Morgunblaðið - 16.02.2001, Qupperneq 17
snjóleysi syðra en töluvert er um
að gestir lengra að komnir sæki
þá heim til að nýta þá aðstöðu
sem þar er í boði. Þannig var hóp-
ur Ármenninga í æfingabúðum á
Dalvík nýlega, en í skíðaskálanum
er pláss fyrir um 40 manns. Skál-
inn er rétt við hlið skíðalyftunnar,
þannig að menn geta nánast farið
beint úr svefnpokanum á skíðin
og upp í brekkurnar. Fólk úr ná-
grannabyggðum sækir skíðasvæð-
ið einnig í töluverðum mæli að
að ræða töluverða fjölgun frá því
árið á undan að sögn Sveins
Torfasonar skíðaþjálfara. „Það er
mikil vakning meðal krakkanna
og það er mjög ánægjulegt,“
sagði Sveinn.
Frekar lítill snjór er neðst í
fjallinum en hægt hefur verið að
ýta honum til og útbúa brautir.
Aftur á móti er nægur snjór ofar í
fjallinu og hefur færið verið
ágætt síðustu daga.
Dalvíkingar hafa notið góðs af
SKÍÐASVÆÐI Dalvíkinga í Bögg-
visstaðafjalli hefur verið opið í
alls 68 daga og eru forráðamenn
þess ánægðir með veturinn. Hægt
var að opna svæðið 9. nóvember
síðastliðinn sem er í fyrra lagi og
allan desember var prýðilegt
skíðafæri, en skíðamenn voru þá
líkt og aðrir með hugann við und-
irbúning jólanna og sóttu því
svæðið ekki eins stíft og ella.
Einar Hjörleifsson for-
stöðumaður skíðasvæðisins sagði
að mikill áhugi væri fyrir skíða-
iðkun meðal heimamanna og þeir
alla jafna duglegir að renna sér í
brekkunum. Um 120 börn hafa í
vetur verið í skipulegri kennslu
og við æfingar í vetur og er um
sögn Einars. Ólafsfirðingar hafa
til dæmis stundað þar æfingar í
um einn mánuð, en lítill snjór er á
skíðasvæði þeirra.
„Skíðum gegn vímu“
Nú um helgina stendur Lions-
klúbbur Dalvíkur fyrir skíðamóti
fyrir 8 ára börn og eldri, en þar
er um að ræða árlegt mót sem
haldið er undir kjörorðinu Skíð-
um gegn vímu. Fleira er fram-
undan í Böggvisstaðafjalli, því
unglingameistaramót verður
haldið þar um mánaðamótin
mars-apríl og þá verður einnig á
fyrstu dögum aprílmánaðar hald-
ið þar FIS-mót í tengslum við
Skíðamót Íslands.
Skíðasvæðið í Böggvisstaðafjalli hefur verið opið frá því í byrjun nóvember
Einar Hjörleifsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, og Sveinn Torfason skíðaþjálfari með
nokkrum nemendum úr Húsabakkaskóla; Sigurlaugu Hönnu, Atla Þór, Þórhildi Söru, Ara,
Guðrúnu og Hrafnhildi Mörtu. Eins og sést er ekkert alltof mikill snjór í fjallinu.
Vakning meðal barnanna
sem þyrpast á skíði
Morgunblaðið/Kristján
Krakkarnir drifu sig í brekkuna og létu það ekki
á sig fá þótt snjórinn væri af skornum skammti.
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 17
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT ER EINSTÖK AFURÐ ÓMENGAÐRAR NÁTTÚRU OG VISTVÆNNA BÚSKAPARHÁTTA. NÁTTÚRULEG
GÆÐI KJÖTSINS ERU VEL VARÐVEITT Í MATREIÐSLU MEÐ FERSKUM KRYDDJURTUM. RÓSMARÍN, BLÓÐBERG, FÁFNISGRAS,
BASILIKUM, GRASLAUKUR, STEINSELJA OG SALVÍA ERU TILVALIN KRYDD SEM LAÐA FRAM BRAGÐGÆÐI KJÖTSINS.
Tómat - basilsósa
3 mtsk. ferskt basil saxað
kjöt af þremur tómötum skorið í teninga
1 mtsk. ólífuolía
1 shallottulaukur, fínt saxaður
2 - 3 geirar hvítlaukur, fínt saxaður
1 dl hvítvín (má vera óáfengt)
3 dl gott lambasoð
salt og pipar úr kvörn
2 mtsk. smjör
sósujafnari
Léttsteikið laukinn í ólífuolíu, hellið
víninu yfir og sjóðið niður um helming.
Hellið soðinu yfir og sjóðið niður um 1/4.
Setjið basil og tómata út í og kryddið með
salti og pipar. Þykkið sósuna örlítið með jafnara
og hrærið smjörinu rólega saman við.
Uppskrift fyrir fjóra
KRYDDJURTAHJÚPAÐ INNANLÆRI
MEÐ TÓMAT-BASILSÓSU
.Kryddhjúpur
1 búnt basilikum
1/2 búnt steinselja
2 - 3 hvítlauksgeirar
3 mtsk. ferskur parmesan, rifinn
1/2 dl ólífuolía
2-4 mtsk. brauðraspur
salt og pipar úr kvörn
Brúnið lambavöðvana á pönnu,
kryddið með salti og pipar.
Setjið allt hráefni í kryddhjúpinn
í matarvinnsluvél og látið
maukast vel. Þekjið kjötið
með kryddhjúpnum og bakið
í ofni við 180° í 13 - 15
mínútur. (65° á kjöthitamæli).
800 gr lamba- innanlæri (2 vöðvar)
HREINLEIKI
L
G
I
UMHVERFISRÁÐ Akureyrar-
bæjar staðfesti á fundi sínum í
gærmorgun deiliskipulag á nýju
byggingasvæði við Klettaborg.
Bæjarstjórn mun fjalla um deili-
skipulagið á fundi sínum í næstu
viku og að því búnu verða lóðir á
svæðinu auglýstar að sögn Vil-
borgar Gunnarsdóttur formanns
umhverfisráðs.
Í deiliskipulaginu er gert ráð
fyrir að verði 55 íbúðir, 19 einbýlis-
hús og þá verða 36 íbúðir í tveggja
hæða raðhúsum. Svæðið er norðan
og vestan undir háum brekkum við
Kringlumýri og Kotárgerði og er
meginhluti þess fyrir mynni lítils
dalverpis norður af Mýrarvegi.
Finnur Birgisson arkitekt vann
deiliskipulagið og í því er leitast
við að móta byggðina þannig að
hún falli eðlilega að landslagi og að
væntanlegir íbúar fái notið þeirra
kosta sem svæðið býr yfir, sem
m.a. er einkar gott útsýni til norð-
urs og nálægð við opin svæði sem
bjóða upp á góða möguleika til úti-
vistar.
Umhverfisráð
Akureyrarbæjar
Deiliskipu-
lag fyrir
Klettaborg
staðfest