Morgunblaðið - 21.02.2001, Page 24

Morgunblaðið - 21.02.2001, Page 24
MAGNEA Tómasdóttir sópransöngkona mun syngja á tónleikum í Royal Festival Hall í Lundúnum á morgun, fimmtudaginn 22. febrúar. Um er að ræða uppsetningu Trinity College of Music á Gurre-Lieder eftir Schönberg en Royal Festival Hall er eitt af stærri tónleikahúsun- um í Lundúnum. Magn- ea verður ein sex ein- söngvara sem koma fram í verkinu, ásamt 130 manna hljómsveit, stórum karlakór og blönduðum kór. Aðspurð segir Magnea það mjög spennandi að takast á við þetta verk- efni og þá sé ekki síst gaman að fara til Lundúna að syngja en Magnea stundaði þar nám. „Ég hef sungið mikið í óperum undanfarið en þessi vinna er talvert frábrugðin því,“ seg- ir Magnea en hún bendir jafnframt á að verkið sé mjög sjaldan sett upp, líklega sökum þess hversu dýrt það er í flutningi, og því sé ekki síður gaman að fá að syngja í verkinu. Magnea segir verkið fremur óhefðbundið, það teljist t.d. ekki til hefðbundinnar óratoríu eða óperu. „Þetta er meira eins og ljóðaflokkur í umfangsmiklum búningi. Schönberg byrjaði að skrifa verkið sem ljóð- flokk eftir texta Danans Jens Peter Jacobsen. Síðan varð þetta stærra og stærra hjá honum og endaði með þessu risavaxna hljómsveitarverki. Hann byrjaði á verk- inu árið 1900 eða 1901 en lauk því ekki end- anlega fyrr en árið 1910.“ Magnea lærði söng hjá Unni Jensdóttur í Tónlistarskóla Sel- tjarnarness. Árið 1993 hóf hún nám við Tri- nity College of Music hjá prófessor Hazel Wood. Á námsárunum sótti hún fjölmörg námskeið hjá virtum listamönnum, þ.á m. Roger Vignoles, Ian Partridge og Elly Ameling, og kom fram á fjölmörgum tónleikum. Í fyrra komst Magnea í lokakeppni alþjóð- legrar keppni Wagner-söngradda í Þýskalandi. Frá 1997 hefur Magnea starfað hjá óperuhúsinu í Köln og lauk þeim samningi árið 2000. Magn- ea segir þann tíma hafa skilað sér mjög góðri reynslu. „Þetta hefur verið mikil vinna, ég var í fyrstu í eins konar óperustúdíói en síðan fastráðin í listamannahópi óperunn- ar. Ég hef búið í Köln síðan þeim samningi lauk og er að leita mér að öðrum verkefnum. Maður verður að vera opinn fyrir öllu.“ Auk þess að koma fram í Royal Festival Hall er Íslandsferð á döfinni hjá Magneu. Hún mun halda tónleika í Salnum í Kópavogi 22. apríl en í kjölfar þess mun hún vinna að upptökum fyrir út- varpið. Hvað tekur við segir Magnea að muni koma í ljós, „enda er þetta harður bransi,“ segir hún að lokum. Magnea Tómasdóttir söngkona Kemur fram í Royal Festival Hall í Lundúnum Magnea Tómasdóttir LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLEIKARNIR hefjast kl. 20 og verða þar flutt nýleg einsöngslög eft- ir þrettán íslensk tónskáld. „Í upp- hafi menningarborgarársins í fyrra bauð Tónskáldafélag Íslands, í sam- vinnu við Reykjavík–menningarborg Evrópu árið 2000, íslenskum tón- skáldum að draga ljóð úr hatti við sérstaka athöfn, en tónskáldin fengu síðan það verkefni að semja lag við sín ljóð. Hluti af lögunum sem flutt verða á tónleikunum í kvöld urðu til í kjölfar þess,“ segir Ólafur Kjartan Sigurðarson baríton. Tónleikarnir eru hluti af dagskrá Myrkra músíkdaga en auk ofan- greindra aðila kemur Menningar- miðstöðin í Gerðubergi að fram- kvæmdinni. Gerðuberg efndi fyrst til þess að ljóðum var úthlutað til tón- skálda