Morgunblaðið - 21.02.2001, Side 17

Morgunblaðið - 21.02.2001, Side 17
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 17 Landsbréf hf. Su›urlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Sími 535 2000, bréfasími 535 2001. Veffang: www.landsbref.is N‡ttu flér flekkingu eins stærsta eignast‡ringarfyrirtækis heims, Alliance Capital Management fia› er okkur sönn ánægja a› bjó›a til morgunver›arfundar í salnum Hvammi á Grand Hótel flann 23. febrúar 2001 frá kl. 08:30 til 09:30. Tilefni fundarins er koma Geoffrey Hyde, sérfræ›ings hjá Alliance Capital Management. Geoffrey mun fjalla um flróun heimsmarka undanfarna mánu›i og mun leggja sérstaka áherslu á flau fjárfestingartækifæri sem geta skapast ári› 2001. Vinsamlegast sta›festi› flátttöku me› tölvupósti á acm@landsbref.is e›a í síma 535-2043, flar sem a› fjöldi fundargesta er takmarka›ur. Enginn a›gangseyrir. Kynntu flér sko›anir eins stærsta eignast‡ringarfyrirtækis heims, Alliance Capital Management, á alfljó›legum fjárfestingartækifærum. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN GILDING ehf. er fjárfestingarfélag sem hóf starfsemi um mitt ár í fyrra og hefur félagið sent frá sér yfirlit yfir afkomu ársins. Eigið fé félagsins var rúmir sjö milljarðar króna eftir hlutafjársöfnun á seinni hluta síð- asta árs, en hafði um áramót lækkað niður í 5.903 milljónir króna, eða um 16,7%. Lækkunin, eða tapið, nam því tæpum 1,2 milljörðum króna. Um 2⁄3 hlutar tapsins eru óinnleystir, eða um 800 milljónir króna, en þar sem allar skráðar eignir félagsins eru færðar á markaðsverði sést tap í reikningum félagsins þótt eignin hafi ekki verið seld og tapið þannig inn- leyst. Um 1,4 milljarðar króna, eða inn- an við 10% heildareigna, eru í óskráðum eignum og eru þær skráð- ar á kostnaðarverði, án þess að það sé framreiknað. Heildareignir fé- lagsins námu um síðustu áramót 15,6 milljörðum króna og skuldir voru 9,7 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall var 38%. Skiptasamningar félagsins um hlutabréf og skuldabréf eru í efna- hagsreikningi en ekki utan hans eins og venja er hjá flestum fjármála- stofnunum. Þetta þýðir að efnahags- reikningurinn er mun stærri en ella og eiginfjárhlutfallið því lægra. Ef skiptasamningar væru utan efna- hagsreiknings væri eiginfjárhlutfall Gildingar 79%. Langtímamarkmið um 25% arðsemi er óbreytt Heimir Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Gildingar, segir að af- koma félagsins beri þess merki að það hafi hafið starfsemi á erfiðum tíma og markaðir hafi lækkað mikið seinni hluta ársins. Sjá megi af upp- gjörum annarra félaga að þau hafi al- mennt skilað slæmri afkomu á því tímabili síðasta árs sem Gilding hafi verið starfandi. Félagið standi þó sterkt, eins og sjá megi á eigin fé og eiginfjárhlutfalli. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að þrátt fyrir neikvæð skilyrði á fyrsta starfsári hafi ekki verið hvikað frá langtímamarkmiði því sem sett hafi verið í upphafi um 25% arðsemi til lengri tíma. Fyrir- tækið eigi hlutabréf í traustum félög- um og stærstu fjárfestingar þess í ís- lenskum hlutabréfum séu í Baugi, Kaupþingi, Marel, Pharmaco og Össuri. Þá kemur fram í tilkynningunni að Gilding eigi í nokkrum fyrirtækjum sem nú séu í umbreytingarferli. Stærst sé Ölgerðin Egill Skalla- grímsson, en stefnt sé að því að skrá hana á hlutabréfamarkað innan tveggja ára. Fjárfestingarfélagið Gilding ehf. skilar fyrsta ársuppgjörinu Eigið fé lækkaði um 16,7% á árinu HAGNAÐUR SP-Fjármögnunar hf. eftir skatta jókst um 35% milli ára, fór úr 105,4 milljónum króna árið 1999 í 142,2 milljónir króna í fyrra. Heildarútlán fóru úr 6.686 millj- ónum króna í 8.147 milljónir króna, sem er 22% aukning. SP-Fjármögnun er eignarleigu- fyrirtæki í eigu Sparisjóðanna og skiptist starfsemi þess í megindrátt- um í tvennt. Annars vegar eignar- leigusamninga við fyrirtæki, ríki, sveitarfélög og aðra sem stunda rekstur og hins vegar bílalán til ein- staklinga. Heildarvirði eignarleigu- samninga í lok síðasta árs var 3.934 milljónir króna og heildarvirði bíla- lána 4.175 