Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á FÉLAGSFUNDI í Félagi
um Listaháskóla Íslands í
fyrrakvöld, þar sem framtíð-
arskipan Listaháskóla Ís-
lands og húsnæðismál hans
voru rædd, kom fram að yf-
irgnæfandi meirihluti fundar-
manna taldi Kvosina í Reykja-
vík, þ.e.a.s. Zimsenreitinn,
sem afmarkast af Geirsgötu,
Lækjargötu, Hafnarstræti og
Pósthússtræti, áhugaverðasta
kostinn fyrir nýbyggingu
Listaháskólans og Miklatún
þar á eftir. Að sögn Kristins
E. Hrafnssonar, sem situr í
stjórn Listaháskólans fyrir
hönd Félags um Listaháskóla
Íslands, voru umræður á
fundinum mjög öflugar og
náðu allt fram undir miðnætti.
Kvað hann menn helst vilja
Listaháskólann í Kvosina, í
hjarta miðborgarinnar, en vit-
að að það væri í rauninni kost-
ur sem búið væri að afgreiða
út af borðinu, því borgaryfir-
völd hefðu aðrar hugmyndir
um ráðstöfun þeirrar lóðar.
Því hefði meirihluti fundar-
manna stutt það, að unnið yrði
að því að koma skólanum á
Miklatún. Fyrir stjórn
Listaháskólans lægi formlegt
erindi frá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra, þar
sem hún leitar eftir áhuga
stjórnar Listaháskólans á því
að láta skoða málið nánar,
með það í huga að leggja það
fyrir nefndir og ráð borgar-
innar. Það bréf væri í raun
svar við erindi stjórnar
Listaháskóla Íslands til borg-
arinnar, um að hún bjóði ein-
hvern raunverulegan kost.
Nýbygging eini
raunhæfi kosturinn
Eftir að Hjálmar H. Ragn-
arsson rektor hafði kynnt
áform um nýjar deildir innan
skólans; tónlistardeild og
hönnunardeild, reifaði Krist-
inn E. Hrafnsson þær tillögur
sem uppi eru um framtíðar-
staðsetningu skólans. Byggði
hann erindið á skýrslu Björns
Stefáns Hallssonar hjá arki-
tektastofunni O’Donnell,
Wicklund, Pigozzi and Peter-
son Architechts Inc. í Chic-
ago, um húsnæðismál
Listaháskólans, sem unnin
var fyrir stjórn Listaháskól-
ans í ágúst í fyrra og viðbót í
febrúar á þessu ári. Í máli
hans kom fram, að alls hefðu
OWP&P kannað 16 eldri
byggingar og staðsetningar-
kosti sem borgarskipulagið í
Reykjavík hefði lagt fram og
Hafnarfjarðarhugmyndina að
auki. Skýrsluhöfundur kemst
að því, að nýbygging sé eini
raunhæfi kosturinn fyrir skól-
ann, óháð staðsetningu og því
kæmu eldri byggingar ekki til
greina.
Augljóst væri að vanda
þyfti til staðsetningar skólans
því hún geti haft veruleg áhrif
á hvernig starfsemi hans
muni þróast. Í staðarvali hans
muni einnig ráðast að nokkru
hversu ríkulega lista- og
menningarlíf borgarinnar, og
þjóðarinnar, muni verða
styrkur af starfsemi skólans.
Markmið skólans og vænting-
ar hvað varðar tengsl við
menningarlíf landsins væru
þýðingarmikil atriði að þessu
leyti og nauðsynlegt að hafa
þau í huga. Þá væru góð
tengsl nauðsynleg við aðrar
menningarstofnanir og ekki
hvað síst við reynslumikla
starfskrafta þeirra – leiklist-
ardeildirnar við leikhúsin,
tónlistardeildirnar við sinfón-
íuhljómsveitina og aðra tón-
listarstarfsemi og myndlistar-
deildirnar við myndlistar-
vettvang samfélagsins. Öðr-
um lista- og menningar-
stofnunum væri tvímælalaust
styrkur af nálægð, þannig að
samskipti væru ör, liðug og
frá upphafi nánast sjálfgefin.
Meirihluti lista- og menning-
arstarfsemi væri umhverfis
miðborg Reykjavíkur og þar
væri umferð almennings jafn-
framt mest og bestar líkur til
að byggja upp opin samskipti
við samfélagið almennt. Stað-
setning Listaháskólans í góðri
nálægð við miðborgina virtist
því afskaplega mikilvæg til að
ná sem mestri nálgun við fyrr-
greind og vandlega mótuð
markmið skólans, og senni-
lega kjörkostur. Ef ekki
reyndist þar lóð fyrir hendi
væri hugsanlegt að athuga
staðsetningu fyrir skólann
innan fárra mínútna göngu-
leiða frá þeim stöðum þar sem
greiðar leiðir almennings-
vagna skærust eða færu um
og þar sem bílastæði væru
auðfundin.