með ofangreindum hætti í tengslum við lýðveldishátíðina árið 1994, í því skyni að hvetja til nýsköp- unar á sviði íslenskra einsöngsljóða. Ólafur Kjartan segir að mikill aragrúi laga hafi orðið til í kjölfar „hattadrættisins“ á síðasta ári, og eru tónleikarnir m.a. haldnir í því skyni að frumflytja stóran hluta þeirra. „Þá völdum við Jónas að auki fleiri lög eftir íslensk samtímatón- skáld. Á tónleikunum mun því heyr- ast ný eða nýleg tónlist, allt frá mús- ík sem vísar aftur til okkar menningararfs til afar nútímalegrar tónlistar. Ég held að tónleikarnir gefi nokkuð glögga mynd af því hversu breitt litrófið er hjá íslensk- um tónskáldum í dag,“ segir Ólafur Kjartan. Ekki var þó unnt að flytja nema hluta af þeim lögum sem samin voru við ljóðin, en stefnt er að því að kynna öll lögin í framtíðinni. Ólafur Kjartan segir óhætt að full- yrða að tónleikarnir séu krefjandi fyrir þá Jónas, ekki síst vegna þess hversu mörg laganna verða þar frumflutt. „Það er í eðli sínu mjög gaman að frumflytja tónlist. Þá fær maður tækifæri til að koma með ferskar hugmyndir að tónlistinni, þótt það sé annað mál hvernig það tekst til,“ segir Ólafur og brosir. „En það sem við höfum á þessum tón- leikum er sönnun þess að tónlistar- sköpun íslenskra tónskálda er mjög lifandi.“ Rík hefð einsöngslaga Jónas Ingimundarson hefur lengi verið mikill áhugamaður um íslenska einsöngshefð. Hann kom m.a. að viðamiklum flutningi og umfjöllun um íslensk sönglög sem Gerðuberg stóð fyrir árið 1994. Hann bendir á að Íslendingar búi yfir mjög ríkulegri hefð einsöngs- laga. „Íslenska einsöngslagið á sér um hundrað ára gamla sögu þar sem finna má margt af því besta sem við eigum í tónlist á því tímabili. Um er að ræða síkvikt form sem lifir góðu lífi enn í dag. Íslendingar hafa alla tíð verið mikil söngþjóð, en einnig miklir sagnamenn. Einsöngshefðin á sér eflaust sterkar rætur í þessum þjóðareinkennum.“ Jónas segir einsöngslagið vera mjög heillandi form, ekki síst vegna þess hversu einlægt og náið það er. „Sum ljóð eru ekki til þess fallin að vera flutt af stórri hljómsveit. Til þess eru þau of persónuleg og náin. Í einsöngsforminu myndar ljóðið, söngurinn og píanóundirspilið eina heild sem hæfir litlu rými og einlægu viðfangsefninu.“ Ólafur Kjartan tekur undir þetta. „Margir telja óperuna vera æðst list- forma vegna þess hversu margir list- rænir þættir koma þar saman. Þetta á ekki síður við einsöngsformið, þar sem ljóð og tónlist sameinast. Þegar vel tekst til geta orðið til hreinir töfrar sem sveifla mönnum upp og niður allan tilfinningaskalann á örfá- um mínútum,“ segir Ólafur Kjartan. Jónas samsinnir þessu. „Það má segja að vel heppnað sönglag sé í eðli sínu augnabliks ópera, því það end- urspeglar lífið sjálft, með öllum sín- um þrám og tilfinningum.“ „Söngurinn er dálítið merkilegt fyrirbæri,“ heldur Jónas áfram. „Við syngjum t.d. ekki þegar við erum í vondu skapi. Söngurinn fylgir gleðinni, og léttir okkur um hjarta. Í söngnum má líklegast finna sjálfa uppsprettu og kviku tónlistarinnar.