Morgunblaðið - 21.02.2001, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
að bjóða bæjarstjórn Akureyrar-
bæjar til viðræðna um hugsanlega
sameiningu Rafmagnsveitna ríkis-
ins (RARIK) og Veitustofnana Ak-
ureyrarbæjar (VA). Ákvörðunin var
tekin í kjölfar skýrslu ráðgjafarfyr-
irtækisins PricewaterhouseCoop-
ers (PWC) um hagkvæmni samein-
ingarinnar. Í skýrslunni er miðað
við að höfuðstöðvar sameinaðs fyr-
irtækis verði fluttar til Akureyrar.
Skýrslan var kynnt stjórn og
starfsmönnum RARIK í gær.
Helstu niðurstöður hennar eru þær
að rekstrarlegur ávinningur af
sameiningunni er metinn á tæplega
150 milljónir króna árlega. Kostn-
aður við flutninginn norður er met-
inn á tæplega 64 milljónir króna og
talið að þjálfun starfsfólks muni
kosta um 20 milljónir. Á móti kem-
ur sala á eignum að verðmæti 92
milljónir króna svo gert er ráð fyrir
að hagræðingin vegna sameiningar
fyrirtækjanna skili átta milljónum
að auki fyrsta árið. Þá kemur fram í
niðurstöðum skýrslunnar að sam-
eining fyrirtækjanna fellur vel að
þeim breytingum sem verða á
rekstrarumhverfi orkufyrirtækja
vegna fyrirhugaðra breytinga á raf-
orkulöggjöfinni. Loks er talið að
sameiningin fjölgi starfsmönnum á
Akureyri um tuttugu og vegna
margfeldisáhrifa muni það fjölga
íbúum á svæðinu um 90 þegar til
lengri tíma er litið.
Ennþá óvissa
Alls starfa 55 manns í höfuð-
stöðvum RARIK í Reykjavík og er
andstaða við flutningana mikil með-
al starfsmanna. Í viðhorfskönnun
sem gerð var í haust sögðust um
85% hætta ef til flutninganna kæmi.
Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjóri sagði að lokinni kynningunni
að fundurinn hefði verið málefna-
legur, en óvissa og órói hefðu verið í
fyrirtækinu í heilt ár vegna þessa
máls. Hann segir þó ennþá ríkja
óvissu þar sem viðræðunefndirnar
muni nú skoða málið.
„Það er óhætt að segja að skýrsl-
an gefi tilefni til að halda þessari
vinnu áfram,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, um sameininguna. „Að
mínu mati er mikilvægt að til verði
sterkt rafveitufyrirtæki á lands-
byggðinni eins og yrði með því að
sameina þessi fyrirtæki og höf-
uðstöðvarnar yrðu á Akureyri. En
það er ekki þar með sagt að það sé
búið að taka þessa ákvörðun,“ segir
hún.
Hún segir það slæmar fréttir að
svo fáir geti hugsað sér að flytjast
með fyrirtækinu, verði höfuð-
stöðvarnar fluttar norður, sem við-
horfskönnunin gefur til kynna. „Ég
tel þó að ekki sé forsvaranlegt að
hætta þessum viðræðum núna þó að
könnunin gefi þetta í skyn vegna
þess hve rekstrarlegt hagræði er
mikið. Eins er það að starfs-
svæði RARIK er á landsbyggðinni
og því má segja að rök hnígi í þá átt
að fyrirtækið hafi höfuðstöðvar
þar.“
Sameining RARIK og Veitustofnana Akureyrar í athugun
Sparnaður er talinn
150 milljónir á ári
BÚIST er við áframhaldandi
strekkingi víðast hvar um landið í
dag og verða vestlægar og suðlæg-
ar áttir ríkjandi.
Spáð er éljagangi á Vesturlandi,
Vestfjörðum og Norðurlandi en á
Austurlandi verður léttskýjað. Á
Suðurlandi er búist við éljum vest-
ast en annars staðar verður létt-
skýjað. Þá er gert ráð fyrir frosti
um landið allt og er búist við að það
herði þegar líður á vikuna þegar
vindur snýst til norðlægra átta.
Nokkuð harður éljagangur var á
suðvesturhorni landsins í gær en
bjart og fagurt milli élja.
Morgunblaðið/Jim Smart
Éljagangur
áfram
VERKFALLI Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra var aflýst seint í gær-
kvöldi þegar undirritaður var nýr
kjarasamningur milli ríkisins og flug-
umferðarstjóra eftir samfelldan tæp-
lega sólarhrings samningafund hjá
ríkissáttasemjara. Um er að ræða
skammtímasamning sem gildir til 15.
nóvember nk. og fylgir honum sér-
stakt samkomulag um viðræðu-
áætlun þar sem fram kemur að hvor-
ir tveggja aðilarnir eru sammála um
að á samningstímanum verði kann-
aðir til hlítar möguleikar á breyting-
um á samningsréttarlegri stöðu og
kjaratilhögun flugumferðarstjóra.
