Morgunblaðið - 21.02.2001, Qupperneq 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 35
ÞANN 21. septem-
ber 1999 gerði bæjar-
stjórn Akureyrar svo-
fellda bókun vegna
umræðna um framtíð
Reykjavíkurflugvallar:
„Bæjarstjórn Akur-
eyrar vill minna á þá
ábyrgð og þær skyldur
sem höfuðborg lands-
ins ber gagnvart lands-
mönnum öllum. Í höf-
uðborginni er miðja
stjórnsýslu Íslands og
mennta-, menningar-
og viðskiptalíf landsins
á þar einnig sínar höf-
uðstöðvar.
Að mati bæjar-
stjórnar Akureyrar eru greiðar
samgöngur allra landsmanna að og
frá Reykjavík forsenda þess að höf-
uðborgin geti rækt hlutverk sitt
sem skyldi. Við umræður um mögu-
legar breytingar á einu af lykilatrið-
um þess sem gerir Reykjavík að
höfuðborg allra landsmanna verður
jafnframt að taka til umræðu önnur
verkefni sem hafa verið fóstruð inn-
an borgarmúranna. Bæjarstjórn
Akureyrar hvetur borgarstjórn til
að hafa framangreind atriði í huga
við umfjöllun sína um framtíðar-
staðsetningu innanlandsflugvallar-
ins.“
Lagt hefur verið út af þessari
samþykkt bæjarstjórnar Akureyrar
með þeim hætti að þess sé krafist að
ekki verði hróflað við flugvellinum í
Reykjavík. Ég vil af þessu tilefni
taka skýrt fram að svo er ekki. Það
er mál Reykvíkinga hvort efnt er til
almennrar atkvæðagreiðslu í borg-
inni vegna flugvallarins en það er að
mínu mati mál allra landsmanna ef
draga á úr möguleikum annarra en
íbúa höfuðborgarsvæðisins til sam-
skipta við hjarta þjóðfélagins. Með-
an Reykjavík er höfuðborg Íslands,
miðstöð stjórnsýslu landsins, mátt-
arstoð og miðstöð menningarlífs,
viðskiptalífs og samgangna í landinu
þá lít ég svo á að höfuðborgin sé
einnig mín.
Í mínum huga snýst þessi um-
ræða ekki eingöngu um það hvort
leggja eigi niður flugvöll í Reykja-
vík. Eins og svo oft áður í umræðu
um opinber verkefni vill gleymast
að tvær hliðar eru á öllum málum.
Það að leggja af miðstöð innan-
landsflugs í Reykjavík þýðir grund-
vallarbreytingu á samgönguháttum
landsins því innanlandsflug í núver-
andi mynd mun leggjast af. Þar með
er kallað á uppstokkun á öðrum
þáttum sem sameiginlega hafa verið
byggðir upp af landsmönnum öllum.
Við lifum á þeim tímum að Ísland
er í harðri alþjóðlegri samkeppni
um fólk á öllum sviðum mannlífsins.
Uppbygging samgöngumannvirkja
á síðustu áratugum hefur óumdeil-
anlega bætt samskipti innan og á
milli þeirra svæða sem
þau þjóna. Sýnt er þó
að mannvirkin ein og
sér leysa ekki sjálf-
krafa úr þeim vanda
sem hrjáir alla búsetu
í landinu, þar með talið
í Reykjavík. Til þess
að vinna bug á þeirri
meinsemd duga engar
skottulækningar í lík-
ingu við það verklag
sem viðhaft er í „flug-
vallarmálinu“. Flestir
geta hins vegar verið
sammála um það að
flugvöllur í höfuðborg-
inni auðveldar Íslend-
ingum að nýta kosti
þessarar dreifbýlu og fámennu eyju
í Norður-Atlantshafi.
Í kjölfar opins fundar um málefni
flugvallarins, sem haldinn var í
Reykjavík þann 18. febrúar sl., ligg-
ur fyrir að meirihluti borgarfulltrúa
vill völlinn burt úr borginni. Meðan
borgarfulltrúar nefna ekki annað
svæði undir flugvöll innan lögsögu
sinnar eru þeir að óbreyttu að draga
úr möguleikum annarra lands-
manna til samskipta við miðju ís-
lensks samfélags. Í þessari afstöðu
felast m.a. þau skilaboð að þótt
Reykjavíkurborg sé reiðubúin til að
vista þjónustu og stjórnsýslu rík-
isins innan borgarmarkanna þá telja
borgarfulltrúarnir sig ekki skuld-
bundna til að leggja af mörkum
ásættanlegt aðgengi þeirra er fjarri
búa.
Er ekki fólgin í þessari afstöðu
ákveðin þversögn sem kallar á að
menn skilgreini verkefni og þjón-
ustuhlutverk höfuðborgar landsins?
Skyldur höf-
uðborgar?
Kristján Þór
Júlíusson
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
Reykjavíkurflugvöllur
Meðan Reykjavík
er höfuðborg Íslands,
miðstöð stjórnsýslu
landsins, lít ég svo á,
segir Kristján Þór
Júlíusson, að höfuð-
borgin sé einnig mín.
KARLMENN
Saw Palmetto
FRÁ
Tvöfalt sterkari
APÓTEKIN
D
re
if
in
g
J
H
V
Umboðsmenn: Volti ehf., Vatnagörðum 10. Raftækjav. Skúla Þórssonar, Álfaskeiði 31, Hafnarf.,
Bókabúð Keflavíkur. Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi. Tengill, Sauðárkróki. Ískraft, Akureyri.
Öryggi ehf., Húsavík. Geisli, Vestmannaeyjum. Árvirkinn hf., Selfossi.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi.
Sími 554 4443. Fax 554 4102.13
90
.2
7
P - t o u c h 6 5
* Meðan birgðir endast.
Tilboðsverð kr. 2.750,-*
Mjög
got
t
verð
!
H
TH
H
Ö
N
N
U
N
Á silfur, kopar
o.fl. Lyktarlaus,
engin kemisk
efni. Berist á með
rökum klút.
Frábær virkni.
FÆGILÖGUR
Ábyrgð
áreiðanleiki
Gullsmiðir
AÐ NÝLEGA af-
stöðnu rétt einu verk-
falli framhaldsskóla-
kennara og þegar nú er
yfirstandandi verkfall
flugumferðarstjóra
finnst mér tímabært að
menn velti fyrir sér
hvort verkfallsréttur og
nánast æviráðning geti
farið saman í nútíma-
þjóðfélagi. Svar mitt er
nei, m.a. af neðantöld-
um ástæðum:
Síendurtekin
verkföll kennara
bitna á nemendum af
fullum þunga en ekki
vinnuveitandanum
sem er ríkisvaldið.
Tilsvarandi má segja að yfir-
standandi verkfall flugumferðar-
stjóra bitni á almenningi, bæði
innlendum og erlendum, sem gist-
ir landið.
Almenningur og nemendur eiga
ekki annarra kosta völ um þjónustu
en til hinnar ríkisreknu þjónustu.
Í hvorugu þessara tilvika hafa
aðalþolendurnir, börnin og al-
menningur, nokkur tök á að leysa
deiluna með því að semja við verk-
fallsmenn.
Báðum þessum aðilum er því hald-
ið sem gíslum í þessum deilum.
Þegar samið var við ríkisstarfs-
menn á áttunda áratugnum um að
þeir skyldu hafa verkfallsrétt rétt
eins og aðrir launþegar (nokkrir
hópar voru þó undanskildir þá, svo
sem löggæslumenn og flugumferðar-
stjórar) þótti mörgum skjóta skökku
við sökum allt annarrar réttarstöðu
þeirra en annað launafólk nýtur. Þá-
verandi fjármálaráðherra leitaðist
við að draga úr áhyggjum þeirra er
töldu þetta óheillaspor með því að
halda því fram að allar áhyggjur
væru ástæðulausar vegna þess að
flóknar reglur sem
ættu að gilda um slík
verkföll myndu koma í
veg fyrir þau, a.m.k. að
mestu. Hann reyndist
ekki sannspár.
Flugumferðarstjór-
ar fengu verkfallsrétt
vegna úrskurðar
kjaradóms fyrir fáum
árum. Dómurinn taldi
það mannréttindabrot
skv. stjórnarskrá og
brot á jafnréttislögum,
að þeir hefðu ekki slík-
an rétt. Því má
spyrja: Er ekki upp-
lagt fyrir fólk á al-
mennum vinnumark-
aði að leita til félagsdóms til að fá úr
því skorið hvort það sé ekki brot á
mannréttindum þess og jafnrétti að
það skuli ekki hafa æviráðningar-
rétt?
En hvað skilur að opinbera starfs-
menn og aðra á vinnumarkaði? Þetta
má m.a. nefna:
Vinnudeilur milli almennra
launþega og atvinnurekenda á
frjálsum markaði eru gerólíkar
stöðunni hjá hinu opinbera.
Á almenna markaðnum eru at-
vinnurekendur að leitast við að
uppfylla kröfur kaupenda um verð
á vörum og þjónustu. Með vaxandi
frjálsræði neytenda vegna afnáms
allskonar séríslenskra hafta og
öðru ófrjálsræði eru neytendur
ekki bundnir lengur af innlendri
framleiðslu. Verði hún ósam-
keppnishæf leita menn annað.
Þegar hið opinbera gerir samn-
inga sem valda kollsteypu á launa-
kjörum á vinnumarkaði eru skatt-
ar einfaldlega hækkaðir til að
standa undir kostnaðinum. Al-
menningur borgar því hann á ekki
annarra kosta völ.
Milli vinnudeilna í verkföllum
eru ríkisstarfsmenn nánast
ósnertanlegir sökum ævilangrar
ráðningar og margvíslegra
ákvæða þess efnis, að ekki má einu
sinni endurskipuleggja störf
þeirra, t.d. með því að færa þá til í
starfi.
Hvað er þá til ráða til að breyta
þessu óviðunandi ástandi? Eftirfar-
andi má nefna:
Skilgreina þarf hverjir geti
verið opinberir starfsmenn og
hverjir ekki.
Það má einfaldlega gera með því
að opinberir starfsmenn séu einung-
is þeir sem semja við ríkisvaldið og
hafa ekki verkfallsrétt.
Allir aðrir launamenn starfi þá
hjá fyrirtækjum á almennum
vinnumarkaði og hjá almenningi
þar sem frjáls samkeppni ríkir og
allir hafa verkfallsrétt.
Verkfallsréttur opin-
berra starfsmanna –
tímaskekkja eða hvað?
Ragnar S.
Halldórsson
Höfundur er verkfræðingur.
Verkföll
Í hvorugu þessara
tilvika hafa aðalþol-
endurnir, börnin og
almenningur, segir
Ragnar S. Halldórs-
son, nokkur tök á að
leysa deiluna með því
að semja við verk-
fallsmenn.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema