Morgunblaðið - 21.02.2001, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.02.2001, Qupperneq 48
Pain of Salvation á Íslandi PAIN of Salvation er ábyggi-lega lítt þekkt nafn hér-lendis en sveitin hefur ver- ið að skapa sér nafn erlendis að undanförnu sem ein besta fram- sækna þungarokkssveit heims. Þessi geiri, framsækið þungarokk („progressive metal“), nýtur ekki mikillar lýðhylli en er engu að síð- ur afar virkur og lifandi. Þar standa Pain of Salvation í fremstu röð um þessar mundir, en í fyrra kom út þeirra þriðja plata, The Perfect Element part I, og þykir þar vera á ferðinni mikil meist- arasmíð. Áður hefur sveitin gefið út plöturnar Entropia (1997) og One Hour by the Concrete Lake (1998). Eins og nöfnin gefa til kynna er ekki beint vinsældapopp hér á ferð; tekist er á við stór og mikil þemu með „stórum“ og flóknum lagasmíðum. Þungarokk- ararnir hér eru fremur hæglátir hugsuðir en blóðþyrstir brjálæð- ingar en þessi seinni lýsing nýtur jafnan vinsælda hjá vanhugsandi fólki. En Daniel var spakur; séntil- maður út í eitt. Eins og þeir eru nú jafnan, þessir þungarokkarar. „Meira svona rokk og ról“ „Ó, hæ!“ segir glaðvær rödd í símanum. Við skiptumst á nokkr- um kurteisisorðum og viðtalið hefst. Daniel er hinn vinalegasti og er áhugasamur um bráðkomandi Íslandsferð. „Ég hef aldrei komið þangað áður. Við stoppum á leið okkar til Chicago þar sem við er- um aðalnúmerið á tónlistarhátíð- inni Progpower USA.“ Rætur Pain of Salvation liggja í sveitinni Reality sem Daniel (f. 1973) stofnaði er hann var aðeins ellefu ára. „Það var meira svona „rokk og ról“, þótt við værum að strita við að vera þungarokkarar. Þegar maður er ellefu ára endar það einhvern veginn þannig. Við unnum nokkrum sinnum hljóm- sveitakeppni hér í Svíþjóð og seinna breyttist nafn sveitarinnar í Pain of Salvation.“ Það koma ýmsar sveitir upp í hugann er maður hlustar á Pain of Salvation: Rush, King Crimson, Dream Theater, Anathema, Queensryche, Faith No More, Marillion, Nocturnus. Það er og mikið stílaflökt í gangi; fúnk, dauðarokk, djass og þungarokk. „Fyrsta platan er nokkuð hrárri en nýjustu plöturnar, bæði kemur þar til hljómurinn og einnig eru lögin frá lengra tímabili, sum samdi ég þegar ég var 17 ára, t.d.,“ segir Daniel þegar hann er beðinn um að lýsa tónlistarlegri þróun sveitarinnar. „Nýju plöturn- ar eru mun heildstæðari.“ Daniel segir að kimi framsækins þungarokks í Svíþjóð sé smár. „Ég hafði ekki heyrt á neina slíka sveit minnst fyrr en við vorum kallaðir þessu nafni. Síðan fórum við að rekast á svipaðar sænskar sveitir, en aldrei þó í Svíþjóð! (hlær). Við kynntumst þeim öllum er við vor- um að spila erlendis. Ætli þekkt- asta þungarokkssveitin hjá okkur núna sé ekki Hammerfall. Og sænsku blöðin fóru nú ekki að skrifa um hana fyrr en hún fór að vekja á sér athygli erlendis [eitt- hvað sem maður ætti nú að kann- ast við hér á landi! Innsk. AET.].“ Þekki ekki Genesis Eftir að hafa verið spurður spjörunum úr um hvort hann sæki áhrif sín frá dómsdagsrokki („doom-metal“), dauðarokki eða hefðbundnu framsæknu rokki svarar Daniel: „Ég held að Faith No More hafi nú haft mest áhrif á mig. En svo eru það sveitir eins og Bítlarnir og Queen sem ég met af- ar mikils. Ég tel til að mynda að Abbey Road sé ein af framsæknari plötum allra tíma. Hvað framsækið rokk almennt varðar, eins og t.d. Genesis (eins og þeir voru í ár- daga), þá er We Can’t Dance (1991) eina platan sem ég hef heyrt með þeim!