Morgunblaðið - 16.02.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 16.02.2001, Síða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 51 ósk minni og láta mig vita að þú sért með mér og fylgist með okkur. En eins og þú sagðir alltaf, segi ég nú við þig: „Allt í keyinu, elskan, við sjáumst seinna.“ Afi minn, þú munt aldrei hverfa úr hjarta mér eða úr mínu lífi. Takk fyrir að hafa verið í lífi mínu og hafa verið mér það sem þú varst mér, það eru forréttindi að vera komin af svo fallegum og ynd- islegum manni sem þér. Mér finnst viðeigandi að enda þessa kveðju á bæn sem amma Olga kenndi mér þegar ég var eitt sinn hjá ykkur í Grindavík. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín elskandi dótturdóttir, Harpa Rós. Við kveðjum þig kæri bróðir með söknuði og þökkum allar yndislegu skemmtistundirnar sem þú skildir eftir í hugum okkar. Við getum upp- lifað margar góðar samverustundir þegar við hugsum til baka, sjáum þig koma brosandi með gítarinn þinn í afmæli eða önnur tækifæri hjá fjöl- skyldunni, ævinlega hrókur alls fagnaðar. Mikið hefur verið sungið í gegnum tíðina allt frá barnsaldri. Síðastliðið sumar greindist þú með illkynja sjúkdóm og gekkst und- ir aðgerð í ágúst og komst á ról furðu fljótt. Á afmælinu þínu tókstu á móti fjölskyldunni í setustofu sjúkrahúss- ins þar sem konan þín, börn og barnabörn gerðu daginn eftirminni- legan. Þú tókst veikindum þínum með einstöku æðruleysi, slóst á létta strengi og komst um tíma til það góðrar heilsu að þú gast heimsótt vini og vandamenn. Sorglega stuttur varð þessi tími og þú vissir að nú styttist í endalokin en þú varst tilbú- inn að taka því sem að höndum bæri. Allt var gert fyrir þig sem mögulegt var af læknum, hjúkrunarliði og fjöl- skyldunni þinni. Konan, börnin og barnabörn höfðu vaktaskipti við sjúkrabeð þinn og viku ekki frá, hvorki nótt né dag, uns yfir lauk. Guð geymi þig kæri bróðir. Innileg- ar samúðarkveðjur til þín kæra Magga og barna hans og fjölskyldna þeirra. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Systkinin. Í dag kveðjum við Óla bróður eins- og ég kallaði hann, ég minnist ann- ars glaðværðar hans og hlýleika, en ég var litla fóstursystir, hann var mér afskaplega góður. Hann var mjög félagslyndur og þekkti þar af leiðandi mjög marga. Óli hafði mjög gaman af tónlist og spilaði á gítar og söng mjög vel. Hann og Jobbi bróðir hans voru miklir vinir og þeir nutu margra góðra stunda saman við spil og söng, sem við munum alltaf minn- ast með hlýleika og gleði. Jóhann maðurinn minn var á sjó með Óla bróður og minnist hans með þakk- læti. Ég minnist þess þegar ég eign- aðist fyrsta son minn, Birgi, þá kom Óli með glaðværð sína og hressileika og þá leið manni betur. Hann hafði gaman af að spjalla um sjóinn og sjó- mennskuna við Svan son minn þegar þeir hittust því Óli hafði stundað sjó frá unglingsaldri og hafði því frá mörgu að segja. Ég kveð minn góða bróður með þakklæti, söknuði og elskusemi sem hann sýndi mér, son- um mínum og Jóhanni. Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til barna hans og þín, elsku Magga mín, og guð styrki ykkur. Svala S. Guðmundsdóttir og fjölskylda. Nú þegar góður félagi, Ólafur Sig- urðsson, er kvaddur verður mér hugsað til ársins 1981 er við Ólafur kynntumst, er við sigldum saman á Goðafossi til Bandaríkjanna og Evr- ópu. Þú, Óli minn, alltaf brosandi og sást alltaf jákvæðar hliðar á öllu, hvers manns hugljúfi og alla tíð vel liðinn af öllum og var mjög ánægju- legt að njóta þess að starfa með þér. Síðan árið 1988 lágu leiðir okkar aftur saman á Sendibílastöðinni og var mér mikil ánægja að starfa með þér þar sem þú starfaðir fram á síð- astliðið ár, er sjúkdómur sá er nú hefur sigrað gerði vart við sig. Þá má minnast á lipurðina og liðlegheitin sem margur viðskiptavinurinn mun minnast þín fyrir. Ég kveð þig, Óli minn, og minnist þess að þegar kvatt er sannast enn að það er mest virði sem hægt er að gera öðrum til góðs. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég til allra aðstandenda. Sigurður Ingi Svavarsson. Ólafur minn. Ég vona að þér líði vel en ég hafði vonað að þér myndi batna af sjúkdómnum. Við töluðum um daginn og veginn á sendibílastöð- inni og grínuðumst oft. Við urðum perluvinir. Við sátum við sama borð á jólaskemmtuninni hjá Sendibíla- stöðinni. Þú varst fínn strákur og ró- legur, það var gaman að tala við þig og hafðirðu góðan húmor. Nú er tómlegt á stöðinni eftir að þú ert far- inn. Ég votta öllum aðstandendum samúð mína. Guð veri með þér. Stefán Konráðsson. Fyrir tæpri hálfri öld kynntumst við hjónin Ólafi Sigurðssyni. Það var á árum mikilla umbrota í þjóðlífinu, þar sem allskonar höft og skammt- anir ollu vandræðagangi í flestu sem til framfara mætti telja. Í þessu um- hverfi þróaðist vinskapur okkar Ólafs. Hann hóf á þessum tíma búskap með Olgu Ólafsdóttur, sem er systir konu minnar. Við ræktuðum með okkur vinskap, sem við héldum alla tíð. Ólafur var mjög glaðsinna á hverju sem gekk. Sögur hans úr dag- lega lífinu voru sagðar í anda gömlu þulanna fyrr á árum, með tilheyr- andi svipbrigðum og látbragði. Ólafur starfaði mikið á fiski- og farskipum framan af ævinni og síðan sem atvinnubílstjóri. Í öllum störfum hans ríkti mikil snyrtimennska og umgengni svo góð, að eftir var tekið. Ólafur var söngmaður góður og kunni flest lög og texta sem voru í gangi og tók þá gjarnan upp gítar- inn. Við þökkum Ólafi allar gleði- og samverustundir sem hann átti með okkur. Við geymum þær minningar í rósagarði fortíðar. Far í friði yfir móðuna miklu. Fjöl- skyldu Ólafs sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Kristján og Erla. Elsku afi okkar! Nú ertu farinn og þjáningum þín- um lokið. Það er skrítið að hugsa til þess að fá þig ekki oftar í heimsókn til okkar, eða heyra í þér í símanum, alltaf kátan og hressan og með sömu kveðjuna: „Hæ, hæ, er mútta heima?“ og svo í lokin: „Allt í keyinu, elskan.“ Við systurnar eigum marg- ar góðar minningar um þig og okkur þótti svo undur vænt um þig. Það var ekki annað hægt. Þú varst alltaf svo góður. Ef þið Magga fóruð til út- landa komstu alltaf með eitthvað handa okkur og alltaf vildirðu vera að gefa okkur eitthvað, þó ekki væri nema bara pennann í skyrtuvasan- um þínum. Svo var svo gaman að heyra þig spila á gítarinn þinn og syngja. Þú gerðir samt ekki mikið af því í seinni tíð, en þó síðast í sumar, áður en þú fórst í uppskurðinn. Þá lifnaði yfir öllum í kringum þig. Þið mamma voruð líka svo góðir vinir og