Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 27
Kvennahópur Samfylkingarinnar
boðar til funda í Kaffileikhúsinu næstu
laugardaga kl. 11:00 til 13:00
17. febrúar
Konur í viðjum tekjutenginga
Sæmundur Stefánsson, deildarstjóri í Tryggingastofnun, tekjutengingar lífeyris.
Jóhanna Leopoldsdóttir fjallar um reynslu öryrkja í sambúð.
Sigríður Jónsdóttir, félagsráðgjafi, fjallar um kjör aldraðra kvenna.
Pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Ásta R. Jóhannesdóttir, alþingismaður.
24. febrúar
Konur og starfsmenntun í atvinnulífinu
Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík.
„Frá skóla til atvinnulífs,“ Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, varaformaður
Eflingar. Ný sóknarfæri í starfsmenntun.
Pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnmálafræðingur.
17. mars
Vændi á Íslandi
Fjallað verður um lagaumhverfi hér og á hinum Norðurlöndunum.
Frummælendur auglýstir síðar.
Fundarstjóri: Guðrún Ögmundsdóttir, alþingismaður.
Samfylkingin
EITT af því sem Bill Clinton, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseti, er sak-
aður um og nú veldur einna mestu
fjaðrafoki vestra er að hann náðaði
fjármálamanninn Marc Rich sem
búsettur hefur verið í Sviss í 18 ár.
Rich var á sínum tíma sakaður um
gríðarleg skattsvik og annað fjár-
málamisferli en flúði land 1983 til að
þurfa ekki að koma fyrir dómara.
Margt af því sem Rich hefur tekið
sér fyrir hendur síðan þykir vera á
gráu svæði laganna, að sögn viku-
ritsins Time, en hann mun nú að
sögn ritsins eiga a.m.k. þúsund
milljónir dollara, 85 þúsund millj-
ónir íslenskra króna.
Ekki er ljóst hvort Rich er enn
bandarískur ríkisborgari. Fyrri eig-
inkona hans er Denise Rich, þekkt-
ur dægurlagahöfundur í Bandaríkj-
unum. Hefur hún einnig verið einn
af þekktari liðsmönnum demókrata
við fjáröflun, haldið veislur þar sem
fólk hefur greitt hátt verð fyrir að-
göngumiðann en hagnaður runnið í
sjóði flokksins. Einnig er hún í góðu
vinfengi við Clinton-hjónin.
Sagður hafa
aðstoðað Mossad
Marc Rich hefur gefið mikið fé
gegnum árin til ýmissa mannúðar-
mála og sett á stofn sjóð sem styrkir
listamenn og annað menningarfólk
með verðlaunum fyrir óvenjuleg af-
rek. Hann fékk 200 þekkta einstak-
linga til að undirrita meðmælayfir-
lýsingu sem send var Clinton í von
um að hann yrði náðaður. En óljóst
mun þó vera hvort allir hafi vitað
hvernig ætlunin var að nota skjalið.
Rich hefur góð sambönd í Ísrael
og Ehud Barak, starfandi forsætis-
ráðherra landsins, mun hafa verið
meðal nokkurra heimsþekktra leið-
toga sem hringdu í Clinton til að
leggja inn gott orð fyrir Rich.
Shabtai Shavit, sem var yfirmað-
ur ísraelsku leyniþjónustunnar
Mossad í sjö ár til 1996, beitti sér
einnig fyrir því að Rich yrði náð-
aður. The Daily Telegraph hefur
skýrt frá því að nánasti samstarfs-
maður Rich í Ísrael, Avner Azoulay,
hafi starfað fyrir Mossad í 30 ár áð-
ur en hann hóf störf fyrir fjármála-
manninn.
Azoulay hefur staðfest opinber-
lega að Rich hafi gegnt „mikilvægu
hlutverki“ í aðgerðum Mossad til að
hjálpa gyðingum að komast til Ísr-
aels frá Eþíópíu á níunda áratugn-
um og frá Jemen á síðasta áratug.
Hann segir að Rich hafi notað við-
skiptasambönd sín til að fá stjórn-
völd í Jemen til að gera gyðingun-
um kleift að fara til einhvers þriðja
lands og þaðan til Ísraels. Hann hafi
einnig notað viðskiptasambönd sín í
Súdan til að aðstoða Mossad við að
skipuleggja aðgerðir til að koma
eþíópískum gyðingum til Ísraels.
Azoulay mun hafa stjórnað ör-
yggis- og njósnastarfsemi Rich áð-
ur en hann var skipaður yfirmaður
góðgerðastofnunar fjármálamanns-
ins í Tel Aviv. Ísraelskir embætt-
ismenn segjast hafa beitt sér fyrir
náðuninni vegna fjárframlaga Rich
til sjúkrahúsa, safna og háskóla í
Ísrael. Líklegt er þó að upplýsing-
arnar um tengsl hans við Mossad
kyndi undir kröfunum um að Clint-
on útskýri til hlítar hvers vegna
hann náðaði fjármálamanninn.
Þingnefndir í Bandaríkjunum
rannsaka nú hvort ákvörðun forset-
ans hafi verið byggð á eðlilegum
reglum og hefðum um slíkar náð-
anir, sem forsetar veita á síðasta
embættisdegi sínum. Margir af
þekktustu leiðtogum demókrata
hafa fordæmt ákvörðun Clintons.
Joseph Biden, öldungadeildarþing-
maður frá Delaware, sagðist halda
að Clinton hefði verið „heiladauður“
þegar hann ákvað að náða Rich.
Rich var einnig sakaður um að
hafa átt viðskipti við Írana í trássi
við viðskiptabann. En sá hluti
ákæru á hendur honum var þó lát-
inn falla niður vegna þess að ekki
var talið að bandarískur dómstóll
hefði lögsögu í því máli. Rich er
sagður hafa óttast mjög fyrstu árin
í útlegðinni að bandarískir leyni-
þjónustumenn myndu ræna sér.
Ekki er hægt að ákæra hann eftir
svissneskum lögum fyrir meint af-
brot hans í Bandaríkjunum.
Notaleg útlegð
í Sviss
Denise Rich lét mikið fé af hendi
rakna, líklega yfir milljón dollara, í
kosningasjóði demókrata. Ekki
þykir samt skipta minnstu að hún
gaf rúmlega hundrað þúsund doll-
ara, um 9 milljónir, í sjóð Hillary
Rodham Clinton sem var kjörin öld-
ungadeildarþingmaður fyrir New
York í nóvember. Hún mun einnig
hafa gefið mikið fé til stofnunar
bókasafns sem kennt verður við
Clinton en hefð er fyrir því að frá-
farandi forseta sé reist slíkt minn-
ismerki með samskotum.
Marc Rich býr nú í glæsilegu húsi
við Meggen í Sviss með mun yngri
eiginkonu sinni. Hann er 66 ára
gamall, fæddur í Belgíu en fluttist
ungur að árum til Bandaríkjanna og
haslaði sér að loknu námi völl í við-
skiptum. Hann auðgaðist uppruna-
lega á olíubraski þar sem hann þótti
sýna mikla hugkvæmni en jafn-
framt telja skattayfirvöld að hann
hafi stundað stórfelld svik og hagn-
ast þannig ólöglega um 48 milljónir
dollara, yfir fjóra milljarða króna.
Fjármálafyrirtæki sitt lét hann
skrá í Zug, kantónu sem er þekkt
fyrir óvenju lága skatta. Nú munu
vera uppi hugmyndir þar um að
hækka skatta og hótar Rich að
flytja þá fyrirtæki sitt á brott. Er
bent á að það verði ekkert vanda-
mál þar sem hann þurfi fátt að ótt-
ast eftir að hafa hlotið náðun vestra.
AP
Hús Marcs Rich í Meggen í Sviss. Hann flúði þangað fyrir 18 árum eftir að hafa verið sakaður um skattsvik.
AP
Bandaríski fjármálamaðurinn Marc Rich og eiginkona hans, Gisela.
Sakaður um
fjárglæfra
og flúði land
Washington, Zürich. AFP, AP, The Daily Telegraph.
Bandaríski fjármálamaðurinn Marc Rich; umdeildur vinur demókrata sem Clinton náðaði