Morgunblaðið - 21.02.2001, Síða 26

Morgunblaðið - 21.02.2001, Síða 26
LISTIR 26 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Blóðgjafafélags Íslands verður haldinn 28. febrúar 2001 kl. 20:00 í anddyri K-byggingar Landspítalans. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Blóðgjöfum veittar viðurkenningar. 3. Önnur mál. 4. Fræðsluerindi. Veitingar. Fundurinn er öllum opinn. Stjórn Blóðgjafafélags Íslands. 1. vinningur að verðmæti kr. 250.000,- *2ja vikna sólarlandaferð með leiguflugi í sumar fyrir fjölskylduna til Krítar. Vinningsupphæð miðast við hjón með tvö börn. 10 vinningar – hver að verðmæti kr. 10.000,- Vegleg bókaverðlaun, hver að verðmæti kr. 10.000,-. Getraunin Til að eiga möguleika á vinningi verður þeim sem versla á bókamarkaðinum gefinn kostur á að geta sér til um fjölda bóka sem komið verður fyrir í þar til gerðum gegnsæum bókakassa. Bókaveisla í Perlunni Reykjavík og Blómalist á Akureyri Opið alla daga kl. 10 - 19 – Einnig um helgar 22. febrúar til 4. mars P E R L A N Opið alla daga 10 - 19 og einnig um helgar. Öllum fyrirspurnum verður svarað í síma 562 9701 – Perlunni, Reykjavík og síma 897 6427 – Blómalist Hafnarstræti 26, Akureyri Aldre i meir a úrva l barn abók a SpennandiPAKKA-TILBOÐ Á bókamarkaði 2001 finnur þú m.a. ferðabækur ✑ barnabækur ✑ handbækur ✑ ljóð ✑ hestabækur ✑ spennusögur ✑ ævisögur ✑ myndabækur ✑ ættfræðirit ✑ fræðsluefni ✑ spennuefni ✑ afþreyingu ✑ skáldskap ✑ skemmtun ✑ útivist ✑ dulspeki ✑ tækni ✑ landkynningarefni ✑ ferðalög ✑ íþróttir ✑ matreiðslubækur og margt fleira. Ótrúleg t verð! Einstak t fornbók a- horn og stendur aðeins í 10 daga 250.000,-* Þú gætir unnið sólarlandaferð til Krítar að verðmæti kr. á bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda MÁLARINN Rúna Gísladóttir hefur undanfarin 16 ár starfrækt myndlistarskóla á heimili sínu á Látraströnd 7 á Seltjarnarnesi. Slík skipulögð starfsemi er ekki algeng á Íslandi, þótt einstakir málarar hafi leiðbeint einum eða fleirum eða tekið að sér að rýna í verk þeirra. Hins vegar eru hinir smærri listaskólar mjög algengir erlendis, jafnvel í dreifbýlinu. Er þá yfirleitt farið yfir grunnþætti myndlistar, undirstöðu- atriði ýmissa tækniþátta kennd, get- ur í senn verið hrein tómstundaiðja sem undirbúningur að inntökuprófi í listaskóla. Hliðstæða er tónlistar- kennsla í heimahúsum, allir þeir mörgu atvinnumenn í tónmenntum sem taka að sér að leiðbeina yngri og eldri á hljóðfæri sem hefur verið til muna algengara hérlendis. Mynd- listin hefur mætt afgangi ef frá er skilinn Myndlistarskóli Reykjavík- ur, og svo þessi skóli Rúnu Gísla- dóttur, en milli þeirra er þó langur vegur. Þetta er annars konar kennsla en á námsbrautum í fram- haldsskólum og persónulega nálgun við nemendur mun meiri, síður próf og skraddarasaumaðir áfangar í anda fjölbrautaskólakerfisins. Öll miðlun þekkingar í sjónmenntum er af hinu góða, einkum í okkar ein- angraða landi, þó lítið um skipulagða framninga á sviðinu, en í eina tíð var samsýning frístundamálara árviss viðburður svona líkt og haustsýning- ar atvinnumálara. Í æðri listaskólum var það til skamms tíma víðast brott- rekstrarsök að taka þátt í sýningum utan skólaveggjanna og mjög heil- brigð regla. Síður taka menn þátt í málþingum í hinum ýmsu fögum mál- og raunvísinda áður en þeir hafa menntað sig í þeim eða tileinkað sér einhverja undirstöðuþekkingu og er hér myndlist engin undantekn- ing, eða á ekki að vera. Kennsla í listaskólum hefur færst frá því að vera þjálfun skynrænna kennda í að búa til listamenn með sýningar sem takmark og hér er ég ekki með á nót- unum. Þroskun sköpunargáfu verð- ur hvorki hólfuð né dregin í dilka þar sem um mannrækt er að ræða og engir tveir einstaklingar eins. Myndlistarskóli