ykkur þótti mjög vænt hvoru um annað. Elsku afi, við munum alltaf geyma minninguna um þig í hjarta okkar, um glaðan mann sem öllum vildi vel. Við sjáum þig í anda svíf- andi um með bros á vör að hjálpa öðrum, með gítarinn á bakinu. Sofðu rótt, elsku afi. Við elskum þig og munum alltaf sakna þín, en við vitum að þú fylgist með okkur Brekkus- niglunum. Þínar Björg og Arna Þorbjörg. FRÉTTIR RUSLAFÖTUR eða ruslaturnar geta gagnast fleirum en nútímafólki umbúðasamfélagsins. Þrösturinn á myndinni gæti hafa sannreynt þá tilgátu með því að leita skjóls í turninum við Bæjarins bestu. Á flestum betri ruslaturnum er líka ágætt útsýnisop fyrir hnefastórar lífverur og þannig má fylgjast með bæjarlífinu og tína upp leifar af pylsu í brauði inn á milli þegar hungrið segir til sín. Morgunblaðið/Golli Bæjarins besti útsýnisturn BORGARAFUNDUR Samfylk- ingarinnar í Hafnarfirði, haldinn í Hafnarborg, 14. febrúar 2001, lýsir yfir fyllstu andstöðu við þá ótrúlegu fyrirætlun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks að ætla að setja kennslu grunnskólabarna í bænum í útboð og á markaðstorg, segir í ályktun. Einnig segir: „Bæjarbúum og ekki þá síst foreldrum í Hafn- arfirði er freklega misboðið með slíkum tillöguflutningi sem á eng- an sinn líka. Bæjarbúar munu ekki sitja þegjandi undir þessari aðför að því lögverndaða jafnrétti til náms sem öllum börnum er tryggt samkvæmt grunnskólalög- um. Samfylkingin í Hafnarfirði mun beita sér af fullu afli gegn þessum öfgakenndu tillögum og hvetur jafnframt bæjarbúa til að standa vörð um traust og ábyrgt skólastarf í grunnskólum bæjar- ins og leitar eftir jákvæðu sam- starfi um enn frekari eflingu þess.“ Mótmæla útboði á kennslu grunnskólabarna ORATOR, félag lagaskólanema, stendur fyrir málþingi föstudaginn 16. febrúar í hátíðarsal Háskóla Íslands frá kl. 11–13. Yfirskrift málþingsins er: Friðhelgi einka- lífsins – Gagnagrunnar á heilbrigð- issviði. Erindi flytja: Sigrún Jóhannes- dóttir, lögfræðingur og forstjóri Persónuverndar, en hún ræðir al- mennt um gildi einkalífsréttar og persónuverndar í nútímasamfélagi, Hlynur Halldórsson hdl., en hann er með meistaragráðu í lögfræði á sviði upplýsingatækni og fjar- skiptalögfræði frá University of London. Hans framsaga mun fjalla um gagnagrunna, vinnslu í gagna- grunnum og lagaleg álitaefni sem tengjast meðferð persónuupplýs- inga og persónugreinanlegra upp- lýsinga og Ragnar Aðalsteinsson hrl. ræðir um einkalíf og frelsi og mun hann þá m.a. fjalla um tengsl friðhelgi einkalífs og sjálfsákvörð- unarréttar manneskjunnar. Fundarstjóri er Skúli Magnús- son lektor. Eftir framsöguerindi verða umræður. Kaffiveitingar verða í boði. Málþing Orators NÝR veitingastaður og veisluþjón- usta hefur opnað í Hafnarfirði. Jósalir er nafnið á veitingastaðnum og rekstraraðili er Cesar Veitingar ehf. sem þeir Ægir Finnbogason og Hall- grímur I. Þorláksson eiga og reka. Jósalir eru staðsettir við skógrækt- arsvæði Hafnfirðinga, 3 mín. akstur frá Hafnarfirði, í húsnæði Íshesta við Sörlaskeið 26. Veitingastaðurinn tekur að sér all- ar tegundir af veislum og ráðstefnum, s.s. árshátíðir, starfsmannafagnaði, hádegisverðafundi og óvissuferðir þar sem boðið er upp á útreiðartúr og kvöld-eða hádegisverð