Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 45 gerðu mannvirki, s.s örsmáar réttir, hlaðnar úr hundruðum smásteina. Ef til vill vorum við síðasta kyn- slóð kaupstaðarbarna sem léku sér þannig. Ekki var annað hægt en brosa þegar ég kom nokkrum árum síðar í fyrsta sinn í Hrunamannahrepp því bæjarnöfnin og afstaða bæjanna voru ærið kunnugleg. Reynslan úr sveitinni var líka und- irrót þess að ráðist var í öfluga dúfna- og kanínurækt og auðvitað var sú starfsemi í skjóli heimilis Ragga. Byggður var stærðarskúr og þar héldum við til með dýrin, höfðum meira að segja rafmagnsljós. Ekki voru allir leikir svona frið- samlegir. Eftir að hafa séð skylm- ingamyndir í bíóum voru smíðuð sverð og skildir. Nýbyggingum var breytt í kastala þar sem klifrað var upp á þök eða upp að gluggum eftir mótavírum og vinnupöllum. Þar naut Raggi lipurðar og áræðis og var jafnan öflugur liðsmaður, gekk yst fram á vinnupalla og klifr- aði hæst. Reyndar kom það a.m.k. einu sinni fyrir að hann flaug fram af þaki á háu húsi í þessum látum. Þeg- ar hlaupið var til hans til að athuga hvort hann væri lífs eða liðinn opnaði hann augun og sagði ósköp rólega þetta eina töfraorð sem alltaf dugði þegar við vorum strákar og eitthvað bjátaði á; „mamma“. Íþrótta-, tafl- og ferðafélög voru stofnuð innan hópsins en lifðu mis- lengi eftir því sem áhugamálin breyttust. Forráðamenn formlegs æskulýðsstarfs bæjarfélagsins reyndu að fá okkur til liðs við sig, en hópurinn var of sjálfstæður til að vilja leggja frumkvæðið í hendur fullorðinna. Og árin liðu, vinahópurinn stækk- aði og allt í einu vorum við orðnir ungir menn. Við kynntumst stúlkunum okkar hver af öðrum. Raggi fór í næsta bæjarfélag, Hafnarfjörð, til að sækja sér konuefni, hana Jonný. Í hönd fór yndislegur tími þegar ungt fólk legg- ur grunn að stofnun fjölskyldu og byggir upp gagnkvæma virðingu, ást og sterk tilfinningabönd. Fyrr en varði vorum við flestir orðnir ráð- settir heimilisfeður. Raggi var mikill fjölskyldumaður og fjölskyldan hans, sem stækkaði og dafnaði, var honum allt. Þau Jonný stofnuðu heimili í húsi foreldra henn- ar við Tjarnarbraut í Hafnarfirði. Fljótlega réðust þau í nýbyggingar, fyrst íbúð í suðurbænum þar sem bú- ið var um nokkurt skeið, síðar reistu þau glæsilegt hús í norðurbænum. Í þessum framkvæmdum komu sam- heldni þeirra, dugnaður og smekk- vísi berlega í ljós. Börnin urðu þrjú, elst Berglind, þá Ágúst Þór og yngst er Svala. Sam- bandið milli okkar strákanna dofnaði nokkuð meðan annríkið var mest og um tíma leit út fyrir að við myndum missa sjónar hver á öðrum. En við fengum aðstoð frá eiginkonum okk- ar, sem héldu hópinn með því lát- lausa en sterka félagsformi kvenna, saumaklúbbi. Samskipti okkar vinanna á milli fólust einkum í því að fá fréttir gegn- um saumaklúbbinn en þegar um hægðist sáu konurnar aumur á okk- ur og tóku okkur með æ oftar. Fyrst fengum við aukaaðild að klúbbnum en síðar gerðumst við full- gildir meðlimir, þó án handavinnu- skyldu. Sjálfsagt hefði komið skrítinn svipur á okkur strákana forðum ef sagt hefði verið að við ættum eftir að vera í saumaklúbbi saman síðar á lífsleiðinni. En saumaklúbburinn átti saman mjög ánægjulegar stundir og við vorum stoltir af því að tilheyra svo fínum félagsskap og tókum hann fram yfir ýmsa merkilega karla- klúbba. Farið var saman í ferðalög og fylgst með fæðingum og uppvexti barnanna. Fyrst eigin barna og síðar tóku barnabörnin við. Gleðistundirn- ar voru margar en það var líka gott að eiga góða vini þegar sorgin kvaddi dyra. Ein stærsta sorgarstundin var þegar Ragnar greindist með ólækn- andi sjúkdóm á síðasta ári. Raggi hóf ungur nám og störf hjá einum stærsta fjölmiðli landsins, Morgunblaðinu. Fáar iðngreinar hafa breyst jafn- mikið síðustu áratugi og