Markmiðið er að byggja nýjan kjara-
samning á tillögum svokallaðrar rétt-
arstöðunefndar frá júní 1997 og hafa
ráðuneyti sem að málum flugumferð-
arstjóra koma fallist á þessi sameig-
inlegu markmið.
Launabreytingar samkvæmt
samningnum verða í samræmi við
það sem almennt hefur verið samið
um á vinnumarkaðnum, að sögn við-
semjenda. Þá fylgir samningnum
bókun er varðar upptöku nýs flug-
gagnakerfis. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra kvaðst á miðnætti
ánægður með að samningur skyldi
nú vera í höfn þótt skammtímasamn-
ingur væri. „Það er afar mikilvægt að
hafa náð þessu saman og leyst okkur
frá þeim vanda að stöðva flugið,“
sagði ráðherra. Hann kvaðst vona að
truflunin í gær myndi ekki hafa áhrif
til langframa. „Erlend flugfélög hafa
gert athugasemdir og ég vona að það
verði ekki truflun á framhaldinu. Að-
alatriðið er að nú er búið að leysa
deiluna og allt komið í fyrra horf.“
Sturla sagði að koma yrði í ljós
hvernig gengi að ljúka gerð samn-
ings til lengri tíma og sagði mikil-
vægt að ró væri yfir allri þjónustu á
íslenska flugstjórnarsvæðinu, ekki
síst vegna samningsins við Alþjóða-
flugmálastofnunina. „Það var mikill
léttir að sjá fyrir endann á þessu.“
Eftir árangurslítinn samningafund á
mánudag slitnaði upp úr viðræðum
og verkfall hófst klukkan sjö í gær-
morgun. Þórir Einarsson ríkissátta-
semjari boðaði deiluaðila á fund á
miðnætti í fyrrakvöld og lagði þá fyr-
ir grunn að skammtímasamningi sem
gerði ráð fyrir að meðan á þeim
samningi stæði yrði tíminn notaður
til þess að semja um varanlegan
kjarasamning og vinnubrögð tryggð
með sérstakri viðræðuáætlun. „Þess-
ari vinnu er ætlað að fara djúpt ofan í
vinnu réttarstöðunefndar og koma
með nákvæmar tillögur um útfærslu
á því hvernig tillögurnar geta fengið
birtingu í kjarasamningi. Aðferða-
fræðilega lagði ég til þennan skamm-
tímasamning og það var það sem
leysti þennan hnút,“ sagði Þórir í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Báðir aðilar með óbundnar
hendur eftir samningstímann
Loftur Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra flugumferðarstjóra,
sagði að ríkissáttasemjari hefði leyst
deiluna með tillögu að skammtíma-
samningi. „Gildistími samningsins er
til 15. nóvember og þá ætlum við að
reyna að vera búnir að komast að nið-
urstöðu um lausnir til frambúðar sem
byggðar eru á tillögum réttarstöðu-
nefndar. Við höfum fulla trú á að það
verði unnið af heilindum.“ Gunnar
Björnsson, formaður samninga-
nefndar ríkisins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að lausn deilunnar
mætti kannski fyrst og fremst þakka
breyttri afstöðu flugumferðarstjóra.
„Þeir endurmátu í raun stöðuna og
ákváðu að reyna til þrautar, en það
sem kannski var meginatriði hjá
hvorum tveggja aðilunum var að
reyna að finna lausn til frambúðar.“
Að sögn Gunnars eru aðilar sammála
um að náist ekki samkomulag á þess-
um tíma séu hvorir tveggja aðilarnir
með óbundnar hendur. „Það var
kannski það sem réð úrslitum um að
báðir töldu sig geta farið inn í þessa
viðræðuáætlun. Að leita leiða en vera
ekki bundnir fyrirfram.“
Deilan var leyst með
skammtímasamningi
Morgunblaðið/Golli
Samningurinn undirritaður í gærkvöldi. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari er fyrir miðju á myndinni. Honum á
vinstri hönd eru Gunnar Björnsson og Ásta Lára Leósdóttir úr samninganefnd ríkisins og honum á hægri hönd
fulltrúar úr nefnd flugumferðarstjóra, þeir Loftur Jóhannsson, Bjarni K. Stefánsson og Egill Már Markússon.
Verkfalli flugumferðarstjóra aflýst eftir 23 tíma fund seint í gærkvöldi
Veður hamlaði/6
REYKINGAR unglinga eru
fátíðari hér en í flestum öðr-
um Evrópulöndum, að því er
fram kemur í samevrópskri
rannsókn meðal nemenda í tí-
unda bekk á áfengisneyslu,
reykingum og vímuefna-
neyslu.
Þá var hlutfall nemenda
sem neytt höfðu áfengis síð-
astliðna tólf mánuði lægra en
meðaltal allra landanna í
könnuninni eða 67% hér en
83% að meðaltali meðan hlut-
fall þeirra sem segjast hafa
orðið drukknir á sama tímabili
var 4% hærra en meðaltalið.
Þá er sniff algengara á Ís-
landi en í hinum löndunum,
samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar, eða 11% hér en 9%
að meðaltali.
Reykingar
unglinga
fátíðari hér
Samevrópsk
rannsókn
Drykkjuvenjur/28