Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 14.06.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fyrirlesari frá Kirkjugörðum Reykjavíkur Heilsustefna rædd í Lissabon VINNUEFTIRLITríkisins hefur valiðKirkjugarða Reykjavíkur til þess að sækja ráðstefnu Evrópu- ráðs í Lissabon 18. og 19. júní nk. þar sem fjallað verður um stefnu fyrir- tækja í slysa- og heilsu- verndarmálum. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur var spurður hvers vegna það fyrirtæki hefði orðið fyrir valinu? „Valin voru í fyrstu þrjú fyrirtæki sem komu til greina – auk Kirkjugarða Reykjavíkur, Ísaga og Húsavík úr hópi Heilsu- sveitarfélaga. Niðurstaðan varð að ég skyldi fara sem fyrirlesari fyrir Kirkju- garða Reykjavíkur. Þetta var ákveðið á grundvelli þess að við höfum sl. fimm ár unnið sam- kvæmt starfsmannastefnu sem tekur sérstaklega á heilsuverndar- og slysavarnaþættinum hjá starfs- fólki. Við erum í nánu samstarfi við Vinnueftirlit ríkisins, nánara en lög krefjast. Eins höfum við undanfarin ár verið í samstarfi við fyrirtækið Heilsuvernd ehf.“ – Um hvað ætlar þú að tala í fyr- irlestri þínu í Lissabon? „Ég mun tala um samstarfið við hina tvo fyrrnefndu aðila sem byggist á því að sérfræðingar Vinnueftirlitsins halda vélanám- skeið fyrir starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkur og leiðbeina um hvernig unnið skuli með tæki við hirðingu kirkjugarða. Einnig er- um við með tvo starfsmenn kirkju- garðanna, annar er fulltrúi fyrir- tækisins gagnvart Vinnueftirlitinu og hinn er fulltrúi starfsmanna. Þessir tveir menn fylgjast með öll- um áhættuþáttum í vinnuum- hverfinu og gera viðeigandi ráð- stafanir ef eitthvað reynist gagnrýnivert. Samstarfið við Heilsuvernd er fólgið í því að fyr- irtækið sendir til okkar sjúkra- þálfara í sumarbyrjun sem kennir sumarstarfsfólkinu rétta líkams- beitingu. Starfsmenn Heilsu- verndar hafa og séð um að taka á móti fjarvistartilkynningum vegna veikinda og greina ástæður sem liggja að baki. Þessi greiningar- þáttur er síðan notaður til þess að laga það til í vinnuumhverfinu sem gæti valdið fjarvistum vegna veik- inda. Heilsuvernd hefur einnig verið með fræðslu fyrir starfs- menn á fundum þar sem farið er yfir lífstengda áhættuþætti og varnir gegn þeim. Fyrir tilstuðlan Heilsuverndar skapast aðgangur að heilbrigðisstarfsfólki sem veitir ráðgjöf, bæði í veikindum og þess utan. Þá hafa starfsmenn Heilsu- verndar unnið fyrir okkur áhættu- mat og þarfagreiningu í sambandi við heilsuvernd eða heilsueflingu út frá þörfum mismunandi starfs- mannahópa, t.d. garðyrkjumanna, starfsfólki kirkjunnar (Fossvogs- kirkju) og sumarstarfsmanna. Þess má geta að það kemur hjúkr- unarfræðingur tvisvar á ári á vegum Heilsu- verndar og er með við- talstíma hér hjá okkur og ræðir við starfs- menn um heilsufar þeirra, mælir hlutfall blóðfitu og blóðþrýsting og fleira. Þess utan erum við með fræðslu- erindi og umræðufundi fyrir starfsfólk með fagfólki, t.d. prest- um og sálfræðingum og fleiri að- ilum, sem kom þar að. Þá er tekið fyrir það sem mörgum starfs- mönnum reynist erfitt, t.d. að meðhöndla lík, umgangast syrgj- endur og fleira tengt slíkum þátt- um. Á döfinni hjá okkur er næst að hafa samband við fagaðila svo sem Krabbameinsfélagið og fá frá þeim upplýsingar um hvernig best er að aðstoða þá sem verða langveikir í hópi starfsmanna eða ástvina þeirra.