Menningarlífi landsins væri
að jöfnu nauðsyn á sjálfgefn-
um og opnum tengslum við
starfsemi skólans. Miðja þess
sé í og umhverfis miðborg
Reykjavíkur. Mikilvægi stað-
setningar skólans sem næst
miðborginni fyrir lista- og
menningarlíf þjóðarinnar yrði
því varla of vandlega undir-
strikað.
Fjallað nánar
um þrjá kosti
Eftir að hafa kynnt fundin-
um umrædda staðsetningar-
kosti, fór Kristinn nánar í
saumana á þremur þeirra,
Laugarnesvegi 91, Hafnar-
firði og Miklatúni.
Um húsið á Laugarnesvegi
91 sagði hann, að það væri í
aðalatriðum stór rétthyrning-
ur að lögun, í samræmi við
þarfir þeirrar starfsemi sem
byggingin væri hönnuð fyrir.
Vegna þess væru möguleikar
á fyrirkomulagi innan hennar
í algerri andstöðu við fram-
settar þarfir skólans. Hún
væri þannig að lögun og gerð
að óhjákvæmilegt væri að
starfsemin yrði innhverf og
ynni þannig frá upphafi gegn
framangreindum markmiðum
skólans. Laugarnesvegur 91
væri afar djúp bygging og því
mjög erfitt að nýta dagsbirtu
innan hennar og kostnaður
vegna breytinga yrði veruleg-
ur. Náttúruleg loftræsting
væri að verulegu leyti útilok-
uð og öll starfsemi skólans
yrði nánast alltaf algerlega
háð vélrænni lofræstingu.
Landrými væri nægilegt, en
dygði ekki til að breyta ímynd
skólans og undirstrika sér-
stöðu hans, vegna byggingar-
innar sjálfrar. Jafnvel þó ná-
lægð þeirrar lóðar væri álitin
viðunandi frá miðbænum þá
væri galli hennar sá, að á lóð-
inni væri bygging sem gæti
ekki uppfyllt markmið skól-
ans hvað varðar starfsemi og
byggingarleg gæði eða skap-
að skólanum sérstöðu í sýni-
legri ímynd. Aðlögun starf-
semi skólans að byggingunni
myndi hafa í för með sér al-
varlegar málamiðlanir og til-
slakanir hvað varðar markmið
skólans, virkni starfseminnar
og gæði húsakynna. Að auki
virtist ekki mögulegt að rúma
starfsemina innan byggingar-
innar, miðað við skýrslur
vinnuhópanna, en brúttó gólf-
flötur væri 10.257 fm, en
byggingarþörf hátt í 14.000
fm. Samanburður á kostnaði
við innréttingu/endurbygg-
ingu Laugarnesvegar 91 og
nýbyggingar leiddi í ljós, að
áætlað verðmæti húseignar-
innar að viðbættum innrétt-
ingarkostnaði væri um 1.489
milljónir króna, en nýbygging
óháð staðsetningu kostaði aft-
ur á móti 1.685 milljónir
króna. Kostnaðarmismunur
væri m.ö.o. 13%, en skýrslu-
höfundur telur það óveruleg-
an mun að lauslega könnuðu
máli. Ef horft væri framhjá
kostnaði, eða reiknað með að
hann sé svipaður, þá væri
augljóst að nýbygging væri
alltaf betri kostur fyrir skól-
ann, þar sem þá væri mögu-
legt að skapa umgjörð sem
uppfyllt gæti þarfir hans og
þjónað markmiðum í einu og
öllu, að gefinni réttri stað-
setningu.
Hvað Hafnarfjörð snertir,
sagði Kristinn að skýrsla
OWP&P fjallaði ekki um
möguleikann á nýtingu eldri
bygginga í Hafnarfirði, enda
gætu þær ekki uppfyllt þarfir
eða markmið skólans. Stað-
setning í norðurhöfn Hafnar-
fjarðar væri afar sérstök hvað
varðar umhverfi og möguleika
á sérstakri ímynd sem hugs-
anlegt væri að tengja stað-
setningunni að útliti til, en
póstmódernísk tilbrigði, sem
sett hefðu verið fram, væru
óviðeigandi og samræmdust
ekki möguleikum á íslenskri
ímynd. Slík staðsetning
myndi jafnframt vafalítið hafa
sterk og sjálfgefin tengsl við
kröftugt lista- og menningar-
líf þess bæjarfélags og vera
kærkominn aflgjafi að því
leyti. Þar yrði skólinn hins-
vegar tiltölulega einangraður
frá helstu menningarstofnun-
um landsins. Með staðsetn-
ingu þar yrði trúlega örðugt
að mynda og viðhalda góðum
tengslum við þessar stofnanir
og fá frá þeim þá orku sem
skólanum er nauðsynleg og/
eða að geta auðveldlega gefið
kraft til baka, sem áreiðan-
lega er jafn mikilvægt. Þar
mundi Listaháskólinn auk
þess vera úr alfaraleið al-
mennings, liðug og sterk sam-
skipti að því leyti verða erfið
og þar af leiðandi trúlega
minni en æskilegt væri.
