Morgunblaðið - 16.02.2001, Síða 32
LISTIR
32 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
10% afslátt
ur
í febrúar
Rúnaðir klefar með stálbotni
Stærðir 82x82 - 82x92 - 92x92
Verð frá kr 54.370.
Kantaðir klefar með stálbotni
Stærðir 82x82 - 72x92 - 92x92
Verð frá kr. 42.000.
Sænskir gæðaklefar
Sterkbyggðir
Plast eða hert gler
Auðveldir í uppsetningu
Hringið og fáið sendan bækling
Ármúla 21,
sími 533 2020
PARAT
Morgunblaðið/Golli
Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngvari og Atli Guðlaugsson stjórnandi.
NÝTT lag eftir söngstjórann, Atla
Guðlaugsson, við ljóð eins kór-
félaga, Höskuldar Þráinssonar,
verður frumflutt á tónleikunum í
kvöld. Heilræði nefnist það og er að
sögn Atla hugleiðingar um aldamót
í gamansömum dúr.
Þá hefur Atli útsett hið þekkta
einsöngslag Hamraborgina fyrir
einsöngvara og karlakór og mun
þetta vera í fyrsta sinn sem Gunnar
Guðbjörnsson syngur það lag op-
inberlega. „Mér hefur ekki þótt ég
vera nógu raddmikill í hana fyrr en
kannski einna helst núna. Þegar
Atli stakk upp á þessu hugsaði ég
með mér að nú væri sennilega kom-
inn tími til að slá til og láta gossa.
Hún liggur bara ágætlega, held
ég,“ segir Gunnar og Atli tekur
undir það, segist hafa gert útsetn-
inguna sérstaklega með Gunnar í
huga.
Auk þess verða flutt ýmis sígild
innlend og erlend lög í þekktum út-
setningum fyrir karlakór og ein-
söngvara og einnig lög sem ekki
hafa heyrst áður í karlakórsútsetn-
ingum. Undirleikari er Sigurður
Marteinsson. Báðir láta þeir Atli og
Gunnar mjög vel af Grafarvogs-
kirkju. „Þetta er mikið hús og
hljómar vel,“ segir Atli.
Fimmtíu stjórnendur
fyrstu mánuðina
Sextugsafmælisár Karlakórsins
Stefnis hefur verið viðburðaríkt og
að sögn kunnugra er engin ellimörk
á honum á að sjá. Á síðastliðnu
sumri var kórinn tilnefndur „Bæj-
arlistamaður Mosfellsbæjar“ og
mun það vera í fyrsta sinn sem sá
heiður er sýndur öðrum en ein-
staklingi. Afmælistónleikar voru
haldnir í júní síðastliðnum og þá
var Kristinn Sigmundsson ein-
söngvari með kórnum. Í desember
hélt Stefnir jólatónleika ásamt
Skólakór Mosfellsbæjar og tónleik-
arnir með Gunnari marka eins og
áður sagði endapunkt afmælishátíð-
arhaldanna. Atli tók við stjórn
kórsins fyrir rúmu ári, eftir að Lár-
us Sveinsson sem stjórnað hafði
kórnum í um aldarfjórðung lést
langt um aldur fram. Fyrsta verk-
efni hins nýja stjórnanda voru ein-
mitt minningartónleikar um Lárus í
febrúar. „Fyrstu mánuðina má al-
veg segja að það hafi verið fimmtíu
stjórnendur í kórnum en ég held að
við séum búnir að ná þokkalega
saman núna,“ segir Atli aðspurður
hvernig það hafi verið að taka við
stjórn kórsins við þessar aðstæður.
„Það tekur auðvitað alltaf tíma, sér-
staklega þegar kór er búinn að vera
með sama stjórnandann lengi og
þekkir hann út og inn,“ segir hann
og bætir við að aðlögunin hafi gerst
í rólegheitum. „Það þýddi ekkert að
gera það með krafti og hnefa.“
Vilja fá þá
stærstu og bestu
„Menn dreymir auðvitað stóra
drauma og vilja helst fá þá stærstu
og bestu,“ segir Atli þegar hann er
spurður hvernig það hafi komið til
að Gunnar var fenginn til að syngja
með Stefni. „Það var eiginlega í
beinu framhaldi af tónleikunum
með Kristni í vor að við ákváðum
að tala við Gunnar,“ bætir hann við.
Þar sem það féll ágætlega inn í
skipulagið hjá Gunnari að koma á
þessum tíma og taka þátt í tónleik-
unum með Stefni ákvað hann að slá
til. „Ég átti inni frí sem ég gat ekki
tekið í sumar og gat því komið
heim með alla fjölskylduna og gert
úr þessu smáfrí í leiðinni,“ segir
hann.