“ – Hvers vegna eru Kirkjugarð- ar Reykavíkur með alla þessa þjónustu? „Það er vegna þess að stjórn- endur fyrirtækisins vita að það er mjög hagkvæmt fyrir fyrirtækið að auka heilsuverndina, bæði með fyrirbyggjandi þáttum og með- ferð. Það hefur mikið að segja hvernig líðan starfsmanna er á vinnustað, sé hún góð skilar það sér í jákvæðari efnahag fyrirtæk- isins. Frá rekstrarsjónarmiði skil- ar kostnaður við þessa þætti sér því til baka. Ég geri þó þann fyr- irvara að auðvelt sé að „skjóta yfir markið“, í þessum efnum – mikið er í boði varðandi heilsuvernd og ýmislegt þar innan um sem ekki hefur verið staðfest læknisfræði- lega. Þess vegna er svo brýnt að vera í samstarfi við viðurkennda sérfræðinga á sviði heilsuverndar, til þess að tryggja að réttar áherslur séu valdar.“ – Er þetta í fyrsta skipti sem við eigum fulltrúa á svona ráðstefnu? „Þessi ráðstefna heitir: Lítil, heilsusamleg og samkeppnisfær (fyrirtæki), og verið er að höfða til minni fyrirtækja í löndum Evr- ópusambandsins, en yfir 90% af öllum fyrirtækjum sambandsins eru með innan við tíu starfs- menn. Þetta er í annað skipti sem svona ráð- stefna er haldin og við Íslendingar áttum þátt- takendur á þeirri fyrstu, þá sendi Eimskipafélag Íslands fulltrúa sína sem héldu fyrirlestur. Núna fara sjö fulltrúar frá Íslandi á þessa ráðstefnu Evrópuráðsins sem stendur í tvo daga. Þarna verður komið á framfæri raunhæf- um líkönum sem auka veg góðrar heilsustefnu og hagnað lítilla og millistórra fyrirtækja.“ Þórsteinn Ragnarsson  Þórsteinn Ragnarsson fæddist á Akureyri 25. september 1951. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1971 og varð cand. theol. frá Há- skóla Íslands 1978. Viðskipta- og rekstrarnámi lauk hann 1991 frá HÍ. Hann var vígður 1978 sem prestur að Miklabæ í Skagafirði, árið 1985 varð hann deildarstjóri viðskiptadeildar Rafmagnsveitu Reykjavíkur og var einnig prest- ur Óháða safnaðarins. Árið 1995 var Þórsteinn ráðinn forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur og er það enn. Hann er kvæntur Elsu Guðmundsdóttur bankaritara og eiga þau fjórar dætur. Kostnaður við heilsustefnu skilar sér til baka Jafnvel einhver hundruð milljarða nægja ekki til að stöðva menn í að lemja hausnum við trúarbragðasteininn. LÖGFRÆÐINGUR Landsvirkjun- ar mun á næstunni ræða við eigend- ur jarða og jarðarhluta á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar um ráðstafan- ir og/eða bætur vegna hugsanlegra afleiðinga virkjunarinnar, þ.e. bú- sifja af völdum grunnvatnsbreyt- inga. Þetta kemur fram á fréttavef Kárahnjúkavirkjunar, en Lands- virkjun ræðir málið einnig við við- komandi sveitarstjórnir, m.a. hefur sérstök nefnd, með fulltrúum Fljóts- dælinga, verið sett á laggir vegna mála sem snerta þá sérstaklega. Eigendur alls 149 jarða á Austur- Héraði, í Fljótsdalshreppi, Fella- hreppi og á Norður-Héraði kunna að eiga hér hagsmuna að gæta. Þessar jarðir eru að hluta eða öllu leyti á áhrifasvæði virkjunarinnar, sem í þessu tilviki er 100 metra breitt svæði á láglendi meðfram ánum. Af þeim er 21 jörð í opinberri eigu og 49 jarðir eru skráðar í eyði. Rennsli jökulánna á svæðinu ým- ist eykst eða skerðist vegna Kára- hnjúkavirkjunar sem getur breytt grunnvatnsstöðu á tilteknum svæð- um. Þá skerðist land í Fljótsdal vegna frárennslisskurðar virkjunar- innar. Rætt við eigendur allra jarða á áhrifasvæðinu Kárahnjúkavirkjun STARFSGREINASAMBANDI Ís- lands hefur verið falið að gefa um- sagnir vegna útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga við heimaþjónustu. Um er að ræða verkefni sem Alþýðusam- band Íslands hefur sinnt fyrir aðild- arfélög Starfsgreinasambandsins fram til þessa, en hefur nú hætt að sinna þessu verkefni. Frá þessu er skýrt á vef Starfs- greinasambandsins. Þar kemur einnig fram að eftir ákvörðun Al- þýðusambandsins hafi verið haft samband við Starfsgreinasambandið um að það tæki verkefnið að sér og sinnti því samræmingarhlutverki sem nauðsynlegt væri, í stað þess að hvert og eitt aðildarfélag SGS tæki verkefnið að sér. Umsagnir vegna atvinnuleyfa Starfsgreinasambandið ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.