bókagerð- argreinarnar. Þegar hann hóf nám var gamla blýsetningin allsráðandi, en háþró- aður tölvubúnaður er nú notaður við allt umbrot. Rólyndi hans, dugnaður og fagleg hæfni skipti sköpum þegar unnið var í kappi við klukkuna hvern einasta dag. Einnig reyndi verulega á sam- skiptahæfnina á auglýsingadeildinni þegar beint samband var við við- skiptavinina. Á þessum krefjandi vinnustað vann Ragnar í rúm þrjátíu og fimm ár og stóð þar eins lengi og stætt var. Síðustu vinnuvikurnar lagði hann helsjúkur allt sitt þrek í starfið. Fyrir um sautján árum lentum við vinirnir í nokkrum lífsháska. Litla kappsiglaranum okkar, sem við höfð- um dundað við að smíða, hvolfdi á Skerjafirði. Vanbúnir öryggistækjum, illa klæddir og reynslulausir í siglingum vorum við komnir í sjálfheldu á sama stað og við höfðum svo oft sem ungir drengir storkað örlögunum á heima- smíðuðum fleytum. Flotholt siglar- ans rifnuðu og hann maraði í kafi undir okkur. En kjarkur og æðruleysi Ragga á þeirri stundu var mér mikill styrkur og í stað þess að gefast upp héldumst við í hendur yfir kjölinn þar til hjálp barst úr landi. Við töluðum ekki oft saman um þennan atburð en þó kom síðar í ljós að svipaðar hugsanir höfðu bærst með okkur. Við áttum ung börn og ábyrgð okkar var mikil. Því höfðum við báðir beðið almættið um lengri tíma hér á jörðu. Nú er fresturinn sem Raggi fékk liðinn alltof fljótt. Eins og svo oft áð- ur í leikjum æskunnar og verkefnum fullorðinsáranna leggur hann fyrstur af stað. Því kveð ég nú kæran vin í bili. Það er þó vissulega huggun harmi gegn að eiga von á því að hann komi á móti mér við næstu vistaskipti, bjart- ur og brosmildur eins og forðum, og auðveldi aðlögun í nýjum heimkynn- um. Nú síðustu mánuðina, þegar ein- sýnt var hvert stefndi, hefur Jónína með börnum þeirra og tengdasyni staðið á aðdáunarverðan hátt við hlið Ragnars, þau hafa sýnt mikinn styrk og ást til að létta honum síðustu orr- ustuna. Við vinirnir í saumaklúbbnum vottum Jónínu, Berglindi, Ágústi Þór, Svölu og öðrum ástvinum Ragn- ars okkar innilegustu samúð. Megi góður Guð vernda ykkur og styrkja. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgr.) Ingi. Að vinna á Morgunblaðinu er ástríða fyrir marga starfsmenn þess. Ragnar Örn var ástríðufullur maður. Raggi var einn af litlum hópi starfsmanna á auglýsingadeildinni þegar Mogginn var í Aðalstræti. Hópur sem var samhentur og kraftmikill og lagði sitt af mörkum til að gera Moggann að góðum, traust- um fjölmiðli. Af þessum litla hópi eru nú þrjú látin og öll langt um aldur fram. Það er einkennilegt til þess að hugsa þegar litið er til baka. Raggi var einn samviskusamasti maður sem ég hef kynnst á lífsleiðinni og hverju einasta verkefni sem hann tók að sér skilaði hann frá sér betur en til var ætlast. Fyrir bragðið vann hann ævinlega langan vinnudag þegar því var að skipta. Hann var sérstaklega list- rænn að eðlisfari og hafði unun af að gera hluti sem áður höfðu ekki verið reyndir. Raggi var frumkvöðull í að bjóða viðskiptavinum blaðsins upp á þjónustu sem var í því fólgin að setja upp auglýsingarnar með listrænum hætti þannig að þær vektu frekar at- hygli en ella. Fyrir þetta var hann ákaflega vel liðinn af viðskiptavinum blaðsins og þeir beindu viðskiptum sínum til Moggans frekar en annarra miðla, ekki síst vegna þeirrar þjón- ustulundar sem Raggi og samstarfs- menn hans unnu af alúð og sam- viskusemi. Það dýrmætasta sem Mogginn á eru traustir starfsmenn sem hafa gert blaðið að því sem það er í dag. Öflugt fyrirtæki sem hefur það að leiðarljósi að koma á framfæri í blaðinu því sem skiptir máli í okkar litla samfélagi og að því vinnur gott og traust fólk en einn af þeim kveður nú í dag og blessuð sé minning hans. Minningin um Ragnar Örn mun lifa í