Miklatún yrði nokkurs
konar málamiðlun
Um Miklatún segir í skýrsl-
unni, að allt frá því Kjarvals-
staðir hafi verið reistir hafi
ímynd almennings af Mikla-
túni verið tengd listum. Þó
svæðið sé einnig notað til úti-
vistar þá færi hún fram í
snertingu við listsköpun, ann-
arsvegar vegna höggmynda
sem þar eru og hinsvegar
vegna landslagsarkitektúrs
svæðisins. Menningarleg og
fagurfræðileg gildi séu m.ö.o.
rótgróinn þáttur í umhverf-
inu. Staðsetning Listaháskóla
Íslands á Miklatúni gæti hug-
mynda- og fagurfræðilega
fallið vel inn í ímynd svæðisins
og jafnframt orðið því mikil-
vægur styrkur. Listaháskóli
Íslands á þessum stað væri að
þessu leyti kjörkostur fyrir
borgina. Skólinn fengi með
þessu móti sjálfkrafa ákveðna
ímynd í tengslum við um-
hverfi sitt, að því tilskildu að
metnaður fyrir annarri um-
gjörð hans sé reistur á þess-
um skilningi. Væri rétt að
þessu staðið væru líkur til að
listaumhverfi og menningar-
lífi borgarbúa yrði verulegur
ávinningur af þeim fyrirsjáan-
lega krafti sem fylgja mun
skólanum í framtíðarmótun
svæðisins.
Miklatún sem valkostur
væri þó málamiðlun, sem
byggðist á því, að reynt hefði
verið til þrautar með aðra
mögulega valkosti nær mið-
borginni, og að viðunandi væri
að tengsl við lista- og menn-
ingarlíf miðborgarinnar yrðu
ekki eins sterk og þau annars
væru ef skólinn væri í mið-
borginni, þ.e.a.s. að nálægðin
sé innan viðunandi marka. Í
þriðja lagi er það mikilvæga
atriði að aðstæður að öðru
leyti séu góðar til uppbygg-
ingar fyrir skólann, sbr.
markmið hans. Miðað við
staðsetningu utan eiginlegrar
miðborgar væri Miklatún
mjög vel aðgengilegt.
Og að lokum segir þetta um
Miklatúnið í skýrslunni: „Með
hliðsjón af ofansögðu virðast í
þessum valkosti felast mjög
góðir möguleikar til að upp-
fylla forsendur, markmið og
byggingargæði fyrir skólann.
Árangur að því leyti mun ein-
ungis takmarkast af því
hvernig staðið verði að und-
irbúningi, stjórnun fram-
kvæmfarinnar, fjármagni og
hæfni og hugmyndaauðgi
hönnuða skólans.“
Meirihluti fundarmanna í Félagi um Listaháskóla Íslands vill að skólinn verði á Miklatúni
Miklatún er talið
kjörkostur fyrir
borgina og skólann
Morgunblaðið/Jim SmartÁ félagsfundi Félags um Listaháskóla Íslands var fjölmenni og mikið rætt og lengi.
Reykjavík
!
"!
!
#
$%
$
!&
'()
! *+,*(
,*(
,*-
.+/-(
0+0'.
1((
*((
.((
.(+',/
%-1(
2+2./
*+2//
.*+,,0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
&.*.,
/#
345
6
&
&
.2
7 $8
&
9%
:;& 6
"=&"$>;
!
5
?
>;8
&
6
&
&"
&$ = "8
;
"
%
&
8
&
2.
@
@
@
@
@
>
@
@
@
@
AB
&5BC
$ AB.+
AB
8
B
B8
!
C&
AB
5
B
&$
D 3
&
8
B
DD
C
B!DD
E3
B&$B
DDC
B
8
B!DD
# B$
5
B8C
"=+
F8 B&5
4B
B
3 B 48
5
B
5
8 :C
5
<+
8 E8
+
B&5$8
3B
+
"
38
5
B
+
"
B
+
6
3B&
3
8
B
E$B!
B&
+ +
.+
0+
*+
'+
-+
/+
1+
,+
2+
.(+
..+
.0+
.*+
.'+
.-+
./+
.1+
!
"
#$% & ' ()*+*
;
#