur skólanna hafa unnið að kynningu um skólana sína, menningu, borgarlíf, náttúru og sögu hvorrar þjóðar fyrir sig. Lokaverkefni þeirra fólst svo í upp- setningu heimasíðu þar sem er m.a. að finna þessar upplýsingar. Sérstakur áfangi var stofnaður í kringum verkefnið í MH og eru átján nemendur skráðir á hann. Ís- lenski hópurinn fer svo til Belgíu í vikutíma í mars þar sem stofnanir Evrópusambandsins verða m.a. skoðaðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafur Ragnar átti gott spjall við Belgana sem kunnu vel að meta gestrisni forsetans. Heimsóttu Bessastaði „EFTIR því sem ég best veit er allt með kyrrum kjörum milli landanna,“ segir hann með breskan kímni- glampa í augum. En þótt engin séu átökin er þó í mörg horn að líta fyrir nýjan bresk- an sendiherra á Ís- landi, John Culver, sem nýtekinn er við embætti. Hann hefur ekki aðeins áhuga á verslun milli landanna heldur ekki síður á menningarsambandi þeirra. Hann hafði þegar heyrt af blómstrandi menningarlífi Reykja- víkur, sem hann segist hlakka til að kynnast af eigin raun. Til Íslands hafði hann ekki komið áður, en heyrt margt af landi og þjóð. Culver gekk í utanríkisþjón- ustuna árið 1968, fyrsta starf hans erlendis var að fara á milli sendi- ráða í Suður-Ameríku, en síðan hef- ur hann verið í Moskvu, La Paz, Róm og Dhaka áður en hann varð sendiherra í Managua árin 1992– 1997, aðalræðismaður í Napólí og nú síðast um hríð í Róm til þessað undirbúa Ítalíuheimsókn Elísabet- ar Bretadrottningar á í fyrra. Verslunarsambönd efst á lista Daginn sem hann var tekinn tali í einu af fundarherbergjunum í tröll- aukinni byggingu breska utanrík- isráðuneytisins var Culver nýbúinn að hitta fulltrúa úr verslunarnefnd frá Stoke, sem nýlega var á Íslandi. „Verslunarsamband landanna er efst á blaði. Bretland er besti markaður Íslendinga og Ísland er góður markaður fyrir okkur Breta,“ segir Culver. Hann bætir við að flokkað eftir stærð sé Ísland nr. 65 á lista yfir mikilvægustu markaði Breta, sem sé reyndar með ólíkindum miðað við stærð landsins, „og megi svo lengi haldast“, bætir hann við. „Það er engin ein grein, sem sker sig úr hvað varðar verslun við Ísland,“ segir Culver. „Ísland er góður alhliða markað- ur. Landið er auðugt og svo virðist sem þeir sem bjóða þar góðar vörur á viðunandi verði geti átt góð skipti við landið.“ Og ekkert bendir til að áhuginn á þessum litla, en öfluga, markaði sé að minnka í bresku við- skiptalífi, því Culver segist hafa heyrt af ýmsum, sem séu að þreifa þar fyrir sér. Áhuginn sé einnig gagnkvæmur og Íslendingar fjár- festi í Bretlandi og í breskum fyr- irtækjum. Hann veit að sjálfsögðu að fót- boltafélagið í Stoke er í eigu Íslend- inga og segir að þessi íslensku ítök á staðnum hafi ýtt undir og marg- faldað áhugann á Íslandi. „Ítökin hafa einnig ýtt undir viðskipti við Ísland og skapað grundvöll, sem ekki var til þarna áður,“ segir Cul- ver og er greinilega fullur hrifn- ingar á þessum óvænta afrakstri fótboltaáhuga landa sinna. Menningarborgin fékk athygli sem gæti nýst Culver hefur mikinn áhuga á list- um og hefur greinilega gert sér far um að kynnast lista- og menningar- lífi á þeim stöðum sem hann hefur búið á. Einnig á því sviði sér hann fyrir sér að ýmislegt megi rækta í samskiptum Bretlands og Íslands. „Bæði löndin eru áhugasöm um listir og menningu og eiga sameig- inlegan áhuga á samskiptum á því sviði. Menningarborgin Reykjavík hefur dregið að sér athygli og ég efast ekki um að á þeim grunni megi byggja frekar, líka eftir að menningarárinu lýkur,“ segir Culv- er. British Council styður ekki breskt menningarframtak á Ís- landi, en Culver segir að þrátt fyrir það megi víða finna sjóði til þess. Í fyrra sá sendiráðið um komu Lond- on Mozart Players til Íslands. „Í ár vonumst við til að geta stuðlað að tónleikahaldi í sumar og ég hefði sannarlega áhuga á að sjá hvernig mætti liðka fyrir komu breskra listamanna hingað.“ Gríðarlegur Ís- landsáhugi í Bretlandi undanfarin ár hefur ekki farið framhjá Culver, sem segir að sams konar áhuga á Íslandi gæti einnig á Ítalíu. Sjálfur hefur hann lengi haft áhuga á norðurslóðum. Vínlands- sögurnar vöktu á sínum tíma áhuga hans, honum þykja landafundir norrænna manna fyrir vestan haf áhugaverðir og að Leifur heppni skuli hafa verið þar á undan öðrum. Njálu las hann nýlega og Atóm- stöðina einnig. Það er því sendi- herra sem er með á nótunum sem nú tekur til starfa á Íslandi. Frá Róm til Reykjavíkur Viðskipti og menning eru helstu áhugamál Johns Culvers, sem um þessar mundir er að taka við sem breskur sendiherra á Íslandi, eins og Sigrún Davíðsdóttir komst að þegar hún ræddi við hann í London. ÞRÍTUGUR karlmaður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær fyrir að aka ölv- aður og keyra á kyrrstæðan bíl. Atvikið átti sér stað í mið- borg Reykjavíkur í apríl í fyrra. Maðurinn játaði skýlaust brot sitt en auk þess að vera dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi var honum gert að greiða allan sakarkostnað. Frá árinu 1985 hefur mað- urinn hlotið alls 10 refsidóma og gengist undir 9 sættir fyrir skjalafals, umferðarlagabrot, þjófnað, tilraun til þjófnaðar, fjársvik, húsbrot, fíkniefna- lagabrot og nytjastuld. Þá hef- ur hann gengist undir sekt- argreiðslu vegna líkamsárásar, þjófnaðar, áfengislagabrots, umferðarlagabrots og fíkni- efnalagabrots. Maðurinn var sviptur ökurétti ævilangt frá í júní 1996. Hefur hann fjórum sinnum áður gerst sekur um brot af því tagi sem hann var dæmdur fyrir í morgun og því þótti hæfileg refsing nú tveggja mánaða fangelsi. Fangelsi fyrir ölv- unarakstur LOSUN gróðurhúsalofttegunda á Íslandi árið 1999 var 3.410 þúsund tonn af koldíoxíðígildum og jókst hún um 9,5% frá 1998 þegar hún var 3.114 tonn. Losun gróðurhúsaloft- tegunda á Íslandi hefur aukist um 14% frá 1990. Þetta kemur fram á vefsíðu Holl- ustuverndar ríkisins og segir að aukninguna megi einkum rekja til þriggja þátta: Framleiðsluaukning- ar í stóriðju, meiri nýtingar jarð- varma og aukinnar losunar frá bílum og tækjum. Á heimasíðu Hollustu- verndar segir að áhrif lofthjúps jarð- ar á hitastig, sem almennt eru nefnd gróðurhúsaáhrif, þýði að meðalhiti jarðar sé +15 gráður í stað –18 gráða. „Gróðurhúsaáhrifin eru nauð- synleg forsenda lífs, eins og við þekkjum það, en aukning þessara áhrifa, m.a. vegna mikillar losunar gróðurhúsalofttegunda af manna völdum, kynni að valda hitaaukningu og hættulegri röskun á veðurfari og vistkerfi jarðarinnar.“ Einnig segir að losun gróðurhúsa- lofttegunda af manna völdum hafi aukist frá því iðnvæðing hófst. Auk- inn styrkur lofttegunda sem mest hafa verið losaðar, koldíoxíðs, met- ans og hláturgass, valdi auknum gróðurhúsaáhrifum sem leitt geti til loftslagsbreytinga. Losun gróður- húsalofttegunda jókst um 9,5%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.