Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 16.02.2001, Blaðsíða 56
DAGBÓK 56 FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Flor- inda kemur og fer í dag. Mánafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Hrafn Sveinbjarnarson og Hvítanes fara í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 14 bingó. Magnús Randru- ip leikur á harmónikku í kaffitímanum. Syngjum saman í þorralok. Allir velkomnir. Árskógar 4. Kl. 9 perlu- og kortasaumur, kl. 11.15 tai-chi leikfimi, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 13.30 bingó. Góugleði verður haldin föstudag- inn 23. febrúar kl. 18, miðasala er hafin. Ath. bingóið fellur niður þann dag. Farið verður í Óperuna að sjá La Boheme föstudaginn 9. mars, látið skrá ykkur í félagsmiðstöðinni sem fyrst. Fulltrúi frá skatt- stjóra aðstoðar við skattframtöl, nauðsyn- legt er að skrá sig og fá tíma. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9 bókband, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 13 vefnaður og spilað í sal. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðjud. og fimmtud. kl. 13–16,30, spil og föndur. Leikfimi í íþróttasal á Hlaðhömrum, þriðjud. kl. 16. Sundtímar á Reykjalundi kl. 16 á miðvikud. Pútttímar í Íþróttahúsinu að Varmá kl. 10–11 á laugard. Kór- æfingar hjá Vorboðum kór eldri borgara í Mos. á Hlaðhömrum á fimmtud. kl. 17–19. Jóga kl. 13.30–14.30 á föstud. í Dvalarheimili Hlað- hömrum. Uppl. hjá Svanhildi í s. 586-8014 kl. 13–16. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9 handavinnustofa opin, kl. 9.45 leikfimi, kl. 13.30 gönguhópur. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Tréútskurður í Flens- borg kl 13. Myndmennt kl. 13. Bridge kl. 13:30 Á morgun 17. febr. kl 16. halda tveir kórar eldri borgara tónleika Í Viði- staðakirkju, Hljómur frá Akranesi og Gafl- arakórinn frá Hafn- arfirði. Aðgangur óskeypis. Leikhúsferð laugardaginn 24. febr. Á sama tíma síðar. Skrán- ing stendur yfir í Hraunseli. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Spilað í Kirkjulundi á þriðjudög- um kl. 13.30. Fótaað- gerðir mánudaga og fimmtudaga. Ath. nýtt símanúmer 565-6775. Bingó og skemmtikvöld í Kirkjuhvoli 22. febrúar kl. 19.30 á vegum Lions- klúbbs Garðabæjar. Rútuferðir samkvæmt áætlun. Ferð í Þjóðleik- húsið 24. febrúar kl. 20. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10.30 guðsþjónusta, kl. 13 „opið hús“, spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10–13. Matur í hádeg- inu. Leikhópurinn Snúð- ur og Snælda sýna, „Gamlar perlur“ sem eru þættir valdir úr fimm gömlum þekktum verkum. Sýningar eru á miðvikudögum kl. 14 og sunnudögum kl. 17. í Ás- garði Glæsibæ. Miða- pantanir í símum 588- 2111, 568-9082 og 551- 2203. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ás- garði í Glæsibæ kl. 10 á miðvikudag. Aðalfundur FEB verður haldinn í Ásgarði Glæsibæ, 24. febrúar kl.13.30. Silf- urlínan opin á mánudög- um og miðvikudögum frá kl. 10–12. Ath. af- greiðslutími skrifstofu FEB er frá kl. 10–16. Uppl. í síma 588-2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–12 myndlist, kl. 13 opin vinnustofa, kl. 9.30 gönguhópur, kl. 14 brids. Furugerði 1. Kl. 9 smíð- ar, útskurður, kl. 14 messa, prestur sr. Ólaf- ur Jóhannsson, kaffi- veitingar eftir messu. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi spila- salur opinn. Fimmtud. 