getur þannig aldrei orðið annað en afmarkaður áfangi á menntunarbraut sem varir allt lífið. Naumast tilefni til að fara í saum- ana á sýningum óþroskaðra listnema og væri að auk misvísandi, einkum þegar um fyrstu varfærnislegu til- raunirnar í einkaskóla er að ræða. Verður enda ekki gert hér, að auki mjög til umhugsunar hvort þær eigi erindi inn í metnaðarfull listhús. En gjarnan má vekja athygli á framtak- inu og óska Rúnu Gísladóttur alls góðs í viðleitni hennar við að miðla mikilsverðri þekkingu. MYND – MÁL MYNDLIST M y n d l i s t a r s ý n i n g - a r s a l u r i n n M a n / S k ó l a v ö r ð u s t í g 1 4 Opið virka daga frá 10–18. Laug- ardaga10–14. Sunnudaga 14–18. Til 25. febrúar. Aðgangur ókeypis. NEMENDASÝNING MYNDLISTARSKÓLA RÚNU GÍSLADÓTTUR Bragi Ásgeirsson Maria Teresa Jónsson, Bátur. ÁTÖK og aulafyndni eru aðalein- kenni myndar sem greinilega er ætl- að að reyna sig um eina helgi eða svo, í byggðum þeldökkra minni- pokamanna í Bandaríkjunum. Helst að þar sé að finna einhverja sem eru móttækilegir fyrir endalausu kjafta- blaðri, fíflagangi og útvötnuðum töffarastælum sem einkenndu „leik- stíl“ löngu genginna, leikara á borð við Fred Williamson, Richard Ro- undtree og aðra af sauðahúsi blökkumannamynda áttunda ára- tugarins. Hvaða erindi þessi af- róameríski uppvakningur á til mjallahvítra mörlanda er hulin ráð- gáta. Innihaldið og efnismeðferðin er svo útjöskuð og húmorslaus að maður óskar sér að vera kominn á endursýningu Big Momma’s House, eða jafnvel einhverju þaðan af verra – ef það finnst. Myndin greinir frá tveimur náungum; Chase (Orlando Jones) og Freddy Tiffany (Eddie Griffin), sem eru að flækjast hvor fyrir öðrum og lifa af hverja kúlnadembuna á eftir annarri, og aðrar ámóta lífshættu- legar uppákomur – þó maður eigi þá ósk heitasta að þeir verði einsog gatasigti strax í upphafsatriðinu. En áfram slugsast þeir þó í 90 mínútur, sem verka einsog 90 klukkustundir á hvern sæmilega óbrjálaðan áhorf- anda – sem hefur tæpast augun af klukkunni síðustu 89 mínúturnar. Sannast hér helst hið fornkveðna; „Það lifir lengst sem hjúum er leið- ast“. Það eina sem kemur á óvart er að myndin mun vera byggð á sögu eftir breska skáldjöfurinn Graham Greene. Sú bygging hlýtur að vera mjög losaraleg, ætla ég að vona. Tveir á botninum REGNBOGINN K v i k m y n d i r Leikstjóri George Gallo. Handrits- höfundur Guy Elmes, byggt á skáldsögu e. Graham Greene. Tónskáld Graeme Revell. Kvikmyndatökustjóri Del Carlo. Aðalleikendur Orlando Jones, Eddie Griffin, Gary Grubbs, Daniel Roebuck, Edward Herrmann. Sýningartími 90 mín. Bandarísk. Touchstone. Árgerð 2001. DOUBLE TAKE  Sæbjörn Valdimarsson GUNNAR Eyjólfsson leikari verður 75 ára laugardaginn 24. febrúar. Af því tilefni ætlar hann að flytja ein- leik á Stóra sviðinu kl. 20 á afmæl- isdaginn, sem hann nefnir Uppgjör við Pétur Gaut. Gunnar flytur valda kafla úr þessu verki og tengjast þeir flestir á einn eða annan hátt konunum í lífi Péturs Gauts. Gunn- ar lék Pétur Gaut í Þjóðleikhúsinu 1962 og vakti þessi ungi leikari at- hygli og hrifningu en hann var fast- ráðinn við Þjóðleikhúsið 1961. Nú gerir hann endanlega upp við þessa stórbrotnu persónu, tæplega fjörutíu árum síðar. Höfundur Pétur Gauts er Henrik Ibsen, þýðandi verksins er Einar Benediktsson, ljósameistari Þjóð- leikhússins Páll Ragnarsson hann- ar lýsingu við einleikinn og Þór- hallur Sigurðsson hefur umsjón með uppfærslunni. Einleikurinn tekur um eina og hálfa klukkustund í flutningi. Morgunblaðið/Kristján Gunnar Eyjólfsson leikur einnig í leikritinu Sniglaveislunni eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hjá Leikfélagi Akureyrar um þessar mundir. Uppgjör við Pétur Gaut

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.