brjósti þeirra sem fengu þann heiður að kynnast honum á lífsleið- inni. Þar fór drengur góður sem aldr- ei gerði neitt nema í þeim tilgangi að gleðja aðra. Engum honum líkum hef ég kynnst og þakka honum fyrir samfylgdina sem stóð í nokkur ár en hefði gjarnan mátt verða lengri. Við Margrét sendum Jonný, börn- um, ættingjum og samstarfsmönn- um Ragga innilegar og hugheilar samúðaróskir. En minningin um góðan dreng lifir. Baldvin Jónsson. Í dag fer fram útför Ragnars Arn- ar Ásgeirssonar, vinnufélaga míns og vinar, sem er látinn langt um ald- ur fram. Langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Ragnar starfaði hjá Morgun- blaðinu í nær fjóra áratugi, lengst af hjá auglýsingadeild blaðsins, en þar kynntumst við er ég fór að starfa hjá Myndamótum. Mikil tengsl voru milli þessara fyrirtækja og við sam- einingu þeirra urðum við samstarfs- félagar innan sömu deildar Morgun- blaðsins. Ragnar var mjög farsæll í starfi, enda einstaklega smekkvís og lista- maður af guðs náð, þegar um var að ræða að gera fagran prentgrip, og voru þær ófáar auglýsingarnar, sem báru handbragði hans fagurt vitni. Hið ljúfa fas Ragnars kom sér oft vel, því að við framleiðslu dagblaðs verður að halda stillingu, þó að mikið gangi á. Á slíkum stundum haggaðist hann ekki og með sínu ljúfa brosi sagði hann í mesta lagi: „Ég skal bjarga þessu, hafið ekki áhyggjur.“ Og með það sama hófst hann handa, ekki með háreysti eða látum, nei, það var ekki hans háttur. Mér fannst það mikil forréttindi að fá að vinna með honum í þau ár sem við vorum nánir starfsfélagar. Utan vinnutíma áttum við Ragnar sameiginleg áhugamál, þar sem skíðamennska og golfiðkun komu helst við sögu. Fórum við saman til útlanda á skíði með góðum félögum þar sem fegurð og kyrrð fjallanna heillaði og er gott að hugsa til þess að fyrir aðeins ári fóru þau Ragnar og Jónína með alla fjölskylduna í skíða- ferð til Ítalíu, sem heppnaðist mjög vel og hann fékk að njóta, áður en veikindin lögðust af fullum þunga á hann. Því miður get ég ekki fylgt Ragn- ari Erni síðasta spölinn, en okkur Hrefnu konu mína langar að þakka honum fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og sendum Jónínu, börnum þeirra og öðrum að- standendum innilegustu samúðar- kveðjur okkar. Ólafur Brynjólfsson. Skjótt hefur sól brugðið sumri Því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri. Sofinn er nú söngurinn ljúfi í svölum fjalldölum. Grátþögull harmafugl hnípir á húsgafli hverjum. (Jónas Hallgr.) Ragnar Örn Ásgeirsson, frændi og kær vinur, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Það er sárt að þurfa að horfa á eftir þessum mæta dreng hverfa af sjónarsviðinu frá kærri fjölskyldu og ábyrgðarstarfi. Minn- ingar hrannast upp við lát hans, sem allar eru ljúfar og góðar enda vand- aður maður sem nú hefur kvatt lífið. Föðursystir mín kom með hann um ársgamlan til okkar í Syðra-Lang- holt og dvaldi þar jafnan mikið á sumrin hjá foreldrum sínum, bróður og mágkonu með börn sín sem urðu sex en Ragnar var þeirra elstur. Það var oft glatt á hjalla á mannmörgu sveitaheimili og sitthvað ærslast eins og gengur og eru þessar minningar sveipaðar sólarljóma. Þegar Ragnar var orðinn tækur til verka fór hann sem snúningastrákur í sveit, sem kallað var, til Margrétar móðursyst- ur sinnar í Miðfelli. Þar var hann í fimm sumur og eftir það eitt sumar vinnumaður hjá okkur í Syðra-Lang- holti. Oft heyrði ég á Ragnari hve honum þótti það mikils virði að hafa fengið að komast svo náið í snertingu við sveitalífið á sínum æskuárum. Hann lærði prentiðn og helgaði Morgunblaðinu sína starfskrafta, vann af alúð og þekkingu enda vin- sæll og virtur starfsmaður, hann var hvers manns hugljúfi. Vegna frétta- ritarastarfa minna á Morgunblaðinu hitti ég frænda minn