22. febrúar er leik- húsferð í Þjóðleikhúsið að sjá leikritið „Með fulla vasa af grjóti“, vegna forfalla eru nokkrir miðar til. Að- stoð frá Skattstofu við skattframtöl verður veitt miðvikudaginn 7. mars, skráning hafin. Allar veitingar í kaffi- húsi Gerðubergs. Allar upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720 Þjónustuíbúðir aldr- aðra Dalbraut 27. Svein- björg Vigfúsdóttir 97 ára, sýnir myndvefnað sinn að Dalbraut 27, mánudaginn 19. febrúar nk. frá kl. 13–16. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 málm- og silf- ursmíði, kl. 13 bókband, kl. 9.15 vefnaður. Mynd- listarsýning frístunda- málara í Gjábakka stendur yfir til 23. febrúar. Laugardaginn 17. febrúar kl. 14–17 verður opið hús í Gjá- bakka. Dagskrá: Sr. Ingþór Indriðason með fræðslu um lífið í Kan- ada, nemendur í Skóla- hljómsveit Kópavogs spila fyrir gesti, kaffi í boði félagsins, óvænt at- riði. Húsið opnað kl. 13.40. Gullsmári, Gullsmára 13. Gleðigjafarnir syngja í Gullsmára Hraunbær 105. Kl. 9–12 útskurður, kl. 9–12.30 bútasaumur, kl. 11 leik- fimi og spurt og spjall- að. Kl. 14 bingó, góðir vinningar. Föstudaginn 23. febrúar verður farið á Góugleði í Árskógum, uppl. í síma 587-2888. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 baðþjónusta og hár- greiðsla, kl. 9–12.30 bútasaumur, kl. 11 leik- fimi. Norðurbrún 1. Kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9–12.30 útskurður, kl. 10 boccia, kl. 13.30 stund við píanó- ið. Vesturgata 7. Kl. 9.15 handavinna, kl. 13 sung- ið við flygilinn, kl. 14.30 dansað í aðalsal, Sig- valdi. Í dag kl. 15 verður ferðakynning á vegum Samvinnuferðar Land- sýnar. Rjómabollur með kaffinu. Miðvikudaginn 21. febrúar verður farið kl. 13.20 í Ásgarði, Glæsibæ. Sýndar verða gamlar perlur með Snúð og Snældu. Kaffiveit- ingar seldar í hléinu, skráning í síma 562- 7077. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan kl. 9.30 bókband og morgunstund, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK Gjá- bakka. Spilað kl. 13.15. Allir eldri borgarar vel- komnir. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laugardögum. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra leik- fimi í Bláa salnum í Laugardalshöll, kl. 10. Kiwanisklúbburinn Geysir í Mosfellsbæ heldur spilavist í kvöld kl. 20.30 í félagsheim- ilinu Leirvogstungu. Kaffi og meðlæti. Úrvalsfólk. Vorfagn- aður Úrvalsfólks verður haldin á Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaginn 16. febrúar kl. 19 miða- og borðapantanir hjá Rebekku og Valdísi í síma 585-4000. Parkinssonsamtökin á Íslandi. Félags- og fræðslufundur verður í safnaðarheimili Ás- kirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 14. Dr. Sig- urlaug Sveinbjörns- dóttir segir frá nið- urstöðum á erfða-og faraldsfræðilegum rannsóknum hér á landi. Borgfirðingafélagið í Reykjavík. Spiluð félagsvist á morgun laugardag kl. 14 að Hall- bveigarstöðum. Aðal- fundur eftir spil. Í dag er föstudagur 16. febrúar, 47. dagur ársins 2001. Orð dagsins: En vér höfum ekki hlotið anda heimsins, heldur andann, sem er frá Guði, til þess að vér skulum vita, hvað oss er af Guði gefið. (I. Kor. 2, 12.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. TELST ekki nóg komið af ruglinu í þessu þjóðfélagi þótt ekki sé verið að leika sér að því að brjóta stjórn- arskrána? Ég greiði skatta, eins og flestir, en ég sætti mig ekki við það, að mér séu sýndar margfalt of háar upphæðir, fyrir utan lög og reglur. Hvaða aðilar þjóðfélags- ins eru vísastir í aðstöðu til slíkra verka? Það er talað um rannsóknarblaða- mennsku þegar svo vill til. Mætti ekki beita henni í svona tilfellum, þegar hrikt- ir svona augljóslega í und- irstöðum þjóðfélagsins og fúnar stoðir brotna hver af annarri? Ef vafi er talinn leika á þessum orðum mín- um og fullyrðingum, get ég sýnt hverjum sem er, á pappírum svart á hvítu, svo að ekki þurfi að vera hæsta- réttarógöngur – ég minni á dóminn í svonefndu Guð- mundar- og Geirfinnsmáli. Erlingur Gunnarsson, Dvergaborgum 3, Rvk. Börn.is GUÐLAUG hafði samband við Velvakanda og vildi lýsa yfir ánægju sinni með vef- síðu, sem heitir börn.is. Þar er að finna ýmsan fróðleik fyrir foreldra og aðstand- endur barna. Til forsvarsmanna félagsins Fátæk börn á Íslandi HVERS konar félag er þetta og hvað hefur þetta félag verið að gera fyrir börnin? Hvernig finna þeir börnin? Hvar eru þeir stað- settir og hvar er hægt að ná í þá? Heiða. Hver er maðurinn? SONUR minn datt í Tjörn- ina laugardaginn 10. febr- úar sl. um kl. 13. Það var maður sem dró hann upp úr Tjörninni. Í öllu stressinu gleymdist að fá nafn manns- ins. Langar mig að biðja hann að hafa samband við Agnesi í síma 561-7830 eða 894-9037. Víkverji og Garri bestir NÝLEGA vöktu athygli mína tvær fréttir sem birt- ust í Morgunblaðinu. Önnur fréttin var um hárgreiðslu- stofu sem var að flytja á Sel- tjarnarnes. Vakti það at- hygli mína hversu mikið pláss þessi frétt tók. Iðu- lega eru fyrirtæki að flytja sig milli borgarhluta og minnist ég þess ekki að hafa séð svona mikla umfjöllun um það áður. Í Víkverja var nýlega fjallað um erlenda konu sem hafði fatað sig upp á Skólavörðustígnum fyrir hundruð þúsunda. Fannst mér þetta athyglis- verð lesning og hefði ég vilj- að sjá meira um þetta í blaðinu. Ég vil að lokum þakka Víkverja fyrir skrif hans en ég les nær alltaf Víkverja. Víkverji Morgun- blaðisins og Garri í Degi eru uppáhaldsblaðamenn mínir. Kt. 280244-2959. Tapað/fundið Vindmælir tapaðist LÍTILL, svartur plastkassi (vindmælir), örlítið stærri en diskettubox, tapaðist á auða svæðinu nálægt verk- fræði- og raunvísindadeild Háskólans, að kvöldi fimmtudagsins 8. febrúar sl. Skilvís finnandi er beðinn að hafa samband í síma 562- 3936. Kvenúr tapaðist KARL Lagerfeld kvenúr með svartri ól tapaðist, sennilega í kringum Kringl- una eða Bíóhöllina, laugar- daginn 10. febrúar sl. Skil- vís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 561-4515 eða 861-8313. Dýrahald Enn bólar ekkert á Felix! FELIX er enn í týndur síðan 3. janúar sl. Felix er tveggja ára grábrúnbröndóttur á lit- inn. Hann er eyrnamerktur og var með græna sjálflýs- andi ómerkta hálsól þegar hann fór að heiman. Hann á heima á gisti- heimilinu Baldursbrá sem er á horni Laufásvegar og Baldursgötu. Vinsamlega hafið sam- band við Ariane í síma 861- 1836 ef þið hafið einhverjar upplýsingar um ferðir hans. Axel ófundinn! AXEL hvarf frá Öldugötu 4 6. febrúar. Hann er stór og loðinn fressköttur, afar gæfur og mikill stórkarakt- er og er hans sárt saknað í heimahúsum. Þeir sem kunna að hafa séð Axel (hann fer ekkert á milli mála!) eru vinsamlegast beðnir um að hringja í eft- irtalin númer: 551-0854, 861-0584, 896-6216. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ákæra á stjórnkerfið Víkverji skrifar... VÍKVERJI fagnar frumvarpiIngibjargar Pálmadóttur heil- brigðisráðherra til nýrra tóbaksvarn- arlaga. Þar er gert ráð fyrir að af- nema undanþágur vínveitingastaða frá þeirri skyldu að leyfa viðskipta- vinum sínum að anda að sér hreinu lofti. Í núverandi lögum eru reyking- ar bannaðar á öllum opinberum stöð- um, þar sem almenningur sækir sér þjónustu, nema á veitingastöðum. Þó er veitingahúsum, sem leggja „meg- ináherzlu“ á kaffiveitingar og mat- sölu, skylt að sjá gestum fyrir reyk- lausu svæði. Þetta hafa margir veitingamenn túlkað svo að þeir