milljónir. Gerðir voru nýir eignarleigusamningar fyrir 1.949 milljónir króna og ný bílalán fyrir 2.049 milljónir. Vanskil sem hlutfall af heildarút- lánum hjá SP-Fjármögnun lækkuðu milli ára, úr 1,16% árið 1999 í 1,09% í fyrra. Í samtali við framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, Kjartan Georg Gunnarsson, kom fram að þetta væri önnur mynd en oft væri dregin upp í fjölmiðlum, því af henni mætti ætla að mikil vanskil væru af bílalánum. Raunin sé hins vegar sú að langflest- ir sem taki bílalán séu búnir að ígrunda vel hver greiðslugeta þeirra sé og auk þess sé sýnd mikil aðgæsla í útlánum, sér í lagi þegar um háar fjárhæðir sé að ræða. Framlag í afskriftareikning útlána nam 88 milljónum króna, eða 1,08% af útlánum í árslok. Í afskriftarsjóði voru í árslok 281 milljón króna, eða 3,4% útlána. 12,9% eiginfjárhlutfall Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins, svokallað CAD-hlutfall, var 12,9% um síðustu áramót, en var 13,4% ári áður. Lögbundið lágmark er 8%. Í fréttatilkynningu frá SP-Fjár- mögnun segir að það hafi snemma á síðasta ári tekið í notkun bílalána- kerfið Carrus, sem Mens Mentis hafi hannað og smíðað sérstaklega fyrir fyrirtækið. Kerfið taki mið af þörfum þeirra sem komi nálægt bílakaupum og stytti afgreiðslutíma lána. Kerfið hafi reynst vel og viðtökur bílaum- boða og annarra sem selji bíla hafi verið góðar. Hagnaður SP-Fjármögnunar eykst í 142 milljónir króna Vanskil bíla- lána í lágmarki TILKYNNT var um sameiningu stálfyrirtækjanna Unicor, Arbed og Aceralia á mánudag. Hluthafar Arbed munu eiga 23,4%, Aceralia 20,1% og hluthafar Unicor 56,5% í sameinuðu félagi, sem bera mun nafn hins síðastnefnda. Ætlunin er að spara hundruðir milljóna evra á ári, bæði í rekstrar- og fjárfesting- arkostnaði. Samruninn er háður samþykki framkvæmdastjórnar ESB og er bú- ist við að framkvæmdastjórnin fari ítarlega yfir samrunann sérstaklega með tilliti til sterkrar stöðu fyrirtæk- isins á framleiðslu stáls til notkunar í bílaframleiðslu. Stærsta fyrirtæki heims í stáliðnaði Á síðasta ári framleiddi Unicor rúmar 22 milljónir tonna af stáli, Arbed 12 milljónir og Aceralia rúm- ar 10 milljónir tonna. Sameinað fyr- irtæki mun framleiða um 45 milljónir tonna á ári og verða langstærsta stálfyrirtæki heims. Stærsta fyrir- tækið á þessu sviði fyrir sameiningu var suður-kóreska fyrirtækið Poh- ang með 26,5 milljóna tonna fram- leiðslu á ári og í öðru sæti var jap- anska stálfyrirtækið Nippon með 24,3 milljónir tonna. Evrópumarkaður fyrir stál er um 63 milljóna tonna og heimsfram- leiðsla á stáli árið 1999 nam um 830 milljónum tonna. Helsta vandamál stálfyrirtækja er mikil umfram framleiðslugeta. Verð á stáli hefur verið lágt og arðsemi fyrirtækjanna farið minnkandi. Helstu keppinautar Unicor tóku undir sjónarmið stjórnenda Unicor að fyrirtækin í greininni þyrftu að stækka. Þróunin í stáliðnaði hefur ekki verið eins hröð eins og í áliðnaði þar sem fyrirtækjum hefur fækkað jafnt og þétt á síðustu árum. Ein helsta ástæðan fyrir því er að stál er tiltölulega ódýr og þung afurð sem kostar mikið að flytja langar vega- lengdir. Þess vegna þjóna stáliðjuver fyrst og fremst viðskiptavinum sem liggja nærri stáliðjuverunum. Jákvæð viðbrögð fjármálamarkaða Fyrirtæki í evrópskum stáliðnaði hafa í auknum mæli verið að samein- ast á síðustu árum. Stærstu samein- ingar í atvinnugreininni hafa verið sameining þýsku fyrirtækjanna Thyssen og Krupp og sameining hol- lenska stálframleiðandans Hoogov- ens og British Steel í fyrirtækið Cor- us. Corus tilkynnti fyrir stuttu að það muni segja upp sex þúsund starfsmönnum og losa sig við um- fram framleiðslugetu upp á þrjár milljónir tonna. Fjármálamarkaðir tóku fréttum af samrunanum vel. Hlutabréf í Unicor hækkuðu um 6,4% í París. Hlutabréf Arbed í Lúxemborg hækkuðu um 49% og bréf Acdralia í Madrid hækkuðu um 32%. Hlutabréf í öðrum evrópskum stálfyrirtækjum hækkuðu einnig vegna væntinga um aukna hagræðingu og arðsemi innan greinarinnar. Sameining þriggja evrópskra stálfyrirtækja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.