Morgunblaðið - 21.02.2001, Qupperneq 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 41
SVEIT Zia Mahmood sigraði með
nokkrum yfirburðum í sveitakeppn-
inni sem lauk sl. mánudagskvöld.
Sveit Zia hlaut 201 stig eða rúmlega
20 stig í leik en spilaðar voru 10 um-
ferðir eftir Monrad-fyrirkomulagi. Í
sigursveitinni spiluðu ásamt Zia þeir
Barnet Shenkin, Ralph Katz og
George Mittelman.
Staðan fyrir síðustu umferðina var
spennandi. Sveit Zia hafði þá 176
stig, sænska sveitin með Anders
Morath í fararbroddi hafði 174 stig,
Pólska landsliðið var með 173 stig,
Subaru-sveitin með 168 og Þrír
frakkar voru með 160 stig.
Zia hafði spilað við allar efstu
sveitirnar og það var hlutskipti
Þriggja frakka að spila við þá félaga í
síðustu umferðinni. Sveit Þriggja
frakka sá aldrei til sólar í leiknum og
fékk aðeins 4 stig á móti 25 og þar
með gulltryggði Zia sér sigurinn
hvernig sem aðrir leikir færu.
Anders Morath spilaði gegn Pól-
verjunum. Það var hörkuleikur sem
endaði með sigri Pólverjanna 16-14.
Svo naumt var á mununum að einn
slagur til eða frá breytti því hvor
sveitin endaði í 2. sæti.
Subaru-sveitin var eina íslenska
sveitin sem átti möguleika á einu af
toppsætunum, spilaði gegn Hackett-
bræðrum í lokaumferðinni og varð
að játa sig sigraða 12-18.
Lokastaða efstu sveita varð ann-
ars þessi:
Zia Mahmood 201
Pólland 189
Anders Morath 188
Subaru-sveitin 180
La Café 178
Sveit Hackett-bræðra 175
Sveit Malinovski 173
Sjónhverfingar
Zia er þekktur fyrir að beita ýms-
um sjónhverfingum við spilaborðið.
George Mittelman hefur oft spilað
með Zia í sveit á Bridshátíð og hann
sýndi það í leik gegn Hackett-bræðr-
um að hann kann einnig ýmislegt
fyrir sér.
Norður
♠ D108
♥ 1063
♦ ÁK9
♣ Á942
Vestur Austur
♠ G932 ♠ K765
♥ DG4 ♥ Á98
♦ 87 ♦ D103
♣ KG74 ♣ D86
Suður
♠ Á4
♥ K752
♦ G6542
♣ 103
Þegar horft er á öll spilin virðist
ekki erfitt að enda í 1 grandi í NS en
við bæði borð varð lokasamningur-
inn 2 hjörtu í suður. Í opna salnum
opnaði Jason Hackett í norður á 1
laufi, Justin bróðir hans í suður sagði
1 hjarta og Jason sagði 1 grand. Nú
taldi Justin að betra væri að spila 2
tígla og sagði 2 lauf, sem bað norður
um að segja 2 tígla. Jason hlýddi því
hins vegar ekki, sagði þess í stað 2
hjörtu sem urðu lokasamningurinn.
Við hitt borðið spilaði vestur út
spaða og þegar sagnhafi setti tíuna í
blindum var eftirleikurinn auðveldur
og 8 slagir voru niðurstaðan. Raunar
virðast spilin liggja mjög vel fyrir
sagnhafa og áhorfendur í sýningar-
salnum á Hótel Loftleiðum voru viss-
ir um að spilið myndi falla.
Mittelman velti útspilinu hins veg-
ar talsvert lengi fyrir sér en spilaði
síðan út laufakóng! Justin drap slag-
inn með ás og spilaði strax laufi á
tíuna heima. Ralph Katz í austur var
með á nótunum, stakk upp drottn-
ingunni og spilaði meira laufi að
bragði.
Nú leit út fyrir að vestur hefði
spilað út frá Kx í laufi. Justin ákvað
því að henda spaða heima en Mitt-
elman fékk slaginn á gosann og spil-
aði fjórða laufinu. Það trompaði Katz
með áttunni og Justin varð að yfir-
trompa með kóng. Nú átti vörnin
örugga þrjá slagi á tromp, auk laufa-
slaganna tveggja og hlaut síðan að fá
tígulslag í fyllingu tímans. 1 niður og
6 stig til Zia sem vann leikinn 21-9.
Bónorð
Í mótslok þakkaði Zia Mahmood
að venju fyrir sig og aðra erlenda
gesti. Hann sagði m.a. að Bridshá-
tíðin væri orðin þekkt víða um heim
og ættu Flugleiðir sem væri meðal
mótshaldaranna stóran þátt í því.
Hann sagði að það væri alltaf jafn
gaman að koma til Íslands til að
spila. Hann væri að koma á heima-
slóðir ef svo mætti að orði komast.
Þá sagði hann að hann þyrfti aðeins
að biðja einn mann afsökunar í móts-
lok en það væri spilafélagi sinn,
Barnet Shenkin. Hann hefði iðulega
nöldrað í honum en Shenkin væri
örugglega ljúfasti meðspilari sem
hægt væri að spila við og hann gæti
vel hugsað sér að giftast honum ef
hann væri nokkrum árum yngri.
Mótsstjórnin var í öruggum hönd-
um Stefaníu Skarphéðinsdóttur.