sem er tilvalin upplyfting fyrir t.d. starfsmannafélög og aðra hópa, segir í fréttatilkynn- ingu. Einnig eru sendar veislur í fyr- irtæki og heimahús. Jósalir er staður með fullt vínveitingaleyfi. Nýr veitinga- staður í Hafnarfirði KJÖRDÆMISFÉLAG Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík hefur haldið vikulega fundi frá því snemma í haust. Á hverjum laugardegi er opið hús á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 20 frá 11–13. Á fundum þessum eru ým- ist ákveðin málefni til umræðu eða tækifæri gefst fyrir fundargesti til að óformlegra spjalls. Næstkomandi laugardag, 17. febrúar, verður fjallað um húsnæðis- mál á laugardagsfundi Vg í Reykja- vík. Frummælandi verður Jón Rún- ar Sveinsson félagsfræðingur. Fundarstjóri verður Steinar Harð- arson. Vg ræðir húsnæðismál EKIÐ var á bifreiðina PV-517, sem er Toyota fólksbifreið, blá að lit, þriðjudaginn 13. febrúar, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Bónus í Skútuvogi. Sá sem þar var að verki ók í burtu án þess að tilkynna atvik- ið, en það átti sér stað á milli kl. 13.30 og 15.40. Vitni að atvikinu, svo og tjónvaldur, eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ JÓHANN Breiðfjörð heldur fyr- irlesturinn „Í sjöunda himni“ í sal 101 í Odda í Háskóla Íslands laug- ardaginn 17. febrúar kl. 14. Að- gangseyrir er 1.000 kr. Jóhann heldur fyrirlesturinn á eigin veg- um og leigir einungis aðstöðuna í Odda. Í fréttatilkynningu segir: „Þessi fyrirlestur er ekki fyrir viðkvæm- ar sálir þar sem fjallað verður um málefni sem geta rist djúpt í hug- ann, hjartað og sálina. Fyrirles- arinn mun segja frá eigin reynslu af því að drukkna og því sem hann skynjaði í þær 3–5 mínútur sem líkaminn var látinn. Fyrirlesturinn var áður haldinn hinn 25. nóvem- ber en verður endurtekinn vegna fjölda fyrirspurna. Það skal tekið sérstaklega fram að umfjöllunin er ekki trúarlegs eðlis heldur einung- is byggð á beinni skynjun og reynslu. Markmiðið með umfjölluninni er að lýsa upp þetta dimma málefni og kenna fólki að nýta meðvitund- ina um dauðann sér í hag. Hún getur nefnilega verið okkar mesti fjörgjafi og getur verið fyrsta skrefið í áttina að lífshamingju. Í þessari reynslu er líka að finna fegurð sem gæti sefað ótta margra og hlýjað einhverjum um hjarta- ræturnar.“ Fyrirlesarinn, Jóhann Breiðfjörð, hefur meðal annars starfað sem hugmyndasmiður, hönnuður og ráðgjafi fyrir Lego í fimm ár og haldið fjölda fyrirlestra um skapandi hugsun fyrir almenn- ing og innan fyrirtækja. Segir frá eigin reynslu af því að drukkna MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá óbyggðanefnd: „Vegna fréttar í Morgunblaðinu 15. febrúar sl. er nauðsynlegt að taka fram að ekki liggur fyrir hvenær óbyggðanefnd kveður upp úrskurði í þeim málum sem flutt hafa verið vegna Árnessýslu. Að þessu er unnið, en þar sem hér er um að ræða fyrstu úrskurði nefndarinnar hefur reynst óhjá- kvæmilegt að leysa af hendi um- fangsmikla rannsóknarvinnu. Hér er um að ræða mikilvæga vinnu af hálfu nefndarinnar og ber því brýna nauðsyn til þess að vanda vel til verksins, en hinsvegar er nefndinni vissulega ljóst mikilvægi þess að úrlausn fáist hið fyrsta.“ Athugasemd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.