oft og iðulega. Þá kom jafnan þetta; sæll frændi, hvað er að frétta að austan. Hugur hans var oft hjá okkur í sveitinni fögru sem fóstraði hann ungan, hann vildi gjarnan vita hvað var að gerast í stórfjölskyldunni og fylgdist vel með okkur. Þá var oft slegið á létta strengi því jafnan var stutt í skopið sem hann fór þó alltaf vel með. Hann kom á ættarmótið í Syðra-Langholti með fjölskyldu sinni sumarið 1999 en þá var hann farinn að kenna sér þess meins er ekki var við ráðið. Það var í síðasta sinn sem hann kom hingað austur. Með Ragnari er genginn drengur góður, vandaður og prúður. Ungur kvæntist Ragnar eftirlifandi eigin- konu sinni, Jónínu Ágústsdóttur, mikilli mannkostakonu sem hann mat mikils. Þau eignuðust þrjú mannvænleg börn, þetta var sam- heldin fjölskylda sem bjó í norðurbæ Hafnarfjarðar. Það reyndi mikið á Jonný, konu hans, þegar Ragnar veiktist en hetjan sú gerði allt til að gera honum lífið sem léttbærast. Hún var alltaf hans stoð og stytta og reyndi mikið á hana í veikindum eig- inmannsins. Líknsamur getur dauð- inn orðið þeim sem eiga erfiða sjúkravist án afls og máttar og nú hefur Ragnar gengið á vit þess er öllu ræður. Guð blessi minningu um góðan dreng með þakklæti fyrir allt sem hann gaf okkur frændfólki fyrir austan. Elskulegri eiginkonu og fjölskyldu votta ég innilega samúð. Sigurður Sigmundsson. Það er margt sem fer um hugann á sorgarstundu sem þessari. Við hugs- um til baka, sum allt að 30 ár, og rifj- um upp minningar sem við eigum um Ragnar Örn; hönnuðinn, „planar- ann“ og ekki síst „bjargvættinn“. Það var ekki óalgengt að ganga inn á auglýsingadeild og heyra að einhvert okkar var að hrópa: „Hvar er Raggi? Hefur einhver séð Ragga, ég verða að tala við hann“. Og oft var ástæðan sú að einhver okkar hafði lent í vand- ræðum, t.d. gleymt að bóka auglýs- ingu og nú þurfti að bjarga þessu í einum grænum og þá var aðeins einn maður sem kom til greina; Raggi. Hann birtist fljótlega með sitt rólega fas, byrsti sig svona til málamynda, fór af stað og „bjargaði“ málinu. Hann var öryggislínan okkar, hann var sá sem tók á sig skammir frá öðr- um deildum og stóð í alls konar þrasi, kom stundum hundfúll og þreyttur inn á auglýsingadeild og sá sem átti í hlut varð skömmustulegur. Ef hann reiddist var ástæða fyrir því, en aldr- ei stóð það lengi yfir, hann kom fús til sátta mjög fljótlega. Raggi var dag- farsprúður maður og gat verið ótrú- lega orðheppinn og oft var það eitt- hvað sem „laumaðist“ upp úr honum og maður gat velst um af hlátri í lengri tíma á eftir. Við erum öll búin að þekkja Ragga í mörg ár, fylgjast með börnunum hans og Jonný, sjá blikið í augunum þegar að hann tal- aði um þau og ekki síst afabörnin sem hann var svo stoltur af. Við sjáum á eftir manni sem okkur þótti afskaplega vænt um og erum þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með honum. Við biðjum góðan Guð að gefa fjölskyldu hans styrk til að tak- ast á við þessa miklu sorg. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um huga minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Guð blessi minningu Ragnars Arnar Ásgeirssonar. Fyrrverandi og núverandi starfsmenn á auglýsingadeild. Ég vil helst fara aftur í tímann og sitja með þér inn á skrifstofu á Morg- unblaðinu í dagslok. Þar spjölluðum við um heima og geima en stundum ekki neitt; við þurftum þess ekki. SJÁ SÍÐU 46                                                     !" # $%  % &   ' (       %     !   "# $#  %# !  &" ' "(## ) #& $#  ## !  $#  ##('!&   &" ' *#*#$*#*#*# *          + ,-  . '   '/01 $ ) 2  '!( ')'!' 3   +(           ,-) (  3 # &'  '   ) #& $#  !* %# ) #& &" ' '#3 $# "#- ) #& $# -4 5  ' &" ' 6&   ) #& &" ' !7 -2 !7 $#   *#*#$*#*#*#
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.