Keppnisstjórar voru Sveinn Rúnar
Eiríksson og Eiríkur Hjaltason. Í
mótslok afhentu Guðmundur
Ágústsson forseti Bridssambandsins
og Addý Ólafsdóttir f.h. Flugleiða
verðlaunin. Sex efstu sveitirnar
hlutu peningaverðlaun. Fyrir efsta
sætið voru 3.400 dalir eða um 290
þúsund kr.
Áttundi sigur Zia
Mahmood á Bridshátíð
Morgunblaðið/Arnór
Zis Mahmood þakkaði fyrir sig að venju eftir að hafa tekið við 1. verð-
laununum í Flugleiðamótinu. Til hliðar standa sveitarfélagar hans,
George Mittelman, Ralph Katz og Bernet Shenkin.
Pólska liðið sem endaði í 2. sæti í Flugleiðamótinu. Frá vinstri eru
Krzysztof Jassem, Apolinary Kowalski, Piotr Tuszynski, Guðmundur
Ágústsson, forseti Bridssambands Íslands, og Jacek Romanski.
BRIDS
B r i d s h á t í ð
HÓTEL LOFTLEIÐIR
18.–19. febrúar – 75 sveitir
tóku þátt í mótinu.
Arnór G. Ragnarsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
VINSTRIHREYFINGIN – grænt
framboð í Skagafirði efnir til al-
menns íbúafundar miðvikudaginn
21. febrúar meðal Skagfirðinga um
lokun pósthúsa og breytingar á póst-
þjónustu í héraðinu. Fundurinn
verður haldinn í Höfðaborg, Hofsósi,
og hefst klukkan 20.
Fulltrúar Íslandspósts hf., Áskell
Jónson, framkvæmdastjóri mark-
aðs- og sölusviðs, og Hörður Jóns-
son, framkvæmdastjóri sölu- og
þjónustustaða, koma á fundinn og
gera grein fyrir þeim miklu breyt-
ingum sem fyrirhugaðar eru á
rekstri pósthúsa og póstþjónustu í
héraðinu.
Á þessum fundi gefst íbúum
Skagafjarðar kostur á að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri og reyna
að hafa áhrif á framvindu þessara
mála þó seint sé, segir í fréttatil-
kynningu frá VG. Jón Bjarnason,
þingmaður VG, mun mæta á fundinn.
Opinn fundur um
póstþjónustu í Skagafirði
VG á móti kostun veðurfregna
Í frétt á bls. 2 í Morgunblaðinu
laugardaginn 17. febrúar sl. er
minnst á umfjöllun útvarpsráðs um
kostun veðurfregna. Þar er sagt að
varaformaður ráðsins hafi einn bókað
mótmæli gegn þeirri ráðstöfun. Þar
er rangt farið með staðreyndir, þar
sem undirrituð, sem er fulltrúi
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í útvarpsráði, lagðist ein-
dregið gegn kostun veðurfregna í
sjónvarpi og skrifaði raunar grein um
málið, sem birtist í Morgunblaðinu
29. september sl. undir fyrirsögninni
„Hver býður best í veðrið?“. Um mál-
ið var fjallað á nokkrum fundum út-
varpsráðs á fyrstu vikum síðasta árs,
og þegar málið kom til lokaafgreiðslu
í ráðinu 28. mars. Það ár fékk það
samþykki fulltrúa Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar. Við hin greiddum
atkvæði gegn því, þ.e. fulltrúi Fram-
sóknarflokks og fulltrúi Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs.
Kristín Halldórsdóttir.
Árétting
Vegna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um fund um flugvallarmálið í
Ráðhúsinu sl. sunnudag er rétt að
taka fram að viðtöl við Ingu Jónu
Þórðardóttur og Halldór Ásgríms-
son, sem frásögninni fylgdu, fóru
fram daginn eftir fundinn að gefnu
tilefni en þau voru ekki meðal ræðu-
manna á fundinum sjálfum, eins og
jafnvel mátti álykta af framsetningu
fréttarinnar.
Leiðrétt
DR. JEFFREY D. Wilhelm, pró-
fessor við Háskólann í Maine í
Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur
um læsi og áhugahvöt í lestri í
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, Frí-
kirkjuvegi 1, fimmtudaginn 22.
febrúar kl.15:30–17. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og eru kennarar sér-
staklega hvattir til að mæta, ekki
síst tungumálakennarar, móður-
málskennarar, sérkennarar, for-
eldrar og aðrir áhugamenn um góða
kennsluhætti. Í fréttatilkynningu
segir: Í kennslurannsóknum sínum
hefur Jeffrey m.a. leitast við að
svara því hvernig lestrarferli
áhugasamra lesenda sé háttað, hvað
það sé við hefðbundna kennslu sem
orsaki námsleiða hjá ungum les-
endum og hvernig auka megi áhuga
nemenda á lestri og námi. Jeffrey
hefur þróað ýmsar leiðir til að líkja
eftir lestrarferli áhugasamra les-
enda, meðal annars listrænar og
leikrænar aðferðir sem er ætlað að
breyta upplifun áhugalítilla nem-
enda á skólagöngu sinni og end-
urvekja áhuga þeirra á náminu.
Einnig hefur hann nýtt möguleika
tölvutækninnar til að færa námið
nær reynsluheimi nemenda.
Dr.Jeffrey D.Wilhelm kenndi í
þrettán ár á miðframhaldsskólastigi
áður en hann lauk doktorsprófi frá
Wisconsin-háskóla í Madison og
sneri sér að háskólakennslu í Maine
fyrir um fimm árum. Bækur hans
um kennslumál hafa hlotið góðar
viðtökur og margvíslegar viður-
kenningar og er sú nýjasta vænt-
anleg úr prentsmiðju um miðjan
mars.
Fyrirlestur
um læsi og áhugahvöt