Hingað kom Gunnar beint frá
París, þar sem hann söng Vetr-
arferð Schuberts í hljómsveitarút-
setningu á sex tónleikum. „Það var
alveg stórkostlega gaman. Ég hef
varla upplifað aðrar eins móttökur,
nema kannski hér heima á Íslandi.
Það voru dálítið skiptar skoðanir
um þessa hljómsveitarútfærslu en
obbinn af áheyrendum var yfir sig
hrifinn. Það kom mér reyndar á
óvart að franskir tónleikagestir
virtust ekki þekkja Vetrarferðina
sérlega vel,“ segir Gunnar. Hann
segir að útsetningin hafi verið nú-
tímaleg á köflum og „hljóðeffektar“
óspart notaðir.
„Það var til dæmis notaður sand-
pappír á kubbum til að framkalla
hljóð eins og í skíðum og vindvél til
að framleiða gnauð í vindi,“ segir
hann. Gunnar heldur aftur til Ber-
línar strax á mánudag og fer þá að
æfa fyrir Hollendinginn fljúgandi
hjá Ríkisóperunni í Berlín, þar sem
hann er fastráðinn. Gunnar syngur
hlutverk stýrimannsins en þetta er
ný uppfærsla á Hollendingnum og
við stjórnvölinn er Daniel Barenbo-
im. „Þarnæst er svo Falstaff, sem
er náttúrulega ein af óperum óper-
anna. Ég hef aldrei sungið í henni
áður og þetta verður jafnframt
mitt fyrsta bitastæða hlutverk í
Verdi-óperu. Það verður gaman að
fá að kljást við það,“ segir hann.
Í sumar mun Gunnar syngja inn
á tvo hljómdiska hjá TELDEC,
meðal annars hlutverk stýrimanns-
ins í Hollendingnum fljúgandi, sem
áður var nefndur, og einnig syngur
hann í Tannhäuser Wagners, þar
sem Placido Domingo verður í aðal-
hlutverki. Í sumar stendur enn-
fremur til að Gunnar syngi í fyrsta
skipti á Ítalíu, nánar tiltekið í Fen-
eyjum.
Tónleikarnir í Grafarvogskirkju í
kvöld hefjast kl. 20.30 og á morgun,
laugardag, kl. 16.30. Forsala að-
göngumiða er í verslun Máls og
menningar, Laugavegi 18.
Gunnar Guðbjörnsson með Karlakórnum Stefni í Grafarvogskirkju
Leggur í Hamra-
borgina í fyrsta sinn
Tónleikar Karlakórsins
Stefnis í Grafarvogs-
kirkju í kvöld og á
morgun marka enda-
punkt hátíðarhalda
vegna sextugsafmælis
kórsins. Einsöngvari á
tónleikunum er tenórinn
Gunnar Guðbjörnsson.
Margrét Sveinbjörns-
dóttir mælti sér mót við
Gunnar og Atla Guð-
laugsson, stjórnanda
Stefnis, og komst að því
að sá fyrrnefndi mun nú
í fyrsta sinn spreyta sig
á sjálfri Hamraborginni. Karlakórinn Stefnir heldur tónleika í Grafarvogskirkju í kvöld og á morgun.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Listasafn Íslands
Sýningunni Yfirsýn, verk
þýska málarans Gerhards
Richters, innsetningarverkið
Glerregn, eftir Rúrí, og sýningu
á verkum eftir Jón Stefánsson
lýkur nú á sunnudag.
Verk Richters eru ýmist fíg-
úratíf eða abstrakt en flest
verkin á sýningunni eru frá síð-
ustu fjórum árum en hún er
skipulögð af Institut für Aus-
landsbeziehungen í Þýskalandi.
Sýning á úrvali verka eftir
Jón Stefánsson í eigu safnsins
gefur gott yfirlit yfir listferil
hans.
Viðfangsefni Glerregns er
tími og ógnir en verkið er ein af
fyrstu innsetningunum sem
sýnd var á Íslandi. Listasafn Ís-
lands eignaðist verkið árið 1988
en sýnir það nú í fyrsta sinn.
Listasafn Íslands er opið frá
kl. 11–17, alla daga nema mánu-
daga.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Sýningu Magnúsar Þorgríms-
sonar á leirverkum lýkur nú á
sunnudag.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
14–16, er opið daglega frá kl.
10–18, laugardaga til 17 og
sunnudaga kl. 14–17.
Sýningum lýkur