Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 30

Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÓHEMÍAN í París 19. aldarvar samfélag húsþaka og háa-lofta. Þar var ekki gert ráð fyrir híbýlum og þess vegna sluppu íbúarnir, listamenn og spekúlantar, við skatta og skyldur. Þeir lifðu lífi sínu á annan og óvissari hátt en vel stæðir borgarar undir sömu þökum, notuðu ekki einu sinni sömu stiga í húsunum og gengu oft inn til sín um þakglugga. Jamie Hayes, leikstjóri La Bohème hjá Íslensku óperunni, útskýrir þetta þegar hann kemur nið- ur af sviði eftir myndatöku með Tug- an Sokhiev hljómsveitarstjóra. Jamie segir sviðsmyndina vel nýtta, kaffihús annars þáttar verði tollhlið þess þriðja og þakíbúð fyrsta og fjórða þáttar. Það þurfi svona lausnir á litlu sviði án geymslu og hann sé mjög sáttur við vinnuna með íslensku hönnuðunum. „Ég er farinn að venjast hópnum mínum í Bretlandi og hefði fyrst hallast að því að hafa hann með mér. Leikmynd, búningar og lýsing er rammi leikstjórans og auðvitað mikilvægt að allt komi heim og saman. Hér hefur verið gaman að kynnast nýjum hugmyndum og lausnum, það er stóri kosturinn við að fá fólk úr ýmsum áttum.“ Aðferð við uppröðun Tugan hefur til dæmis með sér frá Pétursborg aðferð við uppröðun tón- listarfólksins. Hann nýtir hljómsveit- argryfjuna á annan hátt en venjulega, hefur strengi vinstra megin og blást- urshljóðfæri hægra megin, til að fleiri komist fyrir eða 53 í stað 40. „Á þenn- an hátt þurfum við ekki heldur að láta spila undan sviðinu og hljómsveitin er ánægð,“ segir hann og bætir því við að lærifaðir sinn hafi kynnst þessari leið í Metropolitan í New York. „Þeir kunna að auðvelda hlutina, Amerík- anar,“ segir hann svo seinna í spjalli okkar, en á þá reyndar við söngleiki sem honum finnst vitanlega blikna í samanburði við alvöru óperur. „Þetta virkar líka vegna kórsins,“ segir nú Jamie eftir málhvíldina, „við notum hann meira en ráðgert er í óp- erunni, til að færa húsgögn svona með söngnum, tengja senur og yfir- leitt skapa tilfinningu um þetta sam- félag bóhemanna. Því fylgdi ys á göt- um og torgum og kórinn kemur vissri hreyfingu á salinn. Þetta eru bæði börn og fullorðnir sem blása meira lífi í uppfærsluna og teygja sviðið til ef svo má segja, meðal annars með því að syngja á göngum og í salnum. Þetta passar ágætlega í La Bohème, þótt hún sé ekki skrifuð með kór nema í öðrum þættinum og upphafi þess þriðja.“ Í heimalandi sínu, Bretlandi, á Jamie að baki tvær uppfærslur Bo- hème, í leikhúsi Elísabetar drottning- ar á suðurbakkanum í London og í Clotner-óperunni. Sú síðarnefnda var mun minni og reynslan af henni hefur nýst honum nokkuð hér. Spurður um tímasetningu sögunnar í þetta sinn segir leikstjórinn að aldamótin 1900 hafi hentað vel af ýmsum ástæðum. Þá hafi aðeins fá ár verið liðin frá þeim tíma þegar Puccini samdi óp- eruna, heillaður af lestri sögu Henry Murgers frá 1851 um unga bóhema í Frakklandi. Þótt sögusvið hennar sé fyrri hluti 19. aldar sé þetta rökrétt því ítölsk bóhemía hafi blómstrað síð- ar en hin franska. Við bætist atriði eins og búningar og aftur komi pláss eða plássleysi til skoðunar – pils kvenna um aldamótin hafi verið minni umfangs en nokkrum áratug- um fyrr – það muni strax miklu á sviði Gamla bíós. Ögrandi og forvitnilegt „En almennt finnst mér hafa tals- vert gildi að færa óperur til í tíma og rúmi. Það er ögrandi og forvitnilegt og þannig ganga sígild verk í end- urnýjun lífdaga. Jafnframt er mjög mikilvægt að setja áfram upp óperur eftir bókinni, vera trúr því sem til var ætlast upphaflega. Það hefur visst menntunargildi, maður verður að gera ráð fyrir alls konar áhorfendum, öllum jafn réttháum. Einn veit sínu viti og annar ekki og sama sýning hef- ur gerólíka merkingu fyrir þá. Sjálfur hef ég séð ógrynni af óperum, en man þó eitt dæmi þar sem mig vantar grunn: það er Spaðadrottning Tjæk- ovskís, sem ég hef séð í þremur út- gáfum en alltaf frekar framúrstefnu- legum. Næst þarf ég að finna mér almennilega klassíska uppsetningu á henni. Svona er þetta, aðalmálið er að setja upp góða sýningu, ekki hvort hún er hefðbundin eða nýstárleg.“ Jamie hefur sett upp margar sýn- ingar á ýmsum hátíðum og í meira eða minna þekktum óperuhúsum. Um Gamla bíó segir hann að svo lítið svið henti betur fyrir 18. aldar óperur eins og eftir Mozart eða Händel eða þá nútímaverk eins og eftir Britten. En allt skuli lagið hafa. Æfingatíminn hafi líka verið sex vikur, stundum ná- ist slíkt ekki, og það muni miklu að hafa haft sviðið og allan mannskap þennan tíma. Samstarf þeirra Tugans hafi líka gengið ágætlega, þeir hafi sporðrennt mörgum pitsum, ítalskir eins og óperan, á kvöldin eftir æfing- ar og náð því að tala saman svo hvor skildi hinn. þetta sé lykilatriði og þarna megi hrósa happi. Þeir félagar höfðu einungis hist stuttlega í tvígang í London í vetur til að ræða væntanlegt samstarf við Ís- lensku óperuna. En síðan í janúar- byrjun hafa þeir mátt sitja og standa saman allan daginn og oft fram á kvöld til að búa til þá Bohème sem frumsýna á í kvöld. Tugan tekur und- ir orð leikstjórans um prýðilegt sam- starf enda áhugasamur um dramað eða það sem á sér stað á sviðinu. „Þegar ég undirbý mig með nótur sé ég atburðarásina fyrir mér líkt og ég horfi á kvikmynd,“ segir hann. „Tón- listin er aðalatriði óperunnar – allt sem máli skiptir – en henni fylgir saga, aðstæður, atburðir, fólk, tilfinn- ingar, blæbrigði. það er sálarlegt hvað manni finnst mikilvægast dramatískt, en þó vil ég síður notast við orðið túlkun varðandi tónlist. Tón- listin er þarna. Óperan er þarna. Það var tónskáldið sem túlkaði eitthvað þegar það samdi verkið. Við hin fáum það gefins til að gera það sem við get- um. Tjækovskí skrifaði upp lýsingu þess sem hann hugsaði og fann til þegar hann samdi Symphony Path- étique. Svo eyðilagði hann þetta. Til þess að láta hverjum og einum eftir sína skynjun.“ Ánægður með Íslendingana Tugan er að ljúka námi í hljóm- sveitarstjórn við tónlistarháskólann í Pétursborg í Rússlandi. Lærimeist- ari hans þar var Ilya Musin, sem lést í hárri elli í fyrra. Með náminu hefur Tugan unnið með ungum söngvurum við Kirov-óperuna, sótt fjölmörg námskeið og stjórnað sinfóníuhljóm- sveitum víða í heimalandinu. Hann vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri keppni í fyrra og á fyrir höndum verkefni í Bretlandi og Þýskalandi. Hann kveðst ánægður með ís- lenska tónlistarfólkið, bæði söngvara og hljómsveit. „Mér finnst ég hafa náð til þeirra,“ segir hann, „og það er ég þakklátur fyrir. Söngvarar geta átt það til að leiða stjórnandann mikið til hjá sér og það er auðvitað alvarlegt vandamál. Hérna í óperunni er ekki svoleiðis rugl. Almennt er uppfærsla óperu flókin maskína með mannlegu gangverki sem hikstar oft meðan verið er að stilla það. Og veistu hvað? Satt að segja er ég mest hissa á einu: þetta gengur!“ Með helstu hlutverk í sýningunni fara Auður Gunnarsdóttir, Kolbeinn Jón Ketilsson, Þóra Einarsdóttir, Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan Sig- urðarson, Viðar Gunnarsson og Sig- urður Skagfjörð Steingrímsson. Morgunblaðið/Jim Smart Götufólkið í La Bohème lætur fátt framhjá sér fara. Bresk-rússnesk sátt um bóhema- líf á Íslandi Morgunblaðið/Jim Smart Glatt á hjalla. Kolbeinn Jón Ketilsson, Sigurður Skagfjörð Steingríms- son, Viðar Gunnarsson og Bergþór Pálsson í hlutverkum sínum. Íslenska óperan frum- sýnir La Bohème eftir Giacomo Puccini í kvöld. Leikstjóri sýning- arinnar og hljómsveit- arstjóri eru báðir útlendingar og eru hér í fyrsta sinn. Þeir sögðu Þórunni Þórsdóttur að samstarfið hefði gengið vel og vikurnar í Gamla bíói verið fullar af lausnum. Morgunblaðið/Golli Jamie Hayes leikstjóri og Tugan Sokhiev hljómsveitarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.