“ Textar Pain of Salvation eru all- ir eftir Daniel, en einnig semur hann öll lög og sér um alla list- ræna hönnun á plötuumslögunum. Heimasíða sveitarinnar er einnig ofin af honum! Hver plata byggist á einhverri heildarhugmynd og nýjasta platan, The Perfect Ele- ment part I, þykir vera æði per- sónuleg. „Ég myndi ekki segja að hún væri beint sjálfsævisöguleg,“ segir Daniel hugsi. „Platan fjallar um hvernig fólk, sem hluti af sam- félaginu, er í stöðugri baráttu við það að reyna að passa inn í fyr- irfram ákveðnar hugmyndir um hvernig skuli lifa lífinu. Fyrirbæri eins og t.d. skóli koma þarna inn í þannig að platan byggist auðvitað að hluta til á persónulegri reynslu. En að mestum hluta byggist sagan á fólki sem maður hefur kynnst á lífsleiðinni og menningarlegum miðlum eins og bókum, sjónvarpi og öðru slíku sem maður hefur drukkið í sig á meðan.“ Haukurinn rauði Daniel kannast vel við Artch, norsku þreskirokkssveitina („thrash-metal“) sem Eiríkur Hauksson söng fyrir á sínum tíma, þá undir nafninu Erik Hawk. Plata þeirra Another Return to Church Hill (1988) hlaut mikið lof á sínum tíma. „Já, ég vissi ekki að söngvarinn væri íslenskur,“ segir Daniel og hlær við er ég segi honum frá Hawk-nafninu. „Ég var aldrei hrif- inn af þessum listamannsnöfnum en svona var þetta svolítið á ní- unda áratugnum. Eins og t.d. Yngwie Malmsteen (fræg sænsk gítarhetja), þar sem fornafnið er einhvers konar amerískur útúr- snúningur á hefðbundnu sænsku nafni. En ég heyrði plötu Artch á sínum tíma og var mjög hrifinn af titillaginu. Mér fannst restin af plötunni hins vegar ekki eins góð... en söngurinn var afbragð.“ Tónleikar Pain of Salvation verða á Kaffi Reykjavík á morgun eins og áður segir. Hljómsveitin Dead Sea Apple hitar upp. Sáluhjálp úr Svíaríki Pain of Salvation: Daniel Gildenlow er fyrir miðri mynd. Framsækna þungarokkssveitin Pain of Salvation frá Svíþjóð held- ur tónleika á Kaffi Reykjavík á morgun. Arnar Eggert Thorodd- sen fræddist um sveitina hjá leið- toganum, Daniel Gildenlow. EINS OG Morgun- blaðið hef- ur áður greint frá mun Björk syngja á Óskars- verðlauna- hátíðinni sem haldin verður 25. mars nk. í Los Angeles, þar sem hún kemur fram með hljómsveit og 55 manna sinfóníusveit. Nú hefur það hins vegar verið stað- fest að Thom Yorke, söngvari Radiohead, muni syngja þar með henni lagið „I’ve seen it All“ úr kvik- myndinni Dancer in the Dark, sem er eitt af fimm kvikmynda- lögum tilnefnt til Óskarsverð- launanna. Björk er höfundur lagsins en þeir Lars von Trier og Sjón sömdu textann. Thom söng einmitt lagið ásamt Björk á plötunni Selmasongs, en leikarinn Peter Stormare söng það hins vegar í kvikmyndinni. Björk og Thom þykir áreið- anlega ánægjulegt að fá að koma fram saman. Thom hefur löngum lýst yfir aðdáun sinni á Björk, og Björk hefur greint frá í blaða- viðtölum hversu gaman henni þótti að vinna lagið með honum. Í breska tímaritinu Q var hún spurð að því hvort eitthvað meira væri á milli þeirra en tónlistar- legt samband, og svaraði hún því til að þau væru bara vinir en góð saman því þau væru mjög sam- mála um söngstíl, um að gera enga „acrobatics“ eða fimleika með röddinni. Margir hafa líka heillast af samsöng þeirra í þessu lagi, og það er vonandi að Óskarsakademían geri það líka. Thom syngur með Björk 73. Óskarsverðlaunahátíðin Björk og Thom syngja saman á Óskarnum. FÓLK Í FRÉTTUM 48 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ M enn inga rm iðs töð in G e rðube rg Gunnar Reyni Sveinsson, Jón Hlöðver Áskelsson, John Speight, Mist Þorkelsdóttur, Óliver Kentish, Skúla Halldórsson, Tryggva M. Baldvinsson og Þorkel Sigurbjörnsson Meðal efnis, frumflutningur á nýjum einsöngslögum eftir: Ljóðatónleikar Gerðubergs miðvikudag 21. febrúar 2001 kl. 20.00 Ólafur Kjartan Sigurðarson baríton og Jónas Ingimundarson píanóleikariAðgangseyrir kr. 1000                                     ! Anddyri LEIKRIT ALDARINNAR Í KVÖLD: Mið 21. feb kl. 20 Árni Ibsen fjallar um verkið „Uppstigning” eftir Sigurð Nordal. Leikarar lesa valda kafla úr verkinu. Litla svið - VALSÝNING ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab Fim 22. feb kl. 20 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 25. feb kl. 19 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 3. mars kl. 19 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 4. mars kl. 20 Stóra svið SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason Fös 23. feb kl. 20 – UPPSELT Fös 2. mars kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 10. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Tilnefnt til Menningarverðlauna DV: „...verk- ið er skopútfærsla á kviðlingaáráttu landans í bland við upphafna aðdáun á þjóðskáldun- um... undirtónninn innileg væntumþykja... fjörugt sjónarspil.” Litla svið ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Fös 23. feb kl. 20- ÖRFÁ SÆTI LAUS Fös 2. mars kl. 20- ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 10. mars kl. 19 ATH. TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI! Litla svið BARBARA OG ÚLFAR-SPLATTER: PÍSLARGANGAN Lau 24. feb kl. 19– ÖRFÁ SÆTI LAUS Trúðarnir með barnssálina og blóðugu sýn- ingarnar! Einstök sýning með Halldóru Geir- harðsdóttur og Bergi Þór Ingólfssyni. Sýningin er bönnuð börnum innan 12 ára! Stóra svið LED ZEPPELIN - TÓNLEIKAR Lau 24. feb kl. 19.30 og kl. 22.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir flytur tónlist Led Zeppelin. Meðal gesta sem einnig koma fram eru Pink Floyd og Deep Purple. Stóra svið MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Sun 25. feb kl. 14 – UPPSELT Lau 3. mars kl. 13 - UPPSELT Sun 4. mars kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 11. mars kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 18. mars kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Lau 24. mars kl. 13 – UPPSELT Sun 25. mars kl. 14 Sun 1. apríl kl. 14 SÝNINGUM LÝKUR Í MARS Stóra svið- ÍD KRAAK EEN OG KRAAK TWEE e. Jo Strömgren POCKET OCEAN e. Rui Horta Lau 3. mars kl. 19 Sun 4. mars kl. 20     '0#&' &(   !0&,    ,0#& &( ?0 '  50# &( @0 (  0#? &( (0 5  0#&' &( &0 &!               /     ,        0 0  +    (   !""#$%% & '      552 3000 Opið 11-19 virka daga Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 lau 24/2 UPPSELT fös 2/3 örfá sæti laus fös 9/3 laus sæti  SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG fös 23/2 kl. 20 örfá sæti laus lau 3/3 nokkur sæti laus lau 10/3 laus sæti fös 16/3 laus sæti WAKE ME UP before you go go fim 22/2 kl. 20.00 UPPSELT fös 23/2 kl. 24.00 örfá sæti laus sun 25/2 kl. 20 örfá sæti laus 530 3030 Opið 12-18 virka daga SNIGLAVEISLAN kl. 20 Sala hefst þriðjud. 20. feb. Frumsýn. mið 21/3 UPPSELT 22. mars, 24. mars kl. 16, 25. mars, 27, mars, 28. mars, 29. mars, 30. mars, 1. apríl MEDEA - Aukasýningar fös 23/2 kl. 20 lau 24/2 kl. 20 örfá sæti laus sun 25/2 kl. 20 Á sýningardögum er miðasalan opin fram að sýn- ingu og um helgar opnar hún í viðkomandi leik- húsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið. Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16 virka daga. midasala@leik.is — www.leik.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00: ()*+,-*&.,-*-/01 2 )   9#&'A&   3 'A' - 20*4., 56-*-6 6    &78        5,     $#9$ '' : ;.(<066-*.<<  /  +&,A&! ''   5 ''  3!A'!    5 ''  3A'! ''   5 ''   @A'! ''   5 ''=  3&,A'!    5   3A!!   5     3@A!!    /&,+- 4 +*2>6./2     8 ?  ?   8 9 A' ''   #&A' ''  3 (A' ''  3 5A' ''  3 #&'A' '' Smíðaverkstæðið kl. 20.00: /&,+- 4 +*2>6./2  9  &&A& ''     &!A& ''    &,A& ''  3 &@A& ''  5A'     3#A' ''  3A' ''    !A' ''=    ,A' ''  3@A'  &A'    &&A' '' &,A' ''  3 &A' ''  3#'(A' '' Litla sviðið kl. 20.30: 2;3(/.<2<@ 7A8(  9#&'A&   3 &!A& #&A'  'A' BBB      C   +     (  /   ' =D "E="F3 =  "E=$%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.