“ Íslensk einsöngslög á Ljóðatónleikum í Gerðubergi á Myrkum músíkdögum Einsöngslagið er augna- bliksópera Íslenska einsöngslagið verður í heiðri haft á ljóðatónleikum Ólafs Kjartans Sigurðar- sonar barítons og Jónasar Ingimundarson- ar píanóleikara í Gerðubergi í kvöld. Heiða Jóhannsdóttir heimsótti þá á æfingu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jónas Ingimundarson píanóleikari og Ólafur Kjartan Sigurðarson barítonsöngvari. Sagnfræðingafélag Íslands efnir til opins félagsfundar annað kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30 í húsi Sögufélagsins við Fischer- sund. Gestur fundarins verður Einar Már Guðmundsson rithöfundur og mun hann halda erindi sem hann nefnir „Saga og saga“. Í erindinu hyggst Einar Már velta fyrir sér muninum á sagn- fræði og skáldskap, m.a. með vísan til nýjustu verka sinna, bókanna „Fótspor á himnum“ og „Draumar á jörðu“. Hann mun gera þann „öfugsnúning“ að umtals- efni að skáldskapur verði með tímanum sannleikur og einnig varpa fram þeirri spurningu, hvort sagnfræðirit séu í aðra röndina skáldsögur. Einar Már Guðmundsson hjá sagnfræðingum Einar Már Guðmundsson SÝNINGIN Norrút – Reykjavík, Bergen, Helsinki hefur nú verið opnuð í sameiginlegu sýning- arrými í hinni nýju byggingu nor- rænu sendiráðanna í Berlín. Norrút er samsýning fjögurra listakvenna, þeirra Guðrúnar Gunnarsdóttur frá Reykjavík, Agn- etu Hobin og Ullu-Maiju Vikman frá Helsinki og Inger-Johanne Brautaset frá Bergen. Sýningin var liður á dagskrá Reykjavíkur – menningarborgar Evrópu árið 2000 og var opnuð í Listasafni ASÍ í febrúar 2000 en var síðan sýnd í Bryggens Museum í Bergen og í Listiðnaðarsafninu í Helsinki. Sýn- ingin var einnig á dagskrá menn- ingarborgarársins í Bergen og Helsinki, styrkt af menningarborg- unum og Norræna menningar- sjóðnum, en Listasafn ASÍ hefur séð um skipulagningu sýningar- innar. Sýningunni hefur verið vel tekið í Berlín og tímaritið TIP sem er lesið af a.m.k. 200.000 manns tók hana inn á „topp tíu lista“ yfir bestu sýningar í Berlín í þessum mánuði. Sendiráð Íslands, Finnlands og Noregs höfðu frumkvæðið að því að fá sýninguna til Berlínar til að fylgja eftir menningarborgarárinu og kynna norræna samtímalist í Berlín. Sýningin var opnuð að við- stöddum listamönnunum og fjölda gesta í sýningarrými sendiráðanna. Kristín G. Guðnadóttir, forstöðu- maður Listasafns ASÍ, flutti ávarp, en aðalræðumenn kvöldsins voru Ingimundur Sigfússon, sendiherra Íslands í Þýskalandi og prófessor dr. Barbara Mundt, forstöðumaður Listiðnaðarsafnsins í Berlín. „Á sýningunni Norrút mætast fjórar norrænar listakonur, sem á grunni veflistarinnar hafa hver á sinn hátt þróað persónulegt mynd- mál þar sem greina má norræna festu samtvinnaða eigindum úr deiglu hins alþjóðlega listheims. Þær eiga það sameiginlegt að finna sköpunarkrafti sínum nýjan farveg með því að nota óhefðbundin efni og vinna úr þeim á eigin for- sendum. Þær leitast við að finna verkum sínum formgerð þrívíddar, virkja rými og tíma, en hafa sam- tímis sterka tilfinningu fyrir efnis- kennd, áferð og yfirborði. Skír- skotun til ólíkra þátta hinnar norrænu náttúru er auðsær í verk- um þeirra, ýmist í efni verkanna, formi eða inntaki þeirra,“ segir Kristín G. Guðnadóttir. Eftir að sýningunni lýkur í Ber- lín mun hún verða send til Litháen og sýnd í M.K.Cirkionis National Museum of Art í Kaunas í boði safnsins. Norrút í Berlín Ljósmynd/Sigurður Jóhannsson Frá sýningunni. Verk Guðrúnar Gunnarsdóttur í bakgrunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.