verði að hafa reyklaust svæði á daginn, en þegar kvölda tekur og áfengisveiting- ar verða hærra hlutfall sölunnar skuli reykjarsvælan ein ríkja. Harla oft hefur Víkverji farið á veitingahús eina kvöldstund og lagt „megin- áherzlu“ á að snæða mat eða drekka kaffi en engu að síður orðið að viðra sparifötin í sólarhring á eftir til að ná úr þeim stybbunni. Að degi til eru reyklausu svæðin oft ekki beysin, t.d. tvö eða þrjú borð næst dyrum, þar sem napur norðangarrinn er eina loftræstingin. Jafnvel veitingastaðir, sem reyna að laða að fjölskyldufólk með barnamatseðli, bjóða sumir hverjir ekki upp á eiturlaust and- rúmsloft fyrir börnin. Í FRUMVARPI heilbrigðisráð-herrans er reykleysi gert að meg- inreglu á veitinga- og skemmtistöð- um. Þó „má leyfa reykingar á veitinga- og skemmtistöðum á af- mörkuðum svæðum, en tryggja skal fullnægjandi loftræstingu“. Meiri- hluti veitingarýmis á þó alltaf að vera reyklaus og tryggt að aðgangur að því liggi ekki um reykingasvæði. Síð- ast en ekki sízt: „Stjórnendur veit- ingastaða skulu af fremsta megni leit- ast við að vernda starfsfólk gegn tóbaksreyk.“ Víkverji hefur nefnilega stundum fengið þau svör, þegar hann hefur kvartað undan reykjarkófinu á veitingastöðum, að hann sé frjáls að því að sitja á einhverju öðru kaffihúsi ef hann sé ósáttur við að taka þátt í óbeinum hópreykingum. En hvert á vesalings starfsfólkið, sem ekki reyk- ir, að flýja? x x x VÍKVERJI hlakkar virkilega tilað geta farið með alla fjölskyld- una á kaffihús og notið veitinga í hreinu lofti. Það er varla seinna vænna fyrir veitingamenn að byrja að innrétta hin reykfylltu bakherbergi og fjárfesta í almennilegri loftræst- ingu. Víkverji gerir að sjálfsögðu ráð fyrir að frumvarp heilbrigðisráðherr- ans eigi greiða leið í gegnum Alþingi. x x x VÍKVERJI notar fríkortið, semhann fékk sent í pósti fyrir nokkrum árum, yfirleitt þegar hann verzlar við þau fyrirtæki, sem veita afslátt í formi frípunkta. Punktana notar hann svo stundum til að fara í bíó eða kaupa sér jólatré og er sæmi- lega sáttur við þetta „tryggðarkerfi“ viðkomandi fyrirtækja þótt hann kysi heldur að fá tryggðina endurgoldna í peningaafslætti. Til að byrja með spurði afgreiðslufólk oftast um kort- ið, en nú hefur sá siður að mestu verið aflagður. Víkverji man samt langoft- ast eftir kortinu, enda maður hag- sýnn og sparsamur. Honum finnst því heldur aumt þegar hann lendir í því – sem hefur gerzt oftar en einu sinni – að rétta fyrst greiðslukort eða pen- ingaseðil yfir afgreiðsluborðið og svo fríkortið, en fá það svar frá fingrafim- um starfsmanni að hann sé „búinn að stimpla“ og of seint að skrá frípunkt- ana á kortið. Fríkortsfyrirtækin ættu að setja upp skilti við kassana hjá sér, sem benda viðskiptavinum á að rétta afgreiðslufólkinu fríkortið á undan greiðslunni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 svellalög, 4 slokkna, 7 ættarnafn, 8 slitin, 9 kraftur, 11 beitu, 13 at, 14 fisk, 15 vitleysa, 17 tungl, 20 líkamshluti, 22 skvampa, 23 allmikill, 24 málgefin, 25 snefils. LÓÐRÉTT: 1 tóra, 2 eldstæði, 3 þefa, 4 trjámylsna, 5 hefja, 6 mannsnafn, 10 hand- sama, 12 reið, 13 nokkur, 15 vesæll, 16 dáið, 18 spil- ið, 19 duglegir, 20 forboð, 21 urta. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rennblaut, 8 undur, 9 kenni, 10 akk, 11 dárar, 13 afræð, 15 hafna, 18 hress, 21 fól, 22 skott, 23 augað, 24 steinsnar. Lóðrétt: 2 endar, 3 nárar, 4 lokka, 5 unnar, 6 hund, 7 hirð, 12 ann, 14 fær, 15 húsi, 16 frost, 17 aftri, 18 hlass, 19 eigra, 20 sóði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.