Morgunblaðið - 16.02.2001, Side 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 55
Laugavegi 68, sími 551 7015
Vorið 2001
K
O
R
T
E
R
F E G U R Ð F R Á N Á T T Ú R U N N A R H E N D I
Mineral snyrtivörulínan inniheldur
steinefni og næringefni úr náttúrunni.
Steinefni og raki gegna mikilvægu
hlutverki þegar kemur að umhirðu
húðarinnar, því án steinefna og raka
getur húðin orðið þurr og viðkvæm,
jafnvel elst fyrr vegna ótímabærrar
hrukkumyndunar. Mineral línan er
án allra aukefna, þ.e. engum
rotvarnarefnum né ilmefnum er bætt
í vörurnar.
í dag frá kl. 14 -17
Mjódd
Kaupaukar
í Mjóddinni
SNYRTIVÖRUR Á FRÁBÆRU VERÐI
ALLTAF hafa Íslendingar þótt
nokkuð skrítinn, en þó nokkuð
skemmtilegur kynstofn. Nú held ég
þó að ríði alveg um þverbak, ef gefa á
öllum Reykvíkingum atkvæðisrétt
um framtíð Reykjavíkurflugvallar.
Heyrst hefur af undirskriftasöfnun í
Grafarvogi gegn flugvellinum og
eiga nokkur hundruð manns að hafa
mótmælt flugvelli í Vatnsmýrinni. Í
Grafarvogi heyrist hinsvegar aldrei í
flugvél, heldur býr þar maður, sem
mikilla hagsmuna hefur að gæta, ef
farið væri í húsbyggingar í Vatns-
mýri. Ekki hefur þó nema einn mað-
ur, sem búsettur er í Skerjafirði,
kvartað.
Þegar talað er um verðmæti
landsins, sem flugvöllurinn er nú á,
koma fram mjög óraunhæfar stað-
hæfingar. „Ef þetta væri íbúðasvæði
væri verðmæti þess svo og svo mik-
ið.“ „Ef þetta væri atvinnusvæði
væri verðmæti þess svo og svo mik-
ið,“ o.s.frv. Þessar bollaleggingar
eru ein firra, því þetta er flugvöllur,
og er verðmæti landsins í núverandi
mynd miklu meira en allt annað, sem
andstæðingar hans geta ímyndað
sér, bæði fyrir Reykvíkinga og alla
landsmenn.
Það væri hver höfuðborg heims
stolt af að eiga flugvöll eins og
Reykjavík á. Þessi flugvöllur er
mjög öruggur; brottflug og aðflug er
yfir lítið byggð svæði, enda er firra
að Kársnesbúar kvarti. Þar var þó
ekkert hús fyrr en u.þ.b. 15 árum eft-
ir að flugvöllurinn var tekinn í notk-
un. Vissu þeir e.t.v. ekki af flugvell-
inum er þeir fluttu þangað? Miklu
algengara er að í öðrum borgum
heims sé flogið lágt yfir þéttbýli og
má þar nefna t.d. Heathrow, Kenn-
edy, Los Angeles Int’l, Schiphol og
fleiri.
Lausn Trausta Valssonar er eina
lausnin á þessu tilbúna vandamáli,
þó ekki sé ég sammála hans hug-
myndum að öllu leyti. Vestur-austur
brautina mætti t.d. færa út á Löngu-
sker og væri það viðunandi, en ef
Reykvíkingar eru svo fjáðir, að þeir
hafi efni á að fara út í einhverja millj-
arðaframkvæmd, þá gjöri þeir svo
vel. Nær væri að eyða peningum í að
borga laganna vörðum, kennurum
og fólkinu í heilbrigðisgeiranum
mannsæmandi laun, þó eitthvað sé
nefnt.
Ég held því fram að allar bolla-
leggingar um breytingu á flugvall-
arsvæði Reykjavíkur komi eingöngu
frá gróðafíknu fólki, sem sér sér
bjarta framtíð í uppbyggingu svæð-
isins. Það fólk beitir öllum ráðum við
að slá ryk í augun á fólki.
Kæru Reykvíkingar. Látið ekki
peningagráðuga „spékúlanta“ ráða
ferðinni og villa ykkur sýn. Látum
frekar ráðamenn umferðarmála og
íslenska sérfræðinga ákveða þetta,
enda er bindandi atkvæðagreiðsla
fólks, sem í mörgum tilvikum lætur
ráðast af háværum einstaklingum,
alls ekki viðunandi. Það má lengi
deila um hvað er lýðræðislegt, enda
væri þá einnig lýðræðislegt að Reyk-
víkingar kysu um að senda t.d. alla
aðflutta Austfirðinga heim til sín!
BRYNJAR ÞÓRÐARSON,
L-6145 Junglinster,
Lúxemborg.
Flugvöllurinn stolt
Reykjavíkur
Frá Brynjari Þórðarsyni: