Morgunblaðið - 16.02.2001, Qupperneq 22
gegnir. Það má færa rök fyrir því að flugvöll-
urinn sé ágætlega staðsettur þar sem hann er
nú,“ segir Smári. „Borgaryfirvöld verða að átta
sig á því að Reykjavík er ekki einungis borg
Reykvíkinga, hún gegnir hlutverki höfuðborgar
allra landsmanna og nýtur þess svo sannarlega.
Aldrei má gleyma því að höfuðborg hefur
ákveðnar skyldur og mér finnst ansi margir
Reykvíkingar gleyma þeim í þessu flugvallar-
máli en einblína – blindaðir af stórborgar-
draumi – á eigin hagsmuni í þrengsta skilningi,“
segir Smári Geirsson.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, segir að hafa verði í huga hlutverk Reykja-
víkur sem höfuðborgar landsins þegar rætt er
um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hann sé við
miðju stjórnsýslu og viðskipta í landinu, tengi-
punktur allra innviða landsins. Telur hann ekki
tímabært að færa flugvöllinn. Hann sé mikil-
væg tenging milli landshluta og verði að finna
aðrar leiðir til þess að sinna þessu þjónustu-
hlutverki áður en ákvarðanir eru teknar um
breytingar. „Ég er ekki tilbúinn að kyngja
röskun á þessu mikilvæga samgöngumannvirki
H
UGMYNDIN um að flytja
innanlandsflugið frá Reykja-
vík til Keflavíkurflugvallar
mætir harðri andstöðu á
landsbyggðinni. „Reykjavík á
að heita höfuðborg Íslands og
hefur ákveðnar skyldur
gagnvart landsbyggðinni,“
segir Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar.
Hann heldur áfram: „Því miður hefur því ver-
ið komið þannig fyrir að nánast öll höfuðstjórn-
sýsla þessa lands er þarna niðurkomin og því
verður að gera öðrum þegnum landsins kleift að
hafa þokkalegt aðgengi að henni. Þar skiptir
flugvöllurinn og staðsetning hans miklu máli.
Við lítum svo á að mjög mikilvægt sé að hafa
völlinn í borginni sjálfri.“ Segist Smári ekki
vera hrifinn af hugmyndum borgaryfirvalda um
glæsiframkvæmdir í Vatnsmýrinni þar sem rík-
issjóði er ætlað að greiða kostnaðinn við upp-
byggingu nýs flugvallar. „Ég hef ekki mikinn
áhuga á draumum manna um glæsta miðborg
en bendi á þjónustuhlutverkið sem höfuðborgin
ef hún er ákveðin án þess að vita hvað á að taka
við. Þær upplýsingar liggja ekki fyrir í dag.
Málið allt ber þess vott að vera illa unnið, ef
markmiðið hefur verið það að fá í það einhverja
niðurstöðu sem sætt gæti sem flest sjónarmið.
Ég leyfi mér að efast um að sá hafi verið til-
gangurinn,“ segir Kristján Þór.
Höfuðborgin eða
höfuðborgarsvæðið?
Fleiri viðmælendur vísa til höfuðborgarhlut-
verks Reykjavíkur þegar flugvallarmálið ber á
góma. Rétt er að taka fram að hvergi virðist
skráð í lögum að Reykjavík sé höfuðborg lands-
ins. Þess gerist ekki þörf því þar er opinbert
stjórnsetur íslenska ríkisins og það gerir borg-
ina að höfuðborg.
Stjórnendur Reykjavíkurborgar líta til alls
höfuðborgarsvæðisins þegar rætt er um höf-
uðborgarhlutverkið. „Ég lít svo á að höfuðborg-
arsvæðið hafi ákveðnum skyldum að gegna við
landsbyggðina og tel að flugvöllur í Vatnsleysu-
strandarhreppi, sunnan Hafnarfjarðar, geti
fyllilega þjónað landsbyggðinni. Ég hefði meiri
efasemdir um Keflavíkurflugvöll í því sam-
bandi,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri. Árni Þór Sigurðsson, formaður skipu-
lagsnefndar, segir: „Reykjavík hefur að
sjálfsögðu skyldur við allt landið sem höfuðborg
en þær skyldur snúast ekki einvörðungu um
það hvort flugvöllur eigi að vera í miðborg
Reykjavíkur. Höfuðborgin er að sjálfsögðu eitt
atvinnu- og þjónustusvæði og það er alveg ljóst
að notendur innanlandsflugvallarins eru ekki
bara fólk sem býr í næsta nágrenni við hann eða
á erindi þar. Ég geri hins vegar stóran grein-
armun á því hvort fólk þarf að sækja flug suður
fyrir Hafnarfjörð, í útjaðar höfuðborgarsvæð-
isins, eða alla leið til Keflavíkur og tel skyldurn-
ar meðal annars felast í því að umferðar- og
samgöngumiðstöð innanlands sé á höfuðborg-
arsvæðinu. Flugvöllur sunnan Hafnarfjarðar
gæti uppfyllt þessar skyldur höfuðborgarinnar
á viðunandi hátt. Á hinn bóginn veit ég að þeir
sem koma hingað mikið og eru að sækja skóla,
sjúkrahús og stjórnsýslu, finnst það vera mjög
mikill kostur að hafa flugvöllinn í Vatnsmýrinni
og ég skil það sjónarmið mjög vel.“
Ekki hægt að réttlæta kostnað
við nýjan flugvöll
Stjórnendur Flugfélags Íslands og Íslands-
flugs, helstu flugrekendur innanlands, telja að
aðeins sé um tvo kosti að ræða fyrir innanlands-
flugið, halda því á Reykjavíkurflugvelli, að
mestu í núverandi mynd, eða flytja það til
Keflavíkur. Jón Karl Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir að bygging nýs
flugvallar fyrir 6–10 milljarða króna í 20 mín-
útna fjarlægð frá Reykjavík geti varla talist
raunhæfur kostur. „Það hefur varla verið unnt
að viðhalda núverandi aðstöðu vegna skorts á
fjármagni og það hefur einnig komið skýrt fram
hjá samgönguyfirvöldum að slíkt sé ekki á dag-
skrá.“ Vekur hann athygli á ýmsum ókostum
við flugvöll í landi Hvassahrauns og flugbraut-
um úti í sjó. Allar þessar hugmyndir eru mjög
kostnaðarsamar og þegar haft er í huga að af-
koma fyrirtækja í innanlandsflugi hefur verið
slæm þá liggur fyrir að fyrirtækin geta ekki
tekið á sig auknar álögur vegna slíkra fram-
kvæmda.
Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Ís-
landsflugs, tekur mjög í sama streng. Segist
ekki sjá að hægt sé að réttlæta kostnaðinn við
að byggja upp nýjan flugvöll, fyrir sunnan
Hafnarfjörð eða úti á Skerjafirði. Spyr hvort
ekki komi upp sama staðan í Hafnarfirði og í
Reykjavík, landið verði talið svo verðmætt
byggingarland eftir tíu ár að völlurinn verði að
víkja þar einnig.
TENGIPUNKTUR
LANDSINS ALLS
Hugsanlegar breytingar á
miðstöð innanlandsflugsins,
sérstaklega ef hún verður
flutt til Keflavíkurflugvallar,
munu hafa mikil áhrif á að-
gengi þeirra íbúa landsbyggðarinnar, sem treysta á innan-
landsflugið, að miðstöð stjórnsýslu og þjónustu í höfuðborg-
inni og lengja ferðatíma íbúa höfuðborgarsvæðisins sem nota
innanlandsflugið. Flutningur til Keflavíkur myndi draga úr um-
svifum innanlandsflugsins og hafa veruleg áhrif á þá atvinnu-
starfsemi sem nú er á Reykjavíkurflugvelli, en staðsetning
flugsins á öðrum velli á höfuðborgarsvæðinu hefði minni
áhrif. Sjúkraflug myndi lengjast svo og viðbragðstími björg-
unarsveita vegna náttúruhamfara. Helgi Bjarnason segir frá
þessu í grein um mikilvægi innanlandsflugsins fyrir samgöng-
ur við landsbyggðina, öryggismál og flugið sem atvinnugrein.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
!"" "#
"
!"!$! " %" %
()"$ %
$%%
!" %"$ %
$%%
!
* %
$+%"
%
,
* %
$+%"
" !
#
!
* %
$+%"
%
,
* %
$+%"
" !
#
-""%
./
$
$
